Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 57 I ; I I I 1 1 í l Úr dagbók lögreglunnar 14.-17. febrúar 15 grunað- ir um ölv- unarakstur UM HELGINA var tilkynnt um 60 umferðaróhöpp til lögreglunn- ar í Reykjavík þrátt fyrir bærileg- ar aðstæður. Auk þess urðu 4 umferðarslys. Fimmtán ökumenn, sem stöðvaðir voru í akstri, eru grunaðir um ölvunarakstur. Þá voru 19 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og 14 fyrir að leggja ólöglega. Tíu ökumenn, sem afskipti þurfti að hafa af, höfðu ekki öku- skírteini sín meðferðis og 3 reynd- ust ökuréttindalausir. Tveir öku- menn voru sektaðir fyrir að nota ekki öryggisbelti og í einu tilvika var farþega vísað úr bifreið þar sem of marga slíka reyndist vera um að ræða. Breyting til batnaðar Lögreglumenn þurftu að hafa afskipti af 40 manns vegna slæms ölvunarástands á almannafæri og vista þurfti 34 í fangageymslun- um vegna ýmissa mála. Tilkynnt var um 2 líkamsmeiðingar, 18 innbrot, 14 þjófnaði og 11 eignar- spjöll. Þá þurftu lögreglumenn að sinna 19 tilkynningum vegna há- vaða og ónæðis innandyra. Oftast var um að ræða ölvað fólk, sem ekki kunni sér hóf við „skemmt- an“ sína. Lögreglumenn og starfsfólk ÍTR og útideildar fóru um hverfi austurborgarinnar á föstudags- kvöld og aðfaranótt laugardags til eftirlits með útivistartíma barna og unglinga. Við eftir- grennslan sáust krakkar við Hóla- garð. Rætt var við þau og fóru þau heim til sín. Eitt foreldralaust samkvæmi var í húsi við Flúðas- el. Foreldrarnir komu heim skömmu eftir miðnætti. Rætt var við þá, en bömin voru ekki undir áhrifum áfengis. Lögreglumenn við eftirlitsstörf í miðborginni urðu varir við þijá unglinga á því svæði á föstudags- kvöld. Þeir voru færðir í athvarfið og sóttir þangað af foreldrum sín- um. Það heyrir sem betur fer til undantekninga að böm og ungl- ingar finnist í miðborginni eða annars staðar að kvöld- og nætur- lagi um helgar. Hér hefur orðið mikil breyting til batnaðar á skömmum tíma og er full ástæða til að fylgja vel eftir því sem áunn- ist hefur. Mikilvægt er að halda áfram að bæta um enn betur, samhæfa og styrkja þá aðila, sem líklegir em til að geta skilað verk- um til enn betri árangurs í málefn- um bama og unglinga. Reif föt af manni Síðdegis á föstudag skellti kona bílhurð á hönd sér með þeim af- leiðingum að sin slitnaði í fingri. Ökumenn tveggja bifreiða voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur á gatnamótum Klepp- smýrarvegar og Sæbrautar. Auk þess var hundur fluttur ómeiddur á dýraspítalann. A laugardag varð árekstur þriggja bifreiða á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðaveg- ar. Tveir ökumenn og farþegi vom færðir á slysadeild. Aðfara- nótt sunnudags var gangandi vegfarandi fluttur á slysadeild eftir að hafa orðið fyrir bifreið á Hringbraut gegnt Landspítalan- um. Meiðsli hans virtust minni- háttar. Þá vom ökumaður og tveir far- þegar fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur þriggja bifreiða á Fríkirkjuvegi við Skothúsveg. Meiðsli þeirra virtust einnig minniháttar. Líkamsmeiðingarnar vom óverulegar hvorartveggju. í fyrra tilvikinu veittist maður að konu í Hafnarstræti. Hann var handtek- inn og vistaður í fangageymslun- um. I síðara tilvikinu réðst ölvað- ur maður á annan og reif utan af honum fötin á veitingastað við Höfðabakka. Manninn sjálfan sakaði ekki. Eldur kom upp í mannlausri íbúð fjöleignarhúss við Blöndu- bakka aðfaranótt laugardags. íbúar hússins slökktu eldinn, en hann hafði kviknað út frá síma- skrá er gleymst hafði á heitri elda- vélarhellu. Lykillinn var í kveikjulásnum Vegna fréttar nýlega um að bifreið hefði verið tekin í misgrip- um við fyrirtæki í Sundahöfn skal þess getið að kveikjuláslykillinn hafði verið skilinn eftir í bifreiðinni. Því miður er þetta ekki eina til- vikið því iðulega kemur fyrir að bifreiðum er stolið eftir að öku- maður hefur yfírgefið bifreið sína og skilið lykilinn eftir í kveikjulásn- um. Þá em dæmi um að bifreiðir hafi horfíð eftir að ökumenn hafa skilið þær eftir i gangi utan við fyrirtæki og verslanir. Að þessu þurfa ökumenn að hyggja ef þeir vilja draga úr líkum á að óviðkom- andi geti fært bifreiðar þeirra úr stað í leyfísleysi. í innbrotum helgarinnar var m.a. stolið útvarpstæki, þráðlaus- um síma, armbandsúri og skipti- mynt úr fyrirtæki við Bíldshöfða, tölvuleikjum, sjónvarpstæki, hljómflutningstækjum og skipti- mynt úr myndbandaleigu í Graf- arvogi, bensínkorti úr bifreið við Vatnagarða, loftpressu, borvél- um, hjólsögum, slípirokkum og naglabyssu úr vinnuskúrum við Vættaborgir, steinsög úr vinnusk- úr við Strandveg, skíðum og skóm úr geymslu húss við Þórufell, pen- ingum úr húsi við Hólavallagötu, verkfæmm úr geymslum húss við Spóahóla, skartgripum úr sýning- arglugga skartgripaverslunar við Bankastræti og tölvum, prentur- um og faxtækjum úr fyrirtæki við Boðagranda. Fynrlestur um hlutverk kennara í skólaþróun i ÐR. MEL West prófessor við Kenn- | araháskólann í Cambridge flytur fyrirlestur á vegum Rannsóknar- stofnunar Kennaraháskóla íslands í dag, þriðjudaginn 18. febrúar kl. 16.15. Fyrirlesturinn nefnist: Hlut- verk kennara í skólaþróun. I fyrirlestrinum mun dr. Mel West fjalla um á hvern hátt kennar- ar geta með markvissum hætti | stuðlað að umbótum í skólum sínum 4 sem miða að því að bæta gæði náms j fyrir alla nemendur. Hann mun I styðjast við líkan sem þróað hefur verið við kennaradeild háskólans í Cambridge undir nafninu „Improv- ing the Quality of Education for All“. Stuðst hefur verið við þetta sama líkan í skólaþróunarverkefni á Norðurlandi eystra sem nefnt hefur verið Aukin gæði náms (AGN) og hefur hann veitt ráðgjöf við framkvæmd þess. Dr. Mel West hefur um árabil leiðbeint kennurum við umbótastörf í breskum skólum og víðar og skipu- lagt og metið skólaþróunarverkefni. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku í stofu M-301 í Kennarahá- skóla íslands og er öllum opinn. FRÉTTIR Morgunblaðið/Helgi Óiafsson FULLTRÚAR gefenda tölvanna til Grunnskólans f.v.: Jóhann Magnús Ólafsson, framkvæmdasljóri Jökuls hf., Hafþór Sigurðs- son, verksmiðjusljóri SR-mjöls hf., Sigurður Ásgeirsson f.h. Landsbanka íslands, Líney Helgadóttir, skólasljóri Grunnskól- ans, Reynir Þorsteinsson og Gunnlaugur Júlíusson, sveitarsljóri Raufarhafnarhrepps. Grunnskólinn fær tölvugjöf Raufarhöfn - Grunnskólanum á Raufarhöfn var nýlega afhent myndarleg gjöf. Jökull hf., Landsbanki Islands, SR-mjöl hf., Raufarhafnarhreppur, Verka- lýðsfélag Raufarhafnar og Krist- ján Önundarson gáfu skólanum sex öflugar tölvur, skanna og fullkomna ljósritunarvél til af- nota við kennslu og skólastarfið. Þessi myndarlega gjöf kemur til með að bæta verulega alla möguleika til tölvukennslu og tölvuvinnslu við grunnskólann. Tölvunám er orðið óaðskiljanleg- ur hluti af námi við grunnskóla, hvort sem er með notkun hefð- bundinna tölvuforrita, sérhæfðra kennsluforrita eða með tengingu við alnetið. Með þessum tækjum Málþing í Skálholtsskóla MÁLÞING verður haldið í Skál- holtsskóla 19. febrúar nk. Málþing þetta er hið þriðja í röð málþinga um guðfræðileg efni. Að þessu sinni verður fjallað um „Kennivald Bibl- íunnar?“. Fyrirlesarar verða dr. Björn Björnsson, dr. Clarence Glad, dr. Einar Sigurbjörnsson og séra Magnús B. Björnsson. Málþingið hefst kl. 10 og stendur til kl. 17. Framsögumenn flytja fyrirlestra sína fyrir hádegi. Eftir hádegismat verða alemnnar umræður. Fyrir- lestrarnir ásamt útdrætti úr um- ræðunum verða gefnir út í sérstöku hefti tengdu Kirkjuritinu. er Grunnskólinn á Raufarhöfn orðinn vel búinn til að svara þeim kröfum sem gerðar eru til skóla nú á dögum hvað aðstöðu varðar á þessu sviði. Gefendum var boðið til mót- töku í grunnskólanum laugar- daginn 8. febrúar sl. þar sem gjöfinni var formlega veitt mót- taka og þeir möguleikar skýrðir sem tölvurnar fela í sér fyrir skólastarfið. Við grunnskólann á Raufar- höfn stunda nú 58 nemendur nám og er það eilítil fjölgun frá því á síðasta ári en Raufarhöfn var eitt örfárra sveitarfélaga á landsbyggðinni þar sem íbúum fjölgaði á siðastliðnum árum. Fræðslufundur Minjaogsögu NÆSTI fræðslufundur Minja og sögu verður haldinn í Nor- ræna húsinu miðvikudaginn 19. febrúar og hefst kl. 17.15 Páll Bergþórsson fyrrver- andi veðurstofustjóri flytur erindið „Staðhættir í Vín- landi“. í erindinu vekur fyrirlesari athygli á því að staðhættir þar sem talið hefur verið að Vín- land hafi verið, virðast falla alveg að lýsingum íslenskra fornsagna sem greina frá Vín- landsferðum, segir í fréttatil- kynningu frá Minjum og sögu. Fundurinn er öllum opinn. Björgum Hvalfirði Tónleikar í kvöld STYRKTAR- og baráttutónleikar verða haldnir í Borgarleikhúsinu þriðjudaginn 18. febrúar kl. 20.30. Fjöldi þekktra skemmtikrafta koma fram, m.a. Bubbi Morthens, Kristján Kristjánsson KK og Ríó tríó. Ferðafélagið Gengið um Laugardalinn FERÐAFÉLAG íslands efnir í kvöld, þriðjudagskvöld, til hressingar- göngu. Gengið inn Laugardalinn. Gengið er í um 1 klst. Gangan hefst kl. 20 og er við allra hæfí. Fundur um fæðuofnæmi ASTMA- og ofnæmisfélagið heldur fræðslufund um fæðuofnæmi í fund- arsal Þjóðarbókhlöðunnar við Birki- mel í kvöld, þriðjudag. Erindi flytur Kolbrún Einarsdóttir sem nefnist „Fæðuofnæmi - Hvað má borða?“ ■ ÁKVEÐIÐ er að hafa „Docu- menta Gúlp 11“ sýninguna opna aukadag, 18. febrúar nk., frá kl. 18-22. „Documenta Gúlp 11“ er til sýnis aðeins þennan eina dag í MHÍ í Þingholtsstræti 6. LEIÐRÉTT Afmælisbarn rangnefnt í MYNDATEXTA í blaðinu um helg- ina misritaðist föðurnafn Höskuldar Skagfjörð og hann var nefndur Hös- kuldur Jónsson. Beðist er velvirðing- ar á þessu. Veggteppavíxl Með frétt í sunnudagsblaði um fyrirlestur Elsu E. Guðjónsson á vegum Listvinafélags Hallgríms- kirkju birtist mynd af öðru vegg- teppi en því sem textinn átti við. Myndin, sem birtist, var af vegg- teppi eftir Unni Ólafsdóttur, sem heitir Pelíkaninn, tákn krossdauða Krists, en textinn var um veggteppi Bjargar Jakobsdóttur: Ævi Krists. Beðist er afsökunar á þessum mis- tökum. Glava AIS framleiðir og markaðssetur vörur til einangr- unar. Aðalskrifstofur Glava og framleiðsla á glerull og frauðplasti er í Askim og framleiðsla á glerull í Stjördal. Aðalskrifstofur Markaðsdeildar fyrirtækisins eru í Ósló, og útibú í nokkrum stærri bæjum Noregs. Glava er leiðandi í einangrunarframleiðslu í Noregi og býður mjög fjölbreytt úrval fyrir byggingar, loft og lagnaiðn- að. Samanlagðar rekstrartekjur eru ca 450 milljónir króna og starfsmenn Glava-samsteypunnar eru ca 400. Umboðsmaður/dreifingaraðili fyrir Glavaflex á Islandi Við leitum að samstarfsaðila á íslandi til að selja frauðplastvörur undir vörumerki GLAVAFLEX GLAVAFLEX er einangrunarefni framleitt úr gerviefni í Noregi. Varan er notuð til einangrunar á kæli- og loftræstikerfum og hreinlætistækjum/kerfum. GLAVAFLEX er hágæðavara og er seld í slöngum, plötum, rúllum og böndum. Við höfum áhuga á að komast í samband við kæli- og eða hreinlætistækjaheildsala er getur hugsað sér að starfa sem sjálfstæður umboðsmaður/dreifingaraðili á íslenska markaðnum. Skriflegar umsóknir sendist: Eksportleder Marianne Groven, GLAVA A/S, Postboks 5017 Majorstua N-0301, sími 00 47 22 93 17 00, sem einnig veitir nánari upplýsingar. GLAVA A/S, Fridtjof Nansens vei 14, P.O. Box 5017, Majorstua N-0301 Oslo. Sími 00 47 22 93 17 00, fax 00 47 22 93 17 77 FLEX
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.