Morgunblaðið - 08.03.1997, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 08.03.1997, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ___________________FRÉTTIR________ Sæberg og Þormóður rammí sameínast á næstu vikum STJÓRNIR Sæbergs hf. í Ólafsfirði og Þor- móðs ramma hf. á Siglufirði hafa gert með sér samkomulag um samruna félaganna og er stefnt að því að samruninn komi til fram- kvæmda á næstu vikum. í maímánuði á árinu 1996 keypti Þormóður rammi hf. 20% hlut í Sæbergi hf. og gerðu félögin þá með sér sam- starfssamning sem unnið hefur verið eftir síð- an. Tilgangur með samruna félaganna er að auka hagkvæmni með bættri nýtingu eigna og veiðiheimilda, draga úr kostnaði og gera hið sameinaða félag betur búið til að takast á við ný sóknarfæri. Stefnt verður að stækkun félagsins, eflingu skipastólsins jafnframt því sem unnið verður að frekari úrvinnslu afla í landi eftir því sem möguleikar gefast til og hagkvæmt þykir. Starfsemi félaganna mun fara fram bæði á Siglufirði og Olafsfirði og horfa menn mjög til bættra samgangna milli staðanna og aukinnar samvinnu sveitarfélag- anna. Sem fyrsta skref í eflingu skipastólsins hefur verið gerður samningur um kaup á frysti- skipinu Engey RE-1 af Granda hf. Veiðiheimildir félaganna beggja nema nú um 17 þúsund þorskígildistonnum að meðtöld- um heimildum utan lögsögu. Sæberg hf. á fjögur skip, tvo frystitogara og tvo ísfisktogara. Þrír togarar félagsins eru nú á bolfiskveiðum og einn á rækjuveiðum. Hjá félaginu starfa 100 manns. Heildarvelta félagsins nam 1.350 millj. kr. á árinu 1996. Þormóður rammi hf. á fjögur skip, tvö rækju- frystiskip og tvö ísrækjuskip. Félagið rekur bolfisk- og rækjuvinnslu á Siglufirði. Starfs- menn félagsins eru 190. Heildarvelta félagsins nam 2.272 millj. kr. á árinu 1996. Hlutabréf í Þormóði ramma hf. eru skráð á hlutabréfa- markaði. Framkvæmdastjórar félagsins verða tveir, Gunnar Sigvaldason í Ólafsfírði og Ólafur Marteinsson á Siglufirði. Tryggingamál skoðuð í samráði við dómsmálaráðherra „Ekki for- svaranlegt að leggja TF-LIF“ HAFSTEINN Hafsteinsson for- stjóri Landhelgisgæslunnar segir að tryggingamál TF-LÍF verði skoðuð í samráði við dómsmálaráð- herra, í samhengi við aðrar fyrir- liggjandi spamaðartillögur. Dómsmálaráðherra sagði í Morgunblaðinu í gær að þyrlan verði alltaf til taks og hún verði ekki tekin út af tryggingum. Haf- steinn segir að vélin þurfi að vera ákveðið marga mánuði á ári í við- haldi og þótt menn vilji hafa þann tíma eins skamman og unnt er sé þó ljóst að vélin geti vart verið til taks öllum stundum. Engu breytt í rekstri „Ef við getum notað TF-SIF gerum við það vegna lægri tilkostn- aðar því samfara, en komið getur fyrir að við verðum að nota TF-LÍF ef minni þyrlan er í yfirhalningu. Við erum því ekki að breyta neinu í rekstrarfýrirkomulagi þótt við hvílum TF-LÍF eftir megni,“ segir Hafsteinn. „Sjálfum finnst mér ekki forsvaranlegt að TF-LÍF verði lagt, en hins vegar notum við TF-SIF þegar svo ber undir.“ Um 20 manns skiptast á í áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, TF- LÍF, þar af þrír flugstjórar, þrír aðstoðarflugmenn, þrír sigmenn og fjórir á spili, auk þess sem fimm til sjö læknar skiptast á í björg- unarflugi. Reynt er að fljúga tvisv- ar í viku og tengja æfingar við brottför varðskipa úr höfn, auk þess sem fastur liður í þjálfun er í tengslum við Slysavarnarskóla sjómanna, þar sem m.a. er æft að síga eftir mönnum. Einnig eru björgunaraðgerðir á fjöllum, leitar- aðgerðir o.fl. innan æfingaáætlun- ar þyrlunnar. Samdráttur áhyggjuefni Páll Halldórsson flugrekstrar- stjóri Landhelgisgæslunnar segir að verði dregið úr flugi frá því sem nú er sé það áhyggjuefni. „Verði vélinni lagt er henni vita- skuld ekki flogið á meðan og þá þarf að ráðast í miklu víðtækara æfingaferli til að koma mönnum aftur í góða þjálfun. Ef við höfum ekki þyrluna takmarkast okkar geta við TF-SIF, sem minnkar að sjálfsögðu öryggi. Það skiptir öllu að vera viðbúinn, eins og sannaðist við strand Vikartinds, og að menn þurfi ekki rifja upp fyrir sér hversu langt er síðan þeir voru að síga þegar kallið kemur,“ segir Páll. Morgunblaðið/Rax Árekstrahrina á Kringlumýrarbraut ALLS skemmdust sautján bifreiðir í fjórum árekstrum á Kringlumýrarbraut í gær og þar af þijár á sjötta tímanum í gærkvöldi, með ör- stuttu millibili. Svo virðist sem hálka og slæm færð sé aðalorsök árekstranna, að sögn lög- reglu. Einn maður var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl eftir árekstrahrinuna um klukkan 17.30 í gær, en annar hugðist leita þangað af sjálfsdáðum. Talsvert eignaljón varð af þessum sökum, en stórvægilegar skemmdir urðu ekki á bifreiðum eða alvarleg meiðsli á ökumönnum. Alls voru 25 árekstrar færðir til bókar hjá lög- reglunni í Reykjavík frá því í gærmorgun og fram til klukkan 20 í gærkvöldi. Rafiðnaðarmenn hjáRARIK 95,8% sam- þykktu verkfall 16. mars RAFIÐNAÐARMENN sem starfa hjá Rafmagnsveitum ríkisins hafa samþykkt boðun ótímabundins verkfalls sem hefjist á miðnætti 16. mars. A kjörskrá voru 138. Alls kusu 120 eða 86,9%. Já sögðu 115 eða 95,8%, nei sögðu 4 eða 3,3% og einn skilaði auðu. Rafiðnaðarmenn hafa slitið viðræðum við vinnuveitendur og hafna m.a. tillögum í til- boði vinnuveitenda um að samningar gildi frá undir- skrift. Rafiðnaðarmenn hafna einnig tillögu um sveigjanleg- an vinnutíma og vilja að yfir- vinnuálag verði óbreytt enda séu engir bónusar færðir inn í föst laun rafiðnaðarmanna. Hass og amfetamín falið í gjótu TVEIR menn voru látnir laus- ir úr varðhaldi í gær, en þeir hafa setið í gæsluvarðhaldi síðan 14. febrúar, daginn eft- ir að par á leið úr landi var handtekið í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Skömmu áður hafði fíkni- efnadeild lögreglunnar í Reykjavík fundið rúm tvö kíló af hassi og um 350 grömm af amfetamíni sem var falið í gjótu á víðavangi innan höfuðborgarsvæðisins. Grunur um vafasöm viðskipti Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er rannsókn málsins komin á það stig að ekki þykir ástæða til að halda mönnunum í varðhaldi, en rannsókn er þó ekki lokið og er meðal annars verið að skoða fjárhagslega hlið máls- ins. Fólkið sem var handtekið í flugstöð Leifs Eiríkssonar var á leið til útlanda eins og áður sagði, að eigin sögn í viðskiptaferð. Að sögn lög- reglu lék grunur á að þau viðskipti snerust um fíkni- efni, en ekki þótti ástæða til að hleypa fólkinu úr landi eftir að áðurnefnd eiturlyf fundust og böndin beindust að því. Innbrot í 5 bíla í gær BROTIST var inn í bifreið við Vallarás í gærmorgun og sáu þjófarnir ástæðu til að bijóta tvær rúður í henni til að nálg- ast fistölvu og farsíma sem þeir höfðu á brott með sér. Einnig var brotist inn í bif- reið við Laxakvísl og geisla- spilara og geisladiskum stolið og einnig tvo bíla við bílaum- boðið Brimborg i Faxafeni í gærmorgun, þar sem tveimur útvarpstækjum var stolið. Um hádegi í gær var síðan brotist inn í bifreið við Sæ- mundargötu og geislaspilara og geisladiskum stolið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.