Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 45 sína, gullsmíði: „Gullsmið má nota til hvers sem er“. Um Eggert Theodór Jónasson bæjarfógeta, sem Sigmundi liggur svo kalt orð til sagði Jón biskup Helgason: „ ... einstakt prúðmenni og skyldurækinn með afbrigðum, en jafnframt gæflyndismaður hinn mesti, sem tók á málum með mann- úð og mildi, enda ávann hann sér fljótt óskoraða hylli og virðingu bæjarmanna." Um Pál Eyjólfsson gullsmið sagði Jón biskup: „að mörgu merkilegur karl og greindur vel.“ Um Jón rit- ara má segja líkt og sagt var um Brján konung: „Féll, en hélt velli“. Steingrímur Thorsteinsson segir um hann látinn. „Mikill var „triumf“ klikkunnar þegar Jón ritari dó, og hef ég ekki séð hrafna hlakka meira yfir hestskrokk en þeir fögnuðu yfir láti hans. - Sannur mannskaði var að Jóni.“ Knud Zimsen borgarstjóri segir að Jón landritari hafi staðið í fylk- ingarbijósti þess hóps, sem drepa vildi á dreif mókinu í bæjarmálum. „Zimsen þakkar Jóni og baráttu hans fyrir framförum að hreyfing komst á hafnarmál. Jón vildi að byggð yrði „hafskipabryggja í Reykjavíkurhöfn“. Indriði Einarsson var jafnan kvikur á fæti og lipur í hreyfmgum. Hann kostaði kapps um að varð- veita fjör og frískleik. Halda sér „unglegum". Eitt sinn kom hann á ferðalagi sínu um Borgarfjörð á læknisheimilið að Kleppjárnsreykj- um. Jón Bjarnason frá Steinnesi var þá héraðslæknir í Borgarfirði. Kona hans, Anna Þorgrímsdóttir, tengda- móðir mín sagði mér söguna um heimsókn Indriða. Hún var frænka konu hans. Anna vissi að Indriða þætti vænt um að heyra „kompli- ment“ um unglegt útlit. Hún segir: „Mikið haldið þér yður vel revisor. Þér eruð eins og ungur maður. Engin hrukka sjáanleg." „Ég skal trúa yður fyrir leyndarmáli, mín fagra frú og frænka konunnar minnar. Ég nota alltaf Sítrónu Cold creme á hveijum morgni.“ Því má bæta við að ég minnist Indriða frá árlegum skemmtunum Leikfélags Reykajvíkur í litla salnum í Iðnó. Þar var hann fremstur allra í fjör- legum dansi, sem dunaði þá. Hann unni leikhúsinu og lifði í draum- heimi leiklistar. Svili hans, séra Jens Pálsson prófastur í Görðum hafði líka klappað honum á öxlina í leikhúsi í Kaupmannahöfn er Indr- iði sat töfrum sleginn af hrifningu: „Þú getur einhvemtíma búið til leik- rit, sem er eins fallegt og þetta.“ Höfundur er þulur. Amen segir og upp á það önd mín glaðvær á hveijum stað. (22. s) Amen þess óskum vér. (26. s) Og ég þar upp á, aum mannkind, amen af hjarta segi. (25. s) Amen, Amen um eilíf ár. (50. s) Svona leit þá séra Hallgrímur á sálmana. Það er því meira en lítið dularfullt, svo að ekki sé meira sagt, að ekki skuli hægt að verða við augljósum tilgangi og vilja séra Hallgríms og flytja sálmana með þeim hætti, sem er í samræmi við innihald þeirra. Sálmarnir eru fyrst og fremst bænir og þannig lesnir og skildir af þjóðinni. Þá á því að flytja á þann hátt sem hæfir því efni. Sálmarnir eru það sem þeir segjast sjálfir vera: Hjartnæmar bænir. Þeim á því að ljúka nú sem ævinlega; með amen. Að lokum: Hvernig hafa útgef- endurnir litið á þetta atriði? Ég hefi útgáfurnar frá 1880 og 1957 víð höndina. í báðum er prent- að amen á eftir hveijum sálmi. Þetta gera útgefendurnir, bæði vegna þess sem séra Hallgrímur segir og svo þess, að þeir vita að þannig les þjóðin. Hún er að lesa sér til hugarhægðar og sáluhjálpar. Það er þetta sem lesmáti frú Vigdís- ar truflar. Höfundur er hagfræðingur. Tvímenningur á Bridshátíð Einvígi milli Sævars og Sverris, Sontags og Feldmans BRIPS Ilótcl Loftlciðir BRIDSHÁTÍÐ HIN 16. í RÖÐINNI 15.-17. febrúar. ALAN Sontag og Mark Feldman sigruðu í tvímenningskeppni Brids- hátíðar, sem lauk sl. laugardag. Þeir háðu einvígi í lokasetunum við Sverri Ármannsson og Sævar Þor- björnsson en önnur pör áttu ekki möguleika á efsta sætinu. Sontag og Feldman fengu 59,2% skor en Sverrir og Ármann 58,9. Sontag og Feldman fóru mikinn í fyrstu umferðunum og höfðu skor- að tæp 600 stig yfir meðalskor og voru með 62,8% skor eftir 9 umferð- ir. Frakkarnir Henri Szwarc og Philippe Cronier voru þá í öðru sæti með 61,5% en síðan komu 6 íslenzk pör. Skúli Skúlason og Jón- as Róbertsson voru þriðju, Haukur Ingason og Jón Þorvarðarson fjórðu og Guðmundur Páll Arnarson og Þorlákur Jónsson fimmtu. Sverrir og Sævar voru í 10. sæti með 57,%. Sterk hindrun Sævar og Sverrir mættu Szwarc og Cronier snemma í mótinu og íslendingarnir fengu topp í þessu spili eftir velheppnaðar sagnir Sæv- ars: Norður gefur, enginn á hættu Vestur ♦ 8732 ¥ÁK43 ♦ G2 ♦ 964 Norður ♦ ÁKD654 ¥ 10952 ♦ _ ♦ 1052 Austur ♦ G9 ¥D ♦ D874 ♦ ÁKDG73 Suður ♦ 10 ¥ G876 ♦ ÁK109653 ♦ 8 Sævar opnaði á 3 spöðum í norð- ur og Cronier sagði eðlilega 4 lauf. Sverrir passaði og Szwarc lyfti í 5 lauf. Sævar fann lykt af þessum sögnum og doblaði og vörnin fékk síðan tvo tígulslagi, eina tígul- trompun og tvo spaðaslagi. 500 til NS og toppur. Eftir 17 umferðir höfðu Sævar og Sverrir tekið forystuna og Sontag og Feldman voru í öðru sæti. Frönsku Óympíumeistararnir voru svo í 3. og 4. sæti. Selfyssing- arnir Kristján Már Gunnarsson og Helgi G. Helgason voru fimmtu og Jens Jensson og Ármann J. Lárus- son, faðir Sverris, í sjötta sæti. Síðustu umferðirnar voru hreint einvígi milli tveggja efstu paranna. Sverrir og Sævar voru með 30 stiga forskot þegar sezt var að borði í síðustu umferðinni. Þeirra andstæð- ingar voru Páll Valdimarsson og Ragnar Magnússon, þekktir harð- jaxlar í tvímenningi, en Sontag of Feldman spiluðu gegn ísak Emi Sigurðssyni og Þresti Ingimarssyni. Pörin í baráttunni sátu bæði NS og byijuðu á að segja og vinna 3 grönd sem gaf ágæta skor. í öðru spilinu fengu Sontag og Feldman að spila 3 tígla og gáfu út 100 meðan andstæðingarnir gátu unnið 2 hjörtu og fengið 110. Þetta var því gott spil hjá Bandaríkjamönnun- um en Páll og Ragnar fóru í 3 hjörtu sem töpuðust svo Sverrir og Sævar fengu töluna. í þriðja spilinu fóru Sverrir og Sævar í 3 grönd, eins og flest pörin í salnum. Spilið fór illa og endaði að lokum 2 niður. Þeir Sontag og Feldman náðu hins vegar að stoppa í 1 grandi sem vannst slétt. Úrslitaspil Þetta var svo úrslitaspilið: Vestur, NS á hættu. JHorgunblaðið/Amór Þeir háðu einvígi um efsta sætið í tvimenningnum. Á efri myndinni eru sigurvegararnir Alan Sontag og Mark Feldman en okkar menn Sævar Þorbjömsson og Sverrir Ármannsson á neðri myndinni. Norður ♦ D10762 ¥Á ♦ D95 ♦ Á875 Vestur Austur ♦ K3 ♦ 85 ¥ DG109864 ¥ 752 ♦ Á7 ♦ KG6432 ♦ 64 ♦ KD Suður ♦ ÁG94 ¥ K3 ♦ 108 ♦ G10932 Páll opnaði á 1 hjarta með vestur- spilin, eins og flestir aðrir, og þeir Ragnar enduðu í 4 hjörtum eftir að Sævar og Sverrir höfðu barist með spaðalitinn. NS fengu síðan sína 4 augljósu slagi og skrifuðu 50 í sinn dálk, og það var raunar algengasta niðurstaðan í salnum. Við hitt borðið opnaði Þröstur hins vegar á 4 hjörtum með vestur- spilin. Sontag í norður doblaði til úttektar og Feldman í suður breytti í 4 spaða. Þeir voru passaðir til ísaks og með passi hefði hann tryggt sér töluna, því 4 spaðar fara a.m.k. 1 niður. En ísak bjóst ekki við svona mörgum vamarslögum á hendi Þrastar og fórnaði því í 5 hjörtu. Þau dobluðu Ameríkanarnir, uppskára 300, topp í spilinu og sig- ur i mótinu. Sontag var meðal fyrstu boðs- gesta á fyrstu Bridshátíðinni 1982 og sigraði þá með félaga sínum Peter Weichsel. Veitt vora peningaverðlaun fyrir 15 efstu sætin. 3.400 dalir fyrir fyrsta sætið, 2.400 fyrir annað, 1.600 fyrir þriðja, 1.200 fyrir fjórða sæti. Þá stiglækkandi og niður í 100 dali fyrir 13.-15. sætið sam- tals 11.600 dalir eða um 800 þús- und krónur. Lokastaðan í tvímenningnum varð þessi: AlanSontag-MarkFeldman 1.104 SverrirÁrmannss. - SævarÞorbjömss. 1.061 Alain Levy - Christian Mari 7 62 Henri Szwarc - Philippe Cronier 760 Lis McGowan - Ken Baxter 701 Stefán Stefáns. - Hróðmar Sigurbjömss. 574 Kristján M. Gunnarss. - Helgi G. Helgas. 552 Jónas P. Erlingss. - Steinar Jónsson 550 Mapús Mapúss. - Sigurður Vilhjálmss. 511 EstherJakobsd. - Valgerður Kristjónsd. 505 Hjördís Eyþórsdóttir - Curtis Cheek 484 MunawarSawirudin-DadanWaradia 481 ÓlafurLárusson-HermannLárusson 481 GaiyAthelstan-TomSmith 476 SantjePenelewan-FrankyKarwur 430 Keppnisstjórar voru Jakob Krist- insson, Sveinn Rúnar Eiríksson og Stefán Jóhannsson. Reiknimeistar- ar Steingrímur G. Kristjánsson og Sveinn Rúnar. Elín Bjarnadóttir var mótsstjóri. Arnór Ragnarsson Guðm. Sv. Hermannsson STOFriATíIR - EinSTAKLinGAR Ávallt á útsölu mikið úrval af bútasaumsefnum frá 296 kr. 09 fataefni frá 150 kr. m. VIRKA Mörkinni 3, sími 568 7477 Laugard. kl. 10-14 til 1. júní. jSgSTff Opið mánud.-föstud. kl. 10-18. MICRON 1 TÖLVUR fyrir kröfuharða Tölvu-Pósturinn HámnrksgæS Lágmarksverð GLÆSIBÆ, ÁLFHEIMUM, SÍMI 533 4600, FAX: 533 4601 FERMINGARTILBOÐ Ný]a myndastofan Laugavegi 18, sími 551 5125 WETR0K DuomatíC 320 Litlu, öflugu og meðfærilegu gólfþvottavélarnar frá Wetrok. Einstök hönnun og gæði. Viðhald í lág- marki. Fáanleg fyrir 220v og 24 v. Hagstætt verð. WETR0K ræstivagnar Hágæða svissneskir ræstivagnar. Margar gerðir. Uppfylla allar kröfur ræstitækna. Verð frá kr. 9.070 m/vsk. WETR0K - Bantam ryksugur Öflugar, sterkar, léttar og meðfærilegar ryksugur fyrir stofnanir og fyrirtæki. Svissnesk gæði og hönnun. Orkunotkun í lágmarki. Mjög endingar- góðar. Verð frá kr. 19.585 m/vsk. WETR0K - Duovac vatns-og ryksugur Öflugar, sterkar, endingargóðar, og þægilegar í meðförum. Verð frá kr. 54.520 m/vsk. Ennfremur bjóðum við upp á allar gerðir af góifþvottavélum, bónvélum og teppabreinsivélum frá WETR0K. Margra ára reynsla hérlendís. Fjðldi ánsgðra notenda. KAUP^ELhf Gilsbúð 5, Garðabæ sími 565 9100 fax 565 9105
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.