Morgunblaðið - 28.02.1997, Síða 23

Morgunblaðið - 28.02.1997, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 23 LISTIR íslensk náttúra í niyndum o g tónum SUNGIÐ af innlifun á samæfingu á Selfossi. Unglingakórar halda tónleika Selfossi. Morgunblaðið. HUGHRIF íslenskrar náttúru er yfirskrift sýningar Jóhanns G. Jó- hannssonar myndlistar- og tónlist- armanns sem stendur yfir í Gall- eríi Borg þessa dagana. Tilefni sýningarinnar er fimmtugsafmæli listamannsins um síðustu helgi en þar er að finna 53 verk, unnin með vatnslitum og blandaðri tækni, þar sem Jóhann kveðst leitast við að túlka andstæður og mikilfengleika íslenskrar náttúru. Þótt Jóhann hafi gengið í gegn- um fjölmörg skeið á ferli sínum sem myndlistarmaður segir hann áhrifa landslags alltaf hafa gætt í verkum sínum — mótífið hafi ávallt höfðað til hans. „Þessi landslagsáhrif hafa komið sérstaklega sterkt fram á sýningunum sem ég hef haldið frá árinu 1993, þegar ég sneri aftur, ef svo má að orði komast, eftir sjö ára hlé,“ segir listamaðurinn og vísar þar í sýningar í Listhúsinu í Laugardal, á Argentínu — steik- húsi og Sparisjóði Hafnarfjarðar í Garðabæ. Eru fáeinar myndir frá tveimur síðarnefndu stöðunum á sýningunni, þar sem þeir eru „utan leiðar þeirra sem fjalla um mynd- list á opinberum vettvangi". Jóhann hefur víða komið við um dagana en nú segir hann komið að kaflaskilum. Hyggst hann sinna listinni sem best í „seinni hálfleik". Þetta ætlar Jóhann meðal annars að gera með þeim hætti að sameina ástríður sínar tvær — myndlist og tónlist — í ríkari mæli. Um langt árabil hefur hann unnið jöfnum höndum að þessum listgreinum án þess þó að tengja þær með beinum hætti — fyrr en nú. Það gerir hann með tónverkinu Píramídi I sem frumflutt var við opnun sýningar- innar í Galleríi Borg, sem Jóhann segir hafa verið fjölsótta og vel- heppnaða, en það er samið við eitt myndverkanna, þar sem píramídinn er jafnframt miðlægur. Síðastliðið hálft annað ár hefur Jóhann stundað nám í tónveri Tón- listarskóla Kópavogs og er tónverk- ið afrakstur þess. Þar sem grafík er snar þáttur í tölvutónsmíðum gat listamaðurinn séð tónlistina á skjánum og segir hann uppbygg- ingu hennar hina sömu og upp- byggingu myndanna. „Þetta er eins konar ferðalag upp og niður einn og hálfan píramída. Ég bætti þess- um hálfa við til að njóta mætti verunnar á toppnum betur.“ Jóhann lítur á þessa tímamóta sýningu sem „upptakt" og hyggst nýta afmælisárið til að vinna að stórri sýningu, þar sem myndlist og tónlist verði fléttað saman með áþekkum hætti. Sýningin er opin í dag frá kl. 12 til 18 og um helgina frá 14 til 18 en henni lýkur á sunnu- dag. Mun Jóhann verða á staðnum þessa daga og taka á móti gestum. GOTT samstarf Unglingakórs Sel- fosskirkju og Gradualekórs Lang- holtskirkju mun blómstra á sameig- inlegum tónleikum kóranna 1. og 2. mars, í Langholtskirkju á laugar- dag og í Selfosskirkju á sunnudag. Aðalefni tónleikanna er messa eftir Haydn, flutt við undirleik kammer- sveitar og sungin á latínu. Á tónleik- unum í Langholtskirkju 1. mars syngur einsöng Valgerður Guðrún Guðnadóttir, sópran og í Selfoss- kirkju 2. mars syngur Magnea Gunnarsdóttir einsöng. Halla Dröfn Jónsdóttir syngur einsöng á báðum tónleikunum. Á tónleikum munu kórarnir syngja fjögur lög sameiginlega og þijú hvor í sínu lagi. Sams konar tónleikar voru fyrir þremur árum og tókust þá mjög vel. Jón Stefáns- son stjórnar Gradualekór Langholts- kirkju og Glúmur Gylfason stjórnar Unglingakór Selfosskirkju. Kórarnir voru á sameiginlegri æfingu á Selfossi fyrir skömmu og þá kom vel fram að þeir hafa báðir á að skipa mjög góðum og tærum söngröddum sem stjórnendurnir hafa náð að þjálfa mjög vel. í Lang- holtskirkju hefur Gradualekórinn starfað síðan 1981 en í honum eru 45 unglingar og Unglingakórinn í Selfosskirkju telur 23 einstaklinga og hefur starfað síðan 1988. Kórarn- ir hafa náð festu í starfi sínu í kirkj- unum og gefa unglingunum ný tæki- færi til agaðs söngnáms. Þeir Jón og Glúmur sögðu að með þessum tónleikum gæfist unglingunum tæki- færi til að æfa sérstaka tónleikaskrá og stórverk sem ekki væri unnt að taka fyrir nema með samstarfi kór- anna. Ljóst er að unglingarnir í kór- unum munu gera sitt ítrasta til að tónleikarnir takist vel sem reyndar þarf ekki að efast um eftir að hafa heyrt nokkur söngdæmi frá þeim. Tónleikarnir hefjast i báðum kirkjunum kl. 16 báða dagana. Morgunblaðið/Þorkell JÓHANN G. Jóhannsson segir landslagið ávallt hafa höfðað til sín. Skáld-Rosa a Hvammstanga Hvammstanga. Morgunblaðið. A HVAMMSTANGA er gróska í leiklistarstarfi, nú sem fyrr. Verk- efni vetrarins er Skáld-Rósa eftir Birgi Sigurðsson, undir leikstjórn Harðar Torfasonar. Segja má að viðfangsefnið standi Vestur-Hún- vetningum nærri, því aðalpersóna leikritsins, Rósa Guðmundsdóttir, bjó um tíma á Vatnsenda í Vestur- hópi, og gjarnan kennd við þann bæ. Eftir Rósu eru fjölmargar vísur og einnig ljóðabréf, og hefur hún orðið eitt ástsælasta vísnakáld þjóðarinnar. Legstaður hennar er í kirkjugarðinum á Efra-Núpi í Mið- fírði. Sögusvið Skáld-Rósu eru Vellir í Norður-Múlasýslu og Vatnsnesið í Húnaþingi og gerist á fyrri hluta nítjándu aldar. Rósa er fædd á Ásgerðarstöðum í Hörgárdal árið 1795. Hún kynnist ung Páli Mel- steð, síðar sýslumanni, þegar hún er í vist á Möðruvöllum og fella þau hugi saman, þótt eigi nái að eigast. Hún ræðst síðar til hans sem ráðskona að Ketilsstððum á Völl- um, en þá er Páll kvæntur Önnu Sigríði, amtmannsdóttur frá Akur- eyri. Þar kynnist hún Natani Ketils- syni frá Illugastöðum á Vatnsnesi, sem varð örlagavaldur í lífi henn- ar, þótt hún sé þá gift kona. í leikgerð Skáld-Rósu fer höf- undurinn, Birgir Sigurðsson, listi- lega með líf og örlög persónanna. Glögglega kemur fram hinn skarpi tíðarandi þessa tíma, stéttarmunur og skil milli valds og umkomuleys- is. Hörður Torfason setur sýning- una upp á listrænan hátt og stýrir hinum 23 leikendum á tímum fort- íðarinnar af næmi listamannsins fyrir viðfangsefni sínu. í hlutverki Rósu er Jónína Arnardóttir, Páll sýslumaður er leikinn af Arnari Karli Bragasyni og Júlíus Guðni Antonsson leikur Natan Ketilsson. Frumsýning Skáld-Rósu verður á Hvammstanga 28. febrúar kl. 21, en síðan verða nokkrar sýningar á næstu dögum. Þann 8. mars verður samstarf Leikflokksins og veitinga- hússins Selsins á Hvammstanga um Leikhúsveislu, þar sem leikhús- gestum verður boðið upp á kvöld- verð fyrir sýningu og dansleik að sýningu lokinni. Morgunblaðið/Karl Ásgeir Sigurgeirsson ÚR baðstofu á Ketilsstöðum á Völlum. Solv blómapottar (frostþolnir) 24sm 850,- 30sm 1.250,- 40sm 1.650,- Thai blómapottar (frostþolnir) 24sm 950,- 32sm 1.250,- 43sm 1.950,- Drekatre, Drekatre, sampotta 170sm TILB Aspargus Afgreiðslutími Mán ,-föstud. Laugardag: Sunnudag: 10:00-18:30 10:00-17:00 13:00-17:00 fyrir alla snjalla

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.