Morgunblaðið - 08.03.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.03.1997, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Landsbanki íslands skilaði 262 milljóna króna hagnaði á síðasta árí samanborið við 177 milljónir árið áður Langt frá viðunandi rekstramiðurstöðu Morgunblaðið/Kristinn FINNUR Ingólfsson, viðskiptaráðherra, undirritar ársreikning Landsbanka Islands á ársfundinum í gær. Við hlið hans er Björg- vin Vilmundarson, formaður bankasljórnar Landsbankans. HAGNAÐUR Landsbankans fyrir skatta og óreglulega liði nam 582 milljónum króna á árinu 1996, en eftir skatta og óreglulega liði sem eru vegna eldri lífeyrisskuldbindinga að fjárhæð 260 milljónir króna nam hagnaðurinn 262 milljónum króna samanborið við 177 milljónir árið áður. Björgvin Vilmundarson, for- maður bankastjómar Landsbanka ís- lands, sagði þegar hann gerði grein fyrir afkomu bankans að þessi rekstr- amiðurstaða væri langt frá því viðun- andi allra síst í ljósi þess að árferði hefði verið gott á síðasta ári og nauð- syn á að bæta afkomuna í gjörbeytt rekstrarumhverfí næstu ára. Vaxtatekjur Landsbankans á síð- asta ári námu 9.115 milljónum króna og lækkuðu um 43 milljónir eða um 0,5% milli ára. Útlán bankans jukust um 2,7 milljarða króna milli ára eða um 3,5%. Vaxtagjöld hækkuðu hins vegar um 174 milljónir eða um 3,5% og námu 5.121 milljón. Þar af námu vaxtagjöld vegna innlána 2.591 millj- ón og hækkuðu um 234 milljónir eða tæp 10% frá árinu áður. Hreinar vaxtatekjur námu 3.994 milljónum og lækkuðu um 217 milljónir króna eða um 5%. Aðrar rekstrartekjur námu 2.209 milljónum og jukust um 263 milijónir króna eða 13,5%. Mest jukust tekjur vegna þóknana og hins vegar gengismunur en hann rúmlega tvöfaldaðist milli ára. Hreinar rekstr- artekjur jukust aðeins um 46 milljón- ir króna. Rekstrargjöld jukust hins vegar mun meira. Þau námu 4.384 milljón- um króna og hækkuðu um 248 millj- ónir króna eða 6%. Þar af jókst launa- kostnaður um 90 milljónir eða 4%, en annar rekstrarkostnaður um 162 milljónir eða 10%. Stöðugldum fækk- aði um 20 á árinu og voru í árslok 929. Allur tilkostnaður hækkar „Sú einfalda mynd blasir við að allur tilkostnaður hvort sem um er að ræða vaxtagjöld eða rekstrar- kostnað hækkar verulega, en tekjur dragast saman eða standa í stað. A þessu þarf að taka með markvissum aðgerðum," sagði Björgvin. A síðasta ári fóru 71% af hreinum rekstrartekjum í rekstrargjöld en árið áður var hlutfallið 67%. Framlög á afskriftarreikning námu 1.237 milljónum og lækkuðu um 129 millj- ónir króna milli ára og fer enn yfir þriðjungur af vaxtamun til að mæta framlögum á afskriftarreikning út- lána, að sögn Björgvins. Eiginfjár- hlutfall bankans í árslok var 9,36% en var 9,38% árið áður. Efnahags- reikningurinn nam 110 milljörðum króna og stækkaði um 8 milljarða. Vaxtamunur bankans í hlutfalli af meðalstöðu heildarfjármagns lækk- aði úr 3,8% í 3,6%. Útlán til einstaklinga minnkuðu Heildarinnlán Landsbankans í árs- lok 1996 að meðtalinni verðbréfaútg- áfu námu 75,7 milljörðum króna. Nam aukningin 5,1 milljarði króna eða 7,2% frá árinu áður. Meðalaukn- ing innlána banka og sparisjóða á sama tíma nam 6,3%. Innlán ein og sér jukust um 1,5%. Heildarútlán Landsbankans voru 86.614 og jukust um 1,9 milljarða króna eða 2,3%. Hlutdeild bankans í heildarútlánum banka og sparisjóða var 38%. Mjög mikil umskipti urðu á útlánum til einstaklinga að sögn Björgvins. Þau lækkuðu og numu rúmlega 16,1 milljarði króna. Hlut- deild einstaklinga í heildarútlánum bankans lækkuðu úr 21% í 20% og hlutdeild bankans í lánum til ein- staklinga meðal banka og sparisjóða lækkaði úr 30% í 24%. „Minni hlut- deild bankans í útlánum til einstakl- inga er vissulega áhyggjuefni og getur ekki gengið til lengdar. Hitt er ekki síður áhyggjuefni hversu hratt heimilin í landinu hafa kosið að skuldsetja sig að því er virðist upp á betri tíð með blóm í haga,“ sagði Björgvin. Útlán bankans til sjávarútvegs jukust hins vegar verulega og hækk- aði hlutdeild hans úr 30% í 32%. Lausafjárstaða bankans var góð allt árið og var hann vel yfir lausafjár- skyldu Seðlabankans allt árið, sem hækkaði úr 10% í 12% í september. Þurfti bankinn fyrstu níu mánuðina að eiga 7 milljarða króna í lausu fé en 9 milljarða króna á síðasta árs- fjórðungi ársins. Björgvin sagði að það orkaði tvímælis að aðeins bankar og sparisjóðir þyrftu að uppfylla skyldur um ákveðið hlutfall lausaijár á meðan aðrir aðilar á sama mark- aði í harðri samkeppni við bankana um viðskiptavini þyrftu ekki að hlýta neinum slíkum kvöðum. Verður að skila miklum hagnaði Landsbanki íslands Úr reikningum ársins 1996 Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1996 1995 Breyting Vaxtatekjur 8.997,1 9.061,0 -0,7% Vaxtagjöld 5.013,1 4.761,0 +5,3% Hreinar vaxtatekjur 3.984,0 4.299,9 -7,4% Aðrar rekstrartekjur 2.610,9 2.224,4 +17,4% Hreinar rekstrartekjur 6.594,9 6.524,4 +10,8% Rekstrargjöld 4.743,9 4.497,4 +5,5% Framlög í atskriftareikning útlána 1.236.9 1.366,3 -9.5% Hagnaður fyrir skatta 614,1 660,7 -7,1% Hagnaður af reglul. starfs. e. skatta 318,1 352,4 -9,7% Hagnaður ársins 262,4 176,9 +48,3% Etnahagsreikningur 31. desember 1996 1995 I Eíanír: I Milljónir króna Sjóður og kröfur á lánastofnanir 12.446,0 8.256,6 +50,7% Útlán 84.836,8 83.748,9 +1,3% Markaðsverðbréf og eignarhl. í fél. 8.216,8 5.427,1 +51,4% Rekstrarfjármunir 4.185,7 4.118,4 +1,6% Ýmsir eignaliðir 561,3 660,6 -15,0% Eignir samtals 110.246,6 102.211,4 I +7,9% I Skuldir oo eiQiO fó: \ Skuldir við lánastofnanir 3.740,7 6.500,8 -42,5% Innlán 62.206,1 60.369,6 +3,0% Lántaka 31.171,8 23.645,0 +31,8% Aðrar skuldir 4.539,4 3.937,1 +15,3% Víkjandi lán 1.994,7 1.564,2 +27,5% Eigið fé 6.593,9 6.194,8 +6,4% Skuldir og eigið fé samtals 110.246.6 102.211,4 +7.9% Liðir utan efnahagsreiknings 12.079,5 11.451,3 +5,5% Sjóðstreymi Mllljónir króna 1996 1995 Handbært fé frá rekstri 3.581,1 2.999,8 +19,4% Handbært fé í árslok 1.557,8 599,5 +160% ÞÓTT hagnaður Landsbanka íslands í fyrra sé talsvert meiri en hann var á árinu 1995 er augljóst að rekstr- arniðurstaða ársins er mun síðri en nauðsynlegt er, að því er fram kom hjá Kjartani Gunnarssyni, formanni bankaráðs Landsbanka íslands, á ársfundi bankans í gær þar sem árs- skýrsla Landsbankans vegna ársins 1996 var kynnt. „Landsbankinn verður að skila miklum hagnaði til þess að geta styrkt eiginfjárstöðu sína og tryggt sér nægjanlegt svigrúm til þátttöku í harðri samkeppni á fjármagnsmark- aðnum á íslandi. Á öllum sviðum bankans þarf því að samræma og samhæfa öfiugar aðgerðir til þess að á árinu 1997 verði veruleg bót á rekstrarafkomu hans. Meðal þess sem gera þarf er að taka skipulag bankans til gagngerrar endurskoð- unar og gaumgæfa með hvaða hætti verkum og verkefnum verður best komið fyrir. Heildarhagsmunir fyrir- tækisins verða að hafa ótvíræðan forgang í því starfí jafnvel þótt það verði á kostnað gamalla hefða og annars þess sem lengi hefur þótt viðtekinn sannleikur. I nútíma sam- keppni er ekkert rúm fyrir hefðar- speki,“ sagði Kjartan. Há framlög á afskriftareikning Hann sagði að bankinn glímdi enn við há framlög á afskriftarreikning þó þau hefðu lækkað nokkuð eða úr 1.500 milljónum í 1.300 milljónir króna í fyrra. Glíman við þennan kostnaðarlið samfara glímu við auk- inn rekstrarkostnað og lægri hlut- fallslegar vaxtatekjur og tekjur af þjónustugjöldum yrði að halda áfram með betri árangri en hingað til hefði náðst. Kjartan gerði síðan að umræðu- efni nýjungar í starfsemi bankans á síðasta ári sem var 110. starfsár hans. Bankinn hefði opnað viðskipta- stofu, þar sem fengist væri við inn- lenda og fjölþjóðlega fjármálaþjón- ustu fyrir viðskiptavini bankans og bankann sjálfan. Þá hefði Lands- bankinn fyrstur íslenskra banka opn- að símabanka á síðasta ári. Kjartan vék síðan að fyrirhugaðri breytingu ríkisbankanna í hlutafélög og sameiningu ijárfestingarlánasjóð- anna, en þama væri um að ræða einhveijar veigamestu og mikilvæg- ustu breytingar á íslenskum peninga- og fjármagnsmarkaði til þessa. Formbreyting bankanna ein og sér væri mikilvægt skref og mundi gefa bönkunum gjörbreytt svigrúm til þess að taka þátt í samkeppni á fjár- málamarkaði. „Ég leyfí mér að full- yrða að starfsmenn Landsbankans ganga bjartsýnir til þessarar breyt- ingar. Þeim er orðið það betur ljóst en öllum öðrum að það er bankanum fjötur um fót en ekki styrkur að vera áfram ríkisfyrirtæki þeirrar gerðar sem hann er í dag,“ sagði Kjartan og bætti við að nú varðaði mestu að sú undirbúningsvinna sem fram þyrfti að fara næstu mánuði yrði unnin í góðri samvinnu við for- ystu bankans og starfsmenn hans. Þá vék Kjartan að fyrirætlunum um að breyta fjárfestingarlánasjóð- um atvinnulífsins. Landsbankinn hefði haft forustu um að leggja til við ríkisstjómina að eignir sjóðanna verði seldar viðskiptabönkunum og þeir taki við hlutverki þeirra með þeim hætti. Slík breyting myndi styrkja bankakerfíð og lækka rekstr- arkostnað þess, sem yrði viðskipta- mönnum bankanna til hagsbóta. Hann væri ekki hrifinn af þeirri hug- mynd að stofna sérstakan fjárfest- ingarbanka að meirihluta í eigu ríkis- sjóðs og teldi fyrrgreinda aðferð far- sæili leið til þess að ná hratt fram markmiðum ríkisstjómarinnar. „Vel er hægt að hugsa sér enn að saman gætu farið hugmyndir ríkisstjómar- innar um hlutafélag um fjárfestinga- sjóðina sem selt yrði og hugmynd bankanna um yfirtöku þeirra á eign- um sjóðanna. Þá yrðu afdráttarlaus fullnaðaryfírráð bankanna yfír meiri- hluta hlutafjár í slíku hlutafélagi að vera trygg.“ Kjartan bætti því við að næsta stórverkefni á þessu sviði hlyti að vera að kanna frekar möguleika á nánari samvinnu og samruna fyrir- tækja á fjármálamarkaði. Það væri mjög brýnt með tilliti til harðnandi samkeppni bæði hér á landi og að utan. Hann rifjaði upp hugmyndir Björgvins Vilmundarsonar, banka- stjóra Landsbankans, um haginn af því að sameina Landsbanka og Bún- aðarbanka og sagði að það væri hægt að hugsa sér fleiri sameiningar eða sammna á fjármálamarkaði. „Það er t.d. jafn sjálfsagt að breyta sparisjóðum landsins í hlutafélög eða hlutafélag eins og það er að breyta ríkisviðskiptabönkunum í hlutafélög. Afskipti sveitarstjóma af fjámála- starfsemi eins og henni er háttað í sparisjóðum landsins eru alveg jafn óeðlileg og þátttaka og afskipti ríkis- ins í ríkisviðskiptabönkunum. Ef sparisjóðir landsins væru sameinaðir í eitt öflugt íjármálafyrirtæki í hluta- félagsformi væri kominn enn einn nýr flöturinn til endurskipulagningar fjár- málakerfisins og spái ég því að þá mundi vaxandi hlutaíjármarkaður fljótlega skapa hér nægilegt svigrúm til þess að styrkja og efla tvær megin- heildir á fjármálamarkaði sem hvor um sig yrði nægilega sterk til þess að geta sinnt öllum helstu verkefnum sem þörf er að sinna í bankamálum á íslandi," sagði Kjartan. Hann vék í lokin að þeim tímamót- um sem væru framundan í starfsemi bankans og sagði: „Landsbankinn státar af rösklega aldar gamalli sögu og samfelldum rekstri. Hann hefur þann tíma verið öflugasta og stærsta íslenska fjármálafyrirtækið sem hef- ur veitt atvinnulífi landsmanna mest- an og bestan stuðning og styrk þeg- ar mest hefur riðið á. Þau eru örugg- lega ófá tilvikin þegar að ákvarðanir Landsbankans hafa ráðið úrslitum um lífskjör og afkomu manna og fyrirtækja í heilum byggðarlögum, jafnvel í heilum landshlutum. Lands- bankinn hefur því haft úrslita áhrif á marga þætti í lífi og starfi þessar- ar þjóðar. Þessi áhrif sín vill Lands- bankinn varðveita og beita áfram til góðs fyrir alla iandsmenn." Bankar ávaxti lífeyris- spamað ALLIR þeir sem hafa heimildir til að taka að sér ávöxtun fjármuna almenning eiga að hafa jafnan kost á því að ávaxta lífeyrisspamað lands- manna. Sú þróun sem orðið hefur hér á landi að lífeyrissjóðakerfið sé nánast alfarið bundið á klafa einka- réttar og skylduaðildar greiðanda er óhugsandi til frambúðar. Þetta kom fram í ræðu Kjartans Gunnarssonar formanns bankaráðs Landsbanka Islands á ársfundinum. Hann sagði að úreltar hindranir á fjármagnsmarkaði þyrfti að ryðja úr vegi og kæmi fyrirkomulag lífeyris- mála upp í hugann í því sambandi. í lífeyrissjóðum landsmanna væri varðveittur sparnaður að verðmæti um 300 milljarðar en það nálgast að vera um helmingur af öllum pen- ingalegum sparnaði í landinu. Ef stjórnvöld teldu það einhvers virði að hafa í framtíðinni sterka og öfluga banka á íslandi væri augljóst að skapa yrði þeim grundvöll til þess að taka með eðlilegum hætti þátt í lífeyrissparnaði landsmanna. „Það er nauðsynlegt að heildar- endurskoðun fari fram á allri lögg- jöfinni um lífeyrissjóði og málefni þeirra með það fyrir augum að nýj- ungum á þessu sviði verði veitt eðli- legt svigrúm og öllum þeim sem hafa heimildir til að taka sér ávöxt- un fjármuna fyrir almenning verði gefinn jafn kostur á því að ávaxta þetta fé eins og annað fé. Ekkert bendir til, hvorki erlend né innlend reynsla, að þeim aðilum sé verr trú- andi fyrir því heldur en stjórnum lífeyrissjóðannaj með fullri virðingu fyrir þeim. Á Islandi ríkir fremur úreltur hugsunarháttur varðandi líf- eyrismál landsmanna, þeim hugs- unarhætti þarf að breyta og veita þarf nýjum stefnum og straumum inn í lífeyris- og tryggingamálin með það að markmiði að tryggja öflug og góðl lífeyrisréttindi manna þegar þeir Ijúka starfsævi sinni," sagði Kjartan ennfremur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.