Morgunblaðið - 28.02.1997, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 28.02.1997, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Opinber heimsókn frá Grænlandi LARS Emil Johansen, formaður grænlensku landstjórnarinnar, kom í opinbera heimsókn til Is- lands ásamt fylgdarliði í gær. Til stóð að Johansen lenti á Reylq'avík- urflugvelli en frá því var horfið vegna veðurs. Davíð Oddsson forsætisráðherra tók á móti Johansen og föruneyti í gær og áttu þeir fund í Stjórnar- ráðinu í um klukkustund. Innti forsætisráðherra Johansen m.a. eftir líðan eiginkonu hans, frú Ivalo Egede, sem ekki átti heiman- gengt vegna veikinda. Að fundinum loknum heimsótti Johansen Alþingishúsið og sat fund með fulltrúum í utanríkismála- nefnd Alþingis og vestnorræna þingmannaráðsins. Ragnar Arn- alds, fyrsti varaforseti Alþingis, tók á móti formanninum sem færði þingmönnum lítinn hvalaskúlptúr og vék við það tækifæri að sameig- inlegum þáttum í menningu íslend- inga og Grænlendinga. Þaltkaði hjartanlegar móttökur Lars Emil Johansen og fylgdar- lið rituðu nöfn sín í gestabók þings- ins og notaði formaðurinn tæki- færið til þess að færa skriflegar þakkir fyrir hjartanlegar móttök- ur. Að því búnu hélt Johansen á þingpalla. Guðni Ágústsson ávarp- aði formanninn úr forsetastóli og þvi næst risu þingmenn úr sætum til að votta honum og grænlensku þjóðinni virðingu sína. Að þingheimsókn lokinni var haldið út í Ráðhús til Ingibjargar Sólrúnar Gísiadóttur borgarstjóra og hafði Johansen á orði er hann hengdi upp selskinnsjakka sinn að hann hefði nýst sér vel. Hélt Johansen áfram að slá á létta strengi og borgarstjóri svar- aði í sömu mynt. Báru þau meðal annars saman kostnað við bygg- ingu menningar- og ráðhúsa i Reykjavík og Nuuk og reyndist íslenska borgin eiga vinninginn. Dagskrá heimsóknarinnar lauk í gærkvöldi með viðhafnarkvöld- verði í boði forsætisráðherra. _ I dag tekur forseti Islands, Olaf- ur Ragnar Grimsson, ásamt eigin- konu sinni, Guðrúnu Katrínu Þor- bergsdóttur, á móti Johansen á Bessastöðum og síðan mun formað- urinn eiga fund með Davíð Odds- syni og Halldóri Ásgrímssyni i Ráðherrabústaðnum. Að honum loknum verður haldinn blaða- mannafundur á sama stað. Eftir hádegi heldur Johansen til Akur- eyrar ásamt fylgdarliði en heim- sókninni lýkur siðdegis á morgun. Morgunblaðið/Golli LARS Emil Johansen og fylgdarlið rituðu nöfn sin í gestabók Alþingis og notaði formaðurinn tækifærið til þess að færa skrif- legar þakkir fyrir hjartanlegar móttökur. EES-samningiirinn fari á alnetið NEFND á vegum utanríkisráðuneyt- isins vinnur nú að framkvæmdaáætl- un og könnun á kostnaði við það að koma samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og íslenskum lögum sem honum tengjast á vef alnetsins. Áætlað er að nefndin ljúki störfum sínum fyrir 1. maí næstkomandi. Þetta kom fram í svari Halidórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra við fyrirspurn Hjörleifs Guttormssonar, þingmanns Álþýðubandalags, á Al- þingi. I Noregi sér sjálfseignarstofnunin Lovdata, sem stofnuð var af dóms- málaráðuneytinu og Háskólanum í Osló, um dreifingu á norsku réttar- efni. Tekin eru gjöld fyrir aðgang að efninu og er ætlast til að þau standi undir öllum kostnaði. DAGSKRÁ 01.03. Tæknival Skeifunni kl. 10.30-11.30: Veraldarvefurinn, lært á umhverfið Tæknival Hafnarfirði kl. 12.30-13.30: Veraldaryefurinn, lært á umhverfið Veriti velkomin! Tæknival Reykjavtkurvegi 64 220 Hafnarfirði Slmi 550 4020 Netfang: fjordurötaeknival.is Skeifunni 17 108 Reykjavfk Slml 550 4000 Netfang: mottakaOtaeknival.is | FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn FORMAÐUR Dagsbrúnar sagði á félagsfundi Dagsbrúnar/Framsóknar að nú gæti stefnt í hatrömmustu stéttaátök á íslandi frá 1955. Félagsfundur Dagsbrúnar/Framsóknar hvatti til samstöðu Krafan er 70.000 kr. lágmarkslaun Félagar í verkalýðsfélögunum Dagsbrún og Framsókn troðfylltu Bíóborgina á fyrsta sameiginlega félagsfundi félaganna í gær. Mikil samstaða kom fram á fundinum um að halda fast við kröfuna um 7 0 þúsund króna lágmarkslaun. Omar Friðriksson fylgdist með fundinum. Við upphaf baráttufundar Dags- brúnar og Framsóknar í Bíóborginni eftir hádegi í gær var greint frá niðurstöðu úr atkvæðagreiðslu með- al starfsmanna hjá Mjólkursamsöl- unni og Emmessís hf. um vinnu- stöðvun, sem hefjast á 9. mars. Af 75 starfsmönnum á kjörskrá tóku 68 þátt í atkvæðagreiðslunni. 60 saniþykktu verkfallstillöguna, eða 88,24%, 7 sögðu nei og einn skilaði auðu. Var úrtslitunum fagnað með langvinnu lófataki á félagsfundinum í gær. Halldór Björnsson, formaður Dagsbrúnar, rakti í ræðu sinni undir- búning kjaraviðræðna og samninga- viðræður sem fram hafa farið um sérmál og aðalkjarasamning frá því í haust, sem hann sagði að hefði engum árangri skilað og kjaramálin væru því í kyrrstöðu. Halldór sagði að meginkröfur fé- laganna væru að lægstu laun hækk- uðu í 70 þúsund kr. á mánuði, at- vinnuöryggi og kaupmáttur yrði tryggður og að samningarnir giltu frá 1. janúar 1997 í allt að 26 mán- uði. Halldór mótmælti málflutningi þeirra sem sökuðu Dagsbrún og Framsókn um að ætla að splundra stöðugleikanum með kröfunni um 70 þúsund kr. lágmarkslaun. „Þetta er orðin meginkrafa verkalýðshreyf- ingarinnar og hefur hlotið góðan meðbyr í þjóðfélaginu," sagði Hall- dór. „Útfærð tillaga þeirra að breyt- ingum á launatöxtum þýðir 10 króna hækkun á tímann. Við höfum reynt að halda þessu smánarboði á lofti en annað boð höfum við ekki fengið. Um það snýst þessi stóra deila, sem er í uppsiglingu að verða ein hatröm- mustu stéttarátök sem hér hafa orð- ið frá 1955, ef allt fer fram sem horfir," sagði Halldór. Draga fram lífið á sultarlaunum 1 máli margra fundarmanna kom fram hörð gagnrýni á launahækkan- ir bankastjóra, embættismanna og fleiri hálaunahópa. Einnig var spjót- um beint gegn hagnaði útgerðar- manna af kvótaviðskiptum, sem Dagsbrúnarmenn fullyrtu að skipti fleiri milljörðum kr. „Þetta er ekki kallað siðleysi, heldur eðlilegur og sjálfsagður hlutur en það er siðleysi ef þið biðjið um að kaupið hækki í 70 þúsund krónur,“ sagði Halldór Björnsson. Ólafur B. Baldursson sagði að laun foreldra dygðu ekki fyrir nauð- þurftum. Þjóðarauðnum væri mis- skipt og honum væri úthlutað örfá- um sægreifum og flokksgæðingum ríkisstjórnarflokkanna. Á sama tíma misstu tvær fjölskyldur heimili sín á degi hverjum vegna óstjórnar í efna- hagsmálum. „Við vitum hvernig það er að draga fram lífið á sultarkjör- um, greiddum af fyrirtækjum sem velta milljörðum á ári hveiju og standa uppi í árslok, með hundraða milljóna króna gróða, sem þau geta deilt til fámennrar klíku. Ég er ekki bara þreyttur á þessu ástandi, heldur er ég öskuillur vegna þeirrar skítlegu meðferðar ís- lenskra fyrirtækja og at- vinnulífs á saklausu og bjargarlausu íslensku verkafólki, sem er í raun og veru kjarni og uppistaða þjóðlífsins," sagði hann. Ragna Bergmann, formaður Framsóknar, sagði að nánast ekkert hefði miðað í samningaviðræðum að undanförnu. „Við getum ekki setið í tilgangslausu þjarki mánuð eftir mánuð án þess að grípa til aðgerða. Nýr kjarasamningur átti að gilda frá áramótum. Nú höfum við setið samningslaus í tvo mánuði og sjáum ekki fram á neinar breytingar nema með aðgerðum. Ef ekki takast samn- ingar nú er framundan erfitt tíma- bil átaka og verkfalla. Ég minnist langa verkfallsins 1955, ég var þá með fjögur börn, og það var mjög erfitt, en fólk stóð allt saman. Reynslan kennir okkur að það reyn- ir á samstöðu félagsmanna. Við vilj- um gera allt sem við getum til að ná samningum án verkfalla, en við þurfum að búa okkur undir átök. Við munum ekki hvika frá 70 þús- und króna lágmarkslaunum,“ sagði Ragna. „Með hveijum deginum sem líður nálgumst við það sem virðist óum- flýjanlegt, stríð á milli hins vinnandi lýðs, sem á degi hverjum berst harðri baráttu við að sjá sér og fjölskyldum sínum farborða, og hinna sem eiga auðmagnið og atvinnutækin, og hafa með hjálp ríkisvaldsins sogað til sín allar helstu auðlindir íslands, sem þó eiga samkvæmt lögum að vera í eigu okkar allra,“ sagði Sigurður Rúnar Magnússon. Loforð þjóðarsáttarinnar svikið í bak og fyrir Sigurður Bessason sagði að verkalýðshreyfingin hefði fallist á að styðja við bakið á fyrirtækjum sem voru komin að fótum fram árið 1990 þegar þjóðarsáttin var gerð. Þá hafi verið gefið loforðið um að síðar kæmi að því að hlutur launa- fólks yrði réttur við. Þetta loforð hefði verið svikið í bak og fyrir. Kristján Árnason hvatti Dags- brúnarmenn og Framsóknarkonur til að stíga á stokk og heita því að standa saman þar til yfir lyki í bar- áttunni fyrir réttlæti. Björgvin Þor- varðarson hvatti samninganefnd fé- laganna til að hækka launakröfurnar eftir að verkföll væru skollin á ef ekkert miðaði í samkomulagsátt. „Við verðum að greiða atkvæði með verkfalli. Annars heldur VSÍ áfram að bjóða okkur tíkall á tímann. Ég hef vissulega ekki efni á að fara í verk- fall en ég hef alls ekki efni á að reyna að lifa af þessum launum áfram, fyrir utan þá lítillækkun sem felst í því að fá 60 þúsund krónur fyrir 100% vinnu í heilan mánuð,“ sagði Anna Sjöfn Jónasdóttir. Gylfi Páll Hersir skoraði á fundar- menn að hvika í engu frá kröfunni um 70 þúsund kr. lágmarkslaun. Nú þyrftu félögin að sýna samstöðu og atvinnurekendum klærnar. Allir fundarmenn stóðu upp í lok- inn og samþykktu ályktun fundarins með langvinnu lófataki. „Krafa okk- ar um 70 þúsund króna lágmarks- laun er almenn krafa verkalýðs- hreyfingarinnar í dag. Hún er grund- völlur þess að samningar takist. Engin niðurstaða hefur fengist enn í neinum sérsamningum félaganna. Atvinnurekendur halda fast við upp- haflegar tillögur um tíkall á tímann og bundna kjarasamninga, þannig að friðarskylda hvíli á öllum sér- samningum úti í fyrirtækjunum,“ segir í ályktuninni. 88,2% sam- þykktu verk- fallíMjólk- ursamsölu \ \ \ \ \ \ \

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.