Morgunblaðið - 05.02.1997, Qupperneq 42
42 MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
OH-OH-TÍM/
KOM/NN r/L A&‘J
ZAT/ÍSH/S/Oa
T/L S&l/eAR.
0
Dýraglens
'*»n
'Xfr
(jTAÚ-rm MeeB&téóseAirée
\L/£&>/ Í_HmtCÓl fífJUAA.'
Grettir
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Kjör námsmanna
með börn á framfæri
Frá Gunnari Birgissyni:
ÉG LAS fyrir nokkru í Morgunblað-
inu grein eftir Dag Eggertsson há-
skólanema þar sem hann kveinkar
sér út af aðfinnslum mínum um
vinnubrögð hans í
skýrslu um LÍN
sem hann er höf-
undur að og átti
að bera yfirbragð
hreinna vísinda.
Þessar athuga-
semdir mínar voru
rökstuddar og ég
ætla ekki að gera
þær frekar að
umræðuefni. A
hinn bóginn vil ég
af gefnu tilefni upplýsa um þá fyrir-
greiðslu sem námsmenn með börn
á framfæri fá hjá LÍN.
Eitt af megineinkennum námsað-
stoðar frá Lánasjóði íslenskra
námsmanna er hversu mikið tillit
er tekið til fjölskylduaðstæðna.
Samt er það eitt aðaládeilumál for-
ystumanna íslenskra námsmanna-
samtaka nú á þessu hausti eins og
stundum áður að reglur LÍN séu
með þeim hætti að fólk með börn
á framfæri „hrekist frá námi“.
Þetta er óskiljanlegur áróður og
afar ósanngjam að mínu mati, ekki
síst vegna þess mikla tillits sem LIN
tekur til bamafjölskyldna og þeirra
kjara sem þær njóta hjá sjóðnum
og samfélaginu í heild.
Hver eru kjör
barnafólks í námi?
Þegar að er gáð er námsmönnum
með börn á framfæri tryggðar eftir-
farandi lágmarks ráðstöfunartekjur
á mánuði meðan á námi stendur (af
þeim upphæðum dragast ekki
skattar): Samtals er um fullt náms-
lán, barnabætur og aðrar félagsleg-
ar bætur að ræða (ekki þó húsa-
leigubætur):
Einstættfor. 1 barn 104.182
Einstætt for. 2 börn 159.789
Einstætt for.3börn 214.768
Einstætt for. 4 böm 267.230
Hjón m. 1 barn* 113.426
Hjónm. 2börn 144.062
Hjónm. 3böm 174.698
Hjón m. 4 börn 207.849
*Hér er átt við ráðstöfunarfé sem
fjölskylda getur fengið að lágmarki
á mánuði ef maki námsmanns er
tekjulítill eða tekjulaus, t.d ef stund-
að er nám í útlöndum.
Rétt er að árétta að hér er um
lágmarkstryggingu á ráðstöfunarfé
að ræða. Ef námsmaður eða maki
hafa tekjur er ráðstöfunarfé þeirra
á mánuði meira en sem framan-
greindum upphæðum nemur.
Það læðist að manni sá granur
að þeir menn sem halda fram
„hrakningum" þessa fólks viti held-
ur lítið u_m kjör vinnandi manna í
landinu. í því sambandi væri ekki
úr vegi að spyrja hinn almenna
borgara sem aflar sér tekna á
vinnumarkaði og þarf að borga sína
skatta hvort hann telji að með fyrr-
greindri lágmarksaðstoð sé verið
að hrekja fólk með börn á fram-
færi frá námi?
Skilar fólk með börn á
framfæri lélegum
námsárangri?
Því hefur verið haldið fram að
námsmenn með börn á framfæri
geti síður staðist reglur um skil á
árangri í námi og þannig sé þeim
hættara við að fá skert námslán.
Lánasjóður íslenskra námsmanna
býr yfir viðamiklum upplýsingum
um árangursskil þeirra sem sækja
um lán hjá sjóðnum. Þar kemur
fram að þetta era staðlausir stafir.
Fullyrða má skv. þessum gögnum
að afköst námsmanna með börn á
framfæri era ekki síðri en einstakl-
inga. Reglur um að menn skili full-
um afköstum í námi til þess að
þeir fái 100% lán eru því þessu fólki
enginn sérstakur fjötur um fót.
GUNNAR BIRGISSON,
formaður stjórnar LÍN.
Smáfólk
U)HATS THIS7THI5
I5N'T A BASKETBALL
PLAYER'5 AUT06RAPH!
I PON T DO FAKE
AUT06RAPHS..THAT'S
MY DAP'S NAME...
HE'S A BARBER..
A FAMOUS
BARBER?
TELL HIM TO
AUT06RAPH A
BARBER POLE í
WEC0ULD SELLIT!
Hvað er þetta? Þetta er ekki
áritun körfuboltaleikmanns!
] íg skrifa ekki falsaðar áritan-
ir.. þetta er nafnið hans pabba
míns ... hann er rakari ...
Frægur rakari?
Segðu honum að árita
rakhníf! Við gætum selt
hann!
Mótmæli virðingar-
leysi ráðamanna fyrir
landi og þjóð
Frá Hrafnhildi Guðmundsdóttur:
ER HÆGT að ganga öllu lengra í
að óvirða land sitt og þjóð, en þeg-
ar gefinn er út glansbæklingur fyr-
ir erlenda athafnamenn, þar sem
okkur er lýst af embættismönnum
landsins, sem menntuðu ódýra
vinnuafli í verksmiðjum erlendra
stóriðjuhölda?
Ekki er náttúru landsins hlíft í
þessum bæklingi frekar en fólkinu
sem þetta land byggir. Stóriðjuhöld-
um er boðið að velja sér landspildu,
að geðþótta, undir mengandi starf-
semi sína og til þeirra verða gerðar
lágmarkskröfur varðandi mengun á
umhverfi, skiptir ekki máli þótt
spildan sem valin verður, sé í ná-
lægð vatnsbóla byggða og mat-
væla- og mjólkurframleiðslu fyrir
stór-Reykj avíkursvæðið.
Að börnum nútíðar og framtíðar
sé gert að teyga mjólk sem fram-
leidd er við hlið mengandi stóriðju
getur ekki verið ákvörðun ábyrgra
aðila og stjómvöld, sem gera bækl-
ing fyrir almannafé, með niðrandi
umsögn um land og þjóð, til kynn-
ingar erlendis, það er slík lágkúra
að vart verður trúað.
HRAFNHILDUR
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Markarflöt 37, Garðabæ.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Rcykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, iþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.1S / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
3
<3
1
€
c
í
í|
I
i
(
(
(
(
i
<
i
i
i
i
i
I