Morgunblaðið - 28.02.1997, Side 17

Morgunblaðið - 28.02.1997, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 17 VIÐSKIPTI Yfirmaður Sumi- tomo segir af sér Tókýó. Reuter. Samningur B.Ó.G. og Ríkiskaupa FORMAÐUR stjómar Sumitomo hefur sagt af sér vegna 2.6 milj- arða dollara taps fyrirtækisins á koparviðskiptum. Tveir aðrir fulltrúar í stjórn Sumitomos hafa boðizt til að segja af sér, en fyrirtækið ítrekaði að stjórn þess hefði ekkert vitað um óleyfileg koparviðskipti Yasuo Hamanaka, sem leiddi til tapsins. Hamanaka var rekinn í júní þeg- ar hann viðurkenndi að hafa gert leynilega samninga um koparvið- skipti og hefur játað sig sekan af ákærum um fjársvik og skjalafals fyrir rétti í Tókýó. Hann hefur ver- ið látinn laus gegn tryggingu, en á að mæta fyrir rétt í næsta mánuði. Sumitomo sagði að Tomiichi Akiyama, sem var forstjóri fyrir- tækisins þegar skýrt var frá tapi þess, hefði sagt af sér „til að fá málið út úr heiminum." „Þótt ég viti ekkert um leyniviðskipti hr. Hamanaka var ég forstjóri fyrir- tækisins þegar mestöll viðskiptin fóru fram,“ sagði Akiyama í bréfi til lögfræðinga Sumitomo í New York. Hann kvaðst hafa íhugað að segja af sér um leið og skýrt hefði verið frá tapinu, en haldið áfram störfum vegna rannsóknar málsins. Sumitomo tók ekki fram hvort hinir stjórnarfulltrúarnir tveir, sem hafa boðizt til að segja af sér, mundu láta af störfum. Annar þeirra var yfirmaður Hamanaka þegar hann leysti frá skjóðunni. Forstjórar í Japan segja af sér á táknrænan hátt til að „taka afleið- ingum“ hvers konar hneykslismála eða ávirðingar fyrirtækja án þess að viðurkenna að þeir beri sökina. Forstjóri Sumitomo, Kenji Miya- hara, sagði á blaðamannafundi að rannsóknin á viðskiptum Haman- aka mundi taka nokkra mánuði í viðbót. Hann kvað fyrirtækið hafa frétt um nokkrar nýjar staðreyndir í Panorama fréttaþætti BBC og sagði að Sumitomo hygðist koma á fót sérstakri áhættustjórnun í hrá- vöruviðskiptum fyrirtækisins í apríl. B.Ó.G. tölvuvörur og Rikiskaup undirrituðu nýverið rammasamn- ing varðandi kaup á rekstrarvör- um fyrir tölvur og prentara í kjöl- far útboðs sem Ríkiskaup efndi til. Þetta er í annað skipti sem B.Ó.G. tölvuvörur fá þennan samning sem er til tveggja ára. Alls tóku ellefu fyrirtæki þátt í útboðinu, en geng- ið var til samninga við B.Ó.G. og þijá aðra aðila. Frá undirritun samningsins taldir frá vinstri Ein- ar Viðar Gunnlaugsson, sölustjóri, Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkis- kaupa, og Ólafur Ástgeirsson, verkefnasljóri Ríkiskaupa. Samvinnuferóir-Landsýn 4 ára dómi Alans Bonds áfrýjað Perth. Reuter. AÐALSAKSÓKNARI Ástralíu hef- ur áfrýjað fjögurra ára fangelsis- dómi verktakans Alans Bonds fyrir mestu fjársvik í sögu Ástralíu á þeirri forsendu að dómurinn sé of vægur. Lögfræðingar Bonds hyggjast einnig áfrýja. Sækjendur í málinu höfðu farið fram á að Bond yrði dæmdur í 10 ára fangelsi. Flestum á óvart fékk Bond aðeins fjögurra ára fangelsi og kemur sá tími, sem hann hefur afplánað, til frádráttar þannig að hann verður látinn laus til reynslu á næsta ári. VW POLO MILANO koslar frá Vol Oruggur á ■ Dagbók Námskeið EFTIRFARANDI námskeið verða haldin á næstunni hjá Endurmenntunarstofnun Há- skóla íslands: 3. mars kl. 8.15-12.15. Stjómun starfsmannamála - almennt yfirlit. Kennari: Þórður S. Óskarsson, framkvæmda- stjóri ráðgjafarfyrirtækisins KPMG Sinnu ehf. 4. mars kl. 8.15-12.15. Þróun starfsmanna, hvatning og starfslýsingar. Kennari: Þórður S. Óskarsson, framkvæmda- stjóri ráðgjafarfyrirtækisins KPMB Sinnu ehf. 5. mars 8.15-12.15. Sam- skipti á vinnustað og ný vinnu- brögð - lausn starfsmanna- vandamála. Kennari: Þórður S. Óskarsson, framkvæmdastjóri ráðgjafarfyrirtækisins KPMB Sinnu ehf. 3. og 4. mars kl. 12.30- 16.00. Innskyggnir - sjálfsmat. Námskeið um notkun sjálfs- mats í fyrirtækjum. Haldið í samvinnu við Gæðastjómunar- félag íslands. Kennarar: Guð- rún Ragnarsdóttir gæðastjóri hjá Landsvirkjun og Haraldur A. Hjaltason rekstrarráðgjafi hjá VSÓ Rekstrarráðgjöf. 3. mars kl. 8.30-12.00. Upp- lýsingar til bættrar ákvarðana- töku. Vöruhús gagna og upp- lýsingateningur. Kennarar: Már Grétar Pálsson og Jón Vil- hjálmsson hjá Verkfræðistof- unni Afli. 4. og 6. mars kl. 8.30-12.30. Markaðsmál smásöluverslana. Kennari: Ásmundur Helgason, markaðs- og gæðastjóri Húsa- smiðjunnar. 5. mars kl. 13-16 og 6. mars kl. 8.30-13.30. Framleiðslu- stjórnun. Kennari: Páll Jensson prófessor í véla^ og iðnaðar- verkfræðiskor HÍ. 5. mars kl. 16.00-19.30. Skattamál - nýlegir úrskurðir og dómar. Kennari: Steinþór Haraldsson lögfræðingur ríkis- skattstjóra. Nú bjóðum viS sérútbúinn VOLKSWAGEN POLO MILANO á sérstöku tilboðsverbi. Búnaður í POLO MILANO er m.a.: * 13" sumardekk á átfelgum m • 13" nagladekk á stálfelgum m * útvarp meö geislaspilara m 9 lituð gler § • snúningshra&amælir • • sérstyrkt yfirbygging é • GT loftnet á toppi - 0 samlitir stuðarar og spegiar ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.