Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Sextán unglingar úr Leikklúbbnum Sögu taka þátt í samnorræmi leikverkefni Fjöldi þátttakenda frá 6 löndum í Fenris IV SEXTÁN unglingar úr Leik- klúbbnum Sögu á Akureyri taka þátt i samnorræna leiklistarverk- efninu Fenris IV. Þátttaka í verk- efninu er hápunktur leiklistar- starfs klúbbsins. Eins og nafnið gefur til kynna er þetta í fjórða sinn sem unnið er að þetta verkefni, fyrst var efnt til þess árið 1985 og síðan á fjög- urra ára fresti. Þetta er stórt verk- efni, að sögn þeirra Evu Signýjar Berger og Berglindar Hólm Ragn- arsdóttur úr Leikklúbbnum Sögu. Alls verða þátttakendur á bilinu 70 til 80 og koma þeir frá 6 lönd- um, 16 frá íslandi, 13 frá Svíþjóð, 11 frá Noregi, 19 frá Danmörku, 8 frá Finnlandi og 5 frá Færeyjum auk þess sem Grænlendingar senda þtjá þátttakendur nú, en hafa ekki áður verið með. Mikill undirbúningur Undirbúningur hófst haustið 1995 og hefur staðið frá þeim tíma. Um síðustu áramót dvöldu þátttak- endur í æfingabúðum í Humlebæk í Danmörku þar sem búin var til beinagrind að leikverkinu, en Skúli Gautason hefur verið ráðinn leik- stjóri verksins, Nilla Ekström frá Svíþjóð handritshöfundur og þá mun Cristian Blak frá Færeyj- um/Danmörku sjá um tónlist. Um páskana um hópurinn hittast að nýju í Sala í Svíþjóð og verður verkið þá unnið í endanlega mynd. Fenris-hringferðin hefst svo í júli næstkomandi. í bytjun mán- aðarins koma þátttakendur saman á Islandi og dvelja í tvær vikur. Þá fyrri verður slegið upp æfinga- búðum á Akureyri og verkið frum- sýnt í byrjun seinni dvalarvikunn- ar. Hópurinn mun svo ferðast um landið og sýna leikverkið. Farið verður með Norrænu til Danmerk- ur og Ieikverkið sýnt á danskri grund í vikutíma. Turku í Finn- landi er næsti áfangastaður og mun hópurinn einnig dvelja eina viku þar í landi áður en farið verð- ur yfir til Svíþjóðar með eins dags stoppi á Álandseyjum. I Svíþjóð tekur hópurinn m.a. þátt í stórri leiklistarhátíð í Orebro. Norræn goðafræði Norræna goðafræðina verður meginþema næsta verkefnis, en unglingarnir taka þátt í að smíða hljóðfæri, gera búninga og leik- mynd og gera yfirleitt allt það sem viðkemur sýningunni þannig að hyggja þarf að mörgu. „Þetta er mikil vinna, en alveg óskaplega skemmtileg," segja þær Eva Signý og Berglind. Norðuriandamálin eru í hávegum höfð í tengslum við verkefnið og enskan ekki leyfð. Komi upp samskiptavandamál eru þau leyst með líkamstjáningu og þolinmæði. Sterk vinabönd mynd- ast innan Fenris hópsins og telja gamlir Fenris farar tækifærið ómetanlegt að eignast vini á Norð- urlöndunum. Fenris verkefnið hefur síðustu fimmtán ár haldið lífið í Leik- klúbbnum Sögu og hafa ungling- arnir lagt á sig ómælt starf við að afla fjár til að geta tekið þátt í þessu viðamikla verkefni. Þær Eva Signý og Berglind segja að nú sé verið að safna styrkjum t.d. hjá fyrirtækjum á Akureyri og gagni söfnunin vel. Morgxinblaðið/Hermína Gunnþórsdóttir BJÖRN Friðþjófsson framkvæmdastjóri Tréverks afhendir Atla Friðbjörnssyni oddvita lykil að húsinu. íþróttir og félags starf í nvju húsi Dalvík. Morjrunblaðið. NYTT félagsheimili og íþróttahús að Húsabakka í Svarfaðardal var tekið í notkun sl. laugardag. Bamakór Húsabakkaskóla hóf dagskrána með söng undir stjóm Rósu Kristínar Baldursdóttur. Atli Friðbjömsson oddviti rakti aðdrag- anda byggingarinnar, Helgi Már Halldórsson arkitekt greindi frá und- irbúningsvinnu og hönnun og Björn Friðþjófsson framkvæmdastjóri Tré- verks afhenti Svarfdælingum húsið formlega og gaf 30 bolta. Helgi Símonarson frá Þverá, sem kominn er á 102. aldursár, flutti nokkur orð, en hann hefur lengi ver- ið ötull liðsmaður þess að slík bygg- ing rísi í Svarfaðardal. Hann sagði m.a. að á langri ævi hefði hann gert sér grein fyrir mikilvægi góðrar hreyfingar fyrir líkama og sál og fagnaði því að nú væri risið íþrótta- hús fyrir unga fólkið. Séra Jón Helgi Þórarinsson flutti blessunarorð. Rögnvaldur Skíði Frið- bjömsson bæjarstjóri á Dalvík flutti kveðju frá Dalvíkingum. Tjarnar- kvartettinn og Samkór Svarfdæla sáu um tónlistarflutning ásamt Barnakómum. Haldin var samkeppni um nafn á húsið og þriggja manna dómnefnd valdi nafnið Rimar, en þrjár tillögur höfðu borist um það nafn. Tillögurn- ar áttu þau Vilhjálmur Bjömsson, Jón Þórarinsson og Svana Halldórs- dóttir og Amgrímur Baldursson. Nefnið er dregið af Rimum, hæsta fjalli (1.288 m) við austanverðan Svarfaðardal. Morgunblaðið/Margrét Þóra ALLS taka 16 unglingar frá Akureyri þátt í stóru leikverk- efni, Fenris, sem sýnt verður á Norðurlöndunum í sumar. Á myndinni eru talið að ofan frá vinstri, Gunnhildur, Sandra, Kjartan, Lilja, Ása, Vala, Dís, Berglind, Harpa, Eva Signý, Ragn- hildur, Silja og Þórdís. Folda hf. í framleiðslu á útilífsfatnaði Starfsfólki fjölgað um 20-30 FOLDA hf. á Akureyri hefur gert samstarfssamning við Jan Davids- son hönnuð og mun innan tíðar hefja framleiðslu á útilífsfatnaði sem kemur á markað hérlendis næsta haust. Sérstök sportvömdeild hefur verið stofnuð innan Foldu og á næstunni verða ráðnir 20-30 starfsmenn til viðbótar við þá 50 sem fyrir starfa hjá fyrirtækinu. Útilífsfatnaðurinn verður fram- leiddur undir merkjum Don Cano og Cintamani og er hannaður af Jan Davidsson. Hermann Sigur- steinsson, framkvæmdastjóri Foldu, segir að hér sé um að ræða gæðafatnað. Efnið í fatnaðinum er þróað í samvinnu við japanskt text- ílfyrirtæki og er nýtt á markaðnum. Það er þriggja laga, alveg vatns- þétt með góða útöndum og er mjög létt. „Við fullyrðum að Cintamani útilífsfatnaðurinn sé jafngóður því besta í heiminum í dag. Fatnaður- inn verður notaður af Islendingun- um þremur sem ætla að klífa Mo- unt Everest í næsta mánuði og af íslenskum fylgdarmönnum þeirra og það segir sína sögu. Don Cano fatnaðurinn fer hins vegar frekar inn á hinn almenna markað,“ segir Hermann. Don Cano fatnaður var fram- leiddur hér á landi og erlendis á síðasta áratug og er merkið nokkuð þekkt hérlendis. Jan Davidsson, sem er sænskur að uppruna, hefur búið á íslandi frá árinu 1983. Hann hefur starfað víða um heim og er mjög reyndur á sínu sviði. Jan segir að Island sé mjög góð- ur staður til að þróa útilífsfatnað og hann segir það hafa komið sér JAN Davidsson, hönnuður og Hermann Sigursteinsson, framkvæmdastjóri Foldu. skemmtilega á óvart hversu mikil þekking og kunnátta er innan Foldu í framleiðslu á fatnaði. „ís- lenski markaðurinn er ekki stór en í okkar langtímamarkmiðum stefn- um við einnig að því að koma fram- leiðslunni á erlendan markað,“ seg- ir Jan. Hermann segir að með því að hefja framleiðslu á útilífsfatnaði, sé verið að skjóta styrkari stoðum undir rekstur fyrirtækisins, auk þess sem nýting á húsnæði og starfsfólki verður betri. „Við höfum þurft að fjárfesta í nýjum vélum vegna framleiðslunnar en við rek- um hér eina öflugustu textílverk- smiðju landsíns.“ Félag vélsleðamanna í Eyjafirði Okeypis GPS-nám- skeið NÁMSKEIÐ í rötun og notkun GPS-staðsetningartækja og átta- vita verður haldið á vegum Félags vélsleðamanna í Eyjafirði dagana 20. til 22. febrúar næstkomandi. Skráning á námskeiðið fer fram hjá Haftækni og þurfa þátttakend- ur að hafa með sér áttavita og GPS-tæki. Námskeiðið er félags- mönnum að kostnaðarlausu. Samskonar námskeið verður einn- ig haldið þriðjudagskvöldið 25. febrúar og laugardaginn 1. mars næstkomandi. Það verður haldið í húsnæði Hjálparsveitar skáta á Akureyri, Lundi við Skógarlund. Leiðbein- andi verður Sveinbjörn Dúason, slökkviliðsmaður og margreyndur björgunarsveitarmaður. Kennt verður fimmtudagskvöldið 20. febrúar og fyrir hádegi laugar- daginn 22. febrúar en verkleg æfing verður eftir hádegi sama dag. Farið verður í grunnþætti rötunar, notkun áttavita og GPS, en þetta eru nauðsynleg öryggis- tæki fyrir vélsleðamenn og alla fjallafara. ----»■■■♦—♦- Vatnsljón í Raflagnadeild ALLMIKIÐ tjón varð í Raflagna- deild KEA á laugardagsmorgun þegar brunaslanga sem vatns- þrýstingur var á sprakk og flæddi vatn um gólf á lager og verslun. Gunnar Austfjörð deildarstjóri Raflagnadeildar sagði að menn sem voru á leið í vinnu hefðu fyrstir orðið lekans varir, en vatn flæddi úr versluninni inn i for- stofu og þaðan út á gangstétt. Vatnið náði um 5 sentímetra hæð. Gunnar telur að tjón sé heldur minna en í fyrstu var haldið, en enn sé þó eklri ljóst hversu mikið það er. -----»• ■♦■ ♦- Laxós í Ólafsfirði Ekkert upp í kröfur SKIPTUM er lokið í þrotabúi Lax- óss ehf. í Ólafsfirði en félagið var tekið til gjaldþrotaskipta fyrri hluta október síðastliðins. Engar eignir fundust í búinu, greiðslur fengust því ekki upp í lýstar kröf- ur sem námu samtals rúmum 26,3 milljónum króna auk vaxta og kostnaðar eftir úrskurðardag gjaldþrotaskipta. Einnig er lokið skiptum í búi Reykbæjar á Akureyri en félagið var úrskurðað gjaldþrota síðasta haust. Engar eignir fundust í bú- inu þannig að skiptum lauk án þess að greiðsla fengist upp í lýst- ar kröfur sem samtals námu um 14,1 milljón króna auk vaxta og kostnaðar. -----» ♦ -♦--- Jurtavörur GÍGJA Kjartansdóttir flytur fyrir- lestur og kynnir jurtavörur á opnu húsi fyrir foreldra með ung börn frá kl. 10 til 12 á morgun, miðviku- daginn 19. febrúar. Allir foreldrar eru velkomnir með böm sín, en leikföng og bækur eru til afnota fyrir þau. Gengið er inn um kap- elludyr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.