Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.02.1997, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 1997 37 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SKOGRÆKT GEGN LOFTMEN GUN ATHYGLISVERÐAR upplýsingar um koltvísýrings- mengun á íslandi koma fram í viðtali Morgunblaðs- ins á sunnudag við tvo skógfræðinga, þá Aðalstein Sigur- geirsson og Þorberg Hjalta Jónsson. í fyrsta lagi greina vísindamennirnir frá því að fjórðung- ur mengunarinnar stafi frá fiskveiðum, fjórðungur frá siglingum og flugsamgöngum, fimmtungur frá iðnaði og fimmtungur frá bifreiðum og tækjum, en tíundi hluti mengunarinnar er af öðrum orsökum. Þetta sýnir að þeir, sem vilja halda koltvísýringsmeng- un í lágmarki og stuðla að því að ísland standi við alþjóð- legar skuldbindingar sínar urh að draga úr slíkri mengun, verða að beina sjónum sínum að fleiru en nýjum iðnfyrir- tækjum. Stóriðja hér á landi er engan veginn versti meng- unarvaldurinn; þvert á móti má telja víst að auknar úthafs- veiðar íslenzkra skipa á undanförnum árum hafi einna helzt stuðlað að aukinni koltvísýringsmengun. Tíðari sam- göngur til og frá landinu hafa sömu áhrif. Jafnt í sjávarút- vegi, samgöngum og iðnaði hljóta menn að leita vist- vænna lausna og leitast við að nýta hreina og endurnýjan- lega orkugjafa í sem mestum mæli. í öðru lagi kemur fram í viðtalinu að íslendingar séu að mörgu leyti vel í stakk búnir til að vinna á móti koltví- sýringsmengun með skógrækt og landgræðslu. Uppsöfnun kolefnis sé hér hröð, stór hluti landsins sé þakinn kolefnis- snauðum jarðvegi og miklir möguleikar séu því að safna kolefni í jarðveg og loks séu hér fáir aðrir arðbærir kost- ir til nýtingar láglendisauðna. Vísindamennirnir segja að með því að gróðursetja 10.000 hektara af skóglendi árlega megi ná því markmiði ríkisstjórnarinnar að binda 100.000 tonn af koltvísýringi fram til aldamóta og binda allan mengunarauka áranna 1990-2000. Þeir velta jafnvel upp þeirri hugmynd að ríki og fyrirtæki geti í framtíðinni verzlað með kolefnislosun- arkvóta, þannig að ísland gæti haft tekjur af því að binda koltvísýring fyrir önnur lönd. Möguleikarnir í þessum efnum eru sannarlega skoðunar verðir, ekki sízt vegna þess að auk þess að hamla gegn áhrifum mengunar stuðlar skógrækt að fegrun landsins og auknum gæðum þess og bætir fyrir spjöll, sem orðið hafa á gróðurlendi íslands af mannavöldum. Þó er mikilvægt að áherzla á skógrækt og landgræðslu verði ekki til þess að menn slái slöku við í leit sinni að leiðum til að minnka útblástur koltvísýrings á landinu. í þeim efnum verður jafnframt að gera samstillt átak og gera miklar kröfur til einstaklinga og atvinnufyrirtækja. FÆÐIN GARORLOF OG KJARASAMNINGAR IÞEIM viðræðum um kaup og kjör, sem fram hafa far- ið undanfarið, hefur ekki heyrzt orð frá Alþýðusam- bandinu eða landssamböndum þess um að tryggja þurfi körlum sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs með kjarasamn- ingum. Sjálfstæðar konur, hópur ungra kvenna sem starf- ar á vettvangi Sjálfstæðisflokksins, hafa bent á að þetta sé í litlu samræmi við fyrri yfirlýsingar forystumanna verkalýðshreyfingarinnar í jafnréttismálum. Morgunblaðið hefur margoft hvatt til þess að tekið yrði á þessu máli í kjaraviðræðum, enda eru þær rétti vettvang- urinn til þess. Ein helzta forsenda þess að hægt sé að jafna laun og stöðu kynjanna á vinnumarkaðnum er að ábyrgð á heimili og börnum sé skipt jafnar á milli þeirra. Það er líklegra til árangurs að semja um slíkt á milli aðila vinnumarkaðarins en að löggjafinn þvingi fram rétt karla til fæðingarorlofs og sennilegra að gagnkvæm sátt og skilningur ríki í málinu. Því miður virðist skilningnum áfátt og lítill vilji til að taka á þessu brýna jafnréttis- og réttlætismáli, nú þegar til stykkisins kemur. Það er þó enn ekki of seint fyrir aðila vinnumarkaðarins að setja fæðingarorlof karla á dagskrá í kjaraviðræðunum og standa þannig við fyrri yfirlýsingar um að jafna þurfi stöðu kynjanna á vinnu- markaðnum og draga úr hinum hróplega launamun. Nokkur málþing um kynferðisofbeldi haldin í febrúar og mars Hugmyndir um einhliða kvóta íslands í Smugunni Tala verður af hispurs- leysi um kyn- ferðisofbeldi Á fyrsta hluta málþings um kynferðisofbeldi sem hófst síðasta laugardag og haldið verður næstu laugardaga var meðal annars rætt um viðhorf réttarkerfísins, vinnureglur á leikskól- um og um þögn og bannhelgi. Jóhannes Tómasson fylgdist með nokkrum erindanna. Morgunblaðið/Kristinn FJÖLMENNT var á málþingi um kynferðisofbeldi sem haldið var í Reykjavík á laugardaginn var. Slík málþing eru ráðgerð næstu fjóra Iaugardaga. RÓUN en ekki stökkbreyt- ing er í þá átt að vitnis- burðir barna þyki trúverð- ugir þegar leitað er sönn- unar á afbrotum vegna kynferðisof- beldis, leikskólakennarar eru oft í vanda þegar grunur vaknar hjá þeim um að börn hafi orðið fyrir kynferðis- ofbeldi, setja verður í pólitískt sam- hengi reynslu þeirra sem orðið hafa fyrir kynferðisofbeldi og nauðsynlegt er að geta talað um þessi mál af hispursleysi. Þetta var meðal þess sem fram kom í erindum á málþingi um kynferðisofbeldi sl. laugardag en slík málþing verða einnig haldin næstu íjóra laugardaga í Reykjavík. Margrét Steinarsdóttir lögfræð- ingur fjallaði um viðhorf réttarkerf- isins til vitnisburðar barna. Hann hefði lengst af ekki þótt trúverðug- ur, talinn ónothæfur hjá börnum undir 15 ára en viðhorf væru að breytast smám saman með breyttu þjóðfélagi. Börn væru vanari því en áður að vera spurð álits og hræddust síður en áður yfirvöld og afstaða þeirra markaðist ekki af óskoraðri virðingu fyrir valdamönnum. Hún rakti þijá hæstaréttardóma, þann elsta frá 1978, þar sem vitnis- burður barna þótti í sumum tilvikum ekki nógu trúverðugur til sakfelling- ar gegn neitun ákærðu. Svo var í fyrsta tilvikinu þrátt fyrir að stúlka á sjöunda ári þætti veita skýra frá- sögn. í öðrum dóminum var maður sakfelldur fyrir brot gegn tveimur bömum af þremur sem hann var ákærður fyrir en refsing héraðsdóms stytt í hæstarétti. í þriðja tilvikinu var um að ræða ákæru á hendur manni vegna brota á fjórum drengj- um sem ekki voru venslaðir ákærða. Þótti óhætt að leggja framburð þeirra til grundvallar þrátt fyrir neitun mannsins. Taldi Margrét að vissa þróun mætti greina í þessum dómum, enda ætti réttarkerfið að koma til móts við böm, farið væri að taka fleiri atriði til greina sem renna mættu stoðum undir framburð barna, svo sem álit sérfræðinga. Hún sagði þó óvarlegt að draga ályktun af svo fáum dómum og alltaf væri ljóst að sönnun væri erfið í málum sem þess- um gegn neitun hins ákærða. Hér væri því kannski um þróun að ræða en enga stökkbreytingu. Erfið mál Kristín Dýrfjörð leikskólakennari greindi frá vinnureglum Dagvistar barna í Reykjavík fyrir leikskólana. Nefndi hún að í námi sínu í Fóstur- skólanum, sem hún lauk 1986, hefðu ákveðin einkenni barna verið útskýrð með öðrum hætti en að þau hefðu orðið fyrir kynferðisofbeldi. í dag myndu hins vegar allar viðvörunar- bjöllur hringja en hér yrðu leikskóla- kennarar hins vegar líka að gæta þess að sjá ekki grýlu í hveiju horni. Hún sagði ekki spurningu um hvort heldur hvenær leikskólakenn- arar þyrftu að blanda sér í mál af þessum toga og tilkynna til barna- verndaryfirvalda. Lagði hún áherslu á mikilvægi þess að skráðar væru dagsetningar þegar greinilegar at- ferlisbreytingar kæmu fram hjá börnunum, ræða yrði við leikskóla- stjóra og kanna hvort leita ætti ráða hjá sálfræðingi en kalla yrði einnig foreldra til á ákveðnu stigi. Sagði Kristín að hér væri um sérlega erfið og viðkvæm mál að ræða og að leik- skólakennarar væru oft í klemmu með þau. Guðrún Jónsdóttir ræddi um þögn og bannhelgi og vildi setja kynferðis- ofbeldi í samhengi við valdahlutföllin í þjóðfélaginu, karlar hefðu valdið að vildu sýna það. Taldi hún ekki verða neinar breytingar við ríkjandi valdahlutföll karla og kvenna. Sagði hún þögnina hafa ríkt um þessi mál, sérstaklega sifjaspell, og spyija mætti hvort best væri að geyma og gleyma, liði þá ekki öllum betur? Þriðja til fjórða hver stúlka yrði fyr- ir kynferðisofbeldi innan við 16 ára aldur og sjöttu til sjöundi hver dreng- ur og í 90-95% tilvika væru gerend- ur karlmenn. Guðrún sagði að sagan sýndi að alda kynferðisofbeldis risi hæst þegar kvennabarátta væri í lágmarki. Hún sagði hlutverk Stígamóta að vera rödd þolenda, vekja fólk til vitundar um nauðsyn breytinga og skilnings á því að kynferðisofbeldi ætti að heyra sögunni til. Sagði hún safnað gögnum hjá þeim sem leituðu aðstoð- ar, haldin námskeið, veitt fræðsla og efnt til aðgerða. Guðrún sagði nauð- synlegt að persónuleg reynsla þo- lenda væri sett í pólitískt og félags- legt samhengi, fjölskyldur og þjóðfé- lagið gæti ekki stungið höfðinu í sandinn og látið sem ekkert væri. Líkamleg einkenni og hegðun Björg Eysteinsdóttir ræddi starf skólahjúkrunarfræðinga og sagði að við Langholtsskóla væri t.d. starfandi nemendaverndarráð sem fundaði vikulega, skipað skólastjóra, aðstoð- arskólastjóra, sérkennara, skóla- hjúkrunarfræðingi og skólalæknir sæti fundina mánaðarlega. Þar væri m.a. hægt að taka upp mál af þessum toga. Björg vitnaði til erlendra rann- sókna á börnum sem orðið hefðu fyrir kynferðisofbeldi sem bæði hefðu ákveðin líkamleg einkenni svo sem höfuð- og magaverki og sýndu ýmis viðbrögð svo sem reiði, árásargimi og þau forðuðust náin sambönd. Hún sagði börnin gera allt til að þegja um ofbeldismeðferð sem þau hefðu upplifað. Sagði hún nauðsynlegt að tala af hispursleysi um þessi mál. Hjartagallar, slys, ofnæmi og eyrnabólga meðal umræðuefna á vísindafundi félags barnalækna JJVERSU oft læknast bólga eru miðeyra af sjálfu sér, sýklalyf betri en að gera ekkert, hvað er lækning í þessu sambandi, er það þegar bakteríur eru ekki leng- ur fyrir hendi eða barnið hættir að hafa verki? Þessum spurningum varpaði Þórólfur Guðnason barna- læknir á Bamaspítala Hringsins fram í erindi sínu á Vísinda- og fræðsludegi Félags íslenskra barna- lækna sl. laugardag. Þórólfur ræddi meðferð miðeyrna- bólgu hjá börnum og sagði meðal annars að eyrnabólga virtist læknast af sjálfri sér í 80% tilvika en í 90% tilvika með sýklalyfjum. Þórólfur Guðnason sagði að menn væru farnir að staldra við og spyrja þessara og fleiri spurninga, m.a. hvort sýklalyfin skiptu máli við með- ferðina, hver skammtastærðin ætti að vera, tíðni gjafar og í hve marga daga. Þórólfur sagði að við væga bólgu væri rétt að sjá til í tvo til þijá daga en væri líðan __________ barns verri eftir þann tíma væri rétt að hefja lyfja- gjöf. Hann sagði oft þrýst á lækna að gefa lyf þegar börn væm óróleg en þó mætti greina breytingu allra síðustu ár, m.a. vegna þess að menn vissu að mikil útbreiðsla sýklalyfja gæti aukið útbreiðslu baktería. Meðal annarra erinda á vísinda- og fræðsludegi barnalæknafélagsins var erindi Björns Árdals um tíðni Greining hjartagalla á meðgöngu mikilvæg Víða var komið við á fundi bamalækna síðastliðinn laugardag. Hér á eftir er vikið að nokkrum þeirra viðfangsefna sem rædd voru á fundinum. Kettir valda oftast ofnæmi hjá börnum ofnæmissjúkdóma hjá börnum á ís- landi. Greindi hann frá rannsókn á 179 börnum fæddum 1987 en eftir 8 ár væru 134 börn í hópnum. Kom fram að ofnæmiseinkenni fundust hjá 33% barnanna, meðaltal astma -------- af þeim væri kringum 13%, exem fyndist hjá nærri 18% og annað of- næmi hjá um 10%. Sagði hann ketti oftast valda ofnæmi hjá börnum og þá ekki aðeins köttur á heimili barns heldur hjá skólafélögum eða öðrum sem barnið umgengist mikið. Björn sagði framundan að vinna mikið úr þeim tölulegu upplýsingum sem rannsóknin hefði gefíð og væri sú vinna á frumstigi. Of mörg slys á börnum Olafur Gísli Jónsson og Sævar Halldórsson kynntu samantekt um höfuðáverka á börnum en árlega koma milli 350 og 500 börn á slysa- deild vegna höfuðáverka, síðustu fímmm árin hefðu alls hátt í tvö þúsund börn komið á deildina. Stærsti hópurinn væru börn upp að fimm ára aldri og drengir væru stærri hópur en stúlkur. Ólafur Gísli sagði að með flutn- ingi barnadeildar Landakotsspítala í Fossvoginn hefði gefist tækifæri til nánari kynna og rannsókna á öllum þeim börnum sem kæmu á slysadeild og hefðu verið teknar saman tölur fyrir tímabilið júlí 1995 til ársloka 1996. Um 10% barna sem kæmu á slysadeild væru lögð inn í einn til tvo daga, nokkur hópur dveldi þar lengur og sum væru jafn- vel nokkrar vikur. Algengustu or- sakir höfuðáverka yngstu barna væru fall eða hras heima við eða í skóla en umferðarslys væru einnig algeng orsök. Ólafur Gísli og Sævar sögðu slys á börnum of algeng og oft mætti rekja þau til sinnuleysis um öryggi þeirra og mætti margt betur fara, t.d. að börn væru ekki höfð laus í bílum. Þá bentu þeir á að skrá þyrfti betur slys á börnum í skól- _____ um; sögðu að slasaðist kennari í skólanum væri litið á það sem vinnuslys með tilheyrandi athugun- um en ekkert slíkt væri ““““ um að ræða hjá börnum. Þeir sögðu að oft tæki vikur, mánuði og jafn- vel uppí ár fyrir börn að jafna sig eftir alvarlega höfuðáverka, höf- uðkúpubrot og heilaskemmdir og þyrfti að kanna betur hver væru hugsanleg langtímaáhrif slíkra Slys á börnum má oft rekja til sinnuleysis áverka, hvort þeir gætu haft áhrif á lífsgæði barna síðar, framvindu í námi og starfi. Fóstureyðing stundum valkostur Hróðmar Helgason ræddi um greiningu meðfæddra hjartagalla barna á meðgöngu og sagði að ár- lega kæmu hér fram þtjú til fjögur slík tilfelli. í samantekt fyrir árin 1991 til 1995 hefðu talist 24 börn með slíka galla sem væru alvarlegir í 21 tilviki en vægir í þremur. Slíkir gallar eru greindir með ómskoðun eftir nokkurra vikna meðgöngu og væri í framhaldi af því hægt að meta lífslíkur og meðferðarmögu- leika. Við mjög alvarlega galla, t.d. þeg- ar hjartahólf væru mjög vanþroskuð væri fóstureyðing einn valkosturinn og hefði sú leið verið valin í 15 tilvik- um af þeim 24 sem skoðuð voru. Sagði Hróðmar slíka ákvörðun alltaf _________ erfiða en hún væri talin réttlætanleg í þessum til- vikum þegar ljóst væri að lífshorfur væru hörmuleg- ar, einn til tveir dagar. ..... Tvö barnanna dóu í fæðingu, eitt rétt fyrir fæðingu en sex eru lifandi og vegnar vel. Hann sagði greininguna mikilvæga þar sem hægt væri að bregðast við ákveðnum göllum í fæðingunni og strax eftir hana sem yki mjög á góðar lífshorfur þeirra barna. Afléttir ekki skyldu til að leita samninga * Utvegsmenn taka vel í hugmyndir um einhliða kvóta í Smugunni en viðbrögð norskra stjóm- ------------------7---------------—— valda em neikvæð. Olafur Þ. Stephensen bendir á að þótt einhliða kvóti geti bætt stöðu íslands á alþjóðavettvangi leysi hann stjóm- völd ekki undan þeirri skyldu að semja um Smuguveiðamar. UGMYNDIR Þorsteins Pálssonar sjávarútvegs- ráðherra um að íslend- ingar setji einhliða kvóta í Smugunni í Barentshafi, náist ekki samkomulag um veiðamar við Nor- eg og Rússland, hljóta góðar undir- tektir hjá íslenzkum útgerðarmönn- um en síðri hjá norskum stjómvöld- um. Ljóst er að einhliða kvóti væri til þess fallinn að bæta ímynd ís- lands út á við og sýna að íslending- ar vildu hafa einhverja stjóm á Smuguveiðunum. Ákvörðun um slíka kvótasetningu myndi þó ekki aflétta þeirri skyldu af öll- um aðilum að semja um veiðam- ar sín á milli. Með samþykkt nýrra laga um fískveiðar utan lögsögu íslands hefur sjávarútvegsráðherra fengið heimild til að takmarka veiðar íslenzkra skipa á úthaf- inu. Einhliða kvóti á veiðar í Smugunni yrði væntanlega sett- ur með vísan til 3. og 4. greinar þeirra laga. í 3. greininni segir að ráð- herra geti sett reglur um veiðar íslenzkra skipa utan lögsögunn- ar „sem nauðsynlegar eru til að fullnægja almennum skyldum Islands til verndunar lifandi auð- lindum hafsins.“ I 4. greininni er síðan kveðið á um að ráðherra skuli með reglugerð binda veiðar íslenzkra skipa á úthafínu sérstökum leyf- um sé það nauðsynlegt, t.d. vegna alþjóðlegra samningsskuldbindinga íslands eða til að fullnægja almenn- um ákvörðunum, sem teknar séu með stoð í 3. greininni. Alþjóðlegar skuldbindingar „Almennar skyldur íslands“ í þessu sambandi eru væntanlega þær skuldbindingar, sem felast í hafrétt- arsamningi Sameinuðu þjóðanna og úthafsveiðisamningnum, sem er nánari útfærsla á honum. í hafréttarsamningnum eru m.a. ákvæði um að öllum ríkjum beri skylda til að gera, „einum sér eða í samstarfí við önnur ríki“ ráðstafan- ir sem nauðsynlegar kunni að vera til vemdunar hinna lífrænu auðlinda úthafsins. Norðmenn hafa, til dæmis í greinargerð norska utanríkisráðu- neytisins til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), fært rök að því að ísland hafí brotið alþjóðlegar skuld- bindingar sínar með Smuguveiðun- um. Einhliða kvóti væri viðleitni til þess að hafa stjórn á veiðunum, eins og ísland er skyldugt til að þjóðarétti. Hann myndi hins vegar ekki aflétta af íslandi þeirri skyldu að ná fram lausn með samningum, sem er rauði þráðurinn í ákvæðum beggja fyrmefndra sáttmála. Nefna má ákvæði 2. málsgreinar 63. greinar hafréttarsamningsins, þar sem segir: „Þar sem sami stofninn eða stofnar tengdra tegunda em bæði í sérefnahagslögsögunni og á aðlægu svæði utan lögsögunnar skulu strandríkið og ríkin, sem veiða þessa stofna á aðlæga svæð- inu, annaðhvort beint eða fyrir milligöngu viðeigandi undirsvæðis- eða svæðisstofnana, leitast við að koma sér saman um nauðsynlegar ráðstafanir til að vernda þessa stofna á aðlæga svæðinu." Alþjóðasamningar leggja íslandi sömuleiðis þá skyldu á herðar að styðjast við beztu vísindalegar upp- lýsingar þegar kvóti á úthafinu er ákveðinn. Þar væri væntanlega hægt að leita í smiðju Alþjóðahaf- rannsóknaráðsins, sem hefur gefíð ráð um veiðiþol þorskstofnsins í Barentshafi. Það er nú talið 800-900 þúsund tonn. Sterkari staða og hagkvæmari veiðar „Mér fínnst að það gæti styrkt samningsstöðu okkar að gefa út kvóta og takmarka þannig hvað við myndum veiða,“ segir Kristján Ragnarsson, formaður Landssam- bands íslenzkra útvegsmanna. „Við höfum fylgt þeirri stefnu að ástunda ábyrgar físk- veiðar og viljum ekki vera ásakaðir um að gera hið gagnstæða.“ Kristján segist ganga út frá því að yrði settur kvóti á Smuguþorskinn myndi honum verða skipt á milli skipa, sem stund- að hafa veiðar í Barentshafi, eftir veiðireynslu undanfarinna ára. Kvótinn yrði jafnframt framseljan- legur. „Með þessu gætum við gert veiðarnar hagkvæmari en þær voru til dæmis í sumar, þegar nánast allur flotinn fór þarna norður eftir og hékk yfir nánast engu. Það myndi ekki gerast ef þetta væri framseljanlegur kvóti á skip,“ segir hann. Hvað á kvótinn að verða stór? Stóra spurningin er hins vegar hvað kvótinn yrði stór. Noregur og Rússland hafa gert íslandi tilboð um u.þ.b. 13 þúsund tonna kvóta í Smugunni. Islenzkum stjómvöldum þykir það of lítið, en hafa gefíð í skyn að þau kynnu að sætta sig við 15 til 20 þúsund tonn í samningum. Kristján Ragnarsson vill hins vegar setja markið hærra: „Að mínu mati væri mælikvarðinn sá að við höfum fiskað þarna tvisvar sinnum 35 þúsund tonn á undan- förnum þremur árum og einu sinni 22 þúsund. Kvótinn væri því rúm- lega 30.000 tonn og við myndum með því tryggja að lengra yrði ekki gengið. Þorskstofninn í Barentshafi er í miklum vexti og dreifing hans þar með að öllum líkindum meiri, þannig að þetta ætti að verða okk- ur auðveldari veiði. Þrátt fyrir það tel ég að við eigum að sýna full- komna ábyrgð, og tek undir orð ráðherrans um að við ættum að setja á þetta kvóta til að tryggja að við værum að framkvæma ábyrgar fiskveiðar.“ Kristján segir að enginn geti hald- ið því fram að 30.000 tonna kvóti myndi stefna viðgangi þorskstofns- ins í Barentshafi í hættu, enda hafi Norðmenn og Rússar ákveðið 800-900 þúsund tonna heildarkvóta úr stofninum. „Einhveijum myndi fínnast að við værum bara lítillátir að sætta okkur við 30.000 tonn,“ segir hann. Myndi ekki greiða fyrir samningum Ingvard Havnen, talsmaður norska utanríkisráðuneytisins, segir að yfirlýsing Þorsteins Pálssonar komi ekki á óvart, enda hafi Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra viðr- að svipaðar hugmyndir í viðræðum við norsk stjórnvöld í síð- ustu viku, í tengslum við Noregsheimsókn forseta íslands. „Við vonum að það takist að ná samning- um um Smuguveiðamar. Við erum sammála íslenzkum stjóm- völdum um að rétt sé að vera áfram í sambandi vegna þessa máls og það er ljóst að við myndum harma það mjög ef ísland tekur það skref að setja eigin kvóta í Smugunni. Það myndi ekki beinlínis greiða fyrir samningum um þorskinn í Smug- unni,“ segir Havnen. Hann segir norsk stjórnvöld ekki taka undir sjónarmið íslenzkra ráða- manna, sem hafa sagzt svartsýnni en áður á að hægt sé að ná samning- um um Smuguveiðarnar. „Viðræð- urnar hafa staðið í stað nokkuð lengi og það þykir okkur jafnleitt og ís- lendingum, en við eram enn reiðu- búnir að reyna að stuðla að lausn. Okkur finnst að við Norðmenn höf- um teygt okkur harla langt,“ segir Havnen. NORSKT varðskip reynir að klippa á togvíra islenzks togara í Barents- hafi. Deilan um þorskveiðar íslendinga hefur nú staðið vel á fjórða ár án þess að hilli undir lausn. Ný lög veita heimild til að setja kvóta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.