Morgunblaðið - 08.03.1997, Qupperneq 24
24 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997
Michelin-
dutúðin
RAUÐA Michelin-bókin læt-
ur ekki mikið yfír sér. Hún
er látlaust uppflettirit sem
hefur að geyma upplýsingar um
þúsundir veitingastaða í Frakklandi
sem lýst er með ýmiss konar tákn-
um, örfáum dæmum af matseðli og
verðflokki. Þeir heppnu hljóta róset-
tu eða stjömu en þær geta flestar
orðið þrjár. Líkja má því að fá
Michelin-stjömu við það, að kvik-
myndaleikari fái Óskarsverðlaun
eða vísindamaður Nóbelsverðlaun.
I byrjun þessarar viku kom
Michelin-bók þessa árs fyrir Frakk-
land út. Undanfama mánuði hafa
verið uppi miklar vangaveltur um
það hvort Alain Ducasse, er síðast-
liðið haust tók við rekstri veitinga-
staðar Robuchons í París (sem að
mati margra var besti veitingastað-
ar veraldar) myndi takast að fá
þrjár stjörnur fyrir báða staði sína
en hann hefur upp á síðkastið ferð-
ast nokkmm sinnum í viku milli
veitingastaðarins í París og fyrri
veitingastaðar síns, þriggja
stjörnu staðarins Louis XV í Hotel
de Paris í Monte Carlo í Mónakó.
Niðurstaða Michelin var sú að
Parísar-staðurinn hélt þeim þrem-
ur stjömum er hann hafði er
Robuchon réð ríkjum í eldhúsinu
en staðurinn í Monte Carlo missti
eina.
Ducasse átti erfitt með að leyna
vonbrigðum sínum yfir því að
verða ekki fyrsti kokkurinn er
gæti státað af fullu húsi á tveimur
veitingahúsum en margir telja að
með þessu hafi Michelin viljað
senda út þau skilaboð að kokkar
ættu ekki að dreifa kröftum sínum
á tvo staði, vildu þeir fá þrjár
stjörnur. Engar aðrar breytingar
Enginn veit hverjir þeir
eru, hvenær þeir koma
eða í raun hvað þeir
leggja til grundvallar.
Fáir hafa hins vegar
meiri áhrif á veitinga-
húsaheiminn, segir
Steingrímur Sigur-
geirsson, en starfs-
menn Michelin og ár-
lega bíður umheimur-
inn með öndina í hálsin-
um eftir að þeir kveði
upp úrskurð sinn.
Sæl kerinn
urðu á stjörnugjöf í efsta flokknum
og einungis átján franskir veitinga-
staðir státa af þremur stjörnum,
nokkuð flehi hafa tvær og 515 fengu
eina stjömu, miðað við 532 í fyrra.
Það skiptir gífurlegu máíi fyrir
veitingastað að öðlast þá viðurkenn-
ingu að fá Michelin-stjörnu. Stjarna,
að ekki sé nú minnst á stjömur, er
ávísun á frama, vinsældir, frægð og
auðævi. Stjörnumissir hefur öfug
áhrif. Það er því ekki nema von að
margir spyrji sig hvað þurfi að ger-
ast til að öðlast stjömu en kannski
undarlegra að enginn veit það í
raun. Frægir kokkar á borð við
Ducasse segjast hafa rýnt áratugum
saman í Michelin-stjömugjöfina án
þess að sjá neina skýra reglu eða
heild. Stundum gefur Michelin í
skyn að það sé einungis maturinn
sem skipti máli. Oft virðast dæmin
hins vegar benda til annars.
Þannig fékk Bernard Loiseau, er
rekur veitingastaðinn Cote d’Or í
Búrgundarhéraði, ekki þriðju
stjömuna fyrr en hann hafði end-
urnýjað staðinn fyrir tugi millj-
óna. Fleiri slík dæmi em til enda
era margir af stjörnustöðunum að
svigna undan skuldabyrðinni eftir
að efnahagssamdráttur knúði
veitingahúsagesti til spamaðar.
Ólíkt helsta keppinautnum,
Gault-Millau, útskýrir Michelin
aldrei hvers vegna komist er að
ákveðinni niðurstöðu og Michelin
skiptir aldrei um skoðun þótt
reynt sé að hóta, múta eða grát-
biðja. Starfsmenn Michelin boða
aldrei komu sína og veitingastaðir
með tvær til þrjár stjömur era
heimsóttir allt að átta sinnum á
ári. Illar tungur halda því stund-
um fram að Michelin hækki eða
ikdMMtS iton. sxxOm-£3 vcm
1»mi>Ti<«n ««Sat,RwJtHKK-e í
Rep**
32 v. í. EBK *; —
T0m$*&*£
: ~ SS/
tK. U »4? ís. - M25 -!
vc «£*>, * 6» £: íJ5-- tevb fsar O 2R á
V<nx faux ete Veaacf* S:: 3,5 ímjbl-ö.
’acs lHtoaf,5g/ -
sesAt&T
í335!Bga «3» »®*catBMÉ&r© ' G - íígSs tL Z
Voit HökrJ'EKeu**'" «f cte JfcífltwoRr.t etetr&i*-**
■.aipiss&kn** r - dst PBcteecwMr* ay B - Qecnpaett
Ijiogftc* AYi'IÍI
% Jt Í4 10; 25 & tewcrtMBcs, 4 fcm par Ö SKS SZ.
öe Táuwm.^:AÍ p: x»19.*n»MCa*Jfc««
iÖf'S.3í3 'J. - .. r.: - V I? Y - í*.
MORGUNBLAÐIÐ
Þriggja stjömu staðir. Alain Ducasse í París og
Buerehicsel í Strassborg.
lækki veitingastaði í tign fyrst og
fremst til að hljóta athygli og um-
fjöllun í fjölmiðlum. Það er líklega
ofsögum sagt en vissulega vakti
stjörnumissir Tour d’Argent í París
í fýrra mun meiri heimsathygli en
ráðleggingar Michelin um einfalda
og ódýra veitingastaði. Margir hafa
líka bmgðist illa við er þeir misstu
stjörnu. Pierre Cardin neitaði að
hafa stað sinn Maxims með eftir að
hann missti þriðju stjörnuna á átt-
unda áratugnum og Alain Zick, mat-
reiðslumaður á Relais de Porquer-
olles í París, framdi sjálfsmorð í
kjölfar þess að staðurinn missti einu
stjörnu sína árið 1966.
Michelin-bækur era einnig gefn-
ar út fyrir fleiri Evrópuríki og í
Bretlandi, þar sem flesta þriggja
stjömu staðina utan Frakklands er
að finna (alls era þeir 36 og þar af
fjórir í Bretlandi), hefur Michelin
verið gagnrýndur fyrir að leggja of
mikla áherslu á hið franska en líta
niður á hið breska. Árbók þessa árs
virðist þó benda til allt annars því að
langflestir þeirra staða er hljóta við-
urkenningu falla undir skilgreining-
una Modern Brítish Cooking. Það á
til dæmis við um hástökkvara ársins
Gordon Ramsey en hinn nýi veit-
ingastaður hans Aubergine í Chel-
sea stökk upp í tvær stjörnur og er
talinn eiga miklar líkur á þremur á
næstu áram.
Það er annars vegar dulúðin og
hins vegar ái'eiðanleikinn sem hafa
byggt upp örðstír Michelin en fyrsta
árbókin kom út árið 1900. Michelin
tengist að sjálfsögðu dekkjafram-
leiðandanum með sama nafni (tekj-
umar af Michelin-ferðabókunum
sem era með þeim mest seldu á
markaðnum era einungis 2-3% af
heildai-veltu samsteypunnar) og
markmiðið var í upphafi að koma
nafninu á framfæri meðal bifreiða-
eigenda með handbók um vegahótel
og veitingastaði. Árið 1911 kom
fyrsta breska Michelin-bókin út.
Kannski er besta merkið um áreið-
anleika Michelin að þegar banda-
menn réðust inn í Frakkland til að
frelsa það frá Þjóðverjum árið 1944
vora yfirmönnum afhentar Michel-
in-bækur. Ekki þó til að þeir gætu
snætt vel meðan á hemaðarleið-
angrinum stóð heldur vegna þess
hversu nákvæm borgarkortin í bók-
unum vora.
Hvað er tilfinningaleg greind?
GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spumlng: Mikið er talað um til-
finningalega greind. Hvað er það?
Svan Ef mikið er talað um tilfinn-
ingalega greind heftu- það alveg
farið fram hjá mér. Þetta er ekki
hugtak sem mér er kunnugt um að
notað sé í sálarfræði. Það má þó
vafalaust heimfæra upp á mikil-
væga eiginleika í sálarlífi manns-
ins og kemur þá fyrst í hugann til-
finninganæmi. Orðið næmi er
vissulega notað um greind, en þá
er átt við vitræna eiginleika. Fólk
hefur bæði næma skynjun og
næman skilning á ytri atburðum
eða úrlausnarefnum, en tilfinn-
inganæmi er einkum notað um að
vera næmur á eigin tilfinningar og
líðan annarra, hafa innsæi í sjálfan
sig og geta sett sig í spor annarra.
Ef við nefnum það greind kallar
það á endurskoðun og útvíkkun á
því hugtaki og það hafa reyndar
margir fræðimenn fundið sig
knúða til að gera.
Greind í hefðbundnum skilningi
er hagnýtur eiginleiki, hæfileikinn
til að læra nýja hluti og laga sig
að nýjum aðstæðum. Greind í
þessum skilningi kemur best fram
í námshæfni og árangri í skóla og
greindarpróf vora reyndar upp-
haflega hönnuð til að mæla hæfi-
leika til náms. Sá sem mælist vel
greindur á greindarprófi og
stendur sig vel í námi þarf ekki að
vera tilfinninganæmur og stund-
um er það svo að greindir menn
leggja alla áherslu á skynsamlegt
vit, en loka á tilfinningar sínar og
þar með að veralegu leyti á upp-
sprettu framlegrar og frjórrar
hugsunar. Skapandi hugsun sækir
efnivið sinn í hið dýpra sálarlíf
þar sem hugsun er ákaflega til-
finningabundin og jafnvel órök-
ræn. Framleg sköpunargáfa
ræðst því sennilega fi'emur af
persónuleika einstaklingsins, inn-
hverfum eiginleikum, sem gera
honum kleift að komast í snert-
ingu við sinn innri mann, fremur
en mælanlegri vitænni hæfni. Góð
vitræn greind er honum þó nauð-
Greind
synleg til að geta nýtt sér þessa
eiginleika til fulls.
Margir íræðimenn hafa verið
ósáttir við það hvernig greind hef-
ur verið skilgreind og mæld. Þeir
telja að skólakerfíð leggi of mikla
áherslu á þekkingaröflun og hefð-
bundin vinnubrögð en afræki
framlega sköpunarhæfni. Ofan á
það bætist að samfélagið gerir
kröfur um að einstaklingurinn lagi
sig að siðum og venjum og sé eins
og hinir. Framlegir og hugmynda-
ríkir einstaklingar eiga erfitt upp-
dráttar og era oft litnir hornauga
þangað til snilli þeirra er lýðum
ljós löngu síðar.
Prófessor Matthías heitinn Jón-
asson fékkst mikið við rannsóknir
á greind og vann stórvirki á sviði
greindarmælinga með prófi sem
við hann er kennt. Hann var þó
ekki sáttur við að greind sé ein-
skorðuð við hinn vitræna þátt. í
bók sinni Framleg sköpunargáfa
(Rvík, 1976) gerir hann ítarlega
grein fyrir kenningum og rann-
sóknum fjölmargra fræðimanna
um sköpunarhæfni og snilligáfu.
Hann segir enn margt á huldu um
hvemig snjöllustu hugsýnir og
lausnir bæði listamanna og vís-
indamanna verða til, en telur jafn-
framt að með nýjum rannsóknar-
aðferðum verði unnt að skýra það
samspil meðvitundar og dulvit-
undai' sem þar á sér stað. Lýsing-
ar snillinga geta þó veitt okkur
nokkurt innsæi í hugarheim þeirra
á meðan á sköpun stendur. Mozart
lýsti því eitt sinn hvernig tónverk
sprettur fram í huga hans:
..öþá streyma hugmyndirnar
viðstöðulaust framö... Eg sé það
allt í einni svipan, rétt eins og ég
liti í anda yfir fagra mynd; alls
ekki eitt á fætur öðra, eins og það
hlýtur þó að koma að lokum, held-
ur heyri ég það í ímyndun minni
allt í sömu andráö... Það streymir
gegnum vitund mína eins og í
fögram draumi.“
Rannsóknir fræðimanna hafa
mikið beinst að því að skoða hvaða
persónuleikaþættir liggi til grand-
vallar frumlegri sköpunargáfu.
Gerðai' hafa verið rannsóknir á
hugvitsmönnum, vísindamönnum
og listamönnum í fremstu röð, sem
sýna m.a. að þeir eru óragari við að
taka áhættu og brjóta í bága við
grónar venjur og hefðir. Þeir era
innhverfari, draumlyndari og tíl-
finninganæmari en aðrir, en hafa
einnig að jafnaði meira sjálfstraust.
Tilfinninganæmi og innsæi í eig-
ið sálarlíf era eftir þessu mikilvæg
skilyrði framlegrar sköpunargáfu.
Kannski er það þetta sem átt er
við með tilfinningalegri greind.
• Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
sálfræðinginn um það sem þeim liggur
á hjarta. Tekið er á móti spurningum á
virkum dögum milli klukkon 10 og 17 i
síma 569 1100 og bréfum eða símbréf-
um merkt: Vikulok, Fox 5691222.