Morgunblaðið - 08.03.1997, Page 40

Morgunblaðið - 08.03.1997, Page 40
40 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 SIGRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR + Sigrún Guð- mundsdóttir var fædd á Heiðar- seli á Síðu 29. októ- ber 1894. Hún lést á Dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík 26. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Jónsson, f. á Reyni 13.8. 1867, d. i Vestmannaeyj- -y um 15.9. 1946, og Guðríður Ásgríms- dóttir, f. 29.11.1853 í Bakkakoti í Meðal- landi, d. 6.9.1904 á Stóru- Heiði í Mýrdal. Albræður Sigrúnar voru Vilhjálmur, f. 24.1. 1896 í Heiðarseli, og (Runólfur) Jón, f. 21.11. 1898 á Eyrarbakka. Þeir eru báðir látnir. Hálfsystk- ini Sigrúnar samfeðra eru (Guðríður) Egilína, Guðmundur og Sigurður. Þegar Sigrún var tveggja ára fluttust foreldrar hennar að Eyrarbakka, en sex árum seinna leystist heimilið upp vegna fátæktar. Sigrún fór þá "' í fóstur til Guðrúnar föðursyst- ur sinnar í Fagradal. Sigrún giftist 9. júlí 1916 Ólafi Jakobssyni, f. 3. mars 1895 í Skammadal, en hann kom með föður sínum að Fagradal árið 1907. Þau bjuggu í Fagradal til ársins 1954 og áttu þar heimili til ársins 1960 að þau fluttu til Víkur. Sigrún missti mann sinn 18. júlí 1985. Ari seinna flutti hún í þjónustu- íbúð í Hjallatúni og 1991 á ' y: Dvalarheimilið Hjallatún. Þau Sigrún og Ólafur eign- uðust átta börn. Þau eru: 1) (Magnús) Jón, f. 23.2. 1916, maki Ólöf E. Árna- dóttir, búsett á Sel- fossi. Þau eiga fimm börn og tíu barnabörn. 2) Sól- veig Sigurlaug, f. 19.6. 1918, býr á Norður-Fossi í Mýrdal. Maki Sig- ursveinn Sveinsson, f. 23.2. 1904, d. 20.10. 1980. Þau eignuðust sex börn, eitt þeirra dó í fæð- ingu. Barnabörnin eru sex og eitt fóst- urbarn. 3) Guð- ríður, f. 21.10. 1919, d. 21.10. 1984. Maki Pétur Sigurðsson, f. 30.7. 1921, býr í Vestmanna- eyjum. Þau eignuðsut sex börn, barnabörnin eru nítján og bamabarnabörn sextán. Sonur þeirra á tvö fósturböm og son- ardóttir eitt kjörbam. 4) Kjart- an, f. 22.3. 1921, d. 9.11. 1922. 5) Guðfínna Kjartanía, f. 16.9. 1923, býr í Vestmannaeyjum. Maki 1: Ingi Gunnar Stefáns- son, f. 7.8. 1918, d. 4.3. 1950. Þau eignuðust tvö böm og baraabörnin em fimm. Maki 2: Erlendur Stefánsson, f. 20.2. 1920, þau eiga þijá syni. 6) Jakob, f. 25.11. 1924, d. 9.5. 1926. 7) Jakob, f. 2.10. 1928, maki Elsa Pálsdóttir, f. 11.7. 1936. Þau búa í Vík og eiga einn son. 8) Óskar Hafsteinn, f. 23.9. 1931, maki Margrét S. Guðmundsdóttir, f. 20.7. 1939, búa á Laugarvatni. Þau eiga þijú böra og fjögur barnaböm. Sigrún átti 90 afkomendur á lífi þegar hún lést. Útför Sigrúnar verður gerð frá Víkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. „Að vinna er að sýna ást sína í verki.“ (K.G.) Þessi orð koma í hugann er ég hugsa um lífshlaup tengdamóður minnar, Sigrúnar Guðmundsdóttur. Hún var af þeirri kynslóð sem þótti eðlilegt að vinna langan dag til að hafa í sig og á, og lagði metnað sinn í að skulda ekki neinum neitt, meðvituð um að sælla er að gefa en þiggja. Það var éngin fyrirferð á henni en verkin voru unnin hratt og örugglega. Mér fannst er ég horfði á hendur hennar sem þeim þætti vænt um hvaðeina sem þær fóru um, brauðdeigið, borðklútinn, pijónana, pottablómin. Hvernig hún útbjó hversdagsmatinn, — reiddi fram veisluborð handa gest- um og gangandi af eðlislægri gest- risni og að því er virtist án nokkurr- ar fyrirhafnar. Soðinn fískur varð að veislumál- tíð í hennar höndum. „Meira að segja venjulegt búðarbrauð bragð- aðist mun betur hjá henni en ann- ars staðar," sagði eitt hennar mörgu bamabama er við ræddum um þessa töfrafíngur hennar ömmu. Hún var mikil hannyrðakona og notaði hveija stund sem gafst til að sauma út, hekla og pijóna. Allt var það unnið af sömu alúðinni, hugsað fyrir hveiju afmæli og eng- inn skyldi fara í jólaköttinn. Um- hyggja hennar fyrir fjölskyldunni var ómæld og náði raunar langt út fyrir hana. Meðan pijónamir tifuðu sagði hún frá draumum ungrar stúlku, sumir rættust, aðrir ekki eins og gengur. Móður sinnar naut hún aðeins fyrstu átta árin, en þá var henni komið í fóstur til föðursystur sinnar, Guðrúnar Jónsdóttur, hús- freyju í Fagradal, og bónda henn- ar, Magnúsar Bjömssonar, en hann lést tveim áram eftir að Sigrún kom til þeirra. Hún taldi sig hafa lært mikið af Guðrúnu, frænku sinni, sem hefði verið framúrskarandi húsmóðir. Seinni maður Guðrúnar var Jakob Þorsteinsson en hann kom ráðsmaður að Fagradal árið 1907 með son sinn, Ólaf, 12 ára gamlan. Engan mann kvaðst Sigrún hafa þekkt fremri Jakobi fóstra sínum og síðar tengdaföður, að mann- gæsku. Hún taldi sig hafa verið láns- manneskju. „Við unnum mikið en fengum alltaf nógan mat.“ Fýllinn var sóttur í björgin og silungur í ána. Hugur hennar stóð snemma Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (5691115) og í tölvupósti (MBL@CENTRUM.IS). Um hvern látinn einstakling birtist ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þijú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfrétt- ir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. MINNINGAR til að læra ljósmóðurfræði, en fyrr en varði var hún lofuð Ólafi Jakobs- syni og draumar ungrar stúlku um að hleypa heimadraganum lagðir á hilluna. Hún var húsfreyja á stóra heim- ili í þjóðbraut, þar sem gestakomur vora tíðar á nóttu sem degi. Börnin urðu átta. Tveir synirnir dóu ungir, Kjartan og Jakob. Sögðu kunnugir að þeim missi hefði hún tekið af æðruleysi, hún vitjaði reglulega um litlu leiðin sín, hlúði að þeim og signdi yfir. Þótt vinnudagur væri langur taldi hún ekki ástæðu til að gera mikið úr því, hún hefði átt svo góðan mann sem hjálpaði henni af ein- stakri natni með bömin, þvoði þeim og kom í bólin sín, sem þótti tiltöku- mál á þeim tíma, þar sem verka- skipting kynjanna var mjög skýr. Sigrún var mikið náttúrabam. Draumar vora henni jafnan íhugun- arefni og dreymdi hana oft fyrir daglátum. Nágranna átti hún góða í hólum og klettum. Hæst bar þó trúna á góðan Guð sem hún fól umsjá alls. Þau Sigrún og Ólafur fluttu til Víkur árið 1960. Þar leið þeim vel og eignuðust góða nágranna og vini. Guðríði, dóttur sína, misstu þau haustið 1984. Þá sá ég minni góðu tengdamóður fyrst brugðið. Ari eftir lát Ólafs flutti hún í þjónustuíbúð í Hjallatúni, þá var heilsan farin að gefa sig svo ekki þótti forsvaranlegt að hún byggi ein í húsinu. í íbúðunum í kring bjuggu gamlir vinir og sveitungar sem skiptust á heimsóknum og alls staðar var heitt kaffi á könnu. En fimm áram síðar flyst hún í eins manns herbergi á Dvalarheim- ili aldraðra, Hjallatúni, með allri þjónustu sem því fylgir. Þessi vista- skipti urðu henni erfið. Skamm- tímaminnið brást, sjónin dapraðist og loks gat hún ekki lengur séð til að pijóna lítinn sokk. Hendumar sem áður unnu og veittu af örlæti og hlúðu að öllu kringum sig þurftu nú að þiggja þjónustu af öðram. Þótt ört hallaði undan fæti átti hún sínar góðu stundir og minnist ég sérstaklega 100 ára afmælis hennar, en þá lék hún á als oddi umkringd af á annað hundrað af- komendum og vinum. Á Hjallatúni naut hún mikillar umhyggju og hlýju starfsfólks og vistmanna sem léttu henni síðasta áfangann. Hjá sínu fólki uppskar hún eins og hún hafði sáð til, bömin hennar og fjölskyldur þeirra fylgdust vel með henni og sýndu henni mikla ræktarsemi, að ógleymdum Jó- hannesi Brandssyni sem dvaldi á bernskuáram sínum oft í Fagradal og reyndist henni alla tíð sem besti sonur. Með lífí sínu og starfí gaf hún meira en fátækleg þakkarorð fá tjáð. Blessuð sé minning hennar. Margrét Steina Gunnarsdóttir. Það er ávallt merkilegt þegar manneskja nær þeim stóra áfanga í lífinu að verða 100 ára og því náði hún amma í Vík, meira að segja gott betur en það. Heil öld er langur tími og sú öld sem nú er að renna sitt skeið á enda, 20. öldin, hefur markað sérstöðu í sögu þjóðarinnar, raunar heimsins alls. Barátta þjóðarinnar fyrir sjálfstæði stóð hátt, ósjaldan við kröpp kjör og bágar aðstæður, í skugga heimsstyijalda og náttúruhamfara. En þrátt fyrir allt hafði hin íslenska þjóð betur, hrósaði sigri og lýsti yfir sjálfstæði. Við sem yngri eram getum ekki annað en dáðst að dug og þrautseigju þessarar kynslóðar; vonað að okkur takist að nýta það mikla veganesti sem hún hefur fært okkur inn í framtíðina. Ótrú- legar breytingar á atvinnuháttum hafa einnig átt sér stað og tækni- þróun þessarar aldar er svo hröð að henni verður vart fylgt. Já, þessa viðburðaríku öld hefur hún amma lifað og verið þátttak- andi á sinn hátt. Haldið myndarlegt heimili ásamt eiginmanni sínum, honum afa, Ólafi Jakobssyni. Sam- an eignuðust þau bamahóp sem þegar hefur margfaldast og munu afkomendumir nú vera komnir fast að hundraðinu. En nú er hún amma farin frá okkur, horfin yfir móðuna miklu til móts við nýja birtu og ljúfa endurfundi. Við hin stöndum eftir með minninguna um hlýja og dug- mikla konu, stöndum í djúpri þökk fyrir að hafa átt hana að og notið nærveru hennar. Amma og afi bjuggu lengst af í Fagradal en fluttust síðan til Vík- ur sumarið 1960. Afi var mikill sigmaður og ófáar eru þær sögur sem um hann lifa í fýlatekju í Fagradalshömram. Að sjá þennan unga og tápmikla mann fyrir sér hoppa á milli syllnanna, léttan á fæti í lóðréttu hamrabeltinu, er yndisleg mynd og dýrmæt fyrir okkur afkomendurna að eiga. Svo ekki sé minnst á þann heiður að hafa átt afa sem sýndi bjargsig á Alþingishátíðinni 1930. Sú minning sem mér er hvað sterkust af afa er þegar ég var hjá þeim í Víkinni og hann sagði við mig: „Jæja, frændi, eigum við að tak’einn?" En það þýddi að nú skyldi spilaður ólsen sem var fastur liður í sam- skiptum okkar tveggja. Ég kunni afar vel við þennan samskiptamáta því þar náði ég afa dálítið einum útaf fyrir mig. Létt spjall í bland við spilamennskuna gaf okkur tækifæri til að kynnast eilítið betur og þannig eignaðist ég sjálfur nota- legar minningar um hann afa í Vík. Það var ætíð notalegt að heim- sækja ömmu og afa á Víkurbraut 30, í „húsið“ eins og amma kallaði það jafnan. í þau tæp tuttugu ár sem ég man eftir ömmu fannst mér hún ekkert breytast og ótrú- legt var hve vel hún hélt sér þrátt fyrir háan aldur. Ljúfar og innileg- ar móttökur birtu þá hlýju sem skein úr öllu hennar fasi og mynd- arlegt heimilið bar vitni um þann dugnað sem að baki lá. Við amma ræddum oft saman og margt bar þar iðulega á góma: Mannlífið í sveitinni, skepnumar, veðrið og svo auðvitað frændfólkið. Ömmu var afar annat um hag afkomenda sinna og sýndi mikinn áhuga á því sem hver og einn hafði fyrir stafni. Hún kom líka gjarnan með þarfar ábendingar um það að draga nú ekki um of að finna rétta makann og stofna fjölskyldu — og alltaf var stutt í brosið hjá henni og glettn- ina. Eftir að afi féll frá, sumarið 1985, flutti amma fljótlega á dval- arheimilið Hjallatún og þá þótti mér afar vænt um að sjá hve vel hún kom sér þar fyrir, allt bar sama svipmót og verið hafði í „húsinu“. í samræðum okkar ömmu fannst mér alltaf skemmtilegast þegar hún fór að ræða um liðna tíma, segja frá búskapnum í Fagradal, lýsa æskuárum sínum, draumum og væntingum. Hún var ótrúlega minnug langt aftur í tímann og því varð frásögnin einkar lifandi í með- förum hennar. Trúin reyndist ömmu alla tíð öraggt haldreipi, það mátti vel heyra í orðum hennar, bæði um fortíð og framtíð. Það var unun á að hlýða hve trúin var eðlilegur og sjálfsagður þáttur í lífi hennar. Og þegar við hittumst í síðasta sinn nú fyrir fáum vikum sagði hún við mig: „Ég vona bara að blessaður Skaparinn fari nú að kalla mig aftur til sín.“ Það eru einlæg orð eins og þessi, af vöram hinnar traustu lífsreyndu konu, sem styrkja trú mína og gefa henni aukið gildi — orð sem segja meira en margar prédikanir. Elsku amma, þakka þér fyrir góðar samverustundir og allt sem þú hefur gefið mér. Guð blessi þig. Óskar Hafsteinn Óskarsson. Það var mikið ævintýri ungum börnum úr Flóanum að fá að heim- sækja ömmu og afa í Fagradal. Um miðbik aldarinnar þegar veg- irnir voru öðruvísi en þeir eru í dag tók það óratíma að ferðast frá Sel- MORGUNBLAÐIÐ fossi austur í Mýrdal með mjólkur- bíl eða rútu. í Fagradal var veröld- in allt öðravísi, há fjöll og grasi vaxin, leyndardómsfullir hellar og bæjarlækurinn sem skoppaði svo skemmtilega hávær niður hlíðina. Fólkið varð líka eldra, við áttum þama gamlan Iangafa með sítt og mikið skegg og svo talaði það öðra- - vísi, amma notaði skjólu en ekki fötu, klukkan hennar flýtti sín og kartöflumar vora settar niður í des en ekki í beð eins og heima hjá okkur. Afi seig í björg og sótti fyl- inn sem amma matreiddi og auðvit- að þótti okkur hann góður eins og allt hjá ömmu og afa. Seinna eftir að ég varð fullorðin og leiðin austur hafði styst til muna, kynntist ég ömmu minni betur. Þá vora þau afi flutt til Vík- ur og þar fagnaði hún barnabörn- unum og svo barnabarnabörnunum af sömu hlýju og áður. Hún hafði yndi af blómum og prýddu þau garðinn hennar, vel hirt og litskrúð- ug. Svo var hún sípijónandi sokka og vettlinga og ekki brást mjúki pakkinn frá ömmu og langömmu á jólum og afmælum því þrátt fyrir að afkomendunum fjölgaði stöðugt mundi hún eftir afmælisdögum þeirra allra. Hún var létt og kvik á fæti og varla leið sá dagur að hún færi ekki gangandi fram að sjó. Enn seinna eftir að afi dó og amma átti orðið heimili í Hjallatúni var skemmtilegt og fróðlegt að sitja hjá henni, spjalla um gamla daga, hlusta á hana segja frá æsku sinni og búskap í Fagradal og miðla okkur af reynslu langrar ævi og lífsháttum fyrri tíma. Eftir að hún komst ekki lengur gangandi fram að sjó naut hún þess að horfa út á hann frá Hjallatúni, en þaðan er einkar fagurt útsýni yfir Víkur- þorp, Reynisdranga og fjöruna góðu. Þarna var vel hugsað um hana ömmu á vistlegu og notalegu elliheimilinu og ber að þakka starfsfólkinu og heimilisfólkinu öllu fyrir góða umönnun og samfylgd síðustu æviárin. Ég vil þakka henni Sigrúnu ömmu minni fyrir allt sem hún var okkur systkinunum og börnunum okkar, fyrir allar góðu minningarn- ar sem við eigum um hana og Mýrdalinn fagra. Steingerður Jónsdóttir. Amma Sigrún er látin. Það ætti þó ekki að koma á óvart, því að árin voru orðin mörg og heilsan búin. Að við getum ekki heimsótt hana lengur er staðreynd sem við eigu erfitt að trúa, svo ríkan þátt átti hún í lífi okkar. Ótal minn- ingarbrot koma í hugann. Ferðir austur í Fagradal þegar amma og afi bjuggu þar. Seinna eftir að þau fluttu til Víkur var litla húsið þeirra okkar athvarf, hvort sem það var skólaganga eða vinna í Vík. Kök- urnar hennar ömmu vora einstakar og það var eins og það væri enda- laust til kaffi í litla brúsanum henn- ar. Amma var gjafmild kona og nutum við systkinin þess ríkulega. Þá hafði hún þann hæfileika að sjá ýmislegt fyrir og oftar en ekki var tekið mið af því við sláttinn á Fossi. Jólaboðin eru okkur minnisstæð, þá kom amma ásamt fjölskyldu sinni að Fossi og var þá oft glatt á hjalla og spilað langt fram á nótt. Á nýársdag fóram við svo til ömmu þar sem nýju ári var fagnað með matarveislu og spilamennsku. Fyrir allt þetta þökkum við af al- hug. Síðustu tíu árin bjó amma á dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík þar sem hún naut frábærrar umönnun- ar og viljum við alveg sérstaklega þakka því góða fólki, sem þar vinn- ur, þá miklu hlýju og góðvild, sem þau sýndu ömmu okkar. Einnig þökkum við Jóhannesi Brandssyni fyrir hans miklu natni og hugulsemi sem hann ætíð sýndi ömmu. Við kveðju ömmu með mikilli virðingu og þökk fyrir allt það sem hún var okkur. Guð varðveiti þig, elsku amma. Ólafur, Jóhanna, Sveinn, Sigurður og Runólfur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.