Morgunblaðið - 28.02.1997, Síða 11

Morgunblaðið - 28.02.1997, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 11 FRETTIR Afdrifarík forræðisdeila Úrskurður kviðdóms í undirrétti í New York, þar sem kveðið er á um að Flugleið- um beri að greiða um einn milljarð í bætur, á upphaf sitt í hatrömmu og sögulegu for- ræðismáli sem náði hápunkti í ársbyrjun 1993. Þá var reynt að ræna dætrum Ernu Eyjólfsdóttur og koma þeim í umsjá feðra sinna í Bandaríkjunum. Forsagan Erna var tvígift í Bandaríkjun- um. Fyrri maður hennar var Fred Arthur Pittman og áttu þau dótt- urina Elizabeth Jane, sem fæddist árið 1982. Við skilnað þeirra hjóna var Ernu dæmt forræði yfir dóttur- inni. mi^mmmmmm höfðaði Erna skiln- Haustið aðarmál gegn 1991 seinni manni sín- um, James Brian Grayson, sem hún hafði gifst 1987. Krafðist hún forræðis yfir dóttur þeirra hjóna, Önnu Nicole Grayson, sem fæddist 1987. Við þingfestingu málsins varð Erna við kröfu dómar- ans um að leggja inn vegabréf sitt og dætra sinna. Að auki var hún sett í farbann. Eftir brotthvarf Ernu hélt James Brian Grayson málinu áfram og krafðist forræðis yfir Önnu Nicole. wmmmmmmmm var kveðinn upp 15. október dómur í forræðis- 1992 málinu i Santa Rosa-héraði í Flórídaríki í Bandaríkjunum, þar sem hjónabandinu var slitið, föðurn- um einum falið forræði stúlkunnar og móðurinni synjað um rétt til umgengni við hana. í ítarlegum niðurstöðum dómsins var meðal annars sérstaklega áréttað að Erna hefði strokið úr farbanninu og ekki mætt til að flytja mál sitt fyrir dóminum. Heimförin 18. apríl 1992 áður en forræðis- málið var til lykta leitt fyrir dómi, fór Erna huldu höfði Maí-júní 1993 um tveggja vikna skeið í Flórída. Þar skipti hún oft um hótel en ók síðan til New York. Hún bar síðar við að sér hafi orðið það ljóst með- an á málaferlunum stóð, að vegna þess að hún var útlendingur hefði hún staðið mun verr að vígi en ella gagnvart dómstólnum. Þrátt fyrir að sálfræðingur, sem þekkti hagi hennar hefði borið vitni í málinu til að hrekja aðdróttanir í hennar garð, hefði hún talið víst að á það yrði ekki hlustað. Hún hafi því ákveðið að fylgja ráðlegg- ingum móður sinnar og flýja með börnin, þrátt fyrir að hún vissi að með því væri hún að brjóta banda- rísk lög og gefa endanlega frá sér möguleika á að vinna dómsmálið. Hafði hún samband við ræðismann íslands og fékk íslenskt bráða- birgðavegabréf. mmmmmmmmmm struku mæðgurnar 2. maí úr landi og komust 1992 til Islands með Flugleiðavél. Fyrr- um yfirmaður skrifstofu Flugleiða í New York segir að Erna og dætur hennar hafi haft í fórum sínum gilda farseðla og gild íslensk bráða- birgðavegabréf. Starfsfótk Flug- leiða mun ekki hafa vitað um far- bann Ernu né ástæðu fyrir bráða- birgðavegabréfinu, enda hafi Flug- leiðum ekki borist neinar upplýs- ingar um það. mmmmmmmm^m Fred A. Pittman, faðir eldri dóttur Ernu Eyjólfsdóttur stefndi Flugleiðum auk Ernu, sambýlismanni hennar og stjúpföður, fyrir dóm í New York. Krafðist hann jafnvirðis um það bil eins milljarðs íslenskra króna í skaðabætur. Sömuleiðis stefndi James Brian Grayson, faðir yngri telpunnar, Flugleiðum, fyrir dómstól í Flórída og krafðist skaða- bóta. Blekkingar Erna sótti ekki um forræði yfir stúlkunum hér á landi strax og þær komu heim en var dæmt forræði yfir yngri dóttur sinni 1994. Áður hafði sýslumaðurinn í Reykjavík úrskurðað að faðir stúlkunnar skyldi njóta umgengni við hana 4 klukkustundir tvisvar í viku undir eftirliti barnaverndarnefndar þegar hann dvaldist hér á landi. Þegar Erna hafði yfirgefið Bandaríkin með dæturnar tók Pitt- man upp forræðismálið í samráði við Grayson. Var feðrunum dæmt forræði yfir dætrum sínum. Leituðu þeir í kjölfar þess til fyrirtækisins Corporate Training Unlimited (CTU) í Fayetteville, Norður-Karól- ínu. Fyrirtækið sérhæfði sig m.a. í að aðstoða bandaríska foreldra, sem fengið höfðu forræði yfir börnum sínum, við að ná þeim til Bandaríkj- anna. Hefur NBC-sjónvarpsstöðin m.a. gert sjónvarpsmynd, Desper- ate Rescue, um eitt verkefna fyrir- tækisins. Forsvarsmaður þess, Don- ald Feeney, tók m.a. þátt í_að bjarga bandarískum gíslum í íran árið 1980, aðgerð til að bjarga sex trú- boðum í Súdan og innrásinni í Grenada árið 1983. Eiginkona hans Judy Feeney, er fyrrverandi njósn- ari á vegum bandaríska hersins. Líklega kom Judy Desember Feeney til íslands 1992 um Þetta leyti ásamt fleirum und- ir því yfirskyni að taka ætti hér kvikmynd. Var Ernu boðið að vinna við leit að tökustöðum, látin þýða bréf skrifuð á bréfsefni Carolco- kvikmyndafyrirtækisins og boðið til Sviss starfsins vegna. Fór hún þangað ásamt eldri dóttur sinni. Þá hafði einkum ein konan í hópn- DONALD M. Feeney við komuna til Reykjavíkur- flugvallar eftir að hafa ver- ið handtekinn á flugvellin- um í Vestmannaeyjum 7. ágúst 1993. um, Lawrence Canavan, gert sér far um í a.m.k. mánuð að vinna traust Ernu, sem hafði tortryggt hópinn. Feeney greindi síðar frá því að hann hefði átt erindi til Zúrich og því hefði verið talið hentugt að fara með börnin þangað og afhenda þau þar. í Sviss kynnti Feeney sig fyrir Ernu sem Mario Kassars, framleið- andi og forstjóri Carolco. Erna sagði síðar að eftir utanlandsferðina hefði hún hætt að tortryggja fólkið og haldið áfram að starfa með því. Brottnámið 25. janúar 1993 kom Grayson, faðir Önnu Nicole, til ís- lands samkvæmt ráðleggingum Feeneys. Var honum væri reiðubúin að Síðar Morgunblaðið/Júlíus ERNA Eyjólfsdóttir ásamt dætrum sínum, Elizabeth Jane Pitt- man og Önnu Nicole Grayson í janúarbyijun 1993. DONALD M. Feeney ræðir við James Brian Grayson og eigin- konu hans, Ginger, í Dómshúsi Reykjavíkur 2. mars 1993. Lúxemborg að senda stúlkuna til baka til Islands. Fylgdarmönnum hennar, Judy Feeney, Jacquie Davis og Lawrence Canavan var sleppt eftir að hafa verið í haldi í sjö klukkustundir. Þá hafði ekki borist alþjóðleg hand- tökuskipun eða framsalsbeiðni og héldu þau til London. James Gray- son og Donald Feeney voru hins vegar handteknir hér á landi. Flóttinn starfsfólks sagt að Erna afhenda honum dóttur hans. kom fram í rétti, að hann hefði aldr- ei fengið vitneskju um raunveruleg- ar ráðagerðir fyrirtækisins en talið allan tímann að samið yrði við móðurina um að hún léti börnin af hendi. Hann dvaldist á Holiday Inn í tvo daga og þá var honum sagt að næsta morgun yrði farið úr landi, því þá fengjust börnin afhent. fór Erna seint um 27.janúar kvöld á veitinga- 1993 stað nieð þessum vinum sínum, þar sem henni voru gefin lyf eftir að þau yfirgáfu veitingastaðinn. Þegar hún vaknaði nokkrum tímum síðar sá hún að börnin voru horfin. Pitt- man, faðir Elizabethar, kom ekki til Islands meðan á aðgerðinni stóð en beið dóttur sinnar í Lúxemborg. Grayson hitti dóttur sína hins vegar í bíl fyrir utan Hótel Holt en komst ekki með hana úr landi. Þrátt fyrir að stjúpfaðir Ernu Eyjólfsdóttur hefði varað útlend- 3... 2. maí 1992flaug Erna ásamt dætrum sínum með Flugleíðum til íslands 2Í april 1992 fór Erna huldu höfði í Flórida en ók síðan af til New York. Þar fékk w • hún íslensk bráða- birgðavegabréf og... ^2 sfáP '• Frá haus) f farbanni i Bandaríkjunum; en þá var henni gert að leggja inn vegabréf sitt og dætranna ingaerftirlitið og tollgæsluna á Keflavíkurflugvelli við því að dætr- um Ernu kynni að verða rænt - og myndir af þeim væru til staðar hjá vegabréfaskoðun í Leifsstöð - tókst fólkinu að koma eldri dóttur- inni, Elizabeth, úr landi til Lúxem- borgar. Strax og vitað var um brott- námið gerði stjúpfaðir Ernu vakt- stjóra tollgæslunnar á flugvellinum viðvart. Elizabeth var sagt að hún væri í för með vinum mömmu sinnar á leið til London þar sem móður henn- ar hefði boðist vinna. Þar sem Eliza- beth hafði ekki verið í fylgd forráða- manns, en haft bandarískt og ís- lenskt ríkisfang, ákváðu yfirvöld í 2. mars 1993 dæmdi Héraðs- dómur Reykjavík- ur Donald M. Feen- ey í tveggja ára fangelsi og James Brian Grayson í 12 mánaða fangelsi, þar af 9 mán- uði skilorðbundið. Báðir voru þeir sakfelldir fyrir barnsrán og frelsis- sviptingu. wmmmmmmmm dæmdi Hæstiréttur 19. mars íslands James 1993 Brian Grayson í átta mánaða fang- elsi, þar af sex mánuði skilorðs- bundið, og Donald Michael Feeney, í tveggja ára fangelsi. mm^^mmmmm Feeney afplánaði 7. ágúst dóm sinn á Litla- J993 Hrauni. Aðfara- nótt þessa dags strauk hann úr fangelsi við annan mann en var handtekinn á flugvell- inum í Vestmannaeyjum að morgni. Þá voru þeir nýkomnir til Eyja í hópi 100 erlendra ferðamanna með vélum frá íslandsflugi. Þeir höfðu ennfremur tekið vélina á leigu til að fljúga með sig áfram til Fær- eyja. Feeney afplánaði síðan dóm sinn hér á landi og hélt eftir það til Bandaríkjanna. Hann komst aft- ur í fréttir á Islandi þegar hann aðstoðaði bandaríska konu við að ná barni frá íröskum eiginmanni sínum í september 1994. Nú aftur á íslandi JOSEPh J^NARD - yCmdR* tískuverslun Rauðarárstíg 1, sími 561-5077 Opið ki. 10-16 laugardag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.