Morgunblaðið - 28.02.1997, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 28.02.1997, Qupperneq 36
36 FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 SJÓNMENNTAVETTVANGUR MORGUNBLAÐIÐ DÆMI um sérhannaðan lista- skóla: Charles Rennie Mack- intosh: Listaskólinn í Glasgow, byggður 1897-99 og 1907-09. Aðalhliðin veit í norður. Hús og yfirbygging Mikið fjaðrafok hefar orðið á opinberum vettvangi vegna húsnæðismála myndlistar- manna og myndlistarskóla. Er vel að þessi mál komi loks rækilega upp á yfirborðið og ----------------------------------?-------- var ekki vonum fyrr, segir Bragi Asgeirs- son, en þau hafa um langt árabil oftlega skarað vettvang hans. MARGIR hrukku við, er Myndlistarskóla Reykja- víkur og Grafíkfélaginu var öllum að óvörum sagt upp hús- næði sínu í Hafnarhúsinu samtímis, og eðlilegt að viðbrögðin yrðu harka- leg. Myndlistarskólinn hefur verið í boðlegum húsakynnum á staðnum í þó nokkur ár, en grafíkfélagið hafði með ærinni fyrirhöfn og mikilli sjálf- boðaliðavinnu komið upp verkstæði, hinu fyrsta á íslandi, en það skal nú á braut. Var starfsemin rétt haf- in að hluta, svo þetta telst afar mikið áfall fyrir viðgang íslenzkrar grafíklistar. Að vísu hefur borgar- stjórn lofað báðum aðilum að hús- næðisþörf þeirra verði tekin til end- urskoðunar, jafnvel að flutningar fari fram þeim að kostnaðarlausu. En uppbygging verkstæðisins hefur tekið mörg ár og fer ómæld vinna félagsmanna í súginn, sem ekki verður bætt með velvilja, traustvekj- ^ andi brosum, axlaklappi og einhveij- um pennastrikum. Með allri virðingu fyrir Grafíkfé- laginu bjóst skrifari við að ævintýr- ið varðandi Myndlistarhúsið að Klömbrum fyrir nær aldarfjórðungi, dygði myndlistarmönnum til nok- kurrar fyrirhyggju og varúðar í samningum við borgaryfirvöld um alla framtíð, hver sem pólitíski litur- inn væri í þeim herbúðum. En svo er bersýnilega ekki, því menn hafa enn og aftur treyst á góð orð í stað beinharðra samninga, þótt reynslan sýni að hér dugi ekki einu sinni 99% öryggi heldur verður það helst að vera 101%. Vinnubrögð borgaryfirvaida ein- kennast af fljótfærni og vanþekk- ingu, því álíta má að verkstæðisrým- ið skipti ekki ýkja miklu máli um framtíðaráætlanir í öllu húsinu og væri bókasafni frekar hagur að því að hafa starfsemina á staðnum. Hægt væri að koma á mikilsverðu samstarfi milli bókasafnsins, lista- safnsins og verkstæðisins sem væri ávinningur allra, því grafík er ekki aðeins hluti af bókverki sem hver og einn getur sannfærst um ef vill, heldur væri einnig mögulegt að virkja það í þágu listasafnsins t.d. með veggspjaldagerð og þrykki ýmiss konar, sem að auki myndi veita grafíklistamönnunum vinnu. Væri það hreint slys að gaumgæfa ekki þessa möguleika. Minna skal á að innan handar er möguleiki að fylla í mjög neyðarlega gloppu hjá bókaþjóðinni hvað listrænar bækur snertir, og hvað er bókverk annað en grafík? Grafíkverkstæðið hefur, sé það rétt rekið, alla burði til að opna fyrir möguleika til þrykkingar mynda í hinni aðskiljanlegustu tækni, sem einungis er hægt erlend- is, t.d. steinþrykki. Kostnaðurinn við slíka þjónustu erlendis er meiri en flesta grunar, til að mynda hefur skrifari farið 5 ferðir til Kaup- mannahafnar á vit hennar frá 1983, og þekkir til hlutanna. Á tímabilinu hefur kostnaður margfaldast, þann- ig að það eru einungis listafélög og mjög þekktir listamann sem hafa efni á að nýta sér verkstæðin og þá þjónustu sem þau inna af hendi. Þetta á við um öll verkstæði í stór- borgum Evrópu og Ameríku nema verkstæði listamanna eða listasam- taka, sem bjóða einstökum lista- mönnum vinnuaðstöðu endurgjalds- laust, en þá er auðvitað ekki innfal- in þjónusta, uppihald né efniskostn- aður. Lagði saman kostnað minn við gerð 6 steinþrykkja í september 1994 og reyndist hann um 550.000 krónur lauslega áætlað, og er þá ekki innifalinn vinnutími minn frá því árla morguns og langt fram á kvöld í rúman hálfan mánuð, né flutningskostnaður heim. Þetta var skiljanlega rothögg á allar áætlanir um frekari, helst árlega nýtingu verkstæðisins. Verkstæðið í Hafnar- húsinu leysir þó engan veginn öll vandamál grafíklistamanna á einu bretti, því það mikilvægasta er eft- ir, að virkja það og skapa heilbrigt vinnuandrúm sem er snöggtum meira mál en mörgum virðist ljóst. Hið óborganlega lífræna andrúm sem er innan veggja grafíkverk- stæða víða um heim varð síst til með fundarsamþykktum, áformum og áætlunum, heldur framkvæmda- gleði og útsjónarsemi, og vel að merkja ákaflega ströngum og mörk- uðum húsreglum. Flutningur Myndlistarskóla Reykjavíkur er auðvitað mikið til- finningamál en þarf ekki að valda eins mikilli röskun, og verði þeirri merku stofnun séð fýrir stærra og hentugara húsnæði til frambúðar getur hún mjög vel við unað. Hvað húsnæði Myndlista- og handíðaskólans varðar er mun alvar- legra mál á ferðinni, því hér er kom- ið sláandi dæmi þess að mál leysast ekki með fundarhöldum, ályktum né barnalegri óskhyggju. Eiga nemendur ómælt hrós skilið fyrir að taka af skarið og vekja at- hygli á stöðunni, því hún er ekkert minna en þjóðarhneisa er svo er komið. Hér er sýnu verst hve bar- áttuandinn og metnaðurinn hefur verið lítill innan skólastjómar í þá veru að vekja athygli á stöðu hans á opinberum vettvangi. Risið tak- markað, því menn þar á bæ virðast taka við hveiju hundsbeini sem að þeim er rétt, jafnvel fagnandi ef rýmið er nógu mikið. Eins og áður hefur komið fram í skrifum mínum, hefur verið slegið af kröfum um grunnnám og menn tengt skólann almenna skólakerfinu í vaxandi mæli sem þýðir auðvitað minnkandi sjálfstæði hans og því upprunalega markmiði, að vera þak- ið á allri myndlistarfræðslu á land- inu sem aðrir skólar læri og dragi dám af. Til þess þarf öðru fremur að virkja best menntuðu og framsæ- knustu listamenn þjóðarinnar á öll- um aldri, svo sem lengi var leitast við að gera. Hér kemur til að emb- ættismenn sem takmarkaða þekk- ingu og skilning hafa á listaskólum og þýðingu sjónmennta hafa fengið að ráða ferðinni, meður því að þeir viðurkenna annars ekki réttindi til námslána. Skyndilega fengu þarfir nemenda fyrir námslán og tilbúnar reglur ráðandi fáfræðinga á vett- vanginum meira vægi en menntun- argrundvöllurinn! Hér áttu menn að standa fast á rétti nemenda í ljósi vægi skapandi námsgreina í menntakerfum annarra þjóða. Allt kom fyrir ekki, þótt erlendir skólafrömuðir af hárri gráðu er kynntu sér skólakerfí okkar lykju helst lofsyrði á þennan skóla og vinnugleðina innan veggja hans, og nafnkenndur rektor listaskóla í Nor- egi segði: „Hér hafið þið dálítið sem við höfum ekki.“ Fáfræðingunum og reglugerðarmeisturunum óx ein- ungis ásmegin og einmitt þetta „dá- lítið“ var bútað niður og sundurlim- að og hefur ekki borið sitt barr síðan. Ekki er úr vegi að nefna, að í öllum listaháskólum sem skrifari nam við gekk hann að sömu réttind- um og aðrir háskólaborgarar, og voru þetta þó sjálfstæðar stofnanir með eigin og markaðar menntunar- kröfur. Hefði varðað heimsendi ef einhverjir kennslufræðingar hefðu farið að krukka í þær. Vægi listmenntunar þótti slíkt í upphafi, að allstaðar risu listahá- skólar eða akademíur í kjama stór- borga þar sem þeir tróna enn svo sem allir geta gengið úr skugga um. Er nærtækast að nefna akademíum- ar í Kaupmannahöfn og Stokk- hólmi. Og þótt akademían í Ósló væri lengi vel einungis í fjórum stof- um bakatil og kjallara Kunstnerens Hus, var hún stóram virtari stofnun en t.d. listiðnaðarskólinn er bjó við tífalt veglegri húsakynni. Metnaður- inn að komast inn fyrir dyr akadem- íunnar var hins vegar tífalt meiri, og inn í helgidóminn komust svo aftur um og yfir 10% þeirra sem þreyttu inntökupróf. Og þar sem minnst er á inntöku- próf virðast þau nú sniðin að snöggt- um öðram þörfum og leikreglum en varðar uppranalega hæfíleika og metnað, og þannig væru Kjarval og Ásgrímur naumast gjaldgengir í MHÍ er svo er komið, jafnvel ekki Picasso, hvað þá Anthonis van Dyck! Hér gildir áfangakerfi og lágmarks- aldur. Akademían í Ósló býr nú við margfalt meiri og veglegri húsa- kost, en hefur mjög sett niður miðað við það sem áður var, auk þess sem til ýmissa árekstra hefur komið milli nemenda og kennara sem óþekktir vora áður. Ymsir landsþekktir lista- menn og prófessorar flúðu eða hrökkluðust í burtu, minna þekkt og óþekkt fólk tók við og kústaði úr skólanum sígildum undirstöðu- greinum, virtist augljóslega ekki bera meira skynbragð á þær en húsverðirnir og ræstitæknarnir. Ónóg verkleg og skynræn grann- menntun gerir það að verkum, að nám festist ekki nægilega í nemend- um og þeir verða því auðveld bráð hvers konar stórasannleika í listum að utan, sem verður tilbúnari og ófrumlegri með ári hveiju, flökta úr einu í annað, eða endurtaka sama stefið í síbylju. Því er ekki að neita, að margt er líkt með þróuninni hér, því stöð- ugt fjölgar þeim kennuram sem enginn hefur heyrt getið til afreka á lista- eða menntasviði áður, en hafa einhver áunnin réttindi úr skól- um eða skoðanir sem falla að til- búnu einingakerfí kontóristanna. Enginn er hér að hafna þessu fólki né rakka það niður, en spurningin er einungis hvort það sé í réttu umhverfi. Frá því ég fór að skrifa í þetta blað hef ég reglulega vakið athygli á vægi allra tegunda lista- skóla, og sjónmennta í kennslukerfi menningarþjóða, einkum á megin- landi Evrópu, greint frá inniviðum þeirra og meira en 250 ára sögu. Með þá frómu ósk að leiðarljósi að það væri til fremdar skilningi á myndlistarfræðslu á landinu, enda var mér ljóst að því betur sem þjóð- in væri að sér í þessum málum, því meiri og heilbrigðari yrði döngun sjónmennta. Þeir sem hófu kennslu við skólann gerðu það af hugsjón, oftast fyrir þrábeiðni og eftirgangs- semi skólastjóra, jafnvel einnig nem- enda, og er skrifari hér engin undan- tekning. Við kenndum lengstum við frumstæð skilyrði í samræmi við takmarkaðan skilning á eðli og vægi sjónmennta meðal ráðamanna, má segja að þeir hafi séð eftir og talið hvern eyri sem fór í uppbyggingu hans og í lófa okkar. Gott dæmi um hve lítils sjónmenn- ir era metnar í kennslukerfmu, er að allir munu gera sér grein fyrir að birtumögnin skipta miklu máli í athöfnum manna, að sumar þeirra krefjast sérhannaðrar lýsingar. En ekki virðast ráðamenn gera sér grein fyrir hve rétt ljósmögn hafa mikið vægi í athöfnum myndlistarmanns- ins, hvort heldur vettvangur hans sé flötur eða rúmtak. í öllu falli ekki þeir sem hafa vísað myndlistar- kennslu inn í bóknámsstofur og myndlistarskóla í gjörsamlega óhæft húsnæði vegna lýsingarinnar einnar, til viðbótar óhollustu og öllu öðra. Sérstök áhersla hefur einmitt ver- ið lögð á lýsingu í listaháskólum sem byggðir hafa verið með þessar af- mörkuðu sjónrænu þarfir að leið- arljósi og einkum hefur þótt æski- legt að leiða sem jafnasta náttúru- birtu inn í stofurnar með ofanljósi eða stórum hliðargluggum. I fímmtíu ára sögu lýðveldisins hafa risið upp íþróttamannvirki, bóknámsskólar og kirkjur sem aldr- ei fyrr, en yfirbygging handíða, sjón- mennta og skapandi kennda hefur mikið til mætt afgangi. Afleiðingin er að raglingurinn og fáfræðin er neyðarlegri en tali tekur, og mun meiri en gerist annars staðar og nægir að vísa til spurningakeppni framhaldskóla í sjónvarpssal. Ef þessi atriði andlegra vídda fá ekki aukinn meðbyr er til lítils að tala um málrækt sem er hluti af sköpun- argáfu og sköpunarþörf mannsins. Það er fullvissa mín, að til lengri tíma litið sé sérhönnuð bygging myndlistarháskóla langsamlega hagkvæmasta lausnin, því stöðugir flutningar, hringlandaháttur og breytingar á húsnæði era ekkert annað en sóun og braðl á peningum skattborgaranna. Þar skal fara fram kennsla á rannsóknagrundvelli. í myndlist, listiðnaði og hönnun í ljósi sérþarfa okkar, sem hefði ómælda þýðingu til yfirbyggingar mótaðrar þjóðfélagsheildar. Eins og staðan er núna verður ekki betur séð en að farsælast sé að leggja MHÍ nið- ur, en veita kennslunni sem þar fer fram inn í fjölbrautaskólana og áfangakerfið, þar sem hún myndi trúlega nýtast mun betur, ganga að betri húsakosti og vera í sínu rétta umhverfi um sitt lítið af hveiju. Þetta er vel gerlegt ef metnaður og góður vilji er fyrir hendi og í næsta vettvangi vík ég að því hvern- ig þessum málum er skipað meðal Evrópuþjóða sem lífsnauðsynlegri grunneiningu. Jafnframt hvernig þær fara að því að standa undir og fjármagna hana. Mál málanna er, að hér þyrfti helst að bjóða út sam- keppni um byggingu listaháskóla er yrði sómi og stolt þjóðarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.