Morgunblaðið - 08.03.1997, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Biskupskjör í sumar
Þrír prestar hafa
gefið kost á sér
Verkfall í MS hefst á miðnætti annað kvöld
Búist við
mjólkurskorti
á fimmtudag
Starfsmenn neituðu afgreiðslu til Hagkaups
ÞRÍR prestar hafa lýst því yfir að
þeir hyggist gefa kost á sér til bisk-
upskjörs á sumri komanda, en þeir
eru auk séra Gunnars Kristjánsson-
ar sóknarprests á Reynivöllum í
Kjós, séra Auður Eir Vilhjálmsdótt-
ir sóknarprestur í Kirlrjuhvols-
prestakalli og Sigurður Sigurðar-
son vígslubiskup í Skálholti. Séra
Karl Sigurbjömsson sóknarprestur
í Hallgrímsprestakalli sem gjaman
hefur verið orðaður við biskups-
embættið segist vera að hugleiða
hvort hann eigi að bjóða sig fram,
en vill að öðm leyti ekki tjá sig
um málið að svo stöddu.
Auður Eir segir að margir hafi
hvatt hana til að bjóða sig fram,
bæði fólk á götum úti og fólk sem
hafi hringt í hana. „Þá tel ég mig
eiga erindi í þetta starf vegna þess
að ég hef lengi haft ýmsar hug-
myndir sem ég vildi að yrðu fram-
kvæmdar í kirkjunni," segir hún.
„Til dæmis vil ég að prestar vinni
í litlum hópum að því að endur-
skipuleggja starf sitt og fái sam-
hliða því bæði sálgæslu og endur-
menntun."
Sigurður Sigurðarson segist
hafa tekið ákvörðun um að bjóða
sig fram í samráði við nokkra
presta. „Ég hef orðið var við mik-
inn stuðning og traust ákveðinna
manna sem telja að ég geti sinnt
ýmsu því sem biskup á að sinna,“
segir hann og leggur áherslu á að
eitt mikilvægasta verkefni næsta
biskups verði að stuðla að einingu
kirkjunnar.
Söngfólk
fram-
tíðarinnar
ÞAÐ lá vel á unga söngfókinu
í Rimaskóla, þegar ljósmyndara
Morgunblaðsins bar að garði í
gær. Krakkarnir syngja í Litla
kórnum, en í kórnum eru börn
úr öðrum og þriðja bekk Rima-
skóla. Börnin í Rimaskóla hafa
undanfarna daga ekki ástundað
hefðbundið skólastarf, heldur
verið í sérverkefnum, undir
heitinu „Þemadagar“. Allir ár-
gangar hafa frá 5. til 7. marz
unnið að ýmsum verkefnum,
sem tengjast lífinu í Grafarvogi,
hvort sem um ræðir atvinnulíf,
listir eða bókmenntir. Dag-
skránni lauk svo með skemmtun
í gær. Hinn hefðbundni skóla-
dagur bíður svo krakkanna
handan helgarinnar.
„UNNIÐ verður við framleiðslu,
pökkun og afgreiðslu allan daginn
(laugardag). Það verður feykinóg
af mjólkurvörum á markaðinum vel
fram í næstu viku. Ég tel að það
verði ekki skortur á mjólkurvörum
fyrr en á fimmtudag eða föstudag
í næstu viku,“ segir Pétur Sigurðs-
son, yfirmaður framleiðslusviðs
Mjólkursamsölunnar í Reykjavík, en
vinnustöðvun Dagsþrúnarmanna hjá
MS og EMMESSÍS hefst á mið-
nætti annað kvöld.
Pétur segir að neytendur séu ekki
byijaðir að hamstra mjólk en hins
vegar hafi verslanir keypt mun
meira magn en venjulega og miklar
tafir hafi orðið á afgreiðslu mjólkur-
vara að undanförnu.
Fullyrða að mjólk hafi verið
flutt í Hagkaup frá Akureyri
Starfsmenn Dagsbrúnar sem ann-
ast mjólkurdreifingu hjá MS ákváðu
í gærmorgun að afgreiða ekki mjólk-
urvörur í verslanir Hagkaups, þar
sem þeir telja sig hafa fulla vitn-
eskju um að mjólk hafi verið flutt
frá Mjólkursamlagi KEA í gegnum
Hagkaup á Akureyri til verslana
Hagkaups í Reykjavík. Ólafur Ólafs-
son, aðaltrúnaðarmaður starfs-
manna, sagði að þarna væri um við-
vörun að ræða en afgreiðslubannið
hefði staðið „fram eftir degi“.
„Dagsbrún er með forgangsrétt til
vinnu við dreifingu á mjólk í Reykja-
vík. Ef Óskar í Hagkaup og Þórarinn
V. Þórarinsson telja að þeir geti far-
ið út í mjólkurdreifingu hér í bæn-
um, þá er það misskilningur,“ segir
hann.
30-40% meira magn
en venjulega
Pétur Sigurðsson segir rangt að
afgreiðslubann hafi verið sett á I
mjólkurdreifíngu til Hagkaups og I
starfsmenn hafi ekki boðað það |
formlega. Hann segir að verslanir 1
Hagkaups fái mjólk eins og aðrir :j
eftir því sem unnt sé. „Það er hins s
vegar seinkun á allri útkeyrslu til
verslana af allt öðrum ástæðum. Það
hefur verið hamstrað svo mikið á
undanförnum dögum. Fyrstu fjóra ..
daga vikunnar höfum við keyrt út J
30-40% umfram það sem venjulegt j
er eða um 150 þúsund lítra. Þetta i
mjólkurmagn er í verslununum en ij
það hefur gengið á þær birgðir sem
við erum með og okkur vantar því
mjólk, ekki aðeins fyrir vörur sem í
pakkað er á Bitruhálsinum, heldur
vantar einnig mjólk í ýmsar sérvörur I
svo sem jógúrt og skyr. Öll af- |
greiðsla er því á eftir áætlun,“ segir §
hann.
Talsmenn Hagkaups vildu ekki tjá |
sig um málið í gær.
Starfsmenn einhuga um að
skaði MS verði í lágmarki
Dagsbrúnarmenn í MS hafa óskað
eftir stuðningi starfsbræðra sinna í |
öðrum mjólkursamlögum úti á landi
vegna vinnustöðvunarinnar í næstu |
viku og segja _að erindi sínu hafi
verið vel tekið. Ólafur sagði að fylgst 1
verði vel með því að mjólk verði
ekki flutt til höfuðborgarinnar eftir
að vinnustöðvunin hefst. „Við ætlum
ekki að láta bijóta niður verkfallið“ ■
segir hann.
Ólafur gerði ráð fyrir að starfs- ;
menn ynnu í dag og hugsanlega á
sunnudag ef þess yrði óskað. Hann |
sagði að starfsfólkið væri einhuga !
um að lágmarka skaða fyrirtækisins
vegna verkfallsins. „Þarna er verið
að þrýsta á gerð samninga, sem
ekkert hafa gengið," segir hann.
Morgunblaðið/Kristinn
Iðnaðarráðherra um frekari viðræður við Elkem um Járnblendiverksmiðjuna
Eitthvað nýtt verð-
ur að koma frá El-
kem í umræðuna
FINNUR Ingólfsson iðnaðarráð-
herra segir að til þess að viðræður
um kaup Elkem í Noregi á ákveðn-
um eignarhlut íslenska ríkisins í
Jámblendiverksmiðjunni á Grund-
artanga geti hafist á nýjan leik verði
eitthvað nýtt að koma inn í umræð-
una af hálfu Elkem. Jón Sveinsson,
stjórnarformaður Járnblendifélags-
ins, segir að eins og staðan sé í dag
sé ekkert útlit fyrir að verksmiðjan
verði stækkuð, og ekki verði farið
fram á frekari framlenginu á fresti
Landvirkjunar af hálfu stjórnar fé-
lagsins.
í Morgunblaðinu í gær var haft
eftir Guðmundi Einarssyni, forstjóra
jámblendi- og kísilmálmsviðs El-
kem, að hann vonist til þess að
samningar um kaup Elkem á hluta
eignarhluts ríkisins í jámblendivek-
smiðjunni geti tekist þannig að Elk-
em eignist meirihluta í fyrirtækinu,
og með því geti tekist samningar
um stækkun verksmiðjunnar.
Finnur Ingólfsson segir að á þeim
fundi þegar slitnaði upp úr viðræð-
um fulltrúa ríkisins og Elkem hafi
hver og einn verið búinn að teygja
sig eins langt í átt til samkomulags
og menn treystu sér til á þeirri
stundu.
„Menn náðu ekki saman um hvert
verðmæti verksmiðjunnar er, en við
fengum óháðan aðila til að meta
verksmiðjuna fyrir okkur og verð-
mætamatið var á bilinu 2,1-2,8
milljarðar króna. Við höfum í sjálfu
sér verið tilbúnir til þess að fallast
á að fara eftir þessu verðmæta-
mati. Þrátt fyrir þetta tókst mönn-
um ekki að komast að samkomulagi
um hvert verðið væri, og um leið
stóð það út af borðinu við hvaða
kringumstæður Elkem gæti orðið
meirihlutaeigandi,“ sagði Finnur.
Hann sagði að til þess að viðræð-
urnar geti farið aftur af stað þyrfti
eitthvað nýtt að koma inn í umræð-
una, og engin launung á því að öll
nýmæli sem komið hefðu inn í um-
ræðumar fram að þessu hefðu kom-
ið frá Islendingum.
„Við höfum lagt höfuðáherslu á
það frá íslenskum hagsmunum að
þessi verksmiðja verði stækkuð til
þess að tryggja framtiðarstöðu
hennar, samkeppnisaðstæður á
markaðnum, auka útflutningsverð-
mætið og til þess að tryggja at-
vinnuöryggi starfsmanna og fjölga
störfum. Við horfum því á þetta
þjóðhagslega og metum verðið líka
út frá því. Það þarf því að koma
eitthvað nýtt inn í umræðuna til
þess að viðræður fari af stað og ég
er feginn því sem ég heyri nú á
Norðmönnunum að þeir hafi áhuga
á að koma með eitthvað nýtt inn í
umræðuna og þá komi það frá
þeim,“ sagði Finnur.
Verðmætamatið miðað við
þriðja ofninn
Varðandi þá gagnrýni Guðmund-
ar Einarssonar að ríkið vilji selja
hlut sinn á of háu verði, segir Finn-
ur að áðurnefnt verðmætamat hefði
verið miðað við að þriðji ofninn
væri kominn í gagnið, en ef hann
væri ekki tekinn með í reikninginn
væri matið mun lægra.
„Við höfum viljað halda okkur
við þetta verðmætamat sem við
höfum verið að fá frá þessum óháðu
aðilum sem þekkja mjög vel til á
markaðnum, en það hefur hins veg-
ar ekki verið svo með Norðmennina
að þeir hafi verið tilbúnir til þess,“
sagði hann.
Finnur segir að það komi alveg
til greina að Elkem geti eignast
meirihluta í Járnblendiverksmiðj-
unni og hann vilji ekki útiloka það.
Hins vegar fái hann ekki séð að
hægt sé að semja um málið í ein-
hveijum pörtum, þ.e. um verðið sér
og síðan um meirihlutann.
„Þetta er samhangandi og menn
verða að horfa á dæmið í heild sinni.
Þessi 55% skráða meirihlutaeign
okkar í fyrirtækinu er í sjálfu sér
mjög lítils virði ef minnihlutaréttind-
in eru svo sterk og tryggð að við
getum í raun og veru engu ráðið.
Það lýsir sér í samningaviðræðum
okkar síðustu daga að minnihluta-
réttindin eru mjög sterk og til þess
að taka ákvörðun um þriðja ofninn
þarf meirihluta 2/3 atkvæða og það
höfum við ekki nema með Sumi-
tomo, og til þess að taka lán í þriðja
ofninn þurfum við líka að hafa
Sumitomo með okkur. Þeir hafa
hins vegar marglýst því yfír að þeir
séu ekki tilbúnir til að gera þetta
nema að fá breytingu á markaðs-
samningi sínum, en til þess að fá
honum breytt þarf samþykki allra
aðilanna,“ sagði Finnur.
Engin áform um frekari
viðræður
Jón Sveinsson, stjórnarformaður
Járnblendifélagsins á Grundar-
tanga, segir engin áform uppi um
frekari viðræður við Elkem.
„Eins og þessar viðræður þróuð-
ust og þeir kostir sem Elkem voru
boðnir er ekki hægt að skilja það
svo að íslensk stjórnvöld séu ekki
reiðubúin að afsala sér meirihluta-
eign í Járnblendiverksmiðjunni á
Grundartanga. Viðræðurnar strönd-
uðu í sjálfu sér á verðhugmyndum
aðila og með hvað hætti Elkem
gæti orðið meirihlutaaðili. Það voru
gefnir ákveðnir möguleikar fyrir
Elkem í því sambandi en þeir voru
ekki tilbúnir að gangast inn á þær
lausnir sem íslenska ríkið bauð upp
á í þessu sambandi, né það verð sem
um var að ræða. Elkem vildi hafa
þessa hluti með öðrum hætti en ís-
lenska ríkið lagði til. Þetta snýst
ekki bara um verð, heldur líka um
aðferðafræði og þá með hvaða hætti
þetta gæti gerst,“ segir Jón.
Jón segir að ekki verði farið fram
á frekari framlenginu á fresti Land- !
virkjunar af hálfu stjómar félagsins.
Eins og staðan sé í dag sé því ekk-;
ert útlit fyrir að verksmiðjan verði
stækkuð. „Miðað við þau svör sem
okkur hafa borist frá hinum eigna-
raðilunum teljum við okkur ekki
fært að taka þann raforkukost sem i
Landsvirkjun býður upp á,“ segir j
Jón.