Morgunblaðið - 28.02.1997, Síða 16

Morgunblaðið - 28.02.1997, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Afkoma Eimskips versnaði í fyrra þrátt fyrir fjórðungs veltuaukningu Hagnaður dróst saman um 12% frá fyrra ári EIMSKIP skilaði um 532 milljóna króna hagnaði á síðasta ári eða sem svarar til um 4% af veltu. Þetta er um 12% minni hagnaður en á árinu 1995, en þá nam hagnaður félagsins um 602 milljónum eða 6% af veltu. Afkoman í fyrra var lakari en áætl- anir gerðu ráð fyrir, einkum af flutn- ingastarfseminni hér á landi. Fram kemur í frétt frá félaginu að helstu ástæður fyrir lakari afkomu séu hörð samkeppni í flutningum til og frá íslandi og kostnaðarhækkanir erlendis. Einnig réðst Eimskip í nokkur ný, kostnaðarsöm verkefni og fjárfestingar á árinu sem eiga eftir að skila félaginu ávinningi á næstu árum. Rekstrartekjur Eimskips og dótt- urfélaga á árinu 1996 námu 11.961 milljón og jukust um 26% milli ára. Veltufé frá rekstri nam 1.554 millj- ónum. Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu versnaði afkoma af rekstrinum sjálfum mun meira en endanlegar hagnaðartölur gefa til kynna. Rekstrarhagnaður án tillits til af- skrifta nam í fyrra um 1.369 milljón- um, sem er um 438 milljónum minna en árið 1995. Munurinn milli ára er enn meiri ef tekið er tillit til af- skrifta. Á móti þessu vegur mun hagstæðari útkoma fjármagnsliða í fyrra, en nettófjármagnstekjur námu samtals 398 milljónum borið saman við 69 milljónir árið 1995. Þá var einnig 119 milljóna söluhagnaður í fyrra sem ekki var til að dreifa á árinu 1995, en þá var um 21 milljón- ar kr. sölutap. Eigið fé félagsins nam alls 6.341 milljón króna í árslok og eiginfjár- hlutfall 38%. Arðsemi eigin flár eftir reiknaða skatta nam 9%. Að meðaltali störfuðu 1.013 starfsmenn hjá Eimskip og dótturfé- lögum þess á árinu 1996, en þar af voru 714 hér á landi, en 299 erlendis. Aðalfundur Eimskips verður hald- inn á Hótel Sögu fimmtudaginn 6. mars nk. Þar verður lögð fram skýrsla stjórnar félagsins fyrir árið 1996, gerð grein fyrir starfseminni á árinu og framtíðarhorfum. Fyrir fundinn verður lögð tillaga stjórnar félagsins um að greiða 10% arð til hluthafa og að hlutafé verði aukið um 20% með útgáfu jöfnunarhluta- bréfa. Ekki viðunandi Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, sagði í samtali við Morg- unblaðið að þessi niðurstaða væri ekki viðunandi. Arðsemi bókfærðs eigin fjár eftir skatta væri 9%, en hefði árið 1995 verið 12% sem væri eitt viðmið sem þeir hefðu til hliðsjón- ar. Hins vegar hefði velta fyrirtækis- ins aukist um fjórðung, efnahags- reikningurinn stækkað úr 12 í 16 milljarða og fjárfestingar verið veru- legar eða 4,2 milljarðar króna. Ástæðumar fyrir verri afkomu væru hörð samkeppni á markaði og breyt- ingar á siglingakerfí sem gerðu það meðal annara að verkum að hluta af árinu var siglingakerfið tvöfalt. Til viðbótar hafi íjárfestingar verið miklar, en vonir standi til að þær muni skila betri afkomu á næstu árum. Aðspurður sagði hann að nú væri það að skila sér hjá fyrirtækinu að vera með fleiri en eitt egg í körf- unni. Hin hefðbundna flutningastarf- semi kæmi mun lakar út heldur en hún hefði gert árið áður og það væri verkefni þessa árs að snúa því dæmi við. Hinn hluti starfseminnar, þ.e.a.s rekstur Burðaráss og fjár- málastarfsemi, auk starfsemi fyrir- tæksins erlendis væri að skila ár- angri sem vægi á móti lakari afkomu í flutningastarfseminni. lUÍMdQúr reikningum 1996 Rekstrarreikningur 1996 1995 Brevt. Rekstrartekjur Milljónir króna 11.961 9.526 +25,6% Rekstrargjöld án afskrifta 10.592 7.719 +37,2% Afskrlftir 1.207 934 +29,2% Fjármmunatekjur (gjöld) 398 69 +476,8% Söluhaganaður (tap) eigna 119 (21) Tekjuskattur og eignaskattur (147) (319) Hagnaður (tap) 532 602 -11,6% Veltufé frá rekstri 1.554 1.836 -15,4% Efnahagsreikningur (31 desember) 1996 1995 Brevt. I Etgnír: | Milljónir króna Veltuf jármunir 4.733 3.690 +28,3% Fastaf jármunir 11.770 8.726 +34,9% I Skutdir og eigið 16: | Skammtímaskuldir Milljónir króna 4.401 2.993 +47,0% Langtímaskuldir 5.761 3.625 +58,9% Eigið fé 6.341 5.798 +9,4% Hlutafé 1.960 1.627 +20,5% Nokkur hlutföll 1995 1994 Arðsemi eigin fjár 9,0% 12,0% Hagnaður (tap), % af rekstrartekjum 4,4% 6,3% Eiginfjárhlutfall 38,0% 47,0% Veltufiárhiutfail 1,08 1,23 Tietmeyer var- ar við hættum samfara EMU Frankfurt. Reuter. HANS TIETMEYER seðlabanka- stjóri hefur dregið upp dökka mynd af framtíðarhorfum evrópsks mynt- bandalags, EMU, ef tveimur skilyrð- um verði ekki fullnægt - það er að sameiginlegur gjaldmiðill verði stöð- ugur og aðhalds verði gætt á fjárlög- um til langframa. En Tietmeyer kvað einnig „ótíma- bært og óréttlætanlegt" að túlka hækkun dollarans gegn marki að undanförnu sem fyrirboða þess að sameiginlegur gjaldmiðill verði veik- ur. Hann ítrekaði þá yfirlýsingu fund- ar sjö helztu iðnríkja heims, G7, í Berlín 8. febrúar að mikil lækkun dollarans 1995 hefði verið leiðrétt. Ummæli Tietmeyers á ráðstefnu bandaríska fjárfestingabankans Goldman Sachs um fyrirhugað myntbandalag höfðu lítil áhrif á gengi dollarans, sem um 1,69 mörk hafa fengizt fyrir í Evrópu. Tietmey- er sagði einnig að Þjóðveijar vildu að markið yrði stöðugt og traust sem hingað til og að evró yrði sömuleiðis sterkur gjaldmiðill. „Ég vona að fólk í öðrum Evrópu- löndum sé sömu skoðunar," sagði Tietmeyer í ræðu. Hinn sameiginlegi gjaldmiðill, evró, verður tekinn í notkun 1. jan- úar 1999 og upplýsingar frá þessu ári munu hafa úrslitaáhrif á ákvarð- anir um hvaða ríki ESB verði aðilar frá byijun. Tietmeyer sagði að ef aðildarríki sýndu ekki aðgæslu við gerð fjárlaga gæti það leitt til launadeilna, vax- andi atvinnuleysis, aukins álags á velferðarkerfið og pólitísks þrýstings á væntanlegan Seðlabanka Evrópu (ECB), um að slaka á peningamála- stefnu - þrýstings sem ekki sé víst að ECB geti staðizt til langframa. Viðskiptavakt ímark- flokkum ríkisverðbréfa VIÐSKIPTASTOFA íslandsbanka og Búnaðarbankinn-Verðbréf hafa ákveðið að gerast viðskiptavakar í öllum markflokkum ríkisverðbréfa. Þessi ákvörðun kemur í framhaldi af þeim breytingum sem fyrirhugað- ar eru varðandi fjármögnun á skulda- bréfum ríkissjóðs og eftirmarkaði. í frétt frá íslandsbanka segir m.a. að bankinn fagni þeirri ákvörðun að fækkað sé flokkum ríkisverðbréfa úr 49 í 9 og muni vera með öfluga viðskiptavakt til að treysta verð- myndun þeirra á eftirmarkaði. Frá og með 25. febrúar 1997 muni Við- skiptastofa íslandsbanka daglega setja fram kaup og sölutilboð að íjár- hæð 450 milljónir í ofangreinda flokka. Þar segir ennfremur að viðskipta- vakt muni í framtíðinni gegna veig- amiklu hlutverki á verðbréfamark- aði. Fjárfestar geri auknar kröfur um að hafa þekkt markaðsverð á skuldabréfum. Þannig geti öflugur eftirmarkaður með 9 markflokka rík- issjóðs til dæmis aukið líkur á að erlendir fjárfestar sjái sér hag í að ijárfesta í íslenskum skuldabréfum. Einnig telur íslandsbanki mikil- vægt að treysta eftirmarkað með spariskírteini ríkissjóðs í sessi þannig að þau nái að mynda þann grunn sem mikilvægur er fyrir aðra útgef- endur að miða við. Þannig megi leiða líkur að því að miðað við óbreytt ástand lækki vextir á spariskírtein- um og þar með myndist aukið svig- rúm fyrir aðra útgefendur að fjár- magna sig á lægri kjörum. Af hálfu Búnaðarbankans-Verð- bréfa er bent á í frétt að verðbréfa- markaður á íslandi hefur eflst mikið síðustu ár og þróast hratt í átt til þess sem þekkist á erlendum verð- bréfamörkuðum. Ákvörðun fjármála- ráðherra um fækkun flokka, ríkis- verðbréfa úr 49 í 9 og að setja á laggirnar svokallað markflokkakerfi éigi að auka virkni markaðar og jafn- vel stuðla að lægri vöxtum. Búnaðarbankinn-Verðbréf skuld- bindur sig til að setja fram daglega kaup- og söluboð að fjárhæð allt að 450 m.kr. í ofangreinda markflokka ríkisverðbréfa. Viðskiptavaktin tók gildi í á miðvikudag, 26. febrúar. Hins vegar bendir bankinn á að til að efla markaðinn og tryggja virkni hans til framtíðar eru þó frek- ari aðgerðir af hálfu hins opinbera nauðsynlegar. Meðal annars þurfi Seðlabanki íslands að auka endur- hverf viðskipti með markflokkabréf gagnvart viðskiptavökum og enn- fremur þurfi að breyta vægi mark- flokka í lausafjárskyldu banka til jafns við ríkisvíxla. Húsbréf 2. flokkur 1996 Ávöxtunarkrafa Eigenda- skipti hjá ACO hf. BJARNI Ákason, sem verið hefur sölustjóri tölvufyrir- tækisins ACO hf., hefur keypt öll hlutabréf í fyrirtæk- inu af föður sínum, Áka Jóns- syni og fjölskyldu. Þá hefur fyrirtækinu verið breytt úr einkahlutafélagi í hlutafélag og er stefnt að því að skrá hlutabréfin á Opna tilboðs- markaðnum. Eitt elsta tölvufyrirtæki landsins ACO er eitt elsta tölvufyrir- tæki landsins og hefur verið í einkaeigu Áka Jónssonar og fjölskyldu hans frá upphafi. Bjarni sagði í samtali við Morgunblaðið að staða fyrir- tækisins væri mjög traust. Ársveltan hefði verið kring- um 400 milljónir og útlit fyr- ir um 20-25% aukningu á þessu ári. Þá segir hann í skoðun að selja hluti í fyrirtækinu til nýrra hluthafa, en endanleg- ar ákvarðanir liggi ekki fyrir í því efni. Faðir sinn, Áki Jónsson, muni hins vegar starfa áfram í fyrirtækinu. Hannes aftur til starfa á Stöð 2 HANNES Jóhannsson, einn fimmmenninganna sem hættu hjá íslenska útvarpsfé- laginu í janúar sl. og hófu störf hjá Stöð 3, hefur hafið störf að nýju hjá ÍÚ. Hannes hefur tekið aftur við sínu fyrra starfi sem tæknistjóri útvarpsfélagsins, en hann hafði starfað þar allt frá upphafi og þykir hann hafa yfirburðaþekkingu á tæknilegum þáttum sjón- varpsreksturs. Áð sögn Hreggviðar Jóns- sonar, stjórnarformanns Is- lenskrar margmiðlunar og framkvæmdastjóra þróunar- sviðs íslenska útvarpsfélags- ins, er ekki útlit fyrir að aðr- ir fyrrum starfsmenn ís- lenska útvarpsfélagsins sem fóru yfir til Stöðvar 3 komi aftur til starfa hjá íslenska útvarpsfélaginu. Spariskírteini ríkissjóðs 1. fl. D 1995,20 ára Ávöxtunarkrafa Vextir hækka talsvert ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa og spariskírteina hefur hækkað veru- lega að undanförnu og tók nýjan kipp eftir útboð Lánasýslunnar á miðvikudag. Ávöxtunarkrafa hús- bréfa var í gær á Verðbréfaþingi 5,81% en var í byijun vikunnar 5,70% og 5,60% fyrir 10 dögum. Þá hefur ávöxtunarkrafa spariskírteina til 20 ára einnig hækkað talsvert og lætur nærri að sú vaxtalækkun sem varð í byijun mánaðarins hafi öll gengið til baka. Ávöxtunarkrafan á Verðbréfa- þingi var 5,23% í gær, en var 5,26%.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.