Morgunblaðið - 05.02.1997, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997 29
Morgunblaðið/Sverrir
rðið minnihluti flugumferðar um
i) á Keflavíkurflugvelli.
reitt
iðar
Flugmálastjórnar var um fimm
milljónir króna á síðasta ári.
Tekjur íslands af flugvellinum
hafa undanfarin ár verið svipaðar
eða meiri en sem nemur kostnaðin-
um við rekstur flugumferðarþjón-
ustunnar og annarra þeirra verk-
þátta, sem áður eru taldir. í ár eru
útgjöíd Flugmálastjórnar á vellinum
þannig áætluð 263 milljónir króna
en tekjurnar 301 milljón, þar af 275
milljónir af lendingargjöldum. A
meðal annarra tekna eru u.þ.b. fjór-
ar milljónir króna, sem varnarliðið
greiðir fyrir veitta þjónustu við fiug-
umferðarstjórn.
Lítill aukaviðbúnaður
vegna herflugs
Á dögum kalda stríðsins þurfti
að gera meiri kröfur til t.d. snjó-
moksturs á Keflavíkurflugvelli en
nú, vegna þess að gert var ráð fyrir
að orrustuflugvélar vamarliðsins
gætu farið í loftið með tíu mínútna
fyrirvara. Eftir að ástandið í alþjóða-
málum róaðist hefur viðbragðstími
þotnanna verið lengdur til muna.
Að mati viðmælenda Morgunblaðs-
ins er ekki margt í rekstri vallarins
nú miklu dýrara en það þyrfti að
vera ef hann væri eingöngu borgara-
legur alþjóðaflugvöllur.
Guðfínnur Sigurvinsson, skrif-
stofustjóri Flugmálastjómar á
Keflavíkurflugvelli, segir að miðað
við núverandi ástand sé ekki hægt
að gera ráð fyrir að draga mætti
úr kröfum, sem gerðar eru til þjón-
_______ ustu og viðhalds á vellin-
, , um, þótt hann væri ein-
lOUr aT göngu notaður fyrir borg-
einnar aralegt flug, enda séu ör-
autar yggiskröfur, t.d. um lend-
■ .. ingarskilyrði fyrir far-
þegaflugvélar, mjög strangar.
„Ég held að það væri erfitt að
komast af með minna en í dag vegna
öryggisþáttarins, enda er veðrátta
hér erfið,“ segir Guðfinnur. „Þetta
er í góðu horfi eins og er, en ef
farið væri að draga úr, gæti það
verið slæmt.“
Ríkisendurskoðun gagnrýnir að Alþingi skuli ekki samþykkja hafnaáætlanir
R
IKISENDURSKOÐUN
gagnrýnir í nýrri skýrslu
um hafnaframkvæmdir, að
Alþingi skuli ekki hafa
samþykkt hafnaáætlun líkt og lög
mæla fyrir um. Stofnunin telur ein-
sýnt að breyta verði hafnalögum og
mæla fyrir um í þeim að hafnir geti
einungis fengið ríkisstyrk ef þær em
komnar inn í hafnaáætlun.
Ný hafnalög voru samþykkt á Al-
þingi árið 1994, en samkvæmt þeim
fer samgönguráðherra með yfirstjórn
hafnamála. Samkvæmt lögunum á
Hafnamálastofnun ríkisins að gera
hafnaáætlun á tveggja ára fresti um
hafnaframkvæmdir til fjögurra ára.
Leggja á áætlunina fyrir Alþingi í
formi þingsályktunartillögu með
svipuðum hætti og vegaáætlun og
flugmálaáætlun. Hafnaáætlun hefur
aldrei verið samþykkt á Alþingi með
þeim hætti sem lögin gera ráð fyrir.
Við afgreiðslu ijárlaga er hins vegar
lögð fram framkvæmdaáætlun fyrir
hafnir.
Markmið laganna hafa
ekki náðst
Við gerð hafnaáætlunar ber
Hafnamálastofnun að forgangsraða
framkvæmdum og leggja til grund-
vallar mat á þörf fyrir framkvæmdir
í einstökum höfnum, landshlutum og
landinu í heild. Markmiðið er að
stuðla að skipulegri og markvissari
framkvæmdum við hafnagerð.
„Að mati Ríkisendurskoðunar er
langur vegur frá því að markmið
þau sem lágu að baki lagafyrirmæl-
um um hafnaáætlun hafi náðst. Til
þessa hefur hafnaáætlun aðeins leg-
ið fyrir sem þingskjal og
því algerlega skort þann
lögformlega grunn, sem
henni er ætlað að byggja
á, þ.e.a.s. vera skýr og
formleg viljayfirlýsing Al-
þingis um framkvæmdir
og framkvæmdaröð í
hafnamálum. Reynslan
sýnir að oft hefur verið
ráðist í framkvæmdir við
hafnir eða áformum um
framkvæmdir í tiltekinni
höfn verið stórlega breytt
algerlega án tillits til fyrir-
liggjandi tillögu að
hafnaáætlun. Á sama hátt
eru dæmi um að eigendur
hafna hafi fengið lán úr
Hafnabótasjóði, sem er að
fullu í eigu ríkissjóðs, út
á væntanlegan ríkisstyrk
eins og það er orðað, án
þess að viðkomandi fram-
kvæmd hafi verið komin
inn í tillögu að hafnaáætl-
un,“ segir í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar, en bætt
er við að erfitt sé hins
vegar að gagnrýna þetta
þar sem hafnaáætlun hafi
aldrei verið samþykkt á
Alþingi.
Þörf á lagabreytingu
Ríkisendurskoðun telur
ákaflega brýnt að ákvæði
hafnalaga um hafnaáætl-
un verði virt. Óhjákvæmi-
legt sýnist hins vegar að
breyta hafnalögum og
kveða á um að ríkisstyrks
geti þær hafnir einar notið
sem komnar eru í hafnaáætlun. Sama
skilyrði þurfi að setja fyrir því að
hafnir geti fengið lán úr Hafnabóta-
sjóði.
„Við afgreiðslu fjárlaga er fjárveit-
ing í sumum tilvikum færð á milli
framkvæmda innan sömu hafnar, á
milli hafna innan kjördæmis eða á
milli hafna milli kjördæma og á þann
hátt vikið frá áætlun ------------
Hafnamálastofnunar. í
slíkum tilfellum geta for-
sendur fyrir framkvæmd
hafa brostið," segir í
skýrslu Ríkisendurskoðun-
Ekkier
farið eftir
tveggja ára
hafnalögum
Ríkisendurskoðun gerir margvíslegar
athugasemdir við hvernig staðið er að hafna-
framkvæmdum á íslandi. Stofnunin gagn-
rýnir að hafnaáætlanir skuli ekki vera sam-
þykktar á Alþingi þrátt fyrir skýr lagafyrir-
mæli. Markmið laganna um skipulegri og
markvissarr framkvæmdir við hafnagerð
hafi ekki náðst. Egill Ólafsson
skoðaði skýrsluna.
RÍKISENDURSKOÐUN segir að Hafnamálastofnun sé ekki ætíð að fullu Ijóst hvaða
hafnaframkvæmdir hafi verið samþykktar á Alþingi fyrir komandi fjárlagaár.
Ekki víst að
áætlanir upp-
fyili kröfur
Að mati stofnunarinnar skortir
nokkuð á upplýsingastreymi milli
Alþirigis og Hafnamálastofnunar.
„Hafnamálastofnun er ekki ætíð að
fullu ljóst hvaða framkvæmdir hafa
verið samþykktar af þinginu fyrir
viðkomandi fjárlagaár. Eðlilegt er að
Alþingi geri stofnuninni nákvæmari
grein fyrir þeim framkvæmdum, sem
það telur nauðsynlegt að ráðast í.“
Ónákvæmar kostnaðaráætlanir
í skýrslu sinni gagnrýnir Ríkis-
endurskoðun Hafnamálastofnun
fyrir að gera ekki nægilega ná-
kvæmar kostnaðaráætlanir. Ríkis-
-------- endurskoðun skoðaði
nokkrar framkvæmdir og
bar saman kostnaðaráætl-
un við raunverulegan
kostnað. Fyrsta áætlun
gengur út frá því að ná-
kvæmnin sé +/-30%. Af 27 saman-
burðarhæfum framkvæmdum
reyndust 12 umfram þessi skekkju-
mörk. Oft er rannsóknum á bryggju-
stærðum, líkantilraunum og öðrum
athugunum ólokið þegar fram-
kvæmd kemst á hafnaáætlun þannig
að skekkjan getur verið meiri.
Ætlast er til að skekkjumörk í
annarri áætlun séu +/-15-20%. Af
33 framkvæmdum sem Ríkisendur-
skoðun skoðaði reyndust 17 umfram
þessi skekkjumörk. „Hin umtals-
verðu frávik, sem eru á miili
kostnaðaráætlana og raunverulegs
kostnaðar í mörgum verkum, vekja
upp spurningar um hvort grundvöll-
ur kostnaðaráætlana -------------
Hafnamálastofnunar upp-
fylli að öllu leyti þær kröf-
ur sem gerðar eru til slíkra
áætlana við opinberar ___________
framkvæmdir. Telja verð-
ur að kostnaðaráætlanirnar séu það
gagn, sem ákvörðun Alþingis um
fjárframlög til hafnargerðar grund-
vallist ekki hvað síst á. Því er mikil-
vægt að þær séu eins nákvæmar og
kostur er.“
í þeim tilvikum sem raunkostnað-
ur framkvæmda er lægri en kostnað-
aráætlun fjárlaga hefur afgangurinn
verið eignfærður á viðskiptareikning
viðkomandi hafnar hjá Hafnamála-
stofnun. Ef raunkostnaður fram-
kvæmda fer aftur á móti fram úr
kostnaðaráætlun fjárlaga hefur sú
fjárhæð verið skuldfærð á viðskipta-
reikning hafnar hjá Hafnamála-
stofnun og síðar hefur verið sótt um
fjárveitingu á fjárlögum fyrir ríkis-
hlutanum. Hann hefur þannig að
fullu verið fjármagnaður úr ríkis-
sjóði.
Að mati Ríkisendurskoðunar eiga
eigendur hafna ekki rétt á þeim fjár-
munum sem eftir standa þegar kostn-
aður við hafnarframkvæmd er lægri
en gert var ráð fyrir af fjárveitinga-
valdinu. Skuidbinding ríkisins í tiltek-
inni hafnarframkvæmd eigi að fara
eftir styrkhlutfalli, sem ákvarðað
var, óháð því hver raunkostnaður
framkvæmdar verður.
Verklýsing ekki alltaf rétt
Samkvæmt úrtaki Ríkisendur-
skoðunar var ráðist í 19 framkvæmd-
ir á árunum 1992-1995, sem ekki
voru á hafnaáætlun, en nutu engu
að síður styrks úr ríkissjóði. í sumum
tilvikum voru þær meginreglur
hafnalaga ekki virtar að fram-
kvæmdir, sem njóti ríkisstyrks skuli
unnar undir tæknilegu og fjárhags-
legu eftirliti Hafnamálastofnunar,
styrkhæfni framkvæmda skuli
ákveðin áður en þær hefjast og að
jafnaði unnar samkvæmt tilboðum á
grundvelli útboðs.
Ríkisendurskoðun segir í skýrsl-
unni að verktaki eigi að jafnaði að
geta treyst því að upplýsingar í verk-
lýsingum og útboðsgögn-
um séu réttar. Dæmi séu
um að verktakar hafi horf-
ið frá óloknu verki við
hafnarframkvæmdir þar
sem þeir töldu að verklýs-
ingum og útboðsgögnuifs
hafi verið svo ábótavant
að forsendur væru ekki
lengur fyrir hendi að vinna
verkið samkvæmt þeim.
Athugun Ríkisendurskoð-
unar bendir til þess að
umræddir verktakar hafi
haft sitthvað til síns máls.
í skýrslunni kemur fram
sú röksemd Hafnamála-
stofnunar að rannsóknir
séu dýrar og stofnunin
reyni að halda þeim í lág-
marki sérstaklega þar sem
framkvæmdir eru smáar.
Ríkisendurskoðun fellst á
þessa röksemd, en telur að
það þurfí að koma fram í
útboðsgögnum að óvissa
ríki vegna lítilla rann-
sókna.
Ríkisendurskoðun vek-
ur einnig athygli á því að
ekki sé krafist tafabóta
þó að framkvæmdir við
hafnir tefjist fram yfir
áætlaðan verktíma. Þetta
er gert m.a. vegna þess
að á móti skuldbindur
verktaki sig til að gera
ekki kröfu á Hafnamála-
stofnun vegna galla á út-
boðsgögnum. Ríkisendur-
skoðun telur mjög brýnt
að báðir aðilar geri grein
fyrir kröfum sínum með
formlegum hætti. Aðeins með þeim
hætti sé hægt að fá upplýsingar um
raunkostnað við verkið. Jafnframt
verði minni hætta á því en ella að
aðilar fái ekki réttmætar kröfur sín-
ar uppfylltar.
Ríkisendurskoðun telur að tækni-
legt eftirlit Hafnamálastofnunar sé
almennt í góðu lagi, en telur að nokk-
-------- urs tvíverknaðar gæti í eft-
irliti þar sem eftirlitinu er
skipt milli tæknilegs eftir-
lits og fjárhagslegs eftir-
lits. Nægilegt sé að tækni-
legur eftirlitsmaður sinni
Skuldbinding-
ar ríkissjjóðs
689 milljónir
báðum þessum þáttum.
I árslok 1995 var búið að skuld-
binda ríkissjóðs vegna þegar hafinna
og óhafinna hafnaframkvæmda um
689,4 milljónir króna. Það svarar til
þess að árlegt framlag ríkisins til
hafnaframkvæmda sé bundið í óupp-
gerðum framkvæmdum.