Morgunblaðið - 28.02.1997, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 28.02.1997, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 41, MINNINGAR KRISTIN ÓLAFSDÓTTIR + Kristín Ólafs- dóttir fæddist í Reykjavík 27. októ- ber 1924. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 19. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Ólafur Eyvindsson, f. 30.1. 1878, d. 15.1. 1947, og Elín Jóns- dóttir, f. 6.7. 1891, d. 9.12. 1983. Systk- ini hennar voru: Gunnar, f. 28.3. 1912, d. 28.9. 1930; Jóhanna, f. 25.9. 1915, d. 25.2. 1988; Fríða Karen, f. 9.11. 1918, Jón, f. 9.1. 1923, Eyvindur, f. 1.4. 1926, d. 25.4. 1996; Sigríður, f. 9.12. 1927; Hallveig, f. 19.7. 1929. Hinn 21. október 1944 giftist Kristín eftirlifandi manni sínum Guð- mundi Gíslasyni bók- bindara, f. í Reykja- vík 27. júní 1921. Áttu þau því 52 ára hjónaband að baki. Foreldrar hans voru Gísli Guðmundsson og Sigríður Lofts- dóttir. Þau eignuðust fjögur börn: 1) Sig- ríði, f. 5.5. 1946, maki Arnar _ Guð- mundsson. 2) Ólaf, f. 8.10. 1948, d. 19.7. 1960. 3) Elínu Fann- eyju, f. 17.10. 1952, maki Ásgeir Haildórsson. 4) Ól- öfu Svövu, f. 2.9.1960, sambýlis- maður Hlöðver S. Guðnason. Útför Kristinar fer fram frá Fossvogskirkju i dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Vinkona mín, sterk kona og stór- brotin, er látin. Kristín með sín fal- legu augu, fágaða útlit og reisn sem fáum er gefin. Við vorum mestu mátar allt frá þeim degi er hún sam- þykkti mig á sinn hljóða hátt _sem vinkonu yngstu dóttur sinnar, Ólaf- ar, og eftir það stóð hún alltaf með mér, fylgdist með og lét sig hlutina varða. Fátt kom henni á óvart og aldrei mótmælti hún ákvörðunum, yflrlýsingum eða stefnubreytingum heldur bara spurði og skoðaði. Krist- ín var fróðleiksfús og næm kona og afar listræn. í mínum huga var hún alltaf „aristókrat", glæsileg smekk- kona upp á gamla móðinn. Kunni allt sem góð húsmóðir þurfti að kunna og gerði það óaðfinnanlega á meðan hún hélt heilsu. Kristín var sannkölluð Reykjavíkurmær, alin upp í gamla Landsbankahúsinu, kynnist ung myndarlegum bókbind- ara og vann í blúndubúð á Skóla- vörðustígnum á sínum sokkabandsá- rum. Einhver hvíslaði því að mér að Kristín og Guðmundur hefðu verið fallegasta parið í bænum - og því trúði ég vel. Heimili þeirra hjóna var ævintýri líkast í augum ungra skólastelpna. Perluljósakróna glitraði í stássstof- unni, bækur, listaverk og fallegir munir prýddu hol og herbergi og síð- ustu áratugina bættust í safnið lista- lega vel unnin veggteppi sem Kristín saumaði út. Allt sem Kristín tók sér fyrir hendur var gert af heilum hug, af lffi og sál og oft engin miilileið til. Ég held að vilji hennar til að gera allt eins og best var á kosið og án nokkurra hnökra hafí stundum komið henni í koll og lamað þrek hennar um stundarsakir. En alltaf birti til að nýju og Kristín kom fram á sjónarsviðið einbeitt, skörp, með hlýjan skilning á lífínu og fólkinu, góður hlustandi og nístandi glettin. Kristfn og Guðmundur gerðu okk- ur Ólöfu það kleift að reyna flug- fjaðrirnar þegar við vorum við nám og eftirlétu okkur fbúð sína í kjallara hússins. Flugþol okkar var þó ekki upp á marga físka þvf oft drifum við ekki hærra en upp á næstu hæð til að fá okkur eitthvað í gogginn. Krist- ín sat þá gjaman við eldhúsborðið og hafði þá góðan tfma til að spjalla. Henni fannst við sambýlingarnir á neðri hæðinni oft heldur druslulegar og lítt húslegar og stakk því eitt sinn upp á því að senda okkur á húsmæð- raskóla að prófum loknum. Viðbrögð okkar voru lítil önnur en krampa- kenndur hlátur og gól en Kristín sat af sér háðsglósurnar og brosti bara að ungæðishætti okkar og meining- um. Eflaust hefur hún vitað að á endanum yrðum við kattþrifnar enda var hún búin að leggja sitt af mörk- um við að halda okkur hreinum og greiddum og hafði oft þurft að draga okkur inn, sveittar og sandstorknar úr einhverjum útileiknum til að dífa hausunum í almennilegt baðvatn. Vinkonan hlaut jafnan sömu meðferð og dóttirin því þær voru hvort sem er saman öllum stundum, nokkuð útsjónarsamir heimalningar sem áttu innangengt á tvö heimili. Kristín var vitur kona og gat í krafti reynslu sinnar og persónulegs missis séð undir yfírborðið og skilið. Kannski var það þess vegna sem hún hafði svona góða nærveru og fór svona fljótt á djúpmiðin í öllum sam- ræðum. En hún gagnrýndi sjaldan ef henni mislíkaði heldur kinkaði bara kolli og varð íbyggin á svip sem gerði mann stundum dálítið óörugg- an. En ef henni líkaði það sem fólk var að gera og fannst það standa fyrir sínu og nýta hæfíleika sína, þá var hún manna fyrst til að fagna og það á veglegan hátt. Þá dró hún fram dúka sína og fannst komið tilefni til að gera sér giaðan dag og láta alla njóta - og þar naut hún sín. Ein slík stund er mér ofarlega í huga - þegar hún fagnaði heimkomu okkar Ólafar frá útlöndum. Hún setti okkur til borðs og bauð svo upp á margra áratuga gamalt koníak og eðalkaffi með og svo reyktum við frá henni Kent. Reykurinn liðaðist um og okkur leið vel í púinu, í værukæru spjallinu og samverunni. Undir svona kringum- stæðum gæti ég vel hugsað mér að hitta Kristínu aftur, hitta fyrir íhug- ult augnaráð hennar og hefja talið. Merk kona er fallin frá og móðir vinkonu minnar. Ég sendi mínar inni- legustu samúðarkveðjur til Guð- mundar, Óiafar, Ellu og Sirrýjar og allra annarra aðstandenda. Guð blessi minningu Kristínar Ól- afsdóttur. Hulda Arnljótsdóttir. Það er með söknuði sem ég kveð hana ömmu mína og þakka henni fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Þegar ég hugsa til þín, amma, renna margar góðar minningar gegnum hugann. Þegar ég fékk að fara í fyrsta skipti ein í strætó þá var það til ömmu og afa í Hlíðunum. Ég fór heilan hring með vagninum áður en ég þorði að fara út. En þetta átti eftir að lagast fljótt, því ferðir mínar til ömmu og afa urðu tíðar. Ég hafði sérstaklega gaman af þvf að hlusta á ömmu, enda var hún fróð um marga hluti. Ég bað hana oft um að segja mér frá tímanum þegar hún var ung. Hún hafði einstaka hæfileika til að gæða minninguna lífí og maður fékk góða tilfinningu fyrir tíðarandanum. Hún var sérlega fróð um Reykjavík og sögu hennar enda þar fædd og uppal- in, og því sannur Reykvíkingur eins og hún sjálf komst að orði. Hún sagði mér oft frá kvöldunum með afa á Hótel Borg og leikhúsferðunum sem hún unni svo mjög. Oftast fylgdi sögunni hvaða lög voru spiluð og hvemig hún var klædd, en hún var kona smekkleg. Amma var lagin í höndunum, hún saumaði út, bróder- aði, og smyrnaði en margt af því sem hún gerði er hreinasta listaverk. Ég minnist svo margra hluta á þessari kveðjustund. Allir litlu hlut- imir eins og mjólkurglasið og köku- bitinn sem amma bauð mér alltaf þegar ég kom í heimsókn. Setningar sem hún margsagði eins og: „Þú verður að standa þig í skólanum." Spennan og gleðin sem fylgdi því þegar amma gaf mér pening til að hlaupa út í bókabúðina á horninu og kaupa mér Andrésblað. Skrýtið hvernig svo venjulegir hlutir verða að ógleymanlegum og dýrmætum minningum. Alveg frá því ég man eftir mér hefur amma átt við veikindi að stríða. Stundum var hún á fótum og gerði alla skapaða hiuti en stundum lá hún lengi fyrir. Hún lét okkur krakkana ætíð lítið fínna fyrir sínum veikind- um. Mér hefur alla tíð liðið sérstak- lega vel í húsinu hjá ömmu og afa enda mikið sótt þangað bæði sem barn og fullorðin. Fyrir tveimur árum flutti ég svo í kjallarann til þeirra. Þá var ég barnshafandi og mikið heima við. Ég fór á hveijum degi upp til ömmu og lá á dívaninum við hliðina á rúminu hennar. Þar áttum við yndislegar stundir saman. Þá komst ég að þvi hversu trúuð amma var og þá talaði hún stundum um Óla sinn, drenginn sem hún missti af slysförum ellefu ára gamian. Ég skynjaði svo sterkt að það sár sem hún hafði orðið fyrir hafði aldrei gróið. Mér finnst við hæfí að enda þessa minningargrein á ljóðinu sem Óli söng svo oft fyrir mömmu sína. Ljóðið sem þau syngja saman núna. Ástarfaðir himinhæða, heyr þú bama þinna kvak, enn í dag og alla daga í þinn náðar faðm mig tak. Anda þinn lát æ mér stjóma, auðsveipan gjör huga minn, og á þinnar elsku vegum inn mig leið í himin þinn. (Stgr. Thorst.) Hanna Ingibjörg. + Ástkær mófiir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTHILDUR FORBERG, Nönnugötu 16, Reykjavík, lést laugardaginn 15. febrúar síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkirtil allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vináttu. Börn, barnabörn, tengdabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA SÓLBJARTSDÓTTIR (Lóa), lést á heimili sínu, Barmahlíð 4, 26. febrúar. Fyrir hönd aðstandenda. Guðrún M. Sigurbjörnsdóttir, Jón Guðmundsson, Hulda Sigurbjörnsdóttir, Orwell Utley, Margrét Sveinbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGVELDURLÁRA KRISTJÁNSDÓTTIR, sem lést 23. febrúar sl., verður jarð- sungin frá Stykkishólmskirkju laugar- daginn 1. mars nk. kl. 14.00. Erla Guðný Sigurðardóttir, Þórólfur Danfelsson, Gyða Sigurðardóttir, Jóhannes Þórðarson, Jóhanna Kristin Sigurðardóttir, Sigurberg Árnason, Gerður Ruth Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, MAGNEA ÁRNADÓTTIR, Kirkjuvegi 11, Keflavik, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 1. mars kl. 14.00. Svava Árnadóttir, Halldóra Árnadóttir, Guðrún Árnadóttir, Páll Árnason, Dóróthea Friðriksdóttir, Þuríður Halldórsdóttir og systkinabörn. t Öllum þeim fjölmörgu, sem heiðruðu minningu móður okkar, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR MAGNÚSDÓTTUR, Borgareyrum, Vestur-Eyjafjöllum, við minningarathöfn í Langholtskirkju og við útför hennar frá Stóra-Dalskirkju 22. febrúar sl., þökkum við af alhug. Einnig viljum við þakka hlýjar kveðjur og samúð okkur sýnda. Hrefna Markúsdóttir, Eygló Markúsdóttir, Erla Markúsdóttir, Ester Markúsdóttir, Erna Markúsdóttir, Grfmur Bjarni Markússon, Þorsteinn Ólafur Markússon, Sveinbjörn Ingimundarson, Haraldur Hannesson, Árni Ólafsson, Trausti Árnason, Sofffa Einarsdóttir, Þóra Gissurardóttir, ömmu- og langömmubörn. t Ástkær bróðir okkar og mágur, HERMANN HERMANNSSON, Garði, Hellissandi, sem lést á Sjúkrahúsi Stykkishólms laugardaginn 22. febrúar, verður jarð- sunginn frá Ingjaldshólskirkju laugar- daginn 1. mars kl. 14.00. Ferð verður frá BSÍ að morgni sama dags kl. 8.00. Veronika Hermannsdóttir, Arnbjörg Hermannsdóttir, Kristbjörg Hermannsdóttir, Guðmundur Bæringsson, Kristín Hermannsdóttir, Sæmundur Bæringsson, Helga Hermannsdóttir, Sævar Friðþjófsson og fjölskyldur þeirra. . t Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og bróður, dr. BJÖRNS MAGNÚSSONAR fyrrv. prófessors, Bergstaðastræti 56. 9 Dóróthea Björnsdóttir, Jón K. Björnsson, Ingi R.B. Björnsson, Jóhann E. Björnsson, Björn Björnsson, Ingibjörg Björnsdóttir, Oddur B. Björnsson, Valgerður Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Birgir Ólafsson, Margrét Dannheim, Jóna A. Sæmundsdóttir, Inger Bjarkan Ragnarsdóttir, Svanhildur Sigurðardóttir, Ólafur H. Óskarsson, Ásta Magnúsdóttir, Ragnheiður I. Magnúsdóttir,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.