Morgunblaðið - 28.02.1997, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 28.02.1997, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1997 43 MINNINGAR GEIR FRIÐBERGSSON + Geir Friðbergs- son fæddist á Hellissandi 2. janúar 1932. Hann lést á Landspitalanum 19. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Guðmunds- dóttir, f. 23.11. 1906, d. 15.8.1984, og Frið- berg Kristjánsson, sjómaður í Reykja- vík, f. 1.2. 1905, d. 10.9. 1989. Geir var eitt af fjórum börn- um þeirra. Systkini hans eru: Kristján, f. 5.6. 1930, Edda, f. 23.3. 1941, og Guðni Gils, f. 1.7. 1945. Geir giftist Hólmfríði G. Jóns- dóttur, f. 29.4 1936, hjúkrunar- fræðingi. Þeirra börn eru: Ossur, f. 22.11. 1961, kvæntur Vilborgu Jónsdóttur. Börn þeirra eru Saga og Freyþór. 2) Bergur, f. 7.8. 1970. Sambýliskona hans er Björk Guðjónsdóttir. Útför Geirs fer fram frá Digra- neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Að kveðja bróður, vin og félaga, sem ég talaði við um allt og ekkert eins og okkar venja var. Hugsun um skilnað eða dauða kom ekki inn í samræðurnar. Þrem dögum seinna er hann allur. Hvernig getur slíkt skeð án þess að ég staldri við og minningarnar hrannist upp. Að sjálf- sögðu verða margar þessar minningar mín eign og ekki öðrum ætlaðar. Við vorum aldir upp í Vesturbænum á svokölluðum kreppuárum. Mér skilst að fátækt hafi verið mikil, en kom ekki eins mikið að sök, því flestir bjuggu við sömu kjör, þetta var bara sjálfsagður hlutur. Þó settu þessi ár sinn svip á skoð- anir og viðhorf til lífsins. Geir var ekki gefinn fyrir að trana sér eða sínum skoðunum fram. Hann talaði hreint og beint, gerði öllum ljóst hvar hann stóð, en karpi eða rifrildi tók hann sjaldan þátt í. Það lýsir Geir vel að þeir vinir, sem hann eignaðist í æsku eða á unglingsárum voru vin- ir hans fram á síðustu stund. Ekki þekkti ég nokkum mann, sem ekki vildi greiða götu hans, hvort sem var fyrir hann sjálfan eða hann var að reyna að greiða götu annarra. Sam- starfsmenn og aðrir, sem umgengust hann, lýstu honum sem góð- um, áreiðanlegum og samviskusömum. Baktal eða illt umtal var ekki í hans tali. Eitt átti ég þó oft erfitt með að skilja: Hvers vegna fylgdi hann ekki tíðarandanum og reyndi að trana sér fram. Gáfur hans og alhliða þekking voru öllum kunnar, sem honum kynntust náið. En svona var hann. Eftir að hann dó, hafa nokkrir kunn- ingjar hans hringt í mig og hef ég tekið eftir því að allir nota svipuð orð um hann. Mikið var þetta góður mað- ur. Bamgóður var hann og átti auð- velt með að vera vinur þeirra og und- anfarin árin vom stundum stórhátíðir hjá honum. Það var þegar litla sonar- dóttir hans dvaldi hjá afa. Þá var lit- að, málað, púslað, sagðar sögur og farið út að borða. Þessar stundir vom honum mjög dýrmætar. Geir stundaði nám við Statens Sindsygehospital í Nykobing í Dan- mörku árin 1955 og ’56. Lauk hann námi við Hjúkrunarskóla fslands 1959 og stundaði framhaldsnám við röntg- endeild Landspítalans 1965-1966. Hann var deildarstjóri við Kleppsspít- alann frá 1959 til 1963, hjúkrunarfor- stjóri við Sjúkrahús Hvammstanga 1963 til 1965, hjúkrunarfræðingur við röntgendeild Borgarspítalans 1966-1969, deildarstjóri á sömu deild frá 1969 til 1979 og hjúkranarfræð- ingur á geðdeild Amarholts 1979- 1980. Hann varð deildarstjóri við eðl- is- og tæknideild Landspítalans við undirbúning sjúklinga fyrir geisla- meðferðir frá 1. apríl 1980. Geir var alla tíð mikill félags- hyggjumaður og sat í heilbrigðisnefnd Kópavogs tvö kjörtímabil sem ritari. Við þessar aðstæður má ekki ætl- ast til að ég komi orðum að því, sem ég vil í raun og vera segja um minn góða bróður. Læt ég því fylgja frá- sögn, sem ég heyrði nýlega frá móð- ur sem ég þekki ekki og man ekki einu sinni hvað heitir: „Dóttir mín fór fýrir nokkram áram í geislameðferð við krabbameini. Hún var inniliggj- andi á Landspítalanum þar til yfír lauk. Á hveijum degi eftir vinnutíma kom Geir að rúminu hennar og ræddi við hana.“ Móðir litlu stúlkutinar not- aði sama orð og dóttir hennar kallaði Geir, þegar hún sagði mömmu sinni frá honum: „Geislamaðurinn kom líka í dag.“ Þessi saga segir mér meir um bróður minn en mörg önnur falleg orð. Ættingjum hans vottum við Unnur innilegustu samúð og biðjum góðan Guð að styrkja þau og blessa. Kristján Friðbergsson. Með þessum orðum viljum við kveðja góðan starfsfélaga, Geir Frið- bergsson hjúkranardeildarstjóra, og þakka þátt hans í meðferð, uppbygg- ingu og þróun geislameðferðar krabbameinssjúklinga á Landspítal- anum. Þegar Geir hóf störf við undirbún- ing geislameðferðar flutti hann með sér mikla og dýrmæta reynslu sem hann öðlaðist við fyrri störf sín sem hjúkranarfræðingur m.a. á röntgen- og geðdeildum. Geir kom til starfa við geislameðferðina á árinu 1980 rétt áður en veigamikill hátæknibún- aður var keyptur til krabbameins- lækningadeildar. Kom reynsla hans sér vel þegar hlúa þurfti að krabba- meinssjúklingum í flóknu umhverfí tölvuvæddrar myndgerðar og há- tæknilegrar nákvæmni. Hógvær og samviskusamur gekk hann til dag- legra starfa og reynsla hans og skiln- ingur á mannlegum þáttum starfsins áttu sinn þátt í að móta þróun á and- legri aðhlynningu, hjúkran og tækni- legri nákvæmni sem nauðsynleg er í slíku starfí, til þess að góður árangur náist. Fyrir nokkram áram fór Geir á eftirlaun. Gat hann þá betur en áður sinnt áhugamáli sínu er sneri að ættfræði og þá ekki síst að ættum Snæfellinga. Þrátt fyrir starfslok sín kom Geir oft í heimsókn á deildina. Vora þá rifjaðar upp góðar minningar um ánægjulegar samverustundir bæði á vinnustað svo og á samkomum og ferðum starfsmanna. Frá þessum samverastundum eigum við sam- starfsfólk Geirs ljúfar minningar um glaðværan en hógværan mann sem kunni að gleðjast í vinahópi á góðri stundu. Var hann þar sannkallaður gleðigjafí. Fyrir þessar samvera- stundir eram við þakklát og þá ekki síður fyrir þátt Geirs í uppbyggingu þeirrar aðstöðu sem deildin og krabbameinssjúklingar búa við í dag. Hólmfríði, sonum þeirra og öðram aðstandendum sendum við hugheilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning góðs drengs. Samstarfsfólk á krabbameins- og geislaeðlisfræðideild Landspítalans. ioKamaðurinn Þér er boðið... 20% stgr. afsláttur* af öllum nýjum vetrarfatnaði til 10. mars í tilefni afmælisins. Auk þess er enn tækifæri að gera stórgóð kaup á LAGERSÖLUNNI sem lýkur 10. mars. VOLTAMAÐIMINN LAUGAVEGI 23 • SÍMI 551 5599 * 15% afsláttur með kreditkorti. Póstsendum samdægurs. 0 N t IFALDAR 2Pi astfötur, f: vatnsl hevbrt korkfeppar sykurflotvog opnunaRtímar: mán.-fös.frá kl. 09.00-19.00 lau. frá kllO.00-14.00 NÓATÚNI 17 105 RE HEIMIR /GRAFÍSK HÖNNUN FlT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.