Morgunblaðið - 28.02.1997, Side 20

Morgunblaðið - 28.02.1997, Side 20
20 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ URVERINU Umræður á Alþingi um stöðugleika skipa Vilja að lögin gildi afturvirkt ERLENT * A uppleið Reuter KRAFA um að lög um stöðugleika skipa verði gerð afturvirk kom fram hjá fjölmörgum þingmönnum í utandagskrárumræðum um ör- yggismál fiskiskipa og stöðug- leikamælingar á Alþingi í gær. Fjöldi þingmanna kvaddi sér hljóðs í umræðunni og töldu flestir þessi mál í óviðunandi horfi. Þeir fögn- uðu þó frumkvæði Siglingstofnun- ar íslands með útgáfu skýrslu um þessi mál. Málshefjandi umræðunnar, Kristján Pálsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokks, sagði að samkvæmt sýrslu Siglingastofnunar íslands um stöðugleika íslenskra físki- skipa væri 191 skip af 728 sem ekki stæðist kröfur um stöðug- leika. Þá væri ekki tekið tillit til þeirra skipa sem hafa haffæris- skírteini með athugasemdum vegna annarra óuppfylltra krafna um öryggi, eins og neyðarútganga úr vél, káetu, breytinga vegna vélaskipta, skilrúmabreytingar og fleira. Fjöldi skipa er dauðagildrur Kristján sagði því ljóst að fjöldi skipa væri hreinar dauðagildrur þar sem undanþágur frá eðlilegum öryggiskröfum hefðu tíðkast ár eftir ár. „Haffærisskírteini hafa verið gefín út þó svo að skip séu vart sjófær. Breyta þarf reglugerð um eftirlit með skipum frá árinu 1993 og ná þannig til þeirra skipa sem byggð eru fyrir setninga laga um þessi mál árið 1975,“ sagði Kristján. Kristján sagði málið grafalvar- legt, grípa þyrfti til aðgerða nú þegar og sagðist hann binda vonir við að Siglingastofnun íslands tæki á þessum málum. Hann fór þess einnig á leit við samgöngu- ráðherra að hann kynnti sem fyrst aðgerðaáætlun með það að markmiði að öll skip stæðust regl- ALÞJÓÐLEG ráðstefna um hagræn og pólitísk sjónarmið varðandi hval- veiðar í Norður-Atlantshafi verður haldin í Reykjavík á morgun, fyrsta marz. Að ráðstefnunni standa Sjáv- arútvegsstofnun Háskóla íslands og High North Alliance og verður hún haldin að Hótel Loftleiðum frá I ERMINGARMYNDIR Nú lcr hvcr af) v.crha síhast u r lt A lt N A I J Ö I. S K Y L l> L LJÓSMYNDIR í U1 i 5 8 8 7 6 4 4 A r iii i'i I a 3 8 ur um smíði og búnað skipa og fór þess einnig á leit við ráðherr- ann að gerður yrði opinber listi yfir þetta 191 skip sem ekki stæð- ist öryggiskröfur í dag. íslendingar framarlega í öryggismálum sjómanna Halldór Blöndal samgönguráð- herra sagði í svari sínu að á undan- förnum árum hefði markvisst ver- ið unnið að því að draga úr slysum á sjó og lét í ljós undrun sína á málflutningi Kristjáns. Hann sagði að bæði Siglingastofnun og sjó- mannasamtökin hefðu staðið fyrir námskeiðum á undanförnum árum, til dæmis varðandi hleðslu skipa. Hann sagði það þó rétt að til væru skip sem ekki stæðust stöðugleikakröfur. Ástæðu þess sagði Halldór að áður fyrr hefði ekki verið til teikningar af skipum eins og nú tíðkist. Menn hafí að- eins smíðað skip sem vel hafí reynst. Ekki hafí verið byijað að stöðugleikaprófa fískiskip fyrr en 1975 og síðan hafi verið unnið að því að aflagagna um stöðugleika skipanna. „Islendingar eru fremst- ir þjóða í þessum efnum og þær alþjóðasamþykktir sem hafa verið gerðar hafa verið gerðar að kröfu okkar,“ sagði Halldór og fullyrti að aðilar sjávarútvegsins og Sigl- ingastofnunar væru að vinna sam- an að úrbótum í þessum málum. Hann sagðist einnig ætla beita sér fýrir því Siglingastofnun kynnti samgöngunefnd Alþingis þau störf sem þar er verið að vinna. Ekki hægt að breyta gömlum tréskipum Einar K. Guðfínnsson, þingmað- ur Sjálfsæðisflokks, benti á alvar- leika málsins og varaði við yfir- borðslegri umfjöllun í upphrópana- stíl. Sjómenn, útgerðarmenn og stjórnvöld yrðu sameiginlega að takast á við að leysa þetta verk- klukkan 9 til 18. Fyrirlestrar og umræður verða á ensku en túlkað verður jafnóðum á íslenzku. Ráð- stefnan er öllum opin. í frétt frá ráðstefnuhöldurum seg- ir að þar verði tekið á ýmsum pólit- ískum og hagrænum þáttum, sem máli skipta þegar menn geri upp hug sinn um það, hvort íslendingar eigi að hefja hvalveiðar á ný og þá með hvaða hætti. Meðal atriða sem verða rædd, eru spurningarnar: Hvernig samrýmast alþjóðalög og samþykktir sem lúta að vernd dýra alþjóðalögum og samþykktum um frelsi í viðskiptum? Hvaða áhrif hafa viðskiptahindr- anir og aðgerðir náttúruverndar- sinna á útflutning hvalveiðiþjóða? Hvaða markaðir eru fyrirsjáanleg- ir fyrir hvalaafurðir? Hver eru möguleg áhrif hvalveiða á útflutning íslendinga? Einnig verður meðal annars gerð grein fyrir afstöðu áhrifamikilla fjöl- þjóðlegra samtaka eins og Alþjóða hvalveiðiráðsins, NAMMCO og CIT- ES (nefndar um alþjóðaviðskipti með afurðir af dýrum í útrýmingar- hættu). Ráðstefnunni lýkur með hringborðsumræðum um framtíð hvalveiða í Norður-Atlantshafi. efni. Þó yrði að taka tillit til þess að þeir bátar sem nú sé sagt að standist ekki stöðugleikakröfur hafi almennt verið smíðaðir sam- kvæmt reglum sem settar hafí verið á sínum tíma og hafi verið í notkun svo áratugum skipti. „Stór hluti trébátaflotans sem á annað borð uppfyllir stöðugleik- akröfur er þannig smíðaður að ekki er hægt að breyta honum til að uppfýlla ýtrustu kröfur um stöðugleika. Það þýðir að eigendur þessara báta gætu staðið frammi fyrir því að eignir þeirra yrðu verð- lausar á einni nóttu. Skylda stjórn- valda er því ótvíræð í þessum málum. Við viljum ekki að þessum skipum verði útrýmt nema að önn- ur sambærileg en örugg skip komi í staðinn. Ymsir þessara báta gegna lykilhlutverki í atvinnulífi margra sjávarplássa,“ sagði Einar. Niðurstöður ekki óyggjandi Guðmundur Hallvarðsson, þing- maður Sjálfstæðisflokks, sagði í ræðu sinni að í skýrslu Siglinga- stofnunar kæmi fram að varhuga- vert væri að fullyrða að niðurstöð- ur könnunarinnar væru óyggjandi. Það væri hins vegar mat stofn- unarinnar að niðurstöðurnar væru marktækar og gæti því verið grundvöllur málefnalegrar um- íjöllunar um stöðugleika fískiskipa og stefnumótunar í þeim efnum. Hann skoraði á samgönguráð- herra að veita Siglingastofnun fjárhagslegan stuðning til að tak- ast á við þessa alvarlegu brotalöm í öryggismálum sjómanna. Ásta R. Jóhannesdóttir, Jafnað- armannaflokki íslands, sagðist vonast til að strax yrði tekið á þessum málum og reglur þar að lútandi yrðu látnar gilda aftur- virkt. Undir það tók þingflokks- bróðir hennar, Lúðvík Bergvins- son. Sjávarútvegsstofn- un og Alþjóða- málastofnun Málþing um hafrétt og vernd auðlinda SJÁVARÚTVEGSSTOFNUN Háskóla íslands og Alþjóða- málastofnun HÍ gangast í dag fyrir málþingi um hafrétt, viðskipti og vemd auðlinda. Málþingið verður haldið í stofu 203 í Lögbergi og eru allir velkomnir þangað. Málþingið er haldið í tenglsum við alþjóðlega ráð- stefnu um framtíð hvalveiða, sem haldin verður á morgun. Fundarstjóri verður Helgi Ágústsson, ráðuneytisstjóri, en fyrirlesarar verða Robert Friedheim, prófessor í al- þjóðaviðskiptum, Ted McDor- man, prófessor í alþjóðalög- um, Peter Örebech, lögfræð- ingur og Gunnar G. Schram. Málþingið stendur frá klukkan 15 til 17. FRANSKUR ofurhugi, Alain Robert, sem gengur undir nafn- inu kóngulóarmaðurinn, vann enn eitt glæfraverkið í gær er hann reyndi að klífa hæstu byggingu Sydney í Ástralíu, YFIRVÖLD í Massachusetts-ríki í Bandaríkjunum íhuga að taka fyrir viðskipti við fyrirtæki sem eiga við- skiptahagsmuna að gæta í Indónesíu. í ríkinu eru í gildi lög sem taka fyr- ir að Massachusetts-ríki kaupi vörur eða þjónustu af fyrirtækjum sem eru með rekstur í Búrma. í ríkisþinginu í Boston, höfuðstað Massachusetts, er nú til meðferðar frumvarp um viðskiptabann á fyrir- tæki sem stunda viðskipti í Indónes- íu. Aukinheldur gerir það ráð fyrir því, að opinberir lífeyrissjóðir losi sig við verðbréf og aðrar fjárfestingar sem tengjast Indónesiu. Tilgangur- inn með þessu er að mótmæla mann- réttindabrotum indónesískra stjóm- valda. Ríkislífeyrissjóður Massachusetts á 5,4 milljarða dollara, jafnvirði rúm- lega 380 milljarða króna, í indónes- ískum verðbréfum og 6,3 milljarða dollara óbeint, þ.e. i blönduðum fjár- festingasjóðum sem að einhveiju leyti hafa fjárfest í indónesískum bréfum. í júní í fyrra gengu í gildi svo- nefnd Búrma-lög sem banna opinber- um stofnunum í Massachusetts að eiga viðskipti við fyrirtæki sem stunda rekstur eða fjárfestingar í Búrma. í því sambandi var dreginn upp svartur listi og á honum eru 545 fyrirtæki. Gert er ráð fyrir að hann stækki þegar lögin um Indónesíu hafa verið samþykkt. Massachusetts er eina ríki Banda- ríkjanna sem mótað hefur sína eigin utanríkisstefnu með þessum hætti og í engu ríkjanna 50 eru í gildi við- skiptalög á borð við Búrma-lögin. Þegar þau gengu í gildi hættu fyrir- Miðturn. Fikraði hann sig upp eftir kaplavirki sem umlykur bygginguna og var myndin tekin þá. Rétt áður en hann náði toppnum lét lögregla til skarar skríða og stöðvaði hann. tæki á borð við Apple-tölvurisann, Kodak, Philips og Hewlett Packard starfsemi í Búrma og báru lögunum fyrir sig. Evrópsk fyrirtæki útilokuð Mörg evrópsk og japönsk fyrirtæki hafa verið útilokuð frá viðskiptum við opinberar stofnanir í Massachu- setts vegna starfsemi þeirra í Búrma. Hefur það leitt til þess að japönsk stjómvöld hafa kvartað formlega við bandaríska utanríkisráðuneytið og viðskiptafulltrúa B and aríkj astj ómar. Og í síðasta mánuði mótmælti Evr- ópusambandið (ESB) sömuleiðis við utanríkisráðuneytið í Washington og krafíst þess að alríkisstjórnin hefði taumhald á stjómum ríkjanna. Að öðrum kosti áskildi ESB sér rétt til að vísa málinu til Heimsviðskipta- stofnunarinnar (WTO) og vísar til þess að ríkisstjórn Massachusetts hafi brotið gegn ákvæðum stofnun- arinnar er lúta að útboðum á vegum hins opinbera. Bandarískur embættismaður seg- ir, að raunveruleg ástæða mótmæla Japana og ESB séu áform yfirvalda í Massachusetts um að bæta Indónes- íu við Búrma-lögin. Heimildir herma, að hugsanlega stigju yfirvöld í Bost- on enn stærra skref síðar og útilok- uðu viðskipti við fyrirtæki með hags- muni í Kína og Norður-írlandi. Frumkvöðull að Búrma-lögunum er William Weld ríkisstjóri, sem er repúblikani, og segist hann hvergi ætla gefa eftir. Hefur hann skorað á önnur ríki Bandaríkjanna að fylgja eftir fordæmi Massachusetts og sýna þannig andúð við einræðisstjómir í verki. Ráðstefna haldin um hvalveiðar Massachusetts með eigin utanríkisstefnu Ihuga nýtt viðskiptabann Boston. Reuter.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.