Morgunblaðið - 28.02.1997, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.02.1997, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ Bygging íþróttahúss framundan á Þórshöfn Fjármögnun með sölu á hlutabréfum í frystihúsinu Þórshöfn - Bygging íþróttahúss var eitt af stefnu- skrármálum beggja framboða við síðustu sveitar- stjómakosningar hér á Þórshöfn og er nú málið komið á nokkum rekspöl. Þórshafnarhreppur hyggst fjármagna sinn hluta í húsinu með sölu á um þriðjungi hlutabréfa sinna í Hraðfrystistöð Þórshafnar. Síðastliðið haust var gerður hönnunarsamning- ur við VT teiknistofuna á Akranesi um byggingu íþróttahúss en VT hefur hannað mörg íþrótta- mannvirki hérlendis og með mikla reynsiu á því sviði. Þar er nú verið að hanna mannvirkið og gert ráð fyrir að útboð á verkinu fari fram 25. mars nk. Hreppsnefndin skipaði undirbúningsnefnd vegna byggingarinnar fyrir tveimur ámm og var samþykkt að vinna að málinu á grandvelli skýrslu frá þeirri nefnd og í framhaldi af því var teikning af íþróttahúsi frá VT teiknistofunni samþykkt af meirihluta hreppsnefndar. Ágreiningur um teikninguna kom hins vegar upp fyrir skömmu í hreppsnefnd er einn fulltrúi meirihlutans lýsti sig andvígan bæði teikningunni og stefnu meirihluta hreppsnefndarinnar. Að sögn oddvita Þórshafnarhrepps, Jóhanns A. Jónssonar, er þó meirihluti hreppsnefndar í heild fylgjandi þessari byggingu. Heildarstærð hússins er 1720 fermetrar og er þar 800 fermetra íþróttasalur, sundlaug með léttri yfirbyggingu en auk þess verður mötuneytis- aðstaða þar fyrir skóla ásamt félagsaðstöðu og ýmsu þjónusturými. Áætlaður heildarkostnaður er 130-150 milljónir króna. Sótt hefur verið um framlag til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og má áætla það um 35-40% af heildarkostnaðinum. Heimamönnum boðinn forkaupsréttur Þórshafnarhreppur hyggst fjármagna sinn hluta með sölu á hlutabréfum sínum í Hraðfrystistöð Þórshafnar. Þar er um að ræða 11% hlut í félag- inu eða tæpar 34 milljónir en eftir söluna mun hreppurinn eiga um 20% í fyrirtækinu. Gengi hlutabréfanna er nú skráð á 4,25 svo þarna er um að ræða 144 milljónir króna á markaðsverði. Sveitarfélagið býr ekki yfir digrum sjóðum til notkunar í svo viðamikla framkvæmd sem hér er um að ræða, svo sala á hlutabréfunum er talin góð leið til fjármögnunar. íbúum sveitarfélagsins verður boðinn forkaupsréttur að bréfunum í ákveð- inn tíma en taiað er um tæp 400 þús. á einstakl- ing. Sú tala er miðuð við að nýta skattaafslátt einstaklings við hlutabréfakaup. Seljist ekki öll bréfin heimafyrir verður gengið til samninga við aðra aðila um það sem eftir stendur af bréfum að forkaupsréttartímanum liðnum. Sala bréfanna hefst að líkindum í næstu viku. Bygging íþróttahúss er mikið hagsmunamál fyrir íbúa hér en skóla-, íþrótta- og æskulýðsmál vega þungt í samkeppnishæfni byggðarlagsins til að laða til sín fólk til búsetu. Ormerkingar og rannsóknir á gönguseið- um hjá Norðurlaxi Morgunblaðið/Atli Vigfússon SUMARLIÐI Óskarsson og Eydís Njarðardóttir rannsóknar- menn Veiðimálastofnunar við merkingar hjá Norðurlaxi. Laxamýri - Örmerkingar á 14.500 laxaseiðum standa yfir hjá Norð- urlaxi hf. sem eiga að fara í Laxá en markmiðið með því er að meta árangur sleppinga eins og tveggja ára gönguseiða í fískræktinni. Merkingar þessar eru hluti af verkefni sem Veiðimálastofnun stendur fyrir og er styrkt af Fisk- ræktarsjóði. Á þessu ári verða merkt yfir 30.000 gönguseiði á vegum stofn- unarinnar í tengslum við rann- sókn þessa sem staðið hefur yfír í þrjú ár á nokkrum stöðum á landinu. Markmið sleppinga sjó- gönguseiða er einkum tvíþætt. Annars vegar er verið að efla laxagengd í vatnakerfi þar sem laxastofn er þegar til staðar um- fram náttúrulega framleiðslugetu vatnakerfisins og er þá oft beitt í laxveiðilægðum. Hins vegar eru dæmi til um að sleppingum sé beitt í laxlausum eða laxlitlum ám þar sem uppistaða göngunnar er sjóbleikja eða sjóbirtingur og eru gönguseiðasleppingar þá til þess að krydda silungsveiðina með laxi. Ókostir sjógönguseiða sem fisk- ræktaraðferð eru einkum þeir að þessi aðferð er mjög kostnaðar- söm og því ekki að undra að menn vijji viti meira um gæði seiða og endurheimtur. Á meðan á rannsókninni hefur staðið hafa reglulega verið gefnar út skýrslur af sérfræðingum veiðimálastofnunar um eldi seið- anna og endurheimtur. Mikilvægt er talið að prófa að minnsta kosti þijá árganga til þess að saman- burður fáist um ágæti eins og tveggja ára seiða í mismunandi árferði. Rannsókn þessi er m.a. gerð vegna þess að brýn þörf hefur verið talin á því að gera á því markvissar rannsóknir hvort auka megi endurheimtur í fis- krækt með notkun tveggja ára seiða í stað eins árs. Með notkun tveggja ára seiða væri sneitt fram hjá erfiðleikum sem m.a. tengjast hægum seiðavexti villtra stofna. Ennfremur eru líkur taldar á að tveggja ára seiði þurfi lægri umhverfishita til að komast í sjó- göngubúning sem gæti hentað aðstæðum í ánum t.d. þegar vor- kuldar eru miklir. Morgunblaðið/Sig. Fannar. ANÆGÐIR skíðamenn í fögru umhverfi skógræktarinnar í Haukadal. Geysis- ganga á skíðum í Haukadal Selfossi - Sunnudaginn 2. mars kl. 14.00 verður hin árlega Geysisganga haldin í skógræktinni í Haukadal. Þetta er fímmta árið sem gangan er haldin og hefur áhugi almennings farið vaxandi með ári hveiju. Búið er að troða gönguleiðir við allra hæfi og lögð hefur verið áhersla á að svæð- ið henti öllum aldurshópum. Að sögn Sveins Sæland eins að- standenda Geysisgöngunnar er um- hverfið stórkostlegt í Haukadalnum. Trén hafa náð 17 metra hæð og það skapar göngunni ævintýralegt um- hverfí. „Þetta er tilvalinn skíðadagur fjölskyldunnar, þar sem allir fá viður- kenningu sem taka þátt,“ segir Sveinn. Frítt er í kaffhlaðborð og sund á Hótel Geysi eftir gönguna, sannarlega góður endir á góðum degi. Geysisgangan er í umsjón Ung- mennafélags Biskupstungna, Bisk- upstungnahrepps, Skógræktar rík- isins, Björgunarsveitarinnar og Hótel Geysis. Er það ætlun aðstandenda að troða brautir um helgar fram að páskum, þannig að svæðið sé að- gengilegt fyrir alla. áái af Jfífrmrfóáimum \ gerv\ kúrekans Ctáknar casev ^óðurást Sá\aran9'st Íkííi^rjíiííi ííiánuði -• 3júkrahú55ö£ju -< cirkjcjíisöicjti -> >\sc ocj '■if'uroi j Aáiarsögu -> u ffiári-iö'iriris Glerárgoto 28 - Skni 402 4906 Q» ásútgáfan Björgunarsveitir á Suðumesjum með nýjung í fjáröflun Afla fjár með spurninga- keppni Vogum - Spurningakeppni sem björgunarsveitir á Suðurnesjum standa fyrir á skemmtistaðnum Staðnum í Keflavík er ný leið sem sveitirnar eru að reyna til að afla Qár til starfseminnar. Keppnin er nýhafin og fyrsta kvöldið kepptu lið sem sveitirnar settu saman þar sem sveitunum var skipt í tvær fylkingar og keppti einn félagi úr hverri, samtals þrjú í liði. Um síðustu helgi hófst svo keppnin fyrir alvöru, þá kepptu með sér lið hreppsnefndar Gerða- hrepps og bæjarstjórn Sandgerðis. Þeirri viðureign lauk með sigri Sandgerðinga sem hlutu 22 stig en andstæðingarnir hlutu 18 stig. Spurningunum er skipt þannig að helmingur þeirra er frá Suðurnesj- um en hinn helmingurinn er alls staðar að úr veröldinni. Vonast eftir góðri þátttöku Aðgangseyrir er 500 kr. sem rennur óskiptur til sveitanna og Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson SIGURLIÐ Sandgerðinga. gera sveitimar sér vonir um að Suðurnesjamenn fjölmenni á keppnina, skemmti sér og styðji um leið björgunarsveitirnar. Þórð- ur Guðmundsson, formaður björg- unarsveitarinnar Skyggnis í Vog- um, segir að björgunarsveitar- menn geri sér vonir um að það takist að skapa stemmningu fyrir keppninni og að fólk flykkist á Staðinn til að styðja sitt lið. Þess má geta að í hléi er boðið upp á skemmtiatriði. I ) ) ) i I í í f í i l I I ! I ( I I I I I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.