Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 32
□ 32 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN Skoðanakönnun um skólamál Auka þarf tengsl foreldra og skóla í KÖNNUN, sem ÍM Gallup gerði fyrir menntamálaráðuneytið í desember sl. um nokkra þætti skólamála í landinu, kom meðal annars fram að 81% svarenda telja að auka eigi tengsl foreldra og skóla, 90% vilja aukna fræðslu um fíkniefni og rúmlega 68% vilja auka fræðslu um jafnrétti í skól- um. Tekið var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá og voru þátttakendur á aldrinum 15-75 ára af öllu land- inu. Gagnaöflun fór fram í síma og náðist í 1.157 einstaklinga af þeim 1.200 sem lentu í úrtakinu, að því er fram kemur í nýjasta fréttabréfi menntamálaráðu- neytisins. Helstu leiðir til að auka tengsl foreldra og skóla eru að mati svarenda þær að virkja foreldra í skólastarfi og auka samskipti foreldra og kennara ýmist með samvinnu þessara aðila eða öflugri kynningu og fræðslu til foreldra. Tæplega 52% telja sig hafa nægar upplýsingar um skólastarf í landinu, en algengast er að fólk telji sig vanta upplýs- ingar um námsefni svo og al- mennar upplýsingar. Fylgjandi blönduðum bekkjum Tæplega 53% svarenda telja að hafa eigi blandaða bekki í grunnskólum en 45% telja að raða eigi í bekki eftir námsgetu. Þegar þeir sem eiga börn í grunnskólum eru skoðaðir sérstaklega, kemur í ljós að 65% þeirra eru fylgjandi blönduðum bekkjum. Skiptar skoðanir eru á því hvort flutning- ur grunnskólans til sveitarfélaga leiði til betri eða verri menntun- ar. 26% telja að það leiði til betri menntunar en rúmlega 22% til verri. Tæp 43% telja flutninginn ekki skipta máli og tæplega 11% telja að það verði breytilegt eftir skólum. Þegar spurt er um viðhorf til lengingar skólaársins í fram- haldsskólum kemur í ljós að 47% eru fylgjandi lengra skólaári en tæplega 45% svarenda eru á móti lengingu. 70% svarenda eru hlynnt samræmdum stúdents- prófum í einstökum námsgrein- um, en yngsti aldurshópurinn í úrtakinu er síst fylgjandi þessari skoðun. Úttekt á starfsemi RUM MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur skipað Sveinbjörn Björns- son háskólarektor formann verk- efnisstjórnar vegna úttektar á starfsemi Rannsóknastofnunar uppeldis- og menntamála (RUM). Aðrir í stjórn verkefnisins eru Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, og Þórir Ólafsson, rektor Kennaraháskóla íslands. Nefndin skal skila loka- skýrslu í nóvember 1997. Samkvæmt lögum um RUM frá 1993 segir að meta skuli starf stofnunarinnar á þriggja ára fresti af þar til kvöddum sérfræð- ingum, sem ráðgjafarnefnd og ráðherra kalla til. Aföll og missir barna NÁMSKEIÐ um hvaða áhrif ýmiss konar áföll hafa á nemend- ur og hvernig kennarar, skóla- stjórnendur og annað starfsfólk skóla geta brugðist við, verður haldið á vegum Endurmenntunar- stofnunar Háskóla íslands 1., 7. og 8. mars nk. Ennfremur verður fjallað um sorg og missi í lífi barna við dauða nátengdra, við skilnað foreldra og ofbeldi í skóla milli nemenda. Umsjón með námskeiðinu hafa Margrét Arnljótsdóttir og Mar- grét Ólafsdóttir, sálfræðingar í Félagi um áfalla- og stórslysasál- fræði. Námskeiðið er ætlað kenn- urum og skólastjórnendum grunnskóla og kostar 8.800 kr. skólar/námskeið tölvur | tungumál ■ Námskeið - starfsmenntun 64 klst. tölvunám. 84 klst. bókhaldstækni. ■ Stutt námskeið: Windows 95. PC grunnnámskeið. Word grunnur og framhald. Excel grunnur og framhald. Access grunnur. PowerPoint. PageMaker. Bamanám. Unglinganám í Windows. Unglinganám í forritun. Internet námskeið. Hagstætt verð og afar veglegar kennslu- bækur fylgja með námskeiðum. Skráning í sfma 561 6699, netfang tolskrvik@treknet.is, veffang www.treknet.is/tr Bi Tölvuskóli Reykiavíkur Borgartúni 28, sími 561 6699. ■ Internationa! Pen Friends útvegar þér a.m.k. 14 jafnaldra penna- vini frá ýmsum löndum. Fáðu umsóknar- eyðublað. I.P.F., pósthólf 4276, 124 Rvík, sfmi 881 8181. ýmislegt ■ Barnfóstrunámskeið fyrir börn fædd 1983,1984 og 1985. Kennsluefni: Umönnun ungbarna og skyndihjálp. 1. 5., 6., 10. og 11. mars. 2. 12., 13., 17. og 18. mars. 3. 2., 3., 7. og 8. apríl. 4. 9., 10., 14. og 15. apríl. 5. 21., 22., 28. og 29. apríl. 6. 26., 27., 28. og 29. maí. 7. 2., 3., 4. og 5. júní. 8. 9., 10., 11. og 12. júní. Metnaðarfull myndlistarkennsla í Foldaskóla Hagnýtur undirbún- ingur fyrir atvinnulífið í FOLDASKÓLA hefur um árabil verið lagður mikill metnaður í mynd- listarkennslu undir stjórn Jóhönnu Þ. Ingimarsdóttur og Sesselju Bjöms- dóttur myndlistarkennara. Bera lista- verk á göngum og skrifstofum nem- endum fagurt vitni, þannig að útlend- ingar sem heimsækja skólann hafa oftar en ekki spurt hvort hann sé myndlistarskóli á grunnskólastigi. Þá má geta þess að nemendur skólans hafa tvö undanfarin ár, eða frá upphafi, unnið 1. verðlaun í hönn- un á jólaskeið, sem Silfursmiðjan Ema hefur framleitt í kjöifarið. Sér- stakt hrós fengu nemendur fyrir vinnuteikningar, sem voru faglega unnar. „Ég er sannfærð um að þær hafa ráðið úrslitum um að nemendur okkar unnu keppnina,“ segir Sesselja. Markviss uppbygging Myndlistarkennarar Foldaskóla byggja kennslu sína markvisst upp frá 3. upp í 10. bekk. í upphafi er nemendum gerð grein fyrir að ákveðnar væntingar eru gerðar til þeirra um námið og áhersla er lögð á persónulegt starf, þannig að hver nemandi fær að njóta sín. Þá vega litaverkefni og myndbygging þungt. „Ég geri þeim einnig strax grein fyrir að þau em ekki að búa til ljós- myndir heldur nota eigin útfærslu til myndsköpunar. Við reynum líka að byggja alltaf ofan á þá þekkingu sem fyrir er og eftir því sem þau eru eldri finn ég að þau tileinka sér það sem þau hafa lært,“ segir Sess- elja. Eitt af því sem hún segir að skipti verulegu máli er að leggja verkefnin rétt fyrir, hvort sem verið er að kenna þeim að skera í dúk og nota litina eða vatnslita. Sé það gert vinni þau mjög sjálfstætt, annars fari tíminn nánast til spillis, þau verði óörugg og hangi í lausu lofti. Myndlist of lítils metin Sesselja er á því að víða sé illa búið að listakennslu í skólum og hún sé víða lítils metin bæði af foreldrum og stjórnendum skóla. Ekki séu mörg ár síðan nemendur hafi sífellt verið að biðja um fn' af því þeir þurftu að passa yngri systkini, fara í klippingu eða til tannlæknis. „Mér fínnst viðhorfið hafa batnað með árunum hér í hverfinu," segir hún, en bendir á að alltof víða séu ófag- lærðir myndlistarkennarar við störf. „Þetta er líkt og ég færi að kenna ballett, sem ég hef aldrei lært.“ Hún saknar þess að grunnskóla- nemendur læri ekkert í listasögu og telur að tengja eigi hana mannkyns- sögu til að taka ekki tíma frá sköpuninni í myndlistartimum. Myndlist sé eitt af fáum fögum þar sem nemendur styðjist ekki við bók- ina heldur fái að skapa og túlka verkefnin á persónulegan hátt. Þó segist hún geta hugsað sér að kenna ákveðnar stefnur fái hún kennsluefni upp í hendurnar. „Þó gætu til dæm- is 15 mínútur af einhveijum tímum farið í fyrirlestur þar sem notast væri við skyggnur til að útskýra hvað verið er að tala um, en þessi gögn eru ekki til.“ Hvers vegna myndlist? Hún segist oft hafa fengið þá spurningu hvers vegna verið sé að kenna myndlist. Það sé augljóst að hún skili sér verulega út í þjóðfélag- ið. Hún nefnir sem dæmi hönnunar- keppnina um silfurskeiðina, þar sem nemendur hafi lært að gera vinnu- teikningar. „Góð undirstaða í mynd- list kemur sér einnig mjög vel í mörgum störfum, en er nauðsynleg hjá málurum, hönnuðum, útlitshönn- uðum á blöðum, þeim sem vinna í leikhúsi og við kvikmyndagerð, hjá þeim sem gefa litaráðgjöf, við skreytingu á matreiðslu og þannig mætti lengi telja. Þar fyrir utan er sjálfsagt að kenna fólki að lesa umhverfi sitt á gagnrýninn hátt.“ Hún segist gjarnan vilja sjá fyrir- tæki koma inn í skólana með hönnunarsamkeppni af ýmsum toga en það fari því miður ekki saman við stefnu Fræðsluskrifstofu að hafa milligöngu um slíka keppni. Þannig hafi hönnunarkeppnin um silfur- Morgunblaðið/Hildur MEÐ samstarfinu er boðið upp á nemendaskipti milli Háskólans á Akureyri og Tækniskóla íslands. Samstarf Tækniskóla Islands og Háskólans á Akureyri Háskólamenntun efld í þágu atvinnulífsins VILJAYFIRLÝSING þess efnis að auka samvinnu milli Tækniskóla ís- lands og Háskólans á Akureyri um kennslu og aðra starfsemi var undir- rituð af rektorum skólanna, þeim Guðbrandi Steinþórssyni og Þorsteini Gunnarssyni, miðvikudaginn 12. febr- úar sl. Samstarfið tekur til allra fagsviða háskólanna, sem báðir þjóna ákveðn- um þörfum starfsmenntunar. Mark- miðið er að efla háskólamenntun enn frekar í þágu atvinnulífs um allt land. Kanna þarfir atvinnulífsins Viljayfirlýsing skólanna snýr einnig að því að kanna á hvern hátt þeir geta uppfyllt þarfir atvinnulífsins fyr- ir sérmenntað vinnuafl, einkum á Austurlandi og Vestfjörðum. „Ein- kenni á útskrifuðum nemendum þess- ara skóla er að þeir hasla sér völl í fyrirtækjum um allt land og taka þátt í að byggja upp atvinnulífíð þar. Hins vegar þarf að efla þrótt fyrir- tækja enn meir í kringum allt land og þar er háskólamenntun einn frum- krafturinn. í því skyni snúum við bökum saman,“ sagði Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA. Guðbrandur Steinþórsson, rektor TI, sagði að kæmi í ljós að þörf væri fyrir ákveðna menntun, sem ekki stæði mönnum nú til boða, yrði kann- að hvort laga mætti eitthvert nám, sem fyrir hendi er, að henni. „Aftur á móti að koma á fót nýju námi er stórt skref og verður ekki gert án blessunar stjómvalda," sagði hann. Ný tegund náms Meðal þess sem skólarnir stefna að er að koma á fót nýrri tegund BS-náms í upplýsingatæknifræði, sem fram fer bæði við HA og TÍ. „Við teljum okkur skynja að þarna sé þörf. Ekki er óalgengt að í fyrir- tækjum sé töluvert háþróaður búnað- ur til að safna saman upplýsingum um framleiðsluna en fáir sem kunna að sækja þessar upplýsingar og nota þær til að renna frekari stoðum und- ir starfsemina," sagði Guðbrandur Steinþórsson. Námið mun taka 3-3 '/2 ár og verð- ur það hugsanlega byggt upp sem tvær samhliða greinar með sameigin- legum grunni. Annars vegar er um að ræða grein sem snýr að upplýs- ingastjómun og úrvinnslu þeirra upp- lýsinga sem fengnar em úr fram- leiðsluferlum, bókhaldi fyrirtækja o.fl. Hin greinin er fremur hugsuð sem tæknileg, þ.e. kunnátta í sjálfum tæknibúnaðinum, hönnun hans, hvemig hann virkar o.fl. „Úrvinnslan er eftir en við stefnum að því að ekki líði alltof langur tími áður en þetta kemst í framkvæmd," sagði Guð- brandur. Stúdentaskipti Meðal annarra samstarfsverkefna má nefna stúdentaskipti, sem gæti verið 1-2 annir eða stök námskeið. Nám verður einnig metið á milli skól- anna þannig að jafnvel er hægt að hefja nám í einum og Ijúka því í öðr- um. Sömuleiðis horfa rektorar skól- anna mikið til fjarkennslu í samvinnu skólanna. Hugmyndin er ekki að kenna sömu hluti á báðum stöðum heldur nýta það sem skólarnir hafa að bjóða hvor öðrum upp á og þá jafnvel þannig að nemendur fylgist með námskeiðum í gegnum sjón- varpsbúnað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.