Morgunblaðið - 05.02.1997, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Breytingar á skólaskipan ræddar á fundi í bæjarstjórn Akureyrar
Hagsmunir heildarinnar vegi
þyngra en einstaklinga
Þúsund
tonnum
landað
LÍFLEGT er við hafnir á Akur-
eyri þessa dagana og mikið um
landanir. „Hér eru um 18-20
skip af öllum stærðum og allar
bryggjur fullar,“ sagði Gunnar
Arason, yfirhafnavörður.
Fimm rækjuskip hafa komið
inn til löndunar frá því um
miðja síðustu viku, með sam-
tals um 1000 tonn af rækju.
Hersir ÁR kom fyrir helgi með
um 135 tonn af rækju, Gissur
ÁR og Hamra-Svanur SH lönd-
uðu um 100 tonnum hvort skip
og Pétur Jónsson RE um 300
tonnum. Þá kom Helga RE til
Akureyrar í fyrrakvöld með
um 350-400 tonn af rækju. í
gær var hafist handa við að
landa úr Helgu RE.
NÝ STEFNA í skólamálum á
Akureyri var til umræðu á fundi
bæjarstjórnar í gær, en í henni
felst að skólaskipun grunnskól-
anna sunnan Glerár verði með
þeim hætti að hverfisskólar taki
við af núverandi safnskólakerfi.
Hverfisskólarnir verði þrír, Odd-
eyrarskóli, Lundarskóli og Brekku-
skóli, sem yrði til við sameiningu
Barnaskóla Akureyrar og Gagn-
fræðaskóla Akureyrar. Skólanefnd
samþykkti tillögu þessa efnis í síð-
ustu viku. Norðan Glerár er hverf-
isskólakerfíð við lýði.
Elsa Friðfinnsdóttir, Framsókn-
arflokki, rakti aðdraganda fyrir-
hugaðra breytinga og sagði að þær
væru gerðar með velferð barnanna
að leiðarljósi. Margvísleg rök
mæltu með hverfisskólum, þ.e. að
börnin séu í sama skólanum frá
1. til 10. bekk. Benti hún m.a. á
ótvíræðan vilja meirihluta foreldra
sem helst kjósa að börn þeirra
sæki skóla í sínu heimahverfi og
þá væri það einnig vilji flestra
kennara utan þeirra sem kenna í
gagnfræðaskólanum.
Fé sparast
Við sameiningu skólanna
tveggja í Brekkuskóla sparaðist
einnig nokkurt fé, en sá þáttur
málsins væri þó léttvægari en hinn
faglegi. Vænti Elsa þess að við
afgreiðslu málsins yrðu hagsmunir
heildarinnar látnir vega þyngra en
hagsmunir einstaklinga sem væru
á móti breytingunum.
Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðu-
bandalagi, kvaðst íylgjandi tillögu
skólanefndar um breytta skólaskip-
an sunnan Glerár. Mælti hún með
því að haldinn yrði sameinginlegur
fundur bæjarstjórnar, skólanefndar
og þeirra er málið varðar í næstu
viku til að fara betur yfir kosti og
gaila. Skoðanir væru skiptar á
ágæti skólakerfanna en ráða þyrfti
málinu til lykta, en aldrei fengist
niðurstaða sem öllum líkaði.
Valgerður Hrólfsdóttir, Sjálf-
stæðisflokki, sagði um tilfinninga-
mál að ræða. Kynning á fyrir-
huguðum breytingum hefði ekki
skilað sér og lægi ekki á að taka
ákvörðun.
Fylgir ákvörðun um
einsetningu
Sigurður J. Sigurðsson, Sjálf-
stæðisflokki, sagði fyrirhugaðar
breytingar til komnar vegna
ákvörðunar um að einsetja barna-
skólann. Það hefði átt á gera með
þeim úrræðum varðandi húsnæðis-
mál sem þá voru kunn. Hefði ekki
þurft að leysa bráðan húsnæðis-
vanda skólans hefðu umræður um
breytta skólaskipan ekki verið til
umræðu í bæjarstjórn nú.
Morgunblaðið/Kristján
Mikill áhugi á samkeppni um skipulag Naustahverfis
Fimm vinnuhópar valdir
SÉRSTÖK forvalsnefnd á vegum
skipulagsnefndar Akureyrarbæjar
hefur valið fimm hópa, fjóra úr
Reykjavík og einn frá Akureyri, til
þátttöku í samkeppni um heildar-
skipulag svonefnds Naustahverfis.
Alls leituðu 32 hópar eftir því að fá
að taka þátt í samkeppninni. Hér
er um gífurlega stórt verkefni að
ræða, enda Naustahverfí framtíðar-
byggingaland bæjarins, suður frá
núverandi byggð að Kjarnaskógi.
í frumáætlunum hefur verið gert
ráð fyrir um 6.000 manna byggð í
Naustahverfi, með um 2.000 íbúðum
og allri þeirri þjónustu sem því fylg-
ir. Gísli Bragi Hjartarson, formaður
skipulagsnefndar, segir að við val á
hópunum, hafí m.a. verið leitast við
að hafa breiddina sem mesta. Þarna
væri blanda af yngri og eldri arki-
tektum en vissulega hafi verið úr
vöndu að ráða.
Átta hundruð
þúsund í verðlaun
Arkitektastofan Grófargili er full-
trúi heimamanna í samkeppninni en
hinir hóparnir eru: ATH vinnustofa,
Gláma/KÍM arkitektar, Kanon arki-
tektar og fimmta hópinn skipa þrjár
teiknistofur, Teiknistofa Guðrúnar
Jónsdóttur, Teiknistofa Knúts Jepp-
esen og Teiknistofa Auðar Sveins-
dóttur. Hver hópur fær 800.000.-
krónur fyrir að skila tiliögu í sam-
keppnina og þá verða veitt 800.000.-
króna verðlaun fyrir bestu tillöguna.
Vinnuhópar hafa um þijá mánuði
til að skila tillögum sínum. í fram-
haldi mun sérstök dómnefnd vega
og meta tillögumar og velja þá bestu.
Fá „óveð-
urskistur“
ALMANNAVARNIR Eyjafjarð-
ar afhentu fulltrúum 9 björg-
unarsveita á svæðinu „óveðurs-
kistur“ til notkunar og varð-
veislu, á fundi Almannavarna-
nefndar nýlega. Kisturnar hafa
að geyma ýmsan búnað sem
geta komið sér vel ef óveður
skellur á.
Á myndinni tekur Ólafur
Pálmi Agnarsson, varaforinað-
ur Björgunarsveitar SVFÍ í
Hrísey, við yfirlitsblaði um inni-
hald „óveðurskistunnar“ úr
Morgunblaðið/Kristján
hendi Björns Jósefs Arnviðar-
sonar sýslumanns á Akureyri.
Við borðið sitja Rögnvaldur
Skíði Friðbjörnsson, bæjar-
sljóri á Dalvík og Jakob Björns
son, bæjarstjóri á Akureyri.
Fjárhagsáætlun Eyjafjarðarsveitar
Endurbætur á
Hrafnagi lsskóla
stærsta verkefnið
FJÁRHAGSÁÆTLUN Eyjafjarð-
arsveitar fyrir árið 1997 hefur ver-
ið afgreidd í sveitarstjórn. Skatt-
tekjur eru áætlaðar rúmar 136
milljónir króna en til reksturs mála-
flokka fara tæpar 109 milljónir
króna, eða um 80% skatttekna. Til
fjárfestinga eru áætlaðar tæpar 22
milljónir króna og um 5,8 milljónir
í vexti og afborgarnir lána.
Pétur Þór Jónasson, sveitarstjóri
Eyjafjarðarsveitar, segist vel sáttur
við þessa fjárhagsáætlun. „Sem
betur fer hefur sveitarstjórn haft
burði til þess að viðhafa ábyrga fjár-
málastjórn. Þá hefur fjárfestinga-
stefnan verið sú að íjárfesta sem
mest fyrir eigið fé og reynt að stilla
lántökum í hóf. Þetta krefst aga
og menn þurfa að standast freist-
ingarnar. Af því leiðir að fjár-
magnskostnaður er með minnsta
móti og til lengri tíma litið getum
við fjárfest fyrir mun meira fé en
annars væri,“ segir Pétur Þór.
Stærstu framkvæmdir ársins
snúa að viðhaldi og endurbótum á
Hrafnagilsskóla og er stefnt að því
að ljúka steypu- og þakviðgerðum
og að mála skólahúsið. Þá verður
hafist handa við nýjan íþróttavöll á
svæðinu. í framhaldi af samþykkt
aðalskipulags verður hafin vinna
við deiliskipulag, m.a. við áfram-
haldandi þéttbýli við Hrafnagil.
Framkvæmdir á
Melgerðismelum styrktar
Loks verður farið í áframhald-
andi endurbætur á félagsheimilun-
um, Laugaborg, Freyvangi og Sól-
garði, í endurbætur á hitalögn við
Hrafnagil og í endurbætur' á fjali-
skilaréttum. Þá hefur sveitarstjórn
samþykkt að styrkja áfram fram-
kvæmdir á Melgerðismelum fyrir
Landsmót hestamanna í ár að upp-
hæð 1,5 milljónir króna.
Þann 1. desember sl. voru íbúar
í sveitinni 934 og fjölgaði um 7 frá
árinu áður. Milli áranna 1994 og ’95
fækkaði íbúum hins vegar um 39.
„Okkur tókst aðeins að laga stöðuna
aftur á síðasta ári. Fólksfækkun í
sveitinni hefur mjög slæm áhrif og
við það snarlækka skatttelcjur án
þess að hægt sé að draga saman í
þjónustu," segir Pétur Þór.
Styrktartónleikar í
Safnaðarheimilinu
TÓNLEIKAR til styrktar Minn-
ingarsjóði Þorgerðar S. Eiríks-
dóttur verða haldnir í kvöld, mið-
vikudagskvöldið 5. febrúar kl.
20.30 í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju.
Efnisskráin er fjölbreytt og
koma bæði nemendur og kennar-
ar fram. Meðal annars verður
flutt „Stúlkan í hamrinum" fyrir
söngrödd, píanó og klarinett og
þættir úr ljóðaflokknum „Mala-
rastúlkan fagra“ eftir Franz
Schubert. Spilað verður á gítar,
harmonikku, fiðlu, selló, slag-
verk, píanó, lágfiðlu og flautu.
Tónleikunum lýkur með atriði frá
alþýðutónlistardeild skólans.
Þorgerður var fædd árið 1954
og lauk burtfararprófi frá Tón-
listarskólanum á Akureyri vorið
1971. Hún þótti efnilegur píanó-
leikari og var nýkomin til Lund-
únaborgar til að hefja fram-
haldsnám þegar hún lést af slys-
förum 2. febrúar 1972. Áð-
standendur hennar, Tónlistarfé-
lag Akureyrar, Tónlistarskólinn
og kennarar hans stofnuðu sjóð-
inn, en markmið hans er að
styrkja efnilega nemendur sem
lokið hafa prófi frá Tónlistar-
skólanum á Akureyri til fram-
haldsnáms.
Nemendur og kennarar skól-
ans efna árlega til tónleika til
ágóða fyrir sjóðinn. Tekjur hans
hafa einkum verið af þessu tón-
leikahaldi og af sölu minningar-
korta, en einnig hefur sjóðurinn
fengið góðar gjafir, stórar og
smáar. Alls hafa rúmlega 40
nemendur skólans notið stykja
úr sjóðnum frá því farið var að
veita úr honum. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis en tekið
er við framlögum í styrktarsjóð-
inn.