Morgunblaðið - 28.02.1997, Side 2

Morgunblaðið - 28.02.1997, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Járnblendifélagið hefur áhuga á að auka verulega umsvif sín Áhugi á að bæta við þremur nýjum ofnum VIÐRÆÐUR hafa átt sér stað milli fulltrúa Járnblendifélagsins á Grundartanga og Landsvirkjunar um að Landsvirkjun selji fyrirtæk- inu raforku til reksturs tveggja ofna til viðbótar, en það rekur nú tvo ofna og áformað er að hefja bygg- ingu á þeim þriðja í vor. Stjórn Landsvirkjunar samþykkti í gær að veita forstjóra heimild til að undir- rita viljayfirlýsingu um þessa raf- orkusölu. Fulltrúar íslenska ríkisins og norska fyrirtækisins Elkem, sem sameiginlega eiga 85% í íslenska járnblendifélaginu hf., ræðast við í dag um stækkun Jámblendiverk- smiðjunnar á Grundartanga og breytta eignaraðild í félaginu. Búist er við að það ráðist á fundinum hvort af stækkun verksmiðjunnar verði, en formleg ákvörðun um stækkun verður tekin á stjómar- fundi í næstu viku. Járnblendiverksmiðjan framleiðir nú kísiljárn í tveimur ofnum. Fyrir- tækið hefur gert samning við Landsvirkjun um orkukaup vegna reksturs þriðja ofnsins. Stjórn fyrir- tækisins hefur frest til 8. mars til að taka ákvörðun um hvort þessi samningur verður nýttur og þriðji ofninn verður byggður. Framtíðaruppbyggingin verði hér Ekki hefur verið gerður orku- sölusamningur vegna ofna númer fjögur og fimm, en stjórn Lands- virkjunar samþykkti í gær að heim- ila forstjóra fyrirtækisins að undir- rita minnisblað sem stefnt er að að verði fylgiskjal með samningi sem eigendur Járnblendifélagsins stefna að að gera fyrir 8. mars um stækkun verksmiðjunnar. Tveir stjórnarmenn í Landsvirkjun, Svavar Gestsson og Kristín Einars- dóttir, sátu hjá við afgreiðslu máls- ins. Helga Jónsdóttir, stjórnarfor- maður Landsvirkjunar, sagði að það hefði legið fyrir um nokkurn tíma að eigendur íslenska járnblendifé- lagsins hefðu áhuga á frekari stækkun félagsins til viðbótar við byggingu þriðja ofnsins. Þetta þýddi m.a. að Elkem myndi standa að framtíðaruppbyggingu á kísil- járnframleiðslu hér á landi. Það þýddi jafnframt að horfið yrði frá hugmyndum um frekari uppbygg- ingu í Noregi eða Bandaríkjunum. Minnisblaðið verður því aðeins undirritað að eigendur Járnblendi- verksmiðjunnar ákveði að stækka hana um einn ofn. í minnisblaðinu lýsa hluthafar íslenska járnblendi- félagsins og Landsvirkjun yfir sam- eiginlegum áhuga á að komast að samkomulagi um að auka orkufrek- an iðnað á íslandi. Athygli vekur að þar er bæði talað um vinnslu á kísiljárni og/eða kísilmálmi. Ætlun- in er að taka upp viðræður milli aðila um orkusölusamning vegna reksturs fjórða og fimmta ofnsins, sem verði teknir í notkun 1999 og 2001. Að gefnum tilteknum for- sendum er ætlun Landsvirkjunar að bjóða Járnblendifélaginu orkuna á verðbilinu 21-24 Bandaríkjadal- ir/MWst. Þetta er talsvert hærra verð en Járnblendifélagið greiðir fyrir raforkuna nú, en sama verð og nefnt hefur verið í viðræðum Landsvirkjunar við önnur stóriðju- fyrirtæki að undanförnu. Ofnarnir tveir sem Jámblendi- félagið rekur nota 36,5 MW hvor, en ofnarnir sem rætt er um að taka í notkun í verksmiðjunni nota 45 MW. Verði þrír nýir ofnar teknir í notkun eykst rafmagnsnotkun verksmiðjunnar úr 73 MW í 203 MW. Árekstrar á Suðurlandi HARÐUR árekstur varð á Suður- landsvegi vestan við Þrengslavega- mót í gær. Ökumaður annars bílsins var fluttur á slysadeild til rannsókn- ar og eru báðir bílamir ónýtir, að sögn lögreglu á Selfossi. Slæmt skyggni var á Hellisheiði þegar áreksturinn varð. Einnig varð harður árekstur á Eyrarbakkavegi eftir há- degi í gær. Jeppi sem var á leið vest- ur Eyrarbakkaveg lenti í snjóskafli, snerist á veginum og lenti á stórum sendiferðabíl sem kom á móti. Ekki urðu slys á mönnum. Þá rákust tveir bflar saman á Eyra- vegi á Selfossi um hádegisbilið en þar urðu heldur ekki meiðsl á fólki. ---------».♦.♦ Vinnuslys í Sundahöfn MAÐUR féll þijá og hálfan metra niður úr áltröppum sem runnu undan honum þar sem hann var við vinnu um borð í Brúarfossi í Sundahöfn í gærmorgun. Við fallið fór hann úr axlarlið og var hann fluttur á slysadeild. Aðalfundur Skot- veiðifélags Islands Mótmæla mismunun í formi gjaldtöku SKOTVEIÐIMENN greiða 25% vörugjald af byssum, skotfærum og skyldum vörum en stangveiðimenn, skíða- menn og golfleikarar sleppa við vörugjald af tækjum og tólum til sinna frístunda- iðkana. Auk þess verða skot- veiðimenn að greiða 1.500 króna veiðikortagjald á hveiju ári til að geta stundað áhuga- mál sitt. Aðalfundur Skotveiðifélags íslands, Skotvís, sem haldinn var 26. febrúar síðastliðinn, samþykkti harðorð mótmæli gegn 25% vörugjaldinu og skoraði á fjármálaráðherra að fella það niður tafarlaust. Skotveiðimenn benda á að þeir séu eini útivistarhópurinn hér á landi sem þarf að greiða sérstakt gjald til að rnega stunda áhugamál sitt. Árið 1995 nam veiðikortagjaídið alls 18,3 milljónum króna, auk þess sem vörugjald af byssum, skotfærum og skyldum varn- ingi var 13,5 milljónir á sama ári. íslenskir skotveiðimenn hafi því greitt 31,8 milljónir króna til hins opinbera 1995 umfram annað útivistarfólk. Vonsku- veður á Hellisheiði VONSKUVEÐUR var á Hellis- heiði og slæm færð þegar þessi mynd var tekin síðdegis í gær. Þæfingur var í efri byggðum Reykjavíkur og að sögn lögreglu var nokkuð um að fólk á vanbún- um bílum tefði fyrir umferð. Skil voru að færast inn á sunn- anvert landið í gær og því hvessti jafnt og þétt af austri og norð- austri fram eftir degi. Veðrið var gengið niður sunnanlands í gær- kvöld en enn var að hvessa norð- anlands, samkvæmt upplýsingum Veðurstofu. Norsk bókautgafa Ætlar að leiðrétta þjóðerni Snorra EIÐI Guðnasyni, sendiherra ís- lands í Noregi, hefur borist svar- bréf frá norsku bókaútgáfunni J.M. Stenersen Forlag þar sem beðist er velvirðingar á því að Snorri Sturluson hafi verið sagð- ur norskur rithöfundur í auglýs- ingu fyrirtækisins um kvæða- bálkinn Norðurlands trómet í norska dagblaðinu Aftenposten fyrir skömmu. Eins og Morgun- blaðið greindi frá sendi Eiður bréf til bókaútgáfunnar í síðustu viku þar sem farið var fram á að þjóðerni Snorra yrði leiðrétt í auglýsingunni. I svarbréfinu segir Halfdan W. Freihow, yfirmaður bókaút- gáfunnar, að útgáfunni sé full- kunnugt um að Snorri hafi verið íslenskur rithöfundur, en af ein- skæru hugsunarleysi hafi hann verið sagður norskur í auglýs- ingunni og í kynningu á bók- arkápu kvæðabálksins. Hann segir sjálfsagt að þessi mistök verði leiðrétt og lofar að ný kápa verði prentuð utan á bækurnar og að auglýsingunni verði breytt. Eiður segir það mjög ánægju- legt hve forsvarsmenn bókaút- gáfunnar brugðust skjótt og snöfurmannlega við og að þeir skyldu viðurkenna að um mistök hefði verið að ræða. „En því er ekki að neita að það er mjög al- gengt að Norðmenn tali og skrifi um Snorra eins og hann hafí verið norskur og þess vegna ber að leiðrétta það hvenær sem hægt er,“ segir hann. Hæstiréttur í máli Jóhanns G. Bergþórssonar Akærunni vegna brota á hegningarlögum vísað frá HÆSTIRÉTTUR mildaði í gær dóm héraðsdóms í máli ákæru- valdsins gegn Jóhanni G. Berg- þórssyni, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Hagvirkis-Kletts. Jóhann er dæmdur í þriggja mán- aða skilorðsbundið fangelsi, en héraðsdómur hafði talið refsingu hans hæfilega tólf mánaða skil- orðsbundið fangelsi. Sekt Jóhanns er hins vegar óbreytt, fjórar millj- ónir króna. Jóhanni var gefið að sök að hafa ekki staðið ríkissjóði skil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu skatta, sem dregin hafði verið af starfsfólki. Þá var hann einnig ákærður fyrir að draga Hagvirki- Kletti hf. fé og nota það í rekstur félagsins, með því að halda eftir lífeyrissjóðsiðgjöldum, félags- gjöldum stéttarfélaga og meðlags- skuldum starfsfólks. í dómi Hæstaréttar segir, varð- andi þá ákæru er laut að brotum á hegningarlögum, að reifun máls- ins sé svo áfátt, að dómur verði ekki felldur á sakarefnið og málinu því vísað frá héraðsdómi að þessu leyti. Með vanreifun vísaði Hæsti- réttur m.a. til þess, að ekki hefðu verið lögð fram gögn, sem sýndu fram á að hvaða marki Hagvirki- Klettur innti af hendi greiðslur, eins og Jóhann hélt fram og því væri ekki unnt að leysa úr því hvort staðhæfingar hans væru réttar, en þær gætu leitt til sýknu ef réttar væru. Hæstiréttur vísar hins vegar til framburðar Jóhanns fyrir héraðs- dómi, um að hann hafí ákveðið að Hagvirki-Klettur léti hjá líða að standa á réttum tíma skil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu skatta. Því bæri að staðfesta dóm héraðsdóms, um að hann hefði ekki staðið skil á rúmlega sextán milljóna króna virðisaukaskatti og tæpum 13 milljónum í stað- greiðslu. Hæstiréttur telur hæfilega refs- ingu þriggja mánaða fangelsi, skil- orðsbundið í tvö ár og staðfestir dóm héraðsdóms um 4 milljóna króna sekt til ríkissjóðs. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómararnir Garðar Gíslason, Arn- ljótur Björnsson og Markús Sigur- björnsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.