Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNINGAR
t
Eiginmaður minn,
séra GUÐMUNDUR SVEINSSON,
fyrrverandi skólameistari,
Flúðaseli 30,
Reykjavík,
lést 16. febrúar síðastliðinn.
Guðlaug Einarsdóttir,
dætur og fjölskyldur þeirra.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
HAUKUR GUÐJÓNSSON,
Bláhömrum 2,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum 13. febrúar.
Útförin ferfram frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 19. febrúar kl. 13.30.
Sigríður Guðjónsdóttir,
Guðjón Ómar Hauksson, Guðný Jónsdóttir,
Ragnheiður Hauksdóttir, Brynjólfur Sigurbjörnsson,
Sveinn Hauksson, Sigríður V. Magnúsdóttir,
Guðríður Svandís Hauksdóttir, Ómar Einarsson,
Hrafnhildur Hauksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
VALGERÐAR ÓLAFÍU ÞÓRARINSDÓTTUR,
Eins þökkum við fyrir góða umönnun starfsfólksins á
Elliheimilinu Grund.
Ingibjörg Gunnþórsdóttir,
Kjartan Gunnþórsson, Móeiður Sigurðardóttir,
Þórunn Gunnþórsdóttir, Sigurjón Þorbergsson,
Már Gunnþórsson, Kristbjörg Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN Þ. SIGURJÓNSSON,
Hrafnistu í Hafnarfirði,
áður til heimilis að Naustahlein 24,
Garðabæ,
er lést 11. febrúar, verður jarösunginn
frá Garðakirkju, Garðabæ, í dag, þriðju-
daginn 18. febrúar, kl. 13.30.
Sævar Gestur Jónsson, Anna G. Sigurbjörnsdóttir,
Helga Jónsdóttir,
Sigvaldi Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns
BENÓNÝS ELÍSSONAR.
Fyri/ hönd fjölskyldunnar,
Þóra Eggertsdóttir.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og bróðir,
dr. BJÖRN MAGNÚSSON,
fyrrv. prófessor,
Bergstaðastræti 56,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
dag, þriðjudaginn 18. febrúar, kl. 13.30.
Dóróthea Björnsdóttir,
Jón K. Björnsson,
Ingi R.B. Björnsson,
Jóhann E. Björnsson,
Björn Björnsson,
Ingibjörg Björnsdóttir,
Oddur B. Björnsson,
Valgerður Kristjánsdóttir,
barnabörn og bai
Birgir Ólafsson,
Margrét Dannheim,
Jóna A. Sæmundsdóttir,
Inger Bjarkan Ragnarsdóttir,
Svanhiidur Sigurðardóttir,
Ólafur H. Óskarsson,
Ásta Magnúsdóttir,
Ragnheiður I. Magnúsdóttir,
BENEDIKT
SIGFÚSSON
+ Benedikt Sigfússon, bóndi í
Beinárgerði í Vallahreppi á
Fljótsdalshéraði, fæddist á
Skjögrastöðum í Skógum
(Vallahreppi) 18. ágúst 1920.
Hann lést á Landspítalanum 6.
febrúar síðastliðinn og fór út-
för hans fram frá Egilsstaða-
'kirkju 15. febrúar.
„Á efsta degi verður ekki spurt
að því hvað við höfum lesið, heldur
hvað við höfum gert.“ (Thomas á
Kempis.)
Það er alltaf sárt að kveðja, en
sárast er að kveðja hina látnu, því
að vonin um að hittast að nýju héma
megin grafar er ekki lengur fyrir
hendi. Eg hafði oft kvatt þig, frændi
minn, en ekki óraði mig fyrir því
eitt óveðurskvöld að ég væri að
kveðja þig í síðasta sinn í lifanda lífí,
jafn hress og þú virtist vera, og mín-
ar áhyggjur beindust fyrst og fremst
að því hvort mér gæfíst færi á að
hitta þig aftur áður en þú héldir
austur. Þú lást þá á Landspítalanum
og varst að jafna þig eftir áfall, en
nokkrum dögum seinna kom annað
áfall sem reyndist þér ofviða og fær-
ið gafst aldrei.
Það er margs að minnast, en það
sem stendur efst í minningunni eru
þau mörgu skipti sem ég sat með
þér í eldhúsinu í Beinárgerði og ræddi
um flestalla þá hluti sem mér lágu
á hjarta í það og það skiptið. Skáld-
skap, framtíðaráform, mannleg sam-
skipti og samskiptaleysi, eða þá
stjómmál; það skipti ekki megin-
máli, og þú hafðir alltaf ákveðnar
skoðanir á málunum, sem þú settir
fram á þinn hægláta og yfírvegaða
hátt. Og ég sat sem lærlingur við
fótskör meistara síns og drakk í mig
með kaffínu þá visku sem aðeins
reynslan getur kennt mönnum á
langri ævi. Og hvort sem ég var
sammála skoðunum þínum eða ekki,
þá gat ég ekki annað en viðurkennt
að þú hefðir töluvert til þíns máls.
Nú er endir bundinn á þær stundir,
en eftir standa heilræði þín, og öll
þau hvatningarorð sem þú áttir
handa ungum óöruggum manni í
misjöfnu veðurfari mannlífsins. Von-
andi tekst mér að standa undir þeirri
einkunn sem þú gafst mér.
Vertu sæll, frændi minn, og þakka
þér fyrir öll hlýlegu og fallegu orðin
sem þú áttir handa mér og Qölskyldu
minni og hversu mjög þér var um-
hugað um velferð okkar allra.
Helga, börn, barnabörn, og aðrir
ættingjar. Ég færi ykkur mínar inni-
legustu samúðarkveðjur á þessari
sorgarstundu, ekki síst Siggu
frænku, sem stendur nú ein eftir af
systkinunum. Megi Guð sefa sorg
ykkar og gefa ykkur styrk.
Jóhann R. Kristjánsson.
Það er aðeins tvennt sem við vitum
í þessu lífí fyrir víst. Hið fyrsta er
það að við fæddumst, hið seinna það
að við munum deyja. Og nú er svo
komið að frændi minn Benni í Beinár-
gerði er dáinn.
Frá því að ég man eftir mér var
alltaf gaman að hitta Benna, hann
heilsaði alltaf með því að segja „sæll
frændi“, og tók um leið þéttingsfast
í höndina á manni. Það var alltaf
gaman bæði að tala við hann og
hlusta á, því hann hafði lag á því
að segja frá og alltaf dáðist ég að
því hvernig hann fór að því að halda
ræðu óundirbúinn og samt aldrei
fara út af laginu. Og þegar maður
var yngri gaf hann sér alltaf tíma
til að tala við mann, ekki eins og
krakka, heldur sem einstakling.
Síðasta samtal mitt við hann var
þegar ég og foreldrar mínir fóru af
heimsækja hann á Landspítalann og
þá var hann hinn hressasti miðað við
aðstæður. Við ræddum um framtíð-
aráform mín og hann gaf mér nokk-
ur góð ráð þar að lútandi, meðal
annars um hvað skipti máli þegar í
sambúð væri komið. Einnig barst
talið að skotveiðum, en þar áttum
við sameiginlegt áhugamál, ég ungur
maður að feta mín fyrstu spor í þeim
efnum, en hann margreyndur veiði-
maður, og ánægjuna yfír að eiga
góðan riffíl gátum við báðir skilið.
Nokkrum dögum síðar var hann
allur. Ég vil þakka það að fá þetta
síðasta tækifæri til að njóta þess sem
hann gaf, sem lífsreyndur maður sem
marga hildina hefur háð í lífsbarátt-
unni. Ég tel það forréttindi að hafa
fengið að kynnast manni sem honum.
Helgu, bömum þeirra, barnabörn-
um og öðrum ættingjum votta ég
mína dýpstu samúð.
Hjálmar Elíesersson.
ERFI
DRYKKJLR
Látið okkur annast
erfidrykkjuna.
Fyrstaflokks þjónusta
og veitingar.
Rúmgóð og þœgileg
salarkynni.
Upplýsingar í síina 552-9900
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
vegna andláts og útfarar
LILJU SIGURÐARDÓTTUR,
Brávallagötu 22.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hvíta-
bandsins fyrir góða umönnun á liðnum
árum.
Systkini hinnar látnu
og aðrir aðstandendur.
t
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir
og amma,
HRAFNHILDUR SVEINSDÓTTIR,
andaðist í Landspítalanum
1. febrúar sl.
Útför hennar hefur farið fram.
Þökkum vinum og ættingjum auðsýnda
samúð. Sérstakar þakkir til starfsfólks
kvennadeildar Landspítalans og Heima-
hlynningar.
Árni Guðmannsson og fjölskylda.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
JÓNASAR MAGNÚSSONAR,
Engjavegi 16,
Selfossi.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
lyflæknisdeildar St. Jósefsspítalans f
Hafnarfirði og starfsfólki Umferðarráðs.
Aðalbjörg Katrfn Haraldsdóttir,
Sesselja Jónasdóttir,
Jóna Bára Jónasdóttir, Ásbjörn Hartmannsson,
og barnabörn.
t
Þökkum innilega öllum þeim, sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við and-
lát og útför eiginmanns mfns, föður,
tengdaföður og afa,
HJARTAR ÞÓRÐARSONAR,
Seljahlíð,
áðurtil heimilis að Garðastræti 34.
Áslaug Gunnarsdóttir,
Hrafnhildur Hjartardóttir, Pétur Ástbjartsson,
Hjörtur Pétursson,
Magnea Ásta Pétursdóttir.
t
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
SIGURBJARGAR ÞÓRARINSDÓTTUR
(Ebbýjar),
Háagerði 31,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heima-
hlynningar krabbameinssjúkra.
Ragnar Bjarnason,
Dfana Ragnars, Þorsteinn Kárason,
Sigurbjörg Laufey Þorsteinsdóttir, Eyþór Guðmundsson,
Ragna Huldrún Þorsteinsdóttir, Andri Lindbergsson
og barnabarnabörn.