Morgunblaðið - 08.03.1997, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 21
Fundur leiðtoga Rússa og Hvlt-Rússa
Vilja banda-
lag ríkjanna
Reuter
VEL fór á með Alexander Lúkashenko, for-
seta Hvita-Rússlands, og Borís Jeltsín Rúss-
landsforseta á fundi þeirra í Kreml í gær.
Jeltsín bauð gestinn velkominn með því að
kyssa hann á kinnina.
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín,
forseti Rússlands,
og Alexander Lúk-
ashenko, forseti
Hvíta-Rússlands,
samþykktu á fundi
í Kreml í gær að
beita sér fyrir
bandalagi þessara
slavnesku ríkja í
mikilvægum mála-
flokkum og árétt-
uðu andstöðu sína
við áformin um
stækkun Atlants-
hafsbandalagsins í
austur.
Jeltsín virtist
kraftmikill og vel
á sig kominn þegar
hann tók á móti
Lúkashenko og
kvaðst staðráðin í
að styrkja tengslin
við nágrannaríkið
í vestri. „Samveldi
með Hvíta-Rúss-
landi er sameigin-
leg ósk þjóða okk-
ar og við ætlum
ekki að víkja af þeirri braut," sagði
rússneski forsetinn.
Leiðtogamir undirrituðu yfír-
lýsingu þar sem hvatt er til þess
að ríkin myndi bandalag í tolla-,
ijár-, samgöngu- og orkumálum
og samhæfí stefnu sína í efna-
hagsmálum.
I yfírlýsingunni er ennfremur
Qallað um þau áform að veita
nokkrum fyrrverandi Varsjár-
bandalagsríkjum, þeirra á meðal
Póllandi, nágrannaríki Hvíta-
Rússlands, aðild að Atlantshafs-
bandalaginu. „Ríki okkar eru sam-
einuð í andstöðunni við stækkun
NATO í austur, sem mun skapa
nýjar markalínur í Evrópu og
hættulega árekstra," sagði í yfír-
lýsingunni.
Lúkashenko sagði að ríkin yrðu
ekki sameinuð á einni nóttu og
kvað mikilvægast þau hefðu sam-
eiginlegan gjaldmiðil sem allra
fyrst. Hann sagði að stækkun
NATO hefði verið rædd ýtarlega
á leiðtogafundinum en bætti við
að markmiðið með samrunanum
væri ekki að klekkja á Atlants-
hafsbandalaginu.
Besta vopnið gegn NATO
Jeltsín og Lúkashenko undirrit-
uðu samning um efnahagslegt
bandalag ríkjanna fyrir tæpu ári
en síðan hefur lítið gerst í þessum
málum, einkum vegna veikinda
Jeltsíns. Samskipti ríkjanna virt-
ust einnig stirð í fyrra þegar Lúka-
shenko knúði fram breytingar á
stjómarskránni í andstöðu við
þingið og jók völd sín stórlega á
kostnað þingsins. Tilraunir Rússa
til að miðla málum báru þá ekki
árangur.
Vestrænir stjómarerindrekar í
Moskvu segja umræðuna um
bandalag Rússlands og Hvíta-
Rússlands geta reynst besta vopn
Jeltsíns í baráttu hans gegn stækk-
un NATO í austur. Forsetinn sagði
í stefnuræðu sinni á fimmtudag
að sammni ríkjanna væri forgangs-
verkefni sitt í utanríkismálum.
Lúkashenko kvaðst á miðviku-
dag sjá fyrir sér að ríkin mynduðu
bandalag í efnahags- og vamar-
málum. Þar sem íbúar Hvíta-Rúss-
lands eru tíu milljónir og Rúss-
lands 150 milljónir er ljóst að
Rússar myndu hafa bæði tögl og
hagldir í slíku bandalagi.
Ólík viðhorf
í efnahagsmálum
í stefnuræðunni minntist Jeltsín
ekki á þá tillögu sína að efnt yrði
til þjóðaratkvæðagreiðslu í báðum
ríkjunum um sammna þeirra.
Jeltsín varpaði þessari hugmynd
fram í janúar en stjórnvöld í Hvíta-
Rússlandi tóku henni þá fálega.
Ráðgjafi Jeltsíns í utanríkismál-
um, Dmítri Rjúríkov, sagði að leið-
togamir hefðu ekki rætt hvenær
slík þjóðaratkvæðagreiðsla gæti
farið fram. Sameiginleg nefnd,
sem fjallar um sammnann, ætti
að koma saman í Moskvu 2. apríl
og þá væri að vænta mikilvægra
ákvarðana í þessu máli.
Jeltsín gaf til kynna í stefnu-
ræðu sinni að ýmis ágreiningsmál
gætu torveldað samrana ríkjanna
og er talið að hann hafi einkum
átt við efnahagsmálin. Lúkas-
henko hefur verið tregur til að
koma á efnahagsumbótum og
Sergej Ling, forsætisráðherra
Hvíta-Rússlands, sagði á þriðju-
dag að þótt stjóm sín legði höfuðá-
herslu á sammna við Rússland
myndi hún fylgja eigin stefnu í
efnahagsmálum.
Frikirkjusöfnudurinn
i Reykjavik
Barnaguðsþjónusta
kl. 11.15.
Messa kl. 14.
Fermd verður
Rakel MacMahon,
Engihjalla 17.
Organisti Pavel Smid. Sr.
Bryndís Malla
Elídóttir þjónar í
forföllum safnaðar-
prests.
Allir velkomnir. 1
Fríkirkjan
í Reykjavík.
Þýzk-hollenzkur
leiðtogafundur
•HELMUT Kohl, kanzlari
Þýzkalands, og Klaus Kinkel,
utanríkisráðherra, fara næst-
komandi fimmtudag, 13. marz,
til fundar við starfsbræður sína
hollenzka, Wim Kok, forsætis-
ráðherra og Hans van Mierlo
utanríkisráðherra. Hollendingar
eru nú i forsæti ráðherraráðs
Evrópusambandsins, ESB, og
munu ráðherrarnir aðallega
ræða viðfangsefni tengdu því,
svo sem ríkjaráðstefnuna, stækk-
un ESB og NATO, hina fyrirhug-
uðu sameiginlegu Evrópumynt
og mikilvæg utanríkismál svo
sem ástandið í Albaníu.
•ÞEGAR hin sameiginlega Evr-
ópumynt, evróið, verður komin í
gagnið, mun samkvæmt reglu-
gerð frá framkvæmdastjórninni
öllum smásöluaðilum í þeim lönd-
um, þar sem evróið tekur við af
eldri gjaldmiðli, verða gert að
merkja vörur sínar með fjórum
verðmerkingum. Auk söluverðs
í evróum á verðið að vera upp-
gefið einnig í gamla gjaldmiðlin-
um, en því til viðbótar viðmiðun-
arverð eftir þyngd í báðum
gjaldmiðlum, þ.e.a.s. hvað 1 kg
vörunnar myndi kosta, hvort sem
um er að ræða bökunarduft eða
sementssekki, svo dæmi séu
nefnd.
Ríkjaráðstefna Evrópusambandsins
Oreja leggur
áherzlu á innlímun
Schengen í ESB
MARCELINO Oreja
Vín. Morgunblaðið.
Marcelino Oreja,
sem fer m.a. með
stofnanamál í
framkvæmda-
stjóm Evrópusam-
bandsins, segir að
á ríkjaráðstefnu
ESB ætti að leggja
áherzlu á að fella
Schengen-vega-
bréfasamkomu-
lagið inn í stofn-
sáttmála sam-
bandsins.
Þetta kom fram
í ræðu, sem Oreja
flutti á vegum
austurríska utanríkisráðuneytisins
í Vínarborg í gær.
í svari við fyrirspum sagði
Oreja að of snemmt væri að segja
til um hvort Schengen-samstarfið
yrði hluti af milliríkjasamstarfinu
um dóms- og innanríkismál í svo-
kallaðri þriðju stoð ESB eða hvort
það ætti að heyra undir yfirþjóð-
legar stofnanir í fyrstu stoð sam-
bandsins. Fyrst þyrfti að ná sam-
komulagi um að Schengen-samn-
ingurinn yrði hluti af stofnsátt-
mála ESB, síðan mætti skoða
hvemig hann félli að stofnanaupp-
byggingu sambandsins.
Oreja viðurkenndi að það yrði
afar erfítt að fá Bretland og írland
til að taka þátt í vegabréfasam-
starfínu. Hins vegar væri gerlegt
að innlima Schengen í ESB án
þátttöku þessara ríkja með hjálp
nýrra samningsákvæða um sveigj-
anlega sammnaþróun, sem nú em
til umræðu á ríkjaráðstefnunni.
„Ég kýs fremur að sveigjanleiki
eigi sér stað innan stofíisáttmálans
en utan hans,“ sagði Oreja.
kKartöflur, rófur, gulrætur og hvítkál
Bankabygg og malað bygg -
uppskriftir og smakkið á brauði
- nærið ástina með nuddi
Sigtun
og Kristbjörg í Vallanesi,
koma í bæinn og kynna brautryðjendastarf
Mtt í lífrænni ræktun í Blómavali
JÖRÐ