Morgunblaðið - 08.03.1997, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 45
MINNINGAR
að hruni komið. Múrningin hafði
i fallið af í stórum flygsum. Gott
ef reykháfurinn stóð uppi. Utan
um húsið hafði verið slegið upp
vinnupöllum, en sömu álög hefðu
náð til þeirra, þeir voru hvítir af
veðrun, og engin merki um við-
gerðir sjáanleg. Jafnvel glugga-
tjöldin litu út eins og þau hefðu
ekki verið hreyfð síðan fyrir stríð.
Og garðurinn laut sömu lögmálum
líka. Allt greip þetta mig föstum
. tökum.
Einn góðan veðurdag síðastliðið
sumar hafði ég loks látið verða
af því að hefja leit að föðurfólki
mínu sem ég þá þekkti lítið til,
enda fósturbam. Nú hafði ég fund-
ið Albert Sölva og numið af orðum
hans og aðstæðum að hugur hans
fór sínu fram hvort sem eigandan-
; um líkaði betur eða verr.
Ég hafði í nokkur skipti komið
að húsinu til að ná fundi íbúanna
| en engin verið innandyra, innan
við feisknar útihurðimar, nema
stæðilegur hundur, grimmur og
truflaður. Hundurinn smeygði sér
gegnum húsið jafnharðan og ég
leitaði nýrra dyra, og brást við
mér með miklum ófriði. En nú
hafði hundurinn verið lokaður inni
í einhveiju herbergja hússins. Þau
era á annan tug og ekki öll lívera-
hæf vegna leka.
Við náðum strax vel saman, ég
og Albert Sölvi, líkt og við hefðum
báðir upplifað dvöl á sömu eyði-
eyju. Ég vissi ekkert um þennan
mann. Hann byijaði kynnin á að
benda upp í loftið þegar hann sá
að mér varð starsýnt á flekkótt
veggfóðrið í stofunni þar sem ég
sat, og mælti af raust: Þakið lek-
ur! — Og svo ekki meira um það.
Það var burðarás í þessum
frænda mínum sem allt varð að
víkja fyrir. Hann virtist ekki hugsa
til þess sjálfur. Þennan sólskins-
dag í sumar er leið sagði hann
mér tíðindi af skáldsögu sem hann
hafði ritað á ensku ásamt félaga
sínum á Intemetið og gefið út á
netinu, í samvinnu við fyrirtæki í
Ástralíu - sögu um þijár kynslóð-
ir írskra innflytjenda á tíma kart-
öfluskortsins, sagði Albert, - eins
og ekkert væri sjálfsagðara en ég
væri inni í málinu. Hann hélt á
stórri, boginni reykjarpípu allan
tímann, og bar hana hátt. Við stól-
inn stóð hálffullur kútur af kók.
Og stafur sem mér þótti liggja
beint við að hann hefði þarna til
að lyfta stórvöxnum líkamanum
upg úr setinu.
Ég fann af handtakinu, þegar
ég hafði vikið mér að honum aftur
á kveðjustund, að hann seildist
með því allt til forföður okkar,
Gísla Konráðssonar fræðimanns.
Kunnastan meðal íslenskra of-
virkja.
Albert Sölvi nam á sjö árum
sagnfræði og bókmenntir við
bandarískan háskóla, um og eftir
upphaf níunda áratugarins. Hann
kenndi þessi fræði við Verk-
menntaskólann á Akureyri. Hann
æfði hnefaleika í fimm ár. Hann
starfaði sem næturvörður á Hótel
KEA í átján ár. Og sem dyravörð-
ur k skemmtistað um tíma.
í hálfan annan áratug gengu
laun hans upp í verðtryggð náms-
lán svo ekkert var aflögu, en um
síðustu jól, þegar ég hitti hann
öðra sinni, sagði hann mér stoltur
að nú ætti hann í fyrsta sinn fé í
banka. Þá var búið að gera við
þakið og farið að klæða múrinn
að utan. Akureyrarbær var í þá
daga eins og mynd á jólakorti.
Albert sat í Maóstólnum með píp-
una á lofti eins og áður.
Málfarið minnti á þýðingu eftir
Steingrím Thorsteinsson. En um-
ræðuefnið var sálfræðiþriller sem
hann nú hafði skrifað á Internetið,
um alþjóðlega glæpamenn og
fleira ófagurt. Framan við Albert
í stólnum stóð tölvubúnaðurinn og
handan við sjónvarpsskjár og á
honum þingmenn í önnum sínum
þessa síðdegisstund.
Stæður af videóspólum vora í
hillum að baki hans. Þær hafði
hann fyllt af gamanþáttum úr
sjónvarpinu til að læra af hrynj-
andi enskrar tungu og nema af
þá punkta sem helst hræra við
áheyrendum. Ég var aftur sestur
að kökunum hennar Kristínar
frænku. Hún leit öðra hveiju inn-
fyrir hengið, brosmild og móleit,
hún minnti mig á sígauna.
Albert Sölvi talaði um áhuga-
mál sín og feyran í veggfóðrinu
fyrir framan mig var orðin að
sögulegum minjum fyrir tilliti
mínu. Hann talaði um söguþróun-
ina sem hann sagði að tæki stökk
á sjötíu ára fresti. Um byssueign,
sem hann sagði loftvog á kerfið;
því takmarkaðri þeim mun líklegra
að yfirgangssemina bæri niður á
fleiri sviðum. Sjálfur reyndist hann
eiga nokkra tugi sem hann mat
eins og listaverkasafnari málverk
sín. Hann bar saman leiki félaga
sinna á Oddeyri þegar hann var
krakki og barna nú um stundir.
Hversu grimmilega sem barist var
hvarflaði ekki að neinum annað
en rétta föllnum hjálparhönd ef
þörf krafði. Það er annað nú. Það
var í senn hryggð og undran í
röddinni þegar hann mælti þessi
orð.
Svo frétti ég að Albert væri í
senn sykursjúkur og hjartveikur.
Engin æðra þar. Um það var ekki
talað.
Albert kom mér fyrir sjónir
þessar dagsstundir sem ég naut
samvista við hann sem einstaklega
drenglundaður maður. Hugur
hans ætlaði honum meira en hjart-
að þoldi.
Þorsteinn Antonsson.
AOAUGLVSI 1 1 M < u DC
TILKYNNINGAR
w
Aburðarflutningar
>
>
Tilboð óskast í flutning á 730 tonnum af áburði
á 33 bæi í Skaftárhreppi.
Tilboðum skal skila fyrir 17. marstil Þórarins
Bjarnasonar, Þykkvabæ 1, 880 Kirkjubæjar-
klaustri, sem einnig gefur nánari upplýsingar
í símum 487 4704 og 852 2638.
ÖLFUSHREPPUR
FUIMOIR/ MANNFAGNAOUR
GEÐHJÁLP
Aðalfundur
Geðhjálpar
Verður haldinn laugardaginn 22. mars kl. 14.00
í félagsmiðstöðinni, Tryggvagötu 9.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð
fram tillaga að skipulagsskrá fyrir Styrktarsjóð
Geðhjálpar og að stefnu Geðhjálpar í geðheil-
brigðismálum.
Stjórnin.
FÉLAGSSTARF
Auglýsing um lausar
iðnaðarhúsalóðir
í Þorlákshöfn
l ..
| Olfushreppur auglýsir iðnaðarhúsalóðir við
Óseyrarbraut 14a og 14b, með aðkeyrslu frá
Hafnarskeiði, lausartil umsóknar. Hvor lóð
er rúmir 2000 fm með nýtingarhlutfall 0,4.
Sækja skal um báðar lóðirnar og byggja á
þeim saman hús með 6-8 bilum. Áfangaskipta
má byggingunni og þá byggja fyrsta áfanga
fyrrihluta ársins 1997 og seinni áfangann inn-
an umsaminna tímamarka. Hugsanlegir kaup-
; endur eru að tveimur eða fleiri bilum.
| Þeir, sem áhuga hafa á þessum lóðum, fá upp-
lýsingar og umsóknargögn hjá byggingarfull-
trúa Olfushrepps, Selvogsbraut 2, 815 Þorláks-
höfn, sími 483 3800 og símbréf 483 3536.
Umsóknum skal skila fyrir 12.00 á hádegi
24. mars nk.
Sveitarstjóri Ölfushrepps.
I
NAUÐUNGARSALA
1 Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Aðalstræti 12,
415 Bolungarvík, midvikudaginn 12. mars 1997 kl. 15.00 á
eftirfarandi eignum:
Hreggnasi, e.h., norðurendi, þingl. eig. Guðbjartur Kristjánsson, gerð-
arbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Máni ÍS 59, þingl. eig. Hornvík ehf., b.t. Óttars Överby, gerðarbeiðendui
Símon Richard Turner og Sparisjóður Önundarfjarðar.
Sýslumaðurinn í Bolungarvik,
7. mars 1997.
Jónas Guðmundsson.
ÓSKAST KEYPT
Tveir sumarbústaðir
óskast
Óska að kaupa tvo vandaða sumarbústaði ca
40 fm og ca 60 fm, sem eru í byggingu eða
nýlegir og gott er að flytja.
I Vinsamlega hringið í síma 892 0018 næstu
daga.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag-
anna í Hafnarfirði
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði er boðaðtil áríð-
andi fundar í Sjálfstæðishúsinu mánudaginn 10. mars kl. 20.00.
Fundarefni:
Málefni Sjálfstæðisflokksins í minnihluta í bæjarstjórn.
Stjórnin.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
Lyfjaverksmiðja
Óskum eftir að ráða eftirtalið starfsfólktil starfa
í lyfjaverksmiðju okkar á Reykjavíkurvegi 78,
Hafnarfirði.
1. Lyfjafræðing í framleiðsludeild.
2. Starfsfólk í pökkunardeild.
3. Starfsfólk í framleiðsludeild við blöndun
og töfluslátt. Æskilegt er að umsækjendur
hafi menntun og/eða reynslu á sviði véla-
vinnslu.
4. Starfsmann til þess að byggja upp fyrir-
byggjandi viðhaldskerfi á tækjum og búnaði
framleiðslu- og rannsóknardeildar, annast
kvarðanir mælitækja (voga, hita/rakanema,
rannsóknarmælitækja o.s.frv.).
Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun
á sviði verkfræði, tæknifræði, vélvirkjunar
eða sambærilegu.
Vinnutími frá kl. 8-16 virka daga.
Um vaktavinnu getur einnig verið að ræða.
Reyklaus vinnustaður.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstof-
unni.
Umsóknarfrestur er til 20. mars nk.
Öllum umsóknum verður svarað.
Delta hf.,
Reykjavíkurvegi 78,
Hafnarfirði,
sími 555 3044.
Sandgerðishöfn
Starf hafnarstjóra
Hafnarstjórn auglýsir starf hafnarstjóra laust
til umsóknar. Umsóknarfrestur ertil 26. mars.
Um er að ræða krefjandi starf í einni umsvifa-
mestu útgerðarhöfn landsins. Nánari upplýs-
ingar veitir bæjarstjóri á skrifstofu Sandgerðis-
bæjar alla virka daga frá kl. 9—12.
F.h. hafnarnefndar,
Sigurður Valur Ásbjarnarson,
bæjarstjóri.
SMAAUGLYSINGAR
FÉLA6SLÍF
Sálarrannsóknafélag
Suðurnesja,
Víkurbrrut 13,
Keflavík.
Fjöldafundur
Valgaröur Elnarsson, miðill, heldur
fjöldafund í húsi félagsins, Vikurbraut
13, sunnudaginn 9. mars kl. 20.30.
Húsið opnað kl. 20.00. Allir velkomnir.
SAMBAND ÍSLENZKFiA
'igdtr KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðsvikan í Reykjavík
Samkoma á Holtavegi 28, kl. 20.30
i kvöld.
„Drottinn minn og Guð minn!"
Jesús og Tómas.
Upphafsorð og bæn: í höndum KSS.
Ræðumaður: Karl Jónas Gislason.
Krapf: Umsjón KSF.
Ragnheiður Hafstein syngur.
Allir velkomnir.
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma i dag kl. 14.
Allir hjartanlega velkomnir.
BAHÁ’Í
OPIÐ HÚS
Laugardagskvöld kl. 20:30
Eðvarö T. Jónsson
talar um ris og
fall siömenningar.
Katfl veitingar.
Álfabakka 12, 2. hœð
sími 567 0344
Dagsferð 8. mars
kl. 8.00 Fjallanámskeið. Kennd verði
undirstöðuatriði i notkun brodda, linu
og isaxar.
Dagsferðir 9. mars
kl. 10.30 Raðganga Útivistar, 5. áfang
Kirkjuhöfn-Stóra Sandvík.
Kl. 10.30 Skiðaganga, Bláfjöll, Þríhnúk-
ar, Grindarskörð.
Netslóð http://www.centrum.is/utivii
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Sunnudagsferðir 9.mars
kl. 10.30 Skiðaganga yfir Leggjarbrjó
Kjósarskarð til vara. Verð 1.500 kr.
Botnsdal frestað. Brottför frá BSÍ,
austanmegin og Mörkinni 6.
Kl. 13.00 Mörkin 6 — Fossvogsdalur,
fjölskylduganga. Mæting við Mörkina,
ekið i Skógræktina og gengið til baka i
um 1,5 klst Minnum á kvöldvökuna
um Ferðabók Konrads Maurers mið-
vikudagskvöldið 12. mars kl. 20.30 i
Mörkinni 6.
Ferðafélag íslands.
Pýramídinn
- andleg miðstöð
Opið hús
Ellen Sveinsdóttir heil-
ari er með bæna- og
þróunarhringi öll þríðju-
dagskvöld. Verð 500 kr.
Allir velkomnir.
Pýramídinn,
Dugguvogi 2,
simi 588 1415.