Morgunblaðið - 08.03.1997, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Skæruliðar slíta víðræðum um gíslamálið í Lima
Segja göng grafin
til að undirbúa árás
Lima. Reuter.
Reuter
ELFRIEDE Blauenstein-
er, kölluð „svarta eklq-
an“, fórnar höndum er
lífstíðardómur var kveð-
inn upp yfir henni.
„Svarta
ekkjan“
fær lífs-
tíðardóm
Vín. Reuter.
ELFRIEDE Blauensteiner,
sem kölluð hefur verið „Svarta
ekkjan“, var í gær dæmd í
lífstíðarfangelsi fyrir að bera
ábyrgð á dauða ellilífeyrisþeg-
ans Alois Pichler með of stórri
lyfjagjöf. Varla nokkur önnur
réttarhöld hafa vakið meiri
athygli og umtal í Austurríki
fyrr eða síðar.
Átta manna kviðdómur
kvað upp hinn harða dóm eftir
að hafa ráðið ráðum sínum í
12 klukkustundir, aðfaranótt
gærdagsins. í úrskurðinum
segir, að „hrein græðgi“ hafi
ráðið gerðum hinnar ákærðu.
Fyrrverandi lögfræðingur
Blauensteiner var dæmdur í
sjö ára fangelsi fyrir meðsekt
að glæpum skjólstæðings síns,
með því að falsa erfðaskrá
Pichlers. Bæði hin dæmdu
hafa áfrýjað dómnum.
Grunuð um fleiri morð
En skýringin fyrir þeirri
miklu athygli sem réttarhöldin
yfir Blauensteiner njóta er
ekki fólgin í þessu eina morði.
Ferill hennar þykir lygasögu
líkastur. Verið er að rannsaka
nokkur önnur mannslát, sem
talið er að geti verið hliðstæð
tilfelli við morð Pichlers. Blau-
ensteiner hafði af því atvinnu
árum saman, að hjúkra auðug-
um karlmönnum sem komnir
voru á efri ár. Auglýsti hún
þessa þjónustu sína í dagblöð-
um. Nú er hún sökuð um að
hafa flýtt fyrir dauðdaga þess-
ara manna, og lifað hátt fyrir
það fé sem þeir eftirlétu henni.
PALESTÍNUMENN fordæmdu í
gær samþykkt ísraelsku stjórnarinn-
ar um land sem hún hyggst láta
Palestínumönnum eftir. Segja þeir
að um allt of lítið svæði sé að ræða
og að ísraelar séu að ganga að frið-
arsamkomulaginu dauðu. Hafa fjöl-
margir frammámenn í sjálfsstjóm
Palestínumanna krafist þess að frið-
arviðræðum við ísraela verði hætt.
Þá hefur ákvörðunin vakið litla
hrifningu samstarfsflokka Likud-
flokksins í ísrael, sem segja of mik-
ið látið af hendi.
Ríkisstjóm Israels samþykkti með
10 atkvæðum gegn 7 tillögu Benj-
amins Netanyahu, forsætisráðherra
um að Palestínumönnum yrðu afhent
9% Vesturbakkans til viðbótar við
það sem þeir hafa þegar fengið. 2%
SNURÐA hljóp á þráðinn í viðræð-
unum um gíslamálið í Perú í gær
þegar marxísku skæruliðamir, sem
hafa haldið 72 mönnum í bústað jap-
anska sendiherrans í Lima í 80 daga,
slitu viðræðunum og sökuðu stjóm-
völd um að hafa látið grafa göng
að byggingunni og undirbúið árás til
að frelsa gíslana.
Ákvörðun skæmliðanna dró mjög
úr bjartsýni manna á að hægt yrði
að leysa málið með friðsamlegum
hætti. Skæmliðarnir höfðu áður
hafnað tilboði um að þeir fengju
hæli á Kúbu ef þeir leystu gíslana
úr haldi.
Alberto Fujimori, forseti Perú,
ræddi við ráðgjafa sína um leiðir til
að höggva á hnútinn og japanska
stjómin hvatti skæruliðana til að
halda viðræðunum áfram.
Foringi skæmliðanna, Nestor
Cerpa, sakaði stjómina um að hafa
undirbúið áhlaup til að frelsa gíslana
meðan hann og hægri hönd hans,
svæðisins hafa verið undir stjóm
ísraela eingöngu en hin 7% undir
stjórn ísraela og Frelsissamtaka
Palestínu (PLO). Hinir síðarnefndu
fullyrða að samkvæmt friðarsam-
komulaginu eigi ísraelar að láta af
hendi land á Vesturbakkanum í
þremur áföngum, 30% þess svæðis
sem þeir ráði í hvernum áfanga.
Yasser Arafat, leiðtogi sjálfsstjórn-
ársvæða Palestínumanna, sneri heim
í gær úr heimsókn sinni til Bandaríkj-
anna og brást hann ókvæða við sam-
þykkt Israelsstjómar. „Þessi ákvörð-
un er sviksamleg. Hún kemur frá
einum flokki, án samráðs við okkur,“
sagði Arafat. Virtust flestir Palest-
ínumenn sem tjáðu sig um málið telja
að hún væri brot á friðarsamningum
þjóðanna.
Rolly Rojas, tækju þátt í samninga-
viðræðunum í húsi nálægt sendi-
herrabústaðnum.
„Nú eru þeir allt í einu famir að
bíða eftir því að við fömm úr bygg-
ingunni til að geta hafið áhlaupið,"
sagði Cerpa. „Það leikur enginn vafi
á því að þeir hafa undirbúið árás ...
Við höfum heyrt hávaða undir gólf-
inu.“
Mold flutt úr nálægu húsi
Lögregluyfirvöld í Perú tjáðu sig
ekki um ásökun skæruliðanna. Heim-
ildarmenn Reuter-fréttastofunnar
staðfestu þó að a.m.k. fern göng
hefðu verið grafin að byggingunni
síðustu vikumar meðan tónlist hefur
glumið í hátölurum lögreglunnar fyr-
ir utan.
Að sögn heimildarmannanna á að
nota göngin ef ákveðið verður að
hefja áhlaup, sem búist væri við að
tæki sjö mínútur og kostaði mörg
mannslíf.
Netanyahu hefur varið ákvörðun-
ina, sagt hana nægja til að viðhalda
friðarferlinu, án þess að skaða hags-
muni ísraels.
Herve de Charette, utanríkisráð-
herra Frakklands, átti á fimmtudag
viðræður við sýrlenskan starfsbróð-
ur sinn, Farouq al-Shara, um hvern-
ig hægt væri að hefja friðarviðræður
Sýrlendinga og ísraela að nýju.
Shara sagði Sýrlendinga reiðubúna
til þess ef viðræðurnar hæfust á
þeim punkti sem þeim lauk á, en
Sýrlendingar segja fv. ríkisstjórn
ísraels hafa fallist á að láta Gólan-
hæðir af hendi. Netanyahu hefur
krafist þess að viðræður við Sýrlend-
inga verði án skilyrða af nokkru
tagi en hann hefur þvertekið fyrir
að láta af hendi landsvæði fyrir frið.
Tomas Meza Castillo, vamarmála-
ráðherra Perú, sagði hins vegar ekk-
ert hæft í þessari ásökun Cerpa. „Ég
hygg að þetta sé ekkert annað en
afleiðing taugaveiklunar hjá skæru-
liðunum."
Meza bætti við að stjómin væri
að reyna að leysa gíslamálið með
friðsamlegum hætti og hygðist ekki
beita „öðmm aðferðum" nema skær-
uliðarnir ynnu einhveijum gíslanna
mein.
Dagblaðið La Republica sagði að
blaðamenn þess hefðu orðið varir við
grunsamlega flutninga úr húsi ná-
lægt sendiherrabústaðnum á hverri
nóttu. Verðir staðfestu að verið væri
að flytja mold úr húsinu og henni
hefði í fyrstu verið sturtað á strönd
í Lima og síðan á lóð höfuðstöðva
leyniþjónustunnar.
Um tuttugu skæruliðar eru í sendi-
herrabústaðnum og þeir léku í gær
byltingarsöngva og hrópuðu vígorð
gegn stjóminni.
Bíl kastað
á franska
sendiráðið
íBrussel
UM 500 starfsmenn Renault-
verksmiðju í Belgíu komu sam-
an við franska sendiráðið í
Brussel í gær til að mótmæla
þeirri ákvörðun bílafyrirtækis-
ins að loka verksmiðjunni í júlí.
3.100 manns missa þá atvinn-
una.
Starfsmennirnir köstuðu bíl-
grind á sendiráðið og litlu mun-
aði að hún lenti á lögreglu-
manni og einum mótmælend-
anna. Franska ríkið á 46% hlut
í Renault og belgísk verkalýðs-
félög saka bílafyrirtækið um
að hafa ákveðið að loka belg-
ískri verksmiðju fremur en
franskri til að komast hjá upp-
sögnum í Frakklandi.
Samstarfi
Í60ár
að ljúka
SVO virðist sem samstarf
stjórnarflokkanna í Liechten-
stein sé að fara út um þúfur
en það hefur staðið í 60 ár
eða frá 1938 þegar Föður-
landssambandið og Framfara-
sinnaði borgaraflokkarnir
tóku höndum saman. Enginn
stefnumunur er á flokkunum
og gengi þeirra hefur lengst
af ráðist af vinsældum flokks-
leiðtoganna hveiju sinni.
Framfarasinnuðu borgaramir
hafa þó heldur verið að tapa
fylgi frá 1978 og fannst þeim
mælirinn fullur þegar um-
hverfisverndarflokkur tók
mann af þeim í kosningum
2. febrúar sl. Þeir hafa nú 10
þingsæti, Föðurlandssam-
bandið 13 og þar með meiri-
hluta og græningjarnir tvö.
Búist er við, að framfarasinn-
aðir borgarar ákveði í næstu
viku að fara í stjórnarndstöðu.
Liechtenstein er 160 ferkm
og íbúarnir 31.000.
Syni Herzogs
sleppt
JOEL Herzog, sonur Chaim
Herzogs, fyrrverandi forseta
ísraels, var látinn laus gegn
tryggingu úr
fangelsi í
Frakklandi í
gær. Hafði
hann setið
inni frá því í
desember
vegna rann-
sóknar á að-
ild hans að
mútugreiðsl-
um í tengslum við spilavítis-
rekstur í Cannes. Michel Mou-
illot, fyrrverandi borgarstjóri
í Cannes, situr einnig inni en
talið er, að hann hafi tekið
við 17,5 milljónum ísl. kr.
gegn því að leyfa 100 spila-
kassa að auki í Noga-Hilton-
hótelinu en það er í eigu Sviss-
lendingsins Nissims Gaons,
tengdaföður Joels Herzogs.
Juppe íhugar
kynjakvóta
ALAIN Juppe, forsætisráð-
herra Frakklands, er að hug-
leiða að setja kvóta á konur
í framboði til þings eða
kannski öllu heldur á karlana
því að meiningin er að ákveða,
að hlutfall kvenna megi ekki
fara niður fyrir viss mörk.
Raunar er mikill meirihluti
þingmanna andvígur kvóta af
þessu tagi samkvæmt skoð-
anakönnun franska blaðsins
Le Monde. Átti það líka við
um þingkonurnar eða 22 af
32.
Þurrkar
í Kenýa
MIKLIR þurrkar hafa verið í
Kenýa, þeir mestu frá 1992,
og stefnir í stórslys í norðaust-
urhéruðum landsins bregðist
vorrigningarnar. Nú þegar eru
30% bústofnsins fallin og víða
þjáist tæpur þriðjungur bama
af vannæringu vegna matar-
skorts. í norðausturhéruðun-
um lifir fólk næstum eingöngu
á kvikfjárrækt og því er hætta
á, að fólk flosni þar upp í stór-
um hópum bregði ekki til
batnaðar með veðráttuna.
ísralear láta 9% Vesturbakkans af hendi
PLO fordæmir
ákvörðun Israela
Jcrúsalem, Damaskus, New York. Rcuter.
Reuter