Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Um 3 þús-
und undir-
skriftir
með álveri
TÆPLEGA þijú þúsund und-
irskriftir söfnuðust á Akranesi
og í Borgarnesi í undirskrifta-
söfnuninni „Álver já takk,“ sem
Áhugafólk um atvinnuupp-
byggingu á Vesturlandi hefur
staðið fyrir undanfarna daga.
Að sögn Péturs Ottesen bæj-
arfulltrúa og eins aðstandenda
söfnunarinnar eru þetta betri
undirtektir en menn þorðu að
vona, þó að mikil bjartsýni hafi
ríkt frá upphafi. „Við munum
afhenda iðnaðarráðherra og
umhverfisráðherra undirskrift-
arlistana í Alþingishúsinu í dag
klukkan 13 og þar með er því
verkefni sem við tókum að okk-
ur lokið,“ segir Pétur.
FRÉTTIR
Tryggingaráð fjallar um nýjar reglur um tannréttingar
Greiddur verði 7 0
þúsund kr. styrkur
TRYGGINGARÁÐ hefur nú til
skoðunar tillögur að nýjum reglum
um þátttöku sjúkratrygginga í
kostnaði við tannréttingar þeirra
sem eru 20 ára og yngri, og er
samkvæmt þeim gert ráð fyrir að
frá og með 1. janúar síðastliðnum
verði greiddur 70 þúsund króna
styrkur vegna meðferðar með föst-
um tækjum, þ.e. spöngum.
Eldri reglur sem giltu til síðustu
áramóta fólu í sér að tryggingaryf-
irvöld ákvörðuðu samkvæmt mati
hveijir fengju endurgreiðslu kostn-
aðar vegna tannréttinga, og var þá
eingöngu endurgreiddur kostnaður
vegna þeirra sem flokkuðust sem
alvarleg tilvik. Fjallað verður um
tillögurnar á fundi Tryggingaráðs
næstkomandi föstudag og verði
málið afgreitt taka nýjar reglur
gildi eftir næstu helgi.
Hluti styrks greiddur vegna
eldri meðferðar
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins miðast þær reglur sem nú
er fjallað um í Tryggingaráði við
það að hægt verði að koma til
móts við alla þá 20 ára og yngri
sem þurfa á alvarlegum tannrétt-
ingum að halda. Miðað er við að
styrkurinn verði greiddur í þrennu
lagi, þ.e. að lokinni ísetningu fastra
tækja, 12 mánuðum síðar og við lok
meðferðar með föstum tækjum.
Skilyrði er að hveiju sinni nemi
upphæð þeirra reikninga sem fram-
vísað er að minnsta kosti þrefaldri
styrkupphæðinni.
Gert er ráð fyrir því að þeir ein-
staklingar sem byijuðu í meðferð
með föstum tækjum á tímabilinu
frá 1. janúar 1995 til síðustu ára-
móta, og voru 20 ára eða yngri
þegar meðferð hófst, fái greiddan
hluta styrksins.
Frakkar
unnu
sveita-
keppnina
í brids
FRANSKA sveitin vann sveita-
keppni bridshátíðar sem lauk á
Hótel Loftleiðum í gærkvöldi.
Frakkarnir hlutu 198 stig. í
öðru sæti var sveit VÍB með
187 stig og í þriðja sæti sveit
Hjördísar Eyþórsdóttur með
186 stig.
í verðlaunasætum enduðu
einnig sveit Landsbréfa með
185 stig, Roche með 181 stig
og sveit Samvinnuferða-Land-
sýnar með 179 stig.
Níutíu og átta sveitir tóku
þátt í mótinu.
■ Einvígi/45
Lögregluþjónn sem slasaðist á Eskifirði útskrifaður af sjúkrahúsi
Morgunblaðið/Benedikt
LÖGREGLUMENNIRNIR Bjarni Sveinsson (t.h.) og Þórhallur Árnason við flak jeppabifreiðarinnar
sem þeir segja að hafi bjargað lífi þeirra, þegar gerð var á þá árás með stórvirkum lyftara.
„Vorum í bráðrí lífshættu“
LÖGREGLUÞJÓNNINN sem slas-
aðist á Eskifirði er æði rann á
ungan mann aðfaranótt laugardags
var útskrifaður af sjúkrahúsi á
Neskaupstað í gær. 22 ára gamall
Akureyringur, búsettur á Eskifirði
seinustu mánuði, hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 17.
mars næst komandi og gert að
sæta geðrannsókn, vegna þeirra
skemmda sem hann olli á Eskifírði
að morgni seinasta laugardags.
Maðurinn tók kraftmikinn
gafallyftara frystihússins Frið-
þjófs traustataki og ók á hús og
bíla í bænum með þeim afleiðing-
um m.a. að lögreglumaður slasað-
ist, þijár bifreiðar eru taldar gjöró-
nýtar og tvær aðrar talsvert
skemmdar, auk tjóns sem varð á
húsi sýslumannsembættis, girð-
ingum og fleiri eignum.
Lyftarinn er um sjö tonn að
þyngd og hafði tjónvaldurinn unnið
á honum um skeið. „Við vorum í
bráðri lífshættu, það er alveg á
hreinu. Það má þakka fyrir að við
vorum á sterkbyggðum og stórum
jeppa en ekki fólksbíl,“ segir Þór-
hallur Ámason varðstjóri sem var
í bílnum þegar árásin var gerð.
„Bíllinn var sterkur og ég held
að ekkert ökutæki lögreglunnar í
landinu hefði staðist þetta eins vel
og hann. Eftir atlöguna var hann
samt dreifður um allt planið,“ seg-
ir Bjarni Sveinsson, lögreglumaður.
Að sögn Þórhalls höfðu þeir
Bjami haft lítilsháttar afskipti af
manninum, skömmu áður en á
hann rann fyrrgreint æði, eftir
ósætti hans við unnustu sína.
Að sögn Inger L. Jónsdóttur,
sýslumanns á Eskifirði, er ekki
búið að meta heildartjónið sem
maðurinn olli, en ljóst sé að það
skipti milljónum. Tryggingamats-
menn em væntanlegir til Eskifjarð-
ar í dag til að meta tjónið.
Yfirheyrslur yfir tjónvaldinum
hófust á laugardagskvöld, þegar
áfengisvíman var runnin af honum,
en að sögn Inger var fátt um skýr-
ingar á framferði hans og kvaðst
hann muna mest lítið eftir atburð-
um. Hann sætir varðhaldi á Akur-
eyri.
Lögregla leggur i
hald á myndbönd 1
LÖGREGLAN í Reykjavík lag:ði í
gærdag hald á myndbönd og geisla-
diska með kvikmyndinni Independ-
ence Day, ID 4, í versluninni 2001
á Hverfisgötu vegna meintrar óleyfi-
legrar sölu og dreifíngar. Hald var
lagt á efnið að kröfu Skífunnar ehf.,
umboðsaðila Twentieth Century Fox
Film Corp., sem framleiddi kvik-
myndina.
Skífan telur sig eiga dreifingar-
rétt á myndinni með samningum við
erlend kvikmyndafyrirtæki og kærði
dreifmgu og sölu verslunarinnar til
lögreglunnar.
Sigurður Þór Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri 2001, er ósáttur með
að lagt hafi verið hald á efnið áður
en fenginn væri úrskurður um lög-
mæti innflutnings verslunarinnar.
Sigurður segir fyrirtæki sitt í full-
um rétti. Myndböndin hafi verið
keypt af löglegum umboðsaðilum í
Bretlandi og geisladiskarnir í Banda-
ríkjunum. „Myndböndin eru flutt inn
frá EES-landi og t.a.m. var innflutn-
ingstollur felldur niður af þeim í
samræmi við gildandi reglur í EES-
ríkjunum," sagði hann.
I kæru Skífunnar er fullyrt að
með sölu erlendu myndbandanna, L
sem væru ótextuð og óskoðuð af
Kvikmyndaeftirlitinu, væru lög um f
skoðun kvikmynda og bann við of- )
beldismyndum brotin. í kærubréfi
er bent á að ákvæði laganna skyldi
dreifingaraðila hér á landi að sjá til
þess að Kvikmyndaskoðun fái mynd-
ir umsvifalaust til skoðunar.
Sigurður segir að stór hluti rekst-
ursins snúist um pöntunarþjónustu
og vonlaust að láta skoða hveija ein-
ustu mynd. Hann bendir ennfremur L
á að reglur í Englandi um aldurstak-
mörk séu jafnvel strangari en hér á I
landi og m.a. þess vegna hafi hann )
ekki kallað kvikmyndaeftirlitið til í
tengslum við innflutninginn.
Nýr prófastur tek-
ur við á Kjalamesi \
BISKUP íslands hefur auglýst sótt um lausn frá embætti frá 1. V
apríl vegna aldurs. Hann var kjörinn
sóknarprestur 1. júní 1966 og skip-
aður prófastur 15. apríl 1977.
Að sögn Ólafs Skúlasonar, biskups
íslands, hafa allir þjónandi prestar
og þrír fulltrúar leikmanna í Kjalar-
nesprófastsdæmi skilað inn tillögum
um nýjan prófast. Gunnar Kristjáns-
son, sóknarprestur á Reynivöllum í |
Kjós, hlaut flestar tilnefningar í emb-
ættið og gerði biskup að tillögu sinni »
til kirkjumálaráðherra í gær að hann |
yrði skipaður prófastur.
lausar stöður sóknarprests í Garða-
prestakalli í Kjalarnesprófastsdæmi
og stöðu sóknarprests í Ljósavatns-
prestakalli í Þingeyjarprófastsdæmi.
Jafnframt því losnar embætti próf-
asts í Kjalarnesprófastsdæmi og
hefur biskup lagt til að Gunnar
Kristjánsson, sóknarprestur á Reyni-
völlum í Kjós, verði skipaður í stöð-
una frá 1. apríl nk.
Séra Bragi Friðriksson, sóknar-
prestur og prófastur í Garðapresta-
kalli í Kjalamesprófastsdæmi, hefur
Morgunblaðið/Golli
*
I franska
sjónvarpið
SEXTÁN manns þreyttu í gær-
kvöldi forkeppni um þátttöku fyr-
ir íslands hönd í spurningaþætti
í franska sjónvarpinu FR 3. Sigur-
vegarar urðu þau Egill Amarson,
heimspekinemi, Guðrún Norð-
fjörð, frönskunemi, Sigmjón Hall-
dórsson, starfsmaður í gestamót-
töku Hótels Sögu og Brynjar
Karlsson, eðlisfræðingur. Fara
þau til Frakklands í byrjun apríl
til þátttöku í spurningakeppni um
menningarmál, þar sem keppt
verður við níu aðrar þjóðir. Sigur-
vegarinn hlýtur m.a. peningaverð-
laun, rúmar 600 þúsund íslenskar
krónur, ferðalag og fleira.