Morgunblaðið - 08.03.1997, Page 32

Morgunblaðið - 08.03.1997, Page 32
32 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1918 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. UPPSVEIFLAI EFN AH AGSLÍFI ÞJÓÐHAGSSTOFNUN hefur birt bráðabirgðatölur um þróun helztu hagstærða á liðnu ári. Þær tölur sýna, svo ekki verður um villzt, að umskipti í efnahagslífinu árið 1996 hafa verið það mikil og jákvæð, að með ólíkind- um er. Hagvöxtur á síðasta ári var mjög mikill, eða 5,7%, nokkru meiri en spáð hafði verið. Hagvöxturinn er með því mesta, sem varð í iðnríkjum heims þetta ár, og er sá mesti hér á landi allt frá árinu 1987. Þetta verða að teljast mikil og góð tíðindi fyrir íslendinga, sem hafa mátt búa við efnahagssamdrátt, atvinnuleysi og kaup- máttarrýrnun svo lengi. Þrátt fyrir þennan hagvöxt hélst verðbólgan í skefjum og var 2,3% milli áranna 1995 og 1996. Það er að vísu heldur meira en árin á undan, en verður þó að teljast viðunandi. Kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst um 4,5% á síðasta ári og hefur þá aukizt alls um 8% á tveimur árum. Þetta eru gleðitíðindi fyrir launþega, enda tölu- vert meiri kaupmáttaraukning en í flestum öðrum lönd- um. Atvinnuleysi hefur einnig farið minnkandi og nam 4,3% í fyrra, sem er mun minna en árið 1995. Yfirlit Þjóðhagsstofnunar sýnir einnig, að staða at- vinnulífsins hefur farið batnandi árin 1994-1996, en hreinn hagnaður fyrirtækjanna nam um eða yfir 3% af tekjum árlega á þessu tímabili. Þar hafa einnig orðið veruleg umskipti. Þá er ennfremur vert að hafa í huga, að afkoma ríkissjóðs batnaði að mun á síðasta ári og varð tekjuhallinn aðeins um helmingur þess, sem fjárlög ársins gerðu ráð fyrir, eða tæpir 2 milljarðar. Gert er ráð fyrir í fjárlögum ársins 1997, að ríkissjóður verði rekinn hallalaus, í fyrsta sinn frá árinu 1984. Gangi þetta eftir verða áhrifin mjög jákvæð á fjármagnsmark- aði og mun stuðla að lækkun vaxta. Það sem var neik- vætt í þjóðarbúskapnum á síðasta ári var 9,1 milljarðs króna viðskiptahalli, eða 1,9%, en afgangur nam 3,4 milljörðum árið áður. Hallinn stafar fyrst og fremst af aukinni flárfestingu, sem reyndar hefur verið alltof lítil mörg undanfarin ár. Horfur eru á áframhaldandi hagvexti, a.m.k. fram að aldamótum. Rætt hefur verið um 8-10% kaupmáttaraukn- ingu næstu þrjú árin. Þess vegna skiptir miklu að kjara- samningar takist á vinnumarkaði, sem treysti þessa þró- un. VIÐRÆÐUR UM JÁRN- BLENDIÐ SNURÐA hefur hlaupið á þráðinn í samningum ís- lenzkra stjórnvalda og samningamanna norska fyrir- tækisins Elkem um stækkun járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga. Elkem, sem á 30% í Járnblendifélaginu, hefur viljað eignast meirihluta í fyrirtækinu, sem metið er á 2,3 til 2,9 millj'arða króna. Þegar upp úr slitnaði á samningafundum í Osló taldi talsmaður íslenzkra stjórn- valda, að 100-140 milljónir króna bæri í milli samnings- aðila. í Morgunblaðinu í gær kom fram í máli Guðmundar Einarssonar, sem er framkvæmdastjóri járnblendi- og kísilmálmsviðs Elkem, að fyrirtækið líti svo á, að hlé hafi orðið á samningaviðræðunum og að enn séu mögu- leikar á samningum. Elkem virðist því ekki líta viðræðu- slitin eins alvarlegum augum og íslenzk stjórnvöld. Eftir að upp úr slitnaði í fyrri viku sagði Finnur Ing- ólfsson, iðnaðarráðherra, að viðræðuslitin væru „efna- hagslegt áfall fyrir okkur“ og hann sagði einnig: „Það eru vonbrigði að þetta skyldi ekki ganga upp. Þessi stækkun hefur verið undirbúin í langan tíma og við höf- um trúað því að þetta myndi takast þegar á reyndi. Nú er komið í ljós að eignaraðilar ná ekki saman um þær ákvarðanir sem þarf að taka til þess að af stækkun geti orðið.“ Miðað við ummæli Guðmundar Einarsson hjá Elkem virðist of mikil svartsýni einkenna viðbrögð iðnaðarráð- herra. Verður að vona, að samningar verði reyndir til þrautar. Sjópróf vegna strands Vikartinds haldin í Héraðsdómi ] KARL Guðmundsson, fulltrúi Eimskips um borð i Vikartindi, ræðir við Helga Hallvarðsson, skipherr Höfnuðu hjálp þi fyrir margar viðva Hvorki skipstjóri Vikartinds né fyrsti stýrímað- ur telja að skipið hafí verið í yfírvofandi hættu fyrr en það rak upp í fjöru. Ragnhildur Sverr- isdóttir fylgdist með sjóprófum í gær. Þar kom fram, að skipveijar voru oft hvattir til að þiggja hjálp, en neituðu alltaf. Hvorki skip- stjóri né 1. stýrimaður eru vanir siglingum við ísland og hvorugur þeirra kvaðst áður hafa þurft að varpa akkerum fyrir opnu hafí í 6-7 vindstiga álandsvindi, HAUKUR Már Stefánsson, forstöðumaður skipa- rekstrardeildar Eimskips, kom fyrstur fyrir réttinn. Hann rakti atburði miðvikudagsins, allt frá því að Eimskip bárust fyrstu upplýsingar um vélarbilun Vikar- tinds kl. 9.30. Þegar hann náði sam- bandi við skipið, um klukkustund síðar, sagði fulltrúi Eimskips um borð, hleðslustjórinn Karl Guð- mundsson, að skipið væri 7 sjómílur frá landi í 6-7 vindstigum og ræki að ströndinni. Klukkan 11 var vélin komin í gang á ný, en stöðvaðist aftur um kl. 12 og var þá útlit fyrir að skipið ræki upp í fjöru á tveimur stundum, væri ekkert að gert. Að frumkvæði Eimskips sendi Landhelgisgæslan Ægi á vettvang. Haukur Már sagði að skipstjóri Vik- artinds hefði ekki talið skipið í hættu, því jafnvel þó akkeri héldu ekki gæti skipið keyrt frá landi þrátt fyr- ir bilun í kælikerfi. Um svipað leyti óskaði þýska útgerðin eftir því við Eimskip, að haft yrði samband við Landhelgisgæsluna og samið um hugsanleg björgunarlaun. Haukur Már sagði að um kl. 14.30 hefði Karli Guðmundssyni ekki litist á blikuna. Skipstjóri hefði ekki þekkst boð Ægis um aðstoð, en spáð væri 9 vindstigum. Aðalvélin væri í gangi, en gæti aðeins gengið á „slow“ eða „dead slow“, sem þýddi ganghraða frá 3-5 mílum, miðað við að gott væri í sjóinn. Eimskip kannaði hvað það myndi kosta að fá Ægi til að fylgja skipinu til hafnar, þar sem mönnum leist ekki á að Vikartindur væri fylgdar- laus, að sögn Hauks. Landhelgis- gæslan svaraði því til að aðeins þyrfti að greiða beinan kostnað vegna sigl- ingarinnar. „Ég lét skipstjórann vita og lagði áherslu á að hann nýtti sér þessa þjónustu. Það yrði ekki liðið ef hann nýtti ekki alla möguleika á að koma skipinu í höfn,“ sagði Hauk- ur. Hann sagði að skömmu síðar hefði fulltrúi útgerðarinnar hringt og sagt að nú ætti að hífa akkeri og sigla. „Ég ítrekaði að þeir fengju Ægi til fylgdar. Hann spurði um kostnaðinn og ég flutti honum svör Gæslunnar." Þegar akkeri skipsins náðust ekki upp óskaði fulltrúi útgerðarinnar eftir að Eimskip kannaði kostnað við að ná þeim upp síðar og taldi það mögulegt þar sem staðsetning þeirra væri nákvæm samkvæmt GPS-tæki. Skipið er að farast Málin þróuðust hratt og kl. 18.30 hafði skipið þokast hálfri mílu nær landi en það var kl. 14. 30 metrar voru undir skipið, en Karl Guðmunds- son sá brimgarðinn skammt frá. MICHAEL Barz, skipstjóri þýska 1 ur til sjóprófa í Héra Haukur sagði að Karl hefði tjáð sér að hann væri áhyggjufullur og hefði rætt við gamlan skólafélaga sinn á varðskipinu. Þeir hefðu verið sam- mála um að best væri að Ægir tæki skipið í tog og þyrlan flytti hluta áhafnar á brott. Þessu hefði skipstjór- inn hafnað, en kl. 19 hefði verið ákveðið að koma taug á milli. „Stuttu seinna Sagt 8Í heyrði ég aftur í Karli. engan i Hann sagði að varðskipið jng við hefði komið línu yfir, en skil hún slitnað. Svo heyrði ég _______ hávaða í bakgrunni, sem var líklega þegar brotið reið yfír Ægi og Karl kallaði að varðskipið hefði misst mann fyrir borð. Nokkrum sek- úndum síðar rofnaði símasambandið, en þá hefur brotið líklega gengið yfir Vikartind. „Skipið er að farast,“ sagði ég þá við Hjörleif Þór Jakobsson, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs.“ Samband komst á við Vikartind skömmu síðar og þá sagði Karl skip- ið á fleygiferð upp í sandinn. Land- helgisgæslan sagði Ægi í stórhættu, en að þyrlan væri á leiðinni. Hjörleifur Þór Jakobsson staðfesti ummæli Hauks um að Eimskip hefði lagt mikla áherslu á það við þýsku útgerðina og skipstjórann að aðstoð varðskips yrði ekki afþökkuð, heldur yrði Ægir fenginn til að fylgja skip- inu til hafnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.