Morgunblaðið - 28.02.1997, Side 28

Morgunblaðið - 28.02.1997, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Í DAGBLAÐINU- Vísi föstudaginn 21. febr. var á fjórum blaðsíðum sagt frá af- hendingu „íslensku tónlistarverðlaunanna 1997“ og í Morgun- blaðinu á sunnudag var einnig greint frá þessum atburði undir fyrirsögninni „Botn- leðja var best“. Verð- launaþegar munu hafa verið milli 15 og 20 og allir nema tveir eða þrír úr hópi þess fólks sem hefur orðið - eða er að verða - frægt fyrir afrek sín á ýms- um sviðum dægurtónlistar, þess háttar sem á ensku nefnist einu nafni „pop (eða popular) rnusie" en á sér eiginlega ekkert réttnefni á íslensku. „íslensku tónlistarverðlaunin“ Nafn þessarar árlegu viðurkenn- ingar og það hvemig verðlaununum er ráðstafað gæti bent til þess að íslensk tónlist sé ekki til önnur en poppmúsíkin. Leiðarahöfundur DV mánud. 24. febr. virðist líka vera þeirrar skoðunar. Grein hans ber yfirskriftina „Gróska í tónlistarlífi" og þar er það haft eftir formanni framkvæmdanefndar íslensku tón- listarverðlaunanna að „þau séu merk söguleg heimild um það sem efst er á baugi í tónlistarlífinu á hveijum tíma“. í greininni kemur einnig fram að iðnaðarráðuneytið hefur styrkt verðlaunaveitinguna, og að starfshópur á vegum ráðu- neytisins og „íslenska tónlistariðn- aðarins“ hefur skilað tillögum um „hvernig best verði hlúð að vexti tónlistarlífs hér á landi, einkum með tilliti til sóknar á erlenda markaði.“ Allt er þetta gott og blessað, og einskis óska ég þessari starf- semi og öllum sem að henni standa nema góðs eins. Það eina sem ég hef við þetta að athuga er notkun orðanna (íslensk) „tónlist" og „tónlistar- líf“, sem ekki kemur til álita þegar „ís- lensku tónlistarverð- laununum" er úthlut- að, enda heyrir það á engan hátt undir iðn- aðarráðuneytið, en er þó að margra dómi ekki síður mikilsvert en músíkiðnaðurinn. Menningarverðlaun DV í sama blaði og sagt var frá af- hendingu margnefndra tónlistar- verðlauna er einnig skýrt frá því (DV 21. febr.) hveijir hafa verið tilnefnd- ir til menningarverðlauna DV 1997 Orðið tónlist er ekki gamalt í málinu, segir Jón Þórarinsson, og algengt varð það ekki fyrr en nokkuð langt var komið fram á þá öld sem nú er senn liðin. á sviði tónlistar. Þar kemur til sög- unnar annað tónlistarfólk og önnur tónlistarstörf en áður voru nefnd. Þeir sem tónlistarnefnd DV hefur tilnefnt eru Jón Ásgeirsson fýrir óperuna Galdra-Loft, Jónas Ingi- mundarson og Kristinn Sigmunds- son fýrir geisladisk með Vetrarferð- inni eftir Schubert, Kammermúsík- klúbburinn fyrir Ijörutíu ára farsælt starf, Sinfóniuhljómsveit íslands fyr- ir framúrskarandi hljóðfæraleik, og Þórunn Bjömsdóttir fyrir tónlistar- flutning með börnum. Er furða þó spurt sé: Hvað er tónlist? Er það dægurtónlistin og hljómdiskaiðnaðurinn sem fyrst og fremst keppir að markaðssetningu og fjöldasölu heima og erlendis með því auglýsinga- og fjölmiðlafári sem því fylgir? Eða er það hið skrum- lausa og oftast lítt fréttnæma starf sem mikill fjöldi hámenntaðra lista- manna er að vinna og hefur unnið, heima og erlendis, tónskáld, hljóð- færaleikarar, söngvarar og söng- stjórar, með það að höfuðmarkmiði að ná sem mestri fullkomnun í list sinni? Eða er það kannske hvort tveggja? Að nefna hlutina réttum nöfnum Orðið tónlist er ekki gamalt í málinu, og algengt varð það ekki fyrr en nokkuð var komið fram á þá öld sem nú er senn liðin. Það er augljóslega þýðing á danska orð- inu tonekunst og hinu þýska Ton- kunst (á ensku art music). Merking þess er því í eðli sínu þrengri en alþjóðaorðsins músík, sem tekur yfír hvers konar tóniðkun þótt ekki hafi hún tilburði til listar. Þannig eru t.d. þjóðlög í sinni upprunalegu mynd músík en ekki tónlist. En síðarnefnda orðið hefur lík- lega frá upphafí verið notað jöfnum höndum í víðari merkingunni og hinni þrengri. Það kom ekki að sök meðan umsvif voru lítil á þessu sviði og beindust fremur að viðleitni til listsköpunar en markaðsleit. Tóniðnaður (eða tónlistariðnaður ef menn vilja það heldur) kom fyrst til sögunnar hér á landi með tækni- byltingunni á síðustu áratugum. Nú þegar þar er orðið um að ræða umsvifamikla atvinnugrein, sem segja má að vaxið hafi upp til hlið- ar við hið eiginlega tónlistarlíf í landinu, er kominn tími til að endurskoða þessa orðanotkun og helst að nefna hlutina réttum nöfn- um. Höfundur er tónskáld. FRÚ Ástríður Helgadóttir Andersen, sem giftist Hans Georg Andersen, þann 6. okt. 1945, en hann lést 23. sept. 1994, eftir ævi- þjónustu á snærum utanríkisráðuneytis- ins, brigslar mér um að vega að honum látn- um og ásaka hann um skammsýni og afglöp. Þessar getsakir eru í grein hér í blaði með yfirskriftinni: „Stað- reyndir tala sínu máli!“. Það er víðs fjarri öllum sannleika, að mér hafi nokkum tíma orðið á að fara með persónuleg hnjóðsyrði í garð hins látna ambassadors, slíkt hefur aldrei komið mér í hug. Hans G. Andersen, segir Gunnlaugur Þórðarson, var mjög hæfur diplomat. Þvert á móti er mér ljúft að rifja upp, að kynni okkar hófust í MR. Á þeim skólaárum kom hann oft í prófessorsbústaðinn á Kleppi, ásamt öðrum bekkjarbræðrum Agnars, bróður míns. Hans G. naut þess og mætti hlýhug og gestrisni. Hans G. Andersen reyndist mjög hæfur diplomat. Hann varð þjóð- réttarráðunautur ríkisstjórnar ís- lands á árinu 1946 og mér telst til að hann hafi óbeinlínis verið slíkur ráðgjafi, jafnframt sendi- mannsembættum til starfsloka. Ekkjufrú hans þykir það ekki nógu fínt, að starfsheitið ráðgjafi skuli hafa verið viðhaft af mér, þar sem átt er við hann í umræddum blaða- greinum. Það er hins vegar viðeig- andi í sambandi við landhelgismálið, því hann réð engu um þau mál endanlega, þótt hann gæti gefið ráð varð hann að hlíta fyr- irmælum ráðherra síns og ber að líta á verk hans þannig. Ekkjufrúin segir, að Hans G. hafi aldrei svarað gagnrýni minni um aðgerðir ríkis- stjórnar Islands í land- helgismálum. Þess vegna þurfi hún að gera það. En þá þarf hún að fara rétt með. Ekki er óalgengt, að eiginkonur embættismanna telji sig færari til að gegna embættum en þeir og við slíkri meinloku er ekkert að segja. Það er alveg rétt, að Hans G. Andersen lagði aldrei í að svara málefnalegri gagnrýni minni, enda skrifaði hann aldrei opinberlega að talist gæti neitt frá eigin brjósti, hvorki um landhelgismál né annað. Til eru 5-6 ritsmíðar um landhelg- ismálið gefnar út af utanríkisráðu- neytinu, sem Hans G. Andersen mun hafa samið, þótt nafns hans sé ekki getið sem höfundar nema í einu tilviki. í uppsláttarbókum um höfunda fræðirita hefur mér ekki tekist að finna nafn hans. Til þess kom aldrei, að Hans G. Andersen benti íslensku þjóðinni á víðtækari rétt í landhelgismálum en til 12 sjómílna landhelgi. Þótt hann hafi 30. nóvember 1970 lagt að íslensku þjóðinni í ríkisútvarp- inu, að sætta sig við 12 sjómílna landhelgi til frambúðar, er það trú mín, að hann hafi gert það sam- kvæmt fyrirmælum að ofan í því þjónustuhlutverki, sem starf hans var. Höfundur er lögmaður. Hvað er tónlist? Jón Þórarinsson Trygglynd ambassadorsfrú Gunnlaugnr Þórðarson JAFNAÐARLEGA snerta stefnumál breska Verkamanna- flokksins mig ekki, en fyrir eigi alllöngu tjáði leiðtogi flokksins, Tony Blair, sig um mál, sem mér er nokkuð hugleik- ið þegar hann á fundi sagði að tóbaksreyk- ingar væri helsta heil- brigðisvandamál Breta og það yrði eitt fyrsta verk ríkisstjórnar Verkamannaflokksins að banna tóbaksreyk- ingar í öllum opinber- um byggingum. Einhver hundruð þúsund Breta hljóta örkuml og dauða ár hvert af völdum reykinga. Nú er það ekkert sérbreskt fyrir- bæri að stjórnmálamenn lýsi yfir fyrir kosningar, hveiju þeir ætli að breyta eftir kosningar komist flokk- ur þeirra til valda. En í Bretlandi sem og í flestum löndum hins vestræna heims ríkir fulltrúalýðræði, svo ekki er gefið að yfirlýs- ingar, jafnvel leiðtoga flokka, um góð áform nái fram að ganga að kosningasigri loknum, sem er þó vert íhugun- ar hvort ekki eigi að víkja frá og láta hafa algjöran forgang þegar líf og heilsa mikils fjölda fólks er í húfi. Hinn fyrsta júlí sl. gengu í gildi hér á landi ný lög um tóbaksvarn- ir. Góðra gjalda vert er að óheimilt er nú að selja fólki tóbak, sem er innan 18 ára aldurs, jafnvel þótt það hafi ekki áhrif á neyslu þeirra, sem yngri eru, en nú þegar hafa ánetjast tóbakinu. Allmikið er nú Reykingafólk hefur verið, að mati Guðfinns S. Finnbogasonar, yfirgangshópur í samfélaginu. þrengt að athafnarými tóbaksneyt- enda. Er það vel, á það helst við um vinnustaði og þar sem fólk, ekki síst æskufólk kemur saman s.s. i félags-, íþrótta- og tómstunda- stöðum þeirra og svo þar sem veitt er heilbrigðisþjónusta af ýmsu tagi. En skyldi ég vera einn um þá skoð- un að í þessum lögum sé vanrækt að nefna staðinn þar sem viðvera fólks er lengst, minnstu möguleik- amir eru til þess að veijast eitur- áhrifunum og mótstöðuaflið er hvað veikast fyrir þeim. Hér er átt við heimilin í landinu. Nýlegar kannanir sýna nú að um 'h hluti þjóðarinnar reykir og einn- ig að reykingar ungra kvenna séu nokkuð að aukast. Með þá stað- reynd í huga liggur það ljóst fyrir að í návist þeirra eru viðkvæmustu þolendurnir, þar sem eru börnin. Nýr formaður tóbaksvarnarráðs segist vona að vaxandi reykingar kvenna séu ekki nýr þáttur í jafn- réttisbaráttu þeirra. Þyngra vegur þó, sem hann segir um afleiðingar óbeinna reykinga fyrir börn „óbein- ar reykingar valda asma og eyrnar- bólgum,“ Ríkisútvarpið 15.12. 1996. Telur einhver uppalandi sig þann bóg vera, að hann mótmæli þessari staðhæfingu Þorsteins Njálssonar, sem er sérfræðingur í einni grein læknisfræðinnar? Núverandi heilbrigðisráðherra hefur sýnt að hún hefur kjark til að tala um hlutina skýrum og skilj- anlegum orðum. í umfjöllun sinni um fíkniefnavandann, sem orðinn er geigvænlegur og er farinn að teygja anga sína um nær allt þjóðlíf- ið, minnist hún oft á forvarnir, því fyrr sem þeim er sinnt, því betra, oft nefnir hún þá skólana í því sam- bandi. Ekki er amast við því að áhersla sé lögð á að forvarnir séu viðhafðar í skólum en gæti ekki verið árangursríkast að hefja þær í kennarastofunum? Eg lýsi eftir meiri kjarki frá hennar hendi um hvar rót margs vanda í þjóðfélagi okkar liggur. í æsku minni var gjarnan haft á orði þegar einstakling bar af réttri leið, oftast ungan mann, og ógæfan og hamingjuleysið virtist blasa við. Hvar læra börnin málið? Vitaskuld var orsakanna fyrst Ieitað á heimili viðkomandi, sem var eðlilegt. Þetta fólk, kynslóð þess tíma, var ekki í vafa um að ástæðuna mætti og ætti að rekja til heimilanna og auð- vitað er það svo enn. Eða er nokk- ur svo bláeygður að telja að foreldr- ar og aðrar fyrirmyndir á heimilum bama hafi ekki mótandi áhrif á líf þeirra og hegðan og allir svo rúnir einurð að ekki megi á það minnast? Mikið írafár greip um sig í þjóðfé- laginu í fyrravetur þegar tannlækn- ar sögðu tanneyðingu ungmenna vera algenga og augljósa afleiðingu mikillar gosdrykkjaneyslu, af því tilfelli var í Sjónvarpinu, Dagsljósi, rætt við nokkur ungmenni í Reykja- vík, öll ræddu þau af hispursleysi um gosdrykkjaneyslu sína. Ein rödd skar sig úr. Ung stúlka sagðist aldr- ei neyta gosdrykkja, og ástæðan - á mínu heimili er aðeins drukkið vatn. Reykingafólk hefur verið yfir- gangshópur í þjóðfélagi okkar og mikill minnihluti þess virðir rétt þeirra, sem þola illa tóbaksreyk. „Meðan ég reykti leiddi ég aldrei hugann að því hvernig öðrum líkaði það,“ segir fyrrverandi reykinga- maður. Síðustu árin hafa verið gefnar út aðvaranir til þeirra sem haldnir eru fijóofnæmi og enginn vogar sér að fara með dýr inn á heimili þar sem fólk þolir ekki ná- vist þeirra. í allt of ríkum mæli virðist eins og sé að þeir sem ekki þola tóbaksreyk séu þeir einu sem hvergi em óhultir. Vaxandi reyk- ingar kvenna sanna þetta með óyggjandi hætti, ung börn þeirra hafa þurft og þurfa enn mikið að þola. Ótal dæmi eru um foreldra sem reykja, sem jafnan eru með skýringar á reiðum höndum um vanheilsu barna sinna, en nefna þá aldrei tóbakið, sem neinn orsaka- vald. Eigi sjaldan hef ég leitt að því hugann hvernig umboðsmaður barna brygðist við bærist henni bréf frá börnum t.d. innan 10 ára aldurs, þar sem þau kvörtuðu yfir því að á heimilum þeirra sé þeim meinað að anda að sér hreinu lofti, sem þeim sé þó lífsnauðsynlegt. Það er til of mikils vansa fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu að inn- an hennar vébanda skuli starfa fólk, sem þrátt fyrir langa skóla- göngu, margt hvert, virði einskis niðurstöður fjölmargra rannsókna um skaðsemi tóbaksreykinga, sem þó mætti ætla að það sé allvel uppfrætt um. Það má ekki dragast að annað tveggja gerist að fólk þetta bæti ráð sitt og hætti reyk- ingum eða því sé sagt upp störfum, hið sama ætti að gilda um alla kennara. Reykingar spilla lífi mikils fjölda fólks, þær eru orsök slysa og dauða, margra langt um aldur fram. Þær eru ein óskiljanlegasta athöfn hverrar fullorðinnar manneskju. Höfundur er bóndi að Miðhúsum í Strandasýslu. qifl0 BLUriDUQLUGGATJOLD Breidd 120 cm til 150 cm Z-BRAUTIR OG GLUGGATJOLD, FAXAFENI 14, SÍMI 533 5333. Að biðja sér banameins Guðfinnur S. Finnbogason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.