Morgunblaðið - 28.02.1997, Síða 27

Morgunblaðið - 28.02.1997, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 27 LISTIR Teikningar og spor MYNDLIST Gcrdubcrg/ S jónarhóll HLJÓÐVERK FINNBOGI PÉTURSSON Gerðuberg: Opið kl. 9-21 mánud.- fimmtud., kl. 9-19 föstud. og kl. 12-17 laugard.-sunnud. til 26. mars; aðgangur ókeypis. Sjónarhóll: Opið kl. 14-18 fimmtud.-sunnud. til 2. mars; að- gangur ókeypis. SJÓNÞINGIN í Gerðubergi hafa unnið sér fastan sess í myndiistar- lífinu í höfuðborginni, enda er með þeim verið að vinna að nokkrum mikilvægum þáttum í senn. Hér er um að ræða athyglisverða tilraun til að sameina almenna umræðu um málefni listanna, fræðslu fyrir þá sem koma inn af götunni jafnt sem hina innvígðu, greinargerð listamanna um verkefni sín og loks sýningar á því sem þeir hafa verið að fást við um ákveðið árabil, þó ekki sé þar um tæmandi yfirlit að ræða. Áttunda sjónþingið fór fram 9. febrúar og fjallaði um listamanninn Finnboga Pétursson og starf hans að sköpun hljóðverka, en í tengslum við þingið standa nú yfir sýningar á nokkrum verkum hans í Gerðu- bergi í Breiðholti og nýju verki í sýningarsalnum Sjónarhóli við Hverfisgötu. Verk Finnboga koma á óvart með einhveijum hætti á hverri sýningu, enda byggjast þau ætíð að nokkru á hinu óvænta ekki síður en á hljóð- inu sem berst frá þeim eða hvernig þau koma gestum fyrir sjónir (í sumum tilvikum hefur þó síðasti þátturinn ekki verið til staðar, eins og á sýningu hans á Mokka haustið 1995). Hið óvænta ber þó aldr- ei með sér óhugnað, heldur fyrst og fremst forundran, þar sem listamaðurinn leiðir saman ólíka þætti til að skapa sterkar heildir úr ólíkum þáttum. Það er ekki tilviljun að talað hefur verið um mörg verka Finn- boga sem teikningar, myndir eða skúlptúra, enda byggja þau oft upp ákveðnar ímyndir í umhverfi sínu og hugum þeirra, sem kynnast þeim. Þannig ber eitt verkið sem sýnt er í Gerðubergi titilinn „Vindteikning", en það er gert af 14 litlum viftum, sem hver um sig þyrlar upp loftinu umhverf- is eftir ákveðnum leiðum. Verkið myndar þannig taktfastar og fjör- ugar hringrásir í sínu takmarkaða rými, sem helst má líkja við þau öflugu veðurkerfi hæða og lægða, sem stjórna allri tilveru okkar á jörðinni; þessar saklausu teikning- ar innandyra eru því örlítil áminn- ing um hvað ræður aðstæðum okk- ar þegar út kemur. Ánnað verk hér tengir saman mynd og hljóð í taktfastri hrynj- andi, sem stöðugt magnast upp. „Óður“ byggist á stuttum skotum, sem felld eru saman í ákveðna röð, og er í raun ljóðræn tilvísun til nátt- úruaflanna. Þó nýtur verkið sín tæpast sem skyldi við að vera bund- ið við sjónvarpsskjá, en hér hafa tæknilegar takmarkanir tímans sett listamanninum skorður, sem kunna að vera horfnar nú. Þetta og fleiri verk benda hins vegar á takmarkanir sem hljóðverk Finn- boga þurfa að búa við umfram marga aðra miðla, en það er hversu staðbundin slík list- sköpun er oft á tíðum. Má ætla að ýmis mögn- uð verk sem listamað- urinn hefur gert í gegn- um tíðina með ákveðið rými í huga mundu tæpast hafa sömu áhrif í nýju umhverfi eða á öðrum vettvangi; t.d. fengju eftirminnileg verk sem hann hefur sett upp á Kjarvalsstöð- um, í Nýlistasafninu og í Listasafninu á Akureyri á síðustu árum tæpast notið sín í því þrönga rými sem gangar Gerðubergs skapa því örlitla yfírliti verka hans, sem þar er að finna. Þessi mikilvæga aðlögun verksins að rýminu kemur vel fram í hljóð- verki sem Finnbogi hefur skapað og sett upp á Sjónarhóli við Hverfis- götu. Verkið nefnir hann „Spor“, en hér er um að ræða fimmtíu ein- ingar, sem gestir geta gengið á milli og kveikt á hverri fyrir sig. Úr þeim berast leiðbeiningar um létta hreyfingu, spor sem stíga skal til betra lífs og hressilegri tilveru; saman bera þau með sér uppskrift að hreyfilist og vitna um samhljóm sem nú ber hátt í þjóðfélaginu, en gestir mundu ekki vænta að heyra á þessum vettvangi. Þannig kemur Finnbogi listunn- endum sífellt á óvart með verkum sínum, teikningum og skúlptúrum, þar sem hljóðið er helsti miðillinn - og vonandi heidur hann því áfram í framtíðinni. Eiríkur Þorláksson Finnbogi Pétursson Verk til heiðurs frelsishetju FYRIR SKÖMMU var fluttur í ungverska ríkisútvarpinu sér- stakur þáttur til minningar um frelsishetjuna Angyal István sem myrt var af Rússum og leppum þeirra fyrir bráðum fjörutíu árum. Meðal tón- listar sem flutt var í þættinum var verk sem sagt var eftir Þorra Jóhanns- son fjöllista- mann. Þorri Jóhanns- son er staddur í Marokkó og seg- ir svo fráað fyrir löngu var hann á ferð í Ungverja- landi með In- ferno 5 flokkn- um og kynntust þar ungverskum tónlistarmönn- um. „Þeir skrifuðu mér síðan í fyrra og báðu um hljóðverk, því ég er nú ekkert tónskáld, í til- efni af 40 ára afmæli uppreisn- arinnar í Ungverjalandi, en þeir skrifuðu um allan heim og báðu um verk til að flytja í ríkisút- varpinu þar í landi. Verkin áttu að vera tileinkuð ungverskum gyðingi, Angyal István, sem barðist gegn nasistum í síðari heimsstyrjöldinni og komst af og var síðan í fararbroddi í bar- áttunni gegn Rússum í upp- reisninni. István særðist í þeim átökum og kaus að láta frekar I taka sier höndum en flvia. Þeear hann var síðan dæmdur kaus hann frekar dauðann en langa fangelsisvist, var þessi sjald- gæfa þrjóska hetja.“ Þorri segir að þegar beiðnin barst honum hafi hann verið á ferðalagi um Spán og því hafi hann sent Ungveijunum geisla- diskinn Kjöttrommuna, sem þeir Einar Melax tóku upp saman og gáfu út fyrir tveimur árum og beðið þá að velja það sem þeim fannst viðeigandi „Því miður gleymdum við að geta um höf- undarnafn á plötunni og því skrifuðu þeir verkið áinig, því þeir vissu ekki betur. Ég vil því nota tækifærið og undirstrika að verkið er eftir Einar Melax þó ég gauli og rauli í því og lemji á trommur," segir Þorri en hann er nú staddur í Marokkó við trommunám. Morgunblaðið/ ÞORRI Jóhannsson og Einar Melax. Fjarlægur draumur ?... Kannski ekki! Mercedes-Benz C - lína. Verð kr. 2.995.000 Búnaður: ► ABS hemlar ► Loftpúðar við bæði framsæti ► Hlífðarpanna undir vél og gírkassa ► Fjarstýrð samlæsing og þjófavörn ► Höfuðpúðar á aftursæti ► Hljómflutningstæki / 8 hátalarar ► Litað gler ► Rafstýrðir, hitaðir útispeglar ► Hæðarstilling á ökuljósum ► Mælir fyrir útihita o.m.fl. Fjölbreyttur valbúnaður fáanlegur, m.a: 5 þrepa sjálfskipting með hraðastilli (cruise control) ■A.- Ýmsir greiðslumöguleikar, bílalán eða kaupleiga. Hafið samband við sölumenn okkar sem veita fúslega allar nánari upplýsingar. Við erum líka á veraldarvefnum: www.hugmot.is/benz Mercedes-Benz RÆSIR HF SKÚLAGÖTU 59, SÍMI 561 9550

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.