Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ SUÐURLAND 2000 er stefnumótunarverk- efni sem Atvinnuþró- unarsjóður Suðurlands stendur fyrir í samsterfi við SASS, samband sveitarfélaganna á Suð- urlandi. Hugmyndin kom fram hjá Þorsteini Inga Sigfússyni, pró- fessor og framkvæmda- stjóra Verkfræðistofn- unar Háskóla íslands. á fundi iðnaðarmanna á Selfossi fyrir um tveim- ur árum. Verkefnið er að mestu fjármagnað af Byggðastofnun og sjóðum Evrópubanda- lagsins. Bæði vegna starfs Atvinnuþróunarsjóðs og af öðrum ástæðum er margt spennandi að gerast í atvinnuuppbyggingu á Suðurlandi, en þar hefur verið vel að verki staðið og má segja að fyrir- tæki flykkist nú inn á Suðurland og á skömmum tíma hafa með því móti skapast um 100 störf beint fyrir utan óbein störf sem ávallt fylgja slíkri uppbyggingu. A kynningarfundi á undirverkefn- um Suðurlands 2000 á Hótel Sel- fossi fyrir skömmu kynntu Óli Rúnar Ástþórsson, framkvæmdastjóri At- vinnuþróunarsjóðs Suðurlands, verkefnið og Helga Kristjánsdóttir, markaðsráðgjafí Atvinnuþróunar- sjóðsins, og Páll Bjarnason á Verk- fræðistofu Suðurlands fjölluðu um ýmsa þætti sem unnið er að, m.a. landfræðilegt upplýsingakerfi á Suð- urlandi, LUKAS, og notagildi þess. Fjölmenni var á fundinum. Sjóklæðagerðin og fleiri aðilar keyptu fyrir skömmu til Suðurlands fataiðnaðarfyrirtækið MAX og er framtíðaruppbygging þess hafin á Suður- landi. Fyrsta lota í þeim efnum er á Hellu og er reiknað með 40 störf- um í fýrirtækinu á fyrsta ári. Þá hefur álglugga- fyrirtækið Finestra (sem þýðir gluggi á lat- ínu) hafíð rekstur á Hellu, en það kemur úr Hafnarfirði. Fyrir- tækið hefur verið end- urfjármagnað og er í nánu sambýli við gler- verksmiðjuna Samverk. Reiknað er með 10 árs- verkum í Finestra. Innréttingafyrirtæk- ið Fagform hefur hafið starfsemi á Hvolsvelli, en það er í eigu heima- Á skömmum tíma hafa skapast um 100 störf á Suðurlandi, segir Árni Johnsen, fyrir utan óbein störf sem ávallt fylgja slíkri uppbyggingu, sem þar hefur verið. manna í samstarfí við Stólinn í Kópa- vogi. Fyrirtækið er staðsett í fyrrum verkstæði Kaupfélags Rangæinga. Reiknað er með 10 störfum í fram- leiðslu. Þá er hafín ofnaframleiðsla á Skeiðunum, eins konar deild úr Ofnasmiðju Suðurnesja sem er einn- ig í eigu heimamanna, en þar er gert ráð fyrir 8 nýjum störfum. Á Eyrarbakka er unnið að frekari útfærslu á áli í Alpan verksmiðjunni og er þar ýmislegt forvitnilegt til athugunar. í Vestmannaeyjum er nýstofnað fyrirtæki heimamanna að festa kaup á 1.800 fermetra húsnæði undir hurðaverksmiðju sem framleiðir gæðahurðir fyrir Þýskalandsmark- að. Fyrirtækið er keypt úr Mos- fellsbæ og er reiknað með 15-20 störfum í fyrirtækinu. í Hveragerði er Dvalarheimilið Ás og Grund í Reykjavík að hefja byggingu á nær 30 rúma hjúkrun- arheimili, en það mun fjölga störfum milli 20 og 30. í Hveragerði er Einar Hákonarson listmálari að byggja listamiðstöð með sýningaraðstöðu, ráðstefnuað- stöðu, verkstæði og veitingaaðstöðu og þar munu skapast störf. Til Selfoss er Prentsmiðja Suður- lands búin að kaupa fyrirtækið Kosti, kortagerðarfyrirtæki sem hef- ur unnið mikið fyrir sveitarfélög og smærri félög í landakortum og bækl- ingum, en þar er reiknað með 4 störfum. í Þorlákshöfn er tekin til starfa loðnubræðsla sem getur unnið úr 800 tonnum á sólarhring. Hún er að stærstum hluta í eigu heima- manna. Hér hefur verið stiklað á marg- breytilegum fyrirtækjum sem eru að hasla sér völl á Suðurlandi, því þar er vænt umhverfí, traust vinnu- afl og nálægð við helstu markaði en flóra fyrirtækjanna sem eru ný af nálinnni er miklu viðameiri en hér hefur verið nefnt. Margt fleira mætti nefna og mörg smærri fyrirtæki hafa náð góðum árangri á stuttum tíma og má nefna fyrirtæki á Sel- fossi sem sinnir líkkistusmíði og gróðrarstöð á Flúðum sem ræktar jarðarber. Allt um það sýnir þessi yfirferð svart á hvítu að það er engin deyfð yfir tilþrifum í atvinnuuppbyggingu á Suðurlandi, enda flest svo aðgengi- legt sem best getur verið. Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins & Suðurlandi. Fyrirtæki flykkjast á Suðurland Árni Johnsen Hínn drjúgi þáttur ÞAÐ VAR fallega gert af Ara Edwald, aðstoðarmanni sjáv- arútvegsráðherra, að taka upp hanskann fyrir herra sinn með athugasemdum sínum um skrif mín og sýndi hina sönnu þjónustu- lund, sem er svo mikil- væg að áliti margra til þess að slífa metorða- stigann. Hins vegar þóttu mér lokaorð athuga- semda hans vera ill spá um þá stigaferð, en þau eru þessi: „Til hvers að færa út land- helgina efveiðar skipta engu máli.“ Það er nýtstárlegt að láta sér detta í hug að líkja saman baráttu minni fyrir útfærslu landhelginnar, sem byggð var á fornum rétti ís- lensku þjóðkirkjunnar og sérstöðu til fiskimiðanna umhverfís landið og nú á síðustu tímum til réttar á fiskimiðum í Norður-Atlantshafí og varðaði sá þáttur baráttu minnar hundruð þúsundir milljarða króna um ókomna framtíð og svo á hinn bóginn niðurskurðum sjávarútvegs- ráðherrans á kvótum á Flæmska hattinum, Reykjaneshrygg og ís- lensk-norska sfldarstofninum, sem kostað hafa íslensku þjóðiwna tugi milljarða í rýrðum þjóðartekjum. Hins vegar má Ári Edwald eiga það að vera fyrsti pólitíkusinn í Sjálfstæðisflokknum, sem á minni löngu ævi hefur viðurkennt opinber- lega „að hafa heyrt að ég hafí átt drjúgan þátt í útfærslu landhelginn- aP‘. Að vísu hefur aðeins heyrt þetta, svo að mér hann skylt að gera honum aðeins betri grein fyrri „hinum djúga þætti“ mínum, þannig að hann geti betur áttað sig á málavöxtum. Er í aðalatriðum stuðst við bók mína „Ævibrot", sem Setberg gaf út 1990 og fæst enn hjá bókarforlaginu! Afskipti mín af land- helgismálum hófust 19. september 1951 með grein í Alþýðu- blaðinu og Sjómanna- blaðinu Víkingi og má segja að sú barátta standi enn, þó að í breyttu formi sé. Hún hefur aðallega birst í blaða- og tímartisgreinum, nærri sjötuíu talsins. Auk þess er um tug- ur greina um hina hrapallegu með- ferð Jan Mayen-málsins. Fyrir rúmlega 45 árum varði ég doktorsritgerð mína um „Landhelgi íslands með tilliti til fískveiða" við einn virtasta háskóla heims, París- arháskóla. Kjarni hennar var krafan um 50 sjómílna landhelgi. Ábendingar mínar um 50 sjó- mílna landhegli mættu fáheyrðri andstöðu, einkum meðal forystu- manna eins stjórmálaflokks, m.a. með brigslyrðum um óheiðarlega aflaðra lærdómsgráðu. Varð það til þess, að ég höfðaði þijú meiðyrða- mál, sem öllum lauk með jákvæðum dómum, en smánarbótum til mín. Útvarpserindi, sem til stóð að ég flytti, voru stöðvuð, einnig var 1. desember ræða 1952, sem Súdenta- ráð HÍ hafði einróma samþykkt að ég fiytti, stöðvað samkvæmt fyrir- mælum að ofan. Minna má á, að það var beinlínis fyrir mín orð, að Þórarinn Þórarins- Fyrir rúmlega 45 árum varði ég doktorsritgerð mína, segir dr. Gunn- laugur Þórðarson í fyrri grein af tveimur, um „Landhelgi íslands með tilliti til fiskveiða“. son, ritstjóri Tímans, gerði loks 21. maí 1952 alvarlegan fyrirvara í leið- ara blaðsins um að útfærslan í 4 sjómílur, 10. maí sama ár, væri ekki lokaskrefið í málinu. Þær að- gerðir höfðu sætt harðri gagnrýni af minni hálfu, vegna þess hve skammt var farið. Fjögra sjómílna landhelgi hélst óbreytt fram á árið 1958. Frá 22. febrúar til 30. apríl var alþjóða Hafréttarráðstefnan í Genf haídin. Eitt af verkefnum hennar var setn- ing alþjóðalaga um fískveiðiland- helgi þjóðanna. í blindni sinni lagði þáverandi utanríkisráðherra og landhelgisráðgjafí hans áherslu á að sett yrðu alþjóðalög um 12 sjómflna landhelgi, svokölluð 6 + 6 regla. Mér stóð stuggur af þessum ráðagerðum tvímenninganna og gagnrýndi hana óspart. Varð þessi óhugur minn til þess, að ég sendi öllum sendinefndum á Hafréttar- ráðstefnunni doktorsritgerð mína, en hún hafði verið gefin út með styrk frá Alþingi fyrr á þvi ári. Hér er svar mitt hálfnað. Slæ botn í það á morgun. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Dr. Gunnlaugur Þórðarson Burt með kvótann ÍSLENSKUR sjávarútvegur hefur verið í sífelldri geijun undanfamar aldir. Þilskipaútgerðin, togaraöldin, síldveiðiævintýrin eða skuttogara- byltingin voru allt eðli- legt framhald eða þróun sem mátti að einhveiju leyti sjá fyrir eða var óumflýjanieg. Allar þessar breyt- ingar og aðrar sem orð- ið hafa í aldanna rás á útvegsmálum lands- manna hafa verið gerð- ar af sjómönnum og útgerðarmönnum. Fólki sem lifði og hrærðist í veiðum og verkun afla. Mönnum sem áttu allt undir því að vel tækist til um allar breytingar og nutu einnig góðs af þeim. En öll þessi miklu umskipti eru hjóm eitt samanborið við þá ákvörðun hins háa Alþingis að koma á hagræðingu í útgerðarmálum Gamaldags útgerðar- menn týna tölunni, segir Egill Guðmundsson, og útgerðin snýst æ meir um brask með kvóta. landsmanna og til varð kerfí sem í daglegu tali fólks kallast kvótabrask. Margir benda á batnandi hag út- gerða og segja að þessi breyting sem alþingismenn komu í lagagjöming hafí náð tilgangi sínum fyllilega. Útgerðin blómstri sem aldrei fyrr og það er vafalaust rétt. Með öðrum orðum, þau fyrirtæki sem hafa yfir fískistofnum landsmanna að ráða, sýna ótrúlega góða afkomu og arður til hluthafa er án efa í samræmi við það. Kerfísbreytingunum er af mörg- um þakkað það góðæri sem útgerðin býr við um þessar mundir, en ekki aukningu sjávarafla. En hvaða verði er þetta góðæri keypt og hvemig hefur verið farið með þá sem í upphafí lögðu gmnninn að góðum kvóta? Eru það sjómenn og útgerðarmenn sem sitja nú sælir við það allsnægtaborð sem tók þá alla Islandssöguna að dúka? Það er alkunna að mörg sjávarút- vegsfyrirtæki stóðu illa í lok níunda áratugarins og þeim gekk illa að vinna sig út úr vanda sem fyrst varð sýnilegur þegar tókst - svo að segja í einu vetfangi - að kveða niður verðbólgu hér á landi. Þau urðu að reiða sig á „velvild" fjármálastofnana og segja má að bankar og aðrir sjóð- ir hafí ráðið miklu um ákvarðanir sem teknar voru um uppstokkun og endurskipulagningu þeirra. Víða var því svo háttað um fyrir- tæki í veiðum og vinnslu sjávarafla að landvinnslan var sjálfstæð eining og útgerðin einnig. Þetta var mikil- vægd; atriði þegar kvótinn fór að skipta máli sem „eign“ fyrirtækj- anna. Mörg skipin stóðu vel eigna- lega en landvinnslan illa. Bankamir áttu mest veð í húsum og fasteignum í landi og var því kappsmál að samr- uni yrði á fyrirtækjunum þannig að útgerð og vinnsla yrðu eitt. Þegar því marki var náð höfðu lánadrottnar fyrirtækjanna náð tangarhaldi á þeim verðmætum sem felast í kvót- anum. Eign sem koma mátti í verð og ráðstafa með klókindum burt úr héraði en verðlaus húsin stóðu eftir. Eins gátu „ráðgjafar" og lánadrottn- ar hvatt til þess að skipin væru seld til að létta skuldabyrðina og sátu menn þá eftir með minni skuldir en einnig með hús sem höfðu ekkert hráefni til að vinna. Fólkið atvinnu- laust og svipt möguleikanum til að sækja sér björg í bú, en bankamir stóðu heldur betur en áður. Skipstjórar sem margir hveijir eru kunnir aflamenn, eru settir af skipúm sínum þegar þau eru seld og standa eftir á bryggjunni og hafa engan rétt lengur til að stunda sjóinn. Kvót- inn hvarf með skipinu. í mörgum grónum út- gerðarplássum ganga nú þeir sjómenn sem lagt hafa grunn að kvótaeigninni atvinnu- lausir eða veija nauðug- ir viljugir ótrúlega stór- um hluta tekna sinna í kvótakaup útgerða sem geta síðan ráðstafað honum að vild sinni, en bundið skipin um lengri eða styttri tíma, eða sent þau vanbúin í út- hafið hvort sem veiðist þar eða ekki. Á meðan geta þeir braskað með kvótann í stað þess að veiða. Með öðrum orð- um, til er að verða herraþjóð sem í skjóli kvótaeignar ræður hvort og hvaða sjómenn fá að stunda vinnu sína og ákveður ein- hliða með margvíslegum skiptum á aflaheimildum hvaða verð greitt er fyrir aflann. Gamaldags útgerðarmenn eru að týna tölunni, fyrirtæki þeirra eru flest að komast á almennan markað og smám saman missa þeir völdin í hendur manna sem kunna betur til verka í „nútíma rekstri“. Rekstri þar sem útgerð snýst í æ ríkara mæli um brask og tilflutning fjármagns í formi kvóta. Í stað útgerðarmanna er að verða til stétt spákaupmanna sem eru úr öllum tengslum við þau rótgrónu viðhorf þjóðarinnar að físk- veiðar og vinnsla afla séu sjálfsögð mannréttindi en ekki ölmusugjafir einhverra kvótabraskara. Umræðan um kvótamál lands- manna eru reyndar komin út um víð- an völl, allir telja sig eiga fískinn í sjónum og þeir sem aldrei hafa nærri fískveiðum komið heimta að þeir fái sinn kvótahlut greiddan út, eða í það minnsta að þeir sem vilja veiða borgi fyrir aðganginn að þessari „þjóðar- eign“. Fiskurinn í hafinu er ekki eign nokkurs manns fyrr en hann er veiddur, þannig hefur það alltaf ver- ið og verður, ef hefð og sanngirni fá að ráða. Hver einasti þegn lands- ins sem vill og getur á að hafa fijáls- an aðgang að veiðum og vinnslu sjáv- arafla og þeir sem ná árangri hagn- ast en hinir hverfa að einhveiju öðru. Sjávarútvegsráðuneytið getur í nánu samstarfi við Hafrannsóknar- stofnun ákveðið veiðiþol fiskistofn- anna og haft náið eftirlit með því að til ofveiði komi ekki, skipt sókn- inni niður í tímabil eins og gert var í eina tíð og sett upp eftirlitskerfí sem virkar og er virt. Þær útgerðir sem hafa keypt eða áunnið sér kvóta tapa í sjálfu sér engu á fijálsum aðgangi allra að auðlindinni vegna þess að þær hljóta að vera vel í stakk búnar til að taka þátt í frjálsri keppni um þann tak- markaða afla sem úthlutað er á ári hveiju en ef þær geta ekki spjarað sig eru þær í raun ekki meira virði en innistæðulausar ávfsanir. Alþingismenn virðast margir slegnir blindu þegar rætt er um órétt- læti „kvótalaganna", þannig sagði formaður sjávarútvegsnefndar í út- varpi fyrir stuttu að fara yrði með gát í allar breytingar á lögunum vegna þess að útgerðin í landinu yrði að búa við öryggi og festu. Nær hefði verið að huga að öryggi og hag þjóðarinnar allrar áður en ráðist var í breytingar á fískveiðistefnu lands- manna, í stað þess að svipta hana þeim rétti til fískveiða sem hún hefur búið við frá því að land byggðist. í stað þess að standa vörð um órétt á alþingi að setja lög sem auka rétt- læti og skapa þegnunum sem jafn- asta möguleika til að nýta þær auð- lindir sem við búum við. Höfundur er vélfræðingur, bókmenntafræðingur og kennari. Egill Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.