Morgunblaðið - 28.02.1997, Síða 21

Morgunblaðið - 28.02.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 21 Siiman falið að mynda stjórn LENNART Meri, forseti Eist- lands, veitti í gær Mart Siiman umboð til að mynda nýja ríkis- stjórn eftir afsögn Tiits Vahis, fráfarandi forsætisráðherra. Siiman fær hálfan mánuð til að mynda stjórnina og telur sig geta fengið stuðning tveggja af hveijum þremur þingmönnum landsins. Hann er sjónvarpsstjóri og hefur verið þingflokksformaður Samsteypuflokksins, sem hef- ur verið völd. Stjórn Váhis var með minnihluta á þinginu og ekki er ljóst hvort Siiman hyggst fá aðra flokka til að ganga í stjórnina. Endurvekja viðræður um Kasmír NAWAZ Sharif, nýr forsætis- ráðherra Pakistans, hefur fall- izt á að endurvekja friðar- samningaviðræður við Indland um Kasmír-hérað og fleiri deilumál, en nágrannaríkin tvö hafa lengi eldað grátt silfur vegna héraðsins fjöllótta. Viðræður um mannréttindi áKúbu EMBÆTTISMENN frá Kanada og Kúbu hafa lokið tveggja daga viðræðum um mannréttindamál í Havana eins og samið var um i Kúbu- ferð Lloyds Axworthys, utan- ríkisráðherra Kanada, í liðnum mánuði. Kanadíski sendiherr- ann í Havana sagði það mjög óvenjulegt að Kúbumenn ræddu mannréttindamál við vestræna embættismenn og kvað viðræðurnar „mjög áhugaverða reynslu“. Hann kvaðst þó ekki búast við að viðræðurnar bæru skjótan árangur en bætti við að þeim yrði haldið áfram á næstu mánuðum. Aftaka í Virginíu 39 ÁRA maður, Coleman Wayne Gray, var tekinn af lífi með banvænni sprautu í Virg- iníu í Bandaríkjunum á mið- vikudag. Hann var dæmdur til dauða fyrir morð á verslunar- stjóra fyrir tólf árum og mál hans hafði velkst i dómskerf- inu í ellefu ár, með ótalmörg- um yfirheyrslum og áfrýjunum til dómstóla Virginíu og alrík- isins. Landsnúmer- um breytt ALÞJÓÐA símamálasamband- ið (ITU) hefur ákveðið að landsnúmer Tékklands verði 420 og Slóvakíu 421 frá og með 1. mars. Löndin hafa haft sama landsnúmer, 42, þrátt fyrir aðskilnað þeirra árið 1993. Israeli hugðist reisa íbúðahverfi á umdeildri hæð við Austur-Jerúsalem Reuter ISRAELINN David Myr sýnir kort af íbúðahverfi og golfvelli, sem hann hugðist reisa á landi sínu við jaðar Austur-Jerúsalem. ísraelsstjóm tók landið eignarnámi til að reisa ibúðir fyrir gyð- inga þrátt fyrir harða andstöðu Palestínumanna. irnar og sú ákvörðun sætti mik- illi gagnrýni á Vesturlöndum og í arabaheiminum. „Ekki spurning um peninga" Abu Zayyad kvaðst vona að hæstiréttur ísraels dæmdi Myr í vil og hnekkti eignarnáminu. Hann sagðist þó ekki telja að það væri efst í huga Myrs að stuðla að friði í Miðausturlöndum. „Hann vill græða peninga," sagði hann. Myr hefur skipulagt íbúða- hverfi á landinu sínu síðustu 25 árin og lokið við ýmis konar lík- ön í réttum stærðarhlutföllum, m.a. tölvulíkön. Hann vildi ekki skýra frá kostnaðinum af skipu- lagningunni en áætlaði að sölu- verð íbúðanna myndi nema sem svarar 105 milljörðum króna. Hann kvaðst fús til að leggja hagnaðinn í „mannúðarsjóð“. „Þetta er ekki spurning um pen- inga. Þetta snýst um ævistarf," sagði Myr. „Þessi hæð er mér ákaflega kær.“ Höfðar mál gegn ísraelsstjórn Jerúsalem. Reuter. ÍSRAELINN David Myr átti helming þess lands sem stjórn ísraels hefur tekið eignarnámi til að reisa hverfi fyrir gyðinga við jaðar Austur-Jerúsalem. Hann hefur höfðað mál vegna eignarnámsins og hugðist sjálfur reisa íbúðir fyrir gyðinga á landi sínu. Hann telur að palestínsk yfirvöld hefðu ekki lagst gegn áformum hans og þau hefðu því ekki stefnt friðarumleitunum í Miðausturlöndum í hættu. „Þeir þekkja mig, ég hef rætt við þá og þeir sögðu: „við vitum að þú ert enginn vandræðasegg- ur og við erum þér sammála," sagði Myr um embættismenn Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO). „Vandamálið í þessu máli eins og öðrum er að fólk ruglar saman tveimur hlutum: eignar- réttinum og því hveijir muni stjórna svæðinu." Ziad Abu Zayyad, talsmaður PLO í málefnum Jerúsalem, kvaðst óska Myr velfarnaðar í málaferlunum gegn ísraelsstjórn og sagði að palestínsk yfirvöld myndu ræða við hann ef hann færi með sigur af hólmi. „En ég segi ekkert um hver niðurstaðan verður,“ bætti hann þó við. Keypti landið af aröbum Myr hugðist reisa íbúðirnar á hæð, sem Iraelar kalla Har Homa og Palestínumenn Jabal Abu Ghneim. ísraelar náðu henni á sitt vald í stríðinu við araba 1967 og Myr keypti landið af aröbum þremur árum síðar. Myr hefur höfðað mál gegn stjórninni vegna eignarnámsins og hæstiréttur ísraels krafðist þess á miðvikudag að æðsti lög- fræðilegi embættismaður ríkis- valdsins útskýrði innan tíu daga hvers vegna hann hefði ekki sett lögbann á áform stjórnarinnar eins og Myr hafði óskað eftir. Myr sagði að það skipti sig engu máli hveijir stjórnuðu Aust- ur-Jerúsalem, hann vildi aðeins reisa Iúxusíbúðahverfi með golf- velli á landi sínu. „ísraelsstjórn er að koma sér í vandræði meðal þjóða heims að óþörfu," sagði hann. „Arabar geta byggt á sínu landi og gyðingar á okkar landi ánnokkurra vandamála." ísraelar tóku 192 hektara á hæðinni eignarnámi árið 1992, þegar Verkamannaflokkurinn var við völd. Helmingur hæðar- innar var í eigu Myrs, fjórðung- inn áttu arabar og ísrael afgang- inn. Verkamannaflokkurinn lét þó aldrei verða af byggingar- framkvæmdum á hæðinni vegna andstöðu PLO. Stjórn Benjamins Netanyahus, forsætisráðherra ísraels, ákvað hins vegar á mið- vikudag að heimila framkvæmd- Undirbúa jarðveginn fyrir bann við barna- þrælkun Amsterdam. Reuter. FULLTRÚAR á alþjóðlegri ráð- stefnu um barnaþrælkun sögðust í gær ekki alltof bjartsýnir á að tækist að uppræta þann ósóma og leysa þannig um 250 milljónir barna um heim allan úr ánauð. „Mörgum finnst það ef til vili hljóma undarlega er ég segi að stríðið gegn barnaþrælkuninni sé að vinnast," sagði Ássefa Bequele, framkvæmdastjóri deildar Alþjóða- vinnustofnunarinnar (ILO), sem fæst við aðbúnað á vinnustöðum. Ráðstefnan í Amsterdam, sem lauk í gær, fjallaði um þrælkun, nauðungarvinnu og misnotkun barna vegna vændis, klámfram- leiðslu og fíkniefnaverslunar. Sóttu hana um 200 ráðherrar, verkalýðs- leiðtogar og barnaverndarfulltrúar. Báru þeir saman bækur sínar um hvernig auka mætti alþjóðlegt og svæðisbundið samstarf gegn barnaþrælkun og drög að nýjum ILO-sáttmála er hefði það að markmiði að uppræta verstu teg- undir þrælkunar fyrir aldamót. í lokasamþykkt ráðstefnunnar í Amsterdam var krafist tafarlausra aðgerða gegn barnaþrælkun á heimsvísu og voru vonir við það bundnar, að með ráðstefnunni væri hafinn undirbúningur jarðvegs undir allsheijarbann við barna- vinnu. Verður ráðstefnunni fylgt eftir með nýrri ráðstefnu í Ósló í október en þar er ætlunin að semja drög að alþjóðasáttmála er skuld- bindi ríki til aðgerða af því tagi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.