Morgunblaðið - 08.03.1997, Side 4
4 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
______________________________FRETTIR_____________________________
Landssambönd Alþýðusambandsins hafa svarað gagntilboði vinnuveitenda
Viðræður yfir
lielgina en mikill
ágreiningur
••
LL landssambönd innan ASÍ og
verkalýðsfélögin Dagsbrún og
Framsókn hafa svarað gagntillögum
vinnuveitenda og gera fjölmargar
athugasemdir. Mikill ágreiningur er
á milli launþegasambandanna og
vinnuveitenda.
Verkamannasambandið svaraði
gagntilboði vinnuveitenda í gær með
því að leggja fram ítarlegar tillögur
að aðalkjarasamningi sem eru
byggðar á kröfugerð sambandsins
frá því í desember. Þrátt fyrir mikla
óánægju innan launþegasamtakanna
með tillögur vinnuveitenda og að
mikið beri í milli hefur Rafíðnaðar-
sambandið eitt lýst yfir að það hafí
slitið viðræðum við vinnuveitendur.
Rafiðnaðarmenn hittu hins vegar
fulltrúa Reykjavíkurborgar og ríkis-
ins í gær og verður viðræðum þeirra
haldið áfram í dag. Ákveðnir hafa
verið sáttafundir með fulltrúum ann-
arra landssambanda og vinnuveit-
enda hjá sáttasemjara yfír helgina
þar sem reynt verður að finna fleti
sem gefí tilefni til að halda viðræðum
áfram. í dag verður m.a. haldinn
fundur með fulltrúum Dagsbrúnar
og Framsóknar þar sem látið verður
reyna á hvort hægt sé að ná niður-
stöðu í viðræðum um sérsamninga
félaganna.
Þáttaskil í samningamálunum
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari
segir að staða kjaraviðræðnanna sé
óráðin en ákveðin þáttaskil hafí nú
orðið. Fyrstu verkföll eigi að hefjast
upp úr helginni og nú verði látið
reyna á möguleika á samkomulagi
áður en þau skelli á.
„Það er mjög mikill ágreiningur
um samningstíma, breytingar á yf-
irvinnuálagi, svokallaðan fleytitíma
sem felur í sér að starfsmenn vinni
dagvinnu á mismunandi tímum yfír
daginn, einstaklingsbundið, og svo
munar mjög miklu á launaliðum,"
segir Bjöm Grétar Sveinsson, for-
maður Verkamannasambandsins.
VMSÍ stendur m.a. fast á kröfu
um tveggja ára samningstíma og
krefst um helmingi meiri kauphækk-
ana en vinnuveitendur bjóða. „Við
ætlum að taka peninga út úr þjóðfé-
lagsstærðum í efnahagslífínu með
aðferðum sem hleypa ekki upp verð-
bólgubáli. Við erum trúir þessari
stefnu og höfum farið nútímalegri
leiðir en oft áður. Við erum ekki á
neinum prúttmarkaði," segir Bjöm
VMSI-formenn
halda heim og
skipuleggja verk-
fallskosningar
Grétar og bætir við að Verkamanna-
sambandsmenn séu trúir þeirri
stefnu sem mótuð var á síðasta ASÍ-
þingi að fara fram á krónutöluhækk-
anir.
Ákveðið hefur verið að hópur helstu
forystumanna VMSÍ hitti vinnuveit-
endur á ný á sunnudag. Einnig verð-
ur fundur með Landsambandi versl-
unarfólks og Iðju á sunnudag. „Það
er verulegur ágreiningur um ákveðna
þætti í tilboðinu. Við erum út af fyr-
ir sig tilbúnir að ræða málin áfram.
Við leysum ekki hnútinn nema við
ræðumst við,“ segir Guðmundur Þ.
Jónsson, formaður Iðju.
Síðdegis í gær fóru fjölmargir full-
trúar í samninganefndum VMSÍ utan
af landi að tínast til síns heima.
Formenn einstakra verkalýðsfélaga
sögðu í gær að nú tækju þeir til við
að skipuleggja atkvæðagreiðslur um
boðun verkfalls um næstu mánaða-
mót en yrðu þó tii taks ef einhver
hreyfing yrði í Karphúsinu.
Forysta Verzlunarmannafélags
Reykjavikur fór í gær yfír tillögur
vinnuveitenda og i dag verður hald-
inn fundur með starfsgreinafulltrú-
um áður en haldinn verður fundur
síðdegis með vinnuveitendum. VR
sér kosti og ókosti við tilboð vinnu-
veitenda. Félagið á einnig í viðræðum
við verslanimar 10-11 um gerð kja-
rasamnings og er undirritunar að
vænta á hverri stundu, skv. upplýs-
ingum blaðsins.
VSÍ tilbúið að ræða flata
prósentuhækkun
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ segir að áfram
verði látið reyna á hvort tilraunin til
að mæta upprunalegri kröfugerð
verkalýðsfélaganna um að færa tax-
takaup nær greiddu kaupi geti skilað
árangri.
„Við höfum þegar undirgengist
að minnsta kosti 5% aukningu á
launakostnaði með okkar tilboði. Við
emm reiðubúnir að ræða aðrar út-
færslur á því, þess vegna um flata
prósentuhækkun, þar sem ekki yrðu
gerðar neinar aðrar breytingar, líkt
og samningar sumra þessara félaga,
til dæmis við Stöð 2, hafa falið í
sér. Af okkar hálfu er engin krafa
uppi um það að hækka taxtakaup
um tugi prósenta og gera aðrar þær
breytingar sem því fylgja. Við erum
alveg eins tilbúnir að semja á einföld-
um nótum með svipuðum launa-
kostnaðarauka," segir hann.
ASV kemur til sáttafundar
Síðdegis á sunnudag koma fulltrú-
ar Alþýðusambands Vestfjarða og
viðsemjendur aðildarfélaga þess til
fyrsta sáttafundar í húsnæði rík-
issáttasemjara. Einnig verður hald-
inn sáttafundur í Vestmannaeyjum
á milli verkalýðsfélagsins og fulltrúa
fískimjölsverksmiðja en boðað yfir-
vinnubann í bræðslunum á að heflast
síðdegis á mánudag.
260 manns
á 115 bíl-
um á há-
lendinu
FERÐ félaga úr Ferðaklúbbn-
um 4x4 yflr hálendið gekk að
óskum í gærkvöldi þrátt fyrir
éljaveður og lélegt skyggni og
var búist við að hópurinn yrði
kominn í skálann í Nýjadal um
miðnætti. í ferðinni eru 100
þátttökubílar og 15 vinnubílar
með samtals um 260 manns, en
lagt var af stað frá Reykjavík
í gærmorgun og er ferðinni
heitið yfír Sprengisand. í dag
slást svo í hópinn fimm bílar frá
Akureyri. Að sögn Odds Einars-
sonar, formanns 4x4 klúbbsins,
hafði ferðin í gær gengið áfalla-
laust nema hvað einn bíllinn
valt í Þrengslum. Enginn slasað-
ist og litlar skemmdir urðu á
bílnum sem komið var á réttan
kjöl og hélt hann ferðinni
áfram. Veðurspá fyrir nóttina
var slæm og sagði Oddur að
leiðangursmenn myndu bíða af
sér veðrið í Nýjadal fram yfir
hádegi í dag en halda síðan í
skála 4x4 klúbbsins í Réttarkoti
og þaðan niður í Bárðardal.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sagðist hann gera ráð fyrir að
fyrstu bílamir yrðu svo komnir
til Akureyrar um kl. 21 í kvöld.
Gæsluvarð-
hald fram-
lengt
LÖGREGLAN í Reykjavík fékk því
í gær framgengt að lengt væri
gæsluvarðhald yfír íslenskum
manni sem handtekinn var um
miðjan desember í tengslum við
rannsókn á smygli og dreifingu á
hassi, auk amfetamíns og E-pilla.
Gæsluvarðhald mannsins er
framlengt til 18. apríl næstkom-
andi, eða sama tíma og hollenskt
par sem handtekið var 11. desem-
ber.
Fólkið var með tæp tíu kfló af
hassi í fórum sínum við komuna
til landsins og í kjölfarið fundust
við húsleitir 10,5 kg af hassi, 500
E-pilIur og 260 grömm af am-
fetamíni.
Losna líklega ekki fyrr
en dómur gengur
„Málið er víðtækt og brotið svo
stórt að líklegt er að þetta fólk
verði ekki látið laust fyrr en dómur
gengur," segir Einar Karl Krist-
jánsson, fulltrúi í fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Reylqavík.
Opel Astra Cœfy'emey
100.000.- kr. afsláttur
Halim A1 dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar
„Glöð yfir árangrinum44
ÍSAK Halim Al var dæmdur til
þriggja mánaða og tuttugu og sex
daga fangelsisvistar í sakadómi í
Istanbúl í gærmorgun vegna ítrek-
aðra brota sinna á umgengnisrétti
Sophiu Hansen við dætur þeirra.
Hann hefur viku frest til að áfrýja
dómnum til Hæstaréttar.
„Ég get ekki annað en verið glöð
yfír þeim árangri að sjá tyrkneska
réttarkerfið loksins virka og sýna
fram á að þar er líka hægt að fá
réttláta dómsniðurstöðu," sagði Sop-
hia í samtali við Morgunblaðið í gær
að réttarhöldum loknum. „Það er
auðvitað aldrei skemmtilegt fyrir
böm að sjá á eftir foreldrum sínum
bak við fangelsisrimla en þetta hefur
hann kallað yfír sig.“
Ólafur Egilsson sendiherra segir
að vöm lögmanns Halims Al hafí
verið byggð á þvi að ekkert væri því
til fyrirstöðu af hans hálfu að mæðg-
umar hittust, en telpumar vildu ekki
hitta móður sína.
„Þessu trúa menn ekki, vitandi það
að hann hefur beitt þær miklum
þrýstingi öll þessi ár og staðið mjög
eindregið í vegi fyrir því að mæðg-
umar hittust eins og dómsúrskurðir
hafa kveðið á um.
Lögmaðurinn vísaði m.a. til bama-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna og
taldi að það væri ekki hægt að þvinga
telpumar til að hitta móður sína en
dómarinn tók ekki mark á því, taldi
brot Halims augljóst og hann ekki
eiga sér aðrar málsbætur en þær við
dómsuppkvaðninguna að hann hefði
komið þokkalega fram í réttinum,"
sagði Ólafur.
Eins og fyrr sagði hefur Halim
Al viku frest til að áfrýja dómnum
til Hæstaréttar en Sophia kveðst
frekar hafa trú á því að Hæstiréttur
staðfesti dómsniðurstöðuna. Það
gæti tekið allt að þijá til fimm mán-
uði fyrir Hæstarétt að kveða upp
úrskurð sinn en Ólafur telur þó ekki
ólíklegt að reynt verði að flýta með-
ferð málsins.
Líkur em á að dómarar áfrýjunar-
réttarins í Ankara leggi fljótlega
fram endurskoðað álit sitt í forræðis-
máli þeirra Sophiu Hansen og Halims
Al. Það hefur tafíst nokkuð sökum
þess að sakadómarinn í Istanbúl ósk-
aði eftir að fá til sín öll gögn forræð-
ismálsins.