Morgunblaðið - 08.03.1997, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 49 ■
Alþjóðlegnr baráttudagur kvenna
Opinn fundur verð-
ur í Ráðhúsinu
OPINN fundur verður sunnudaginn
9. mars kl. 14 í Ráðhúsi Reykjavíkur
í tilefni alþjóðlegs baráttudags
kvenna. Fundarstjóri verður Guðrún
Ebba Ólafsdóttir, varaformaður KÍ.
Allt frá árinu 1910 hefur 8. mars
verið Alþjóðlegur baráttudagur
kvenna fyrir friði og jafnrétti. Víða
um heim safnast konur saman á
þessum degi í viðleitni til að vinna
að velferð kvenna og barna og í
baráttu sinni fyrir friði og afvopnun.
Kvennaráðstefnan í Beijing og fjöldi
funda sem haldnir hafa verið í kjöl-
far hennar hafa virkað sem nýr afl-
vaki hreyfingar kvenna og í ár koma
konur saman í jafn ólíkum löndum
og t.d. íslandi, Frakklandi, Suður-
Afríku, Indlandi, Brasiiíu, Portúgal
og ísrael, segir í fréttatilkynningur.
Á fundinum í Ráðhúsinu flytur
María S. Gunnarsdóttir, MFÍK,
ávarp í tilefni Alþjóðlegs baráttu-
dags kvenna 8. mars og Helga
Kress, prófessor flytur erindið: Kon-
ur úr huldum stað. Þær sem flytja
ávarp eru Anna Sjöfn Jónasdóttir,
verkakona í Dagsbrún, Ragnhildur
Guðmundsdóttir, varaformaður
BSRB og Elna Katrín Jónsdóttir,
formaður HÍK.
Ljóðadagskrá í samantekt Arnars
Jónssonar, leikara, verður fiutt og
verða flytjendur með honum Edda
Þórarinsdóttir og Anna Kristín Arn-
grímsdóttir, ieikarar. Ljóðadagskrá-
in verður táknmáistúlkuð. Ingibjörg
Haraldsdóttir skáld les ljóð og Gunn-
hildur Hrólfsdóttir barna- og ungl-
ingabókahöfundur les upp.
SIGURLIÐ 12-15 ára frá keppninni í fyrra,
Alþjóðleg
kattasýning
í Kópavogi
KYNJAKETTIR, Kattaræktarfélag
Islands, heldur sunnudaginn 9. mars
sína 10. sýningu í reiðhöll Gusts í
Kópavogi.
126 kettir eru
skráðir á sýning-
una og er þar að
finna ketti af öllum
þeim tegundum
sem til eru hér á
landi, t.d. persa,
exotic, abyssiníu,
síams, balí, oriental
og norska skógar-
ketti að ógleymd-
um húsköttum.
Sýningin verður opnuð kl. 10 og
lýkur kl. 18. Verð fyrir fullorðna er
400 kr. og 200 kr. fýrir börn, ellilíf-
eyrisþega og öryrkja. Þrír alþjóðlegir
dómarar dæma kettina.
Myndarlega
verði staðið að
rekstri heil-
brigðisþj ónustu
NÝSTOFNAÐUR aðgerðahópur
Styrktarfélags aldraðra á Selfossi í
réttinda- og kjaramálum aldraðra
sendi nýverið frá sér ályktun um
nokkur af baráttumálum aldraðra.
Niðurlag ályktunarinnar féll niður í
frásögn blaðsins og fer hér á eftir:
„Aldraðir íslendingar gera kröfu til
þess að stjómvöld standi myndarlega
að rekstri heilbrigðisþjónustunnar
sem og öðrum þáttum velferðarkerf-
isins, þessum mikilsverðu þjónustu-
þáttum sem gamla fólkið í dag lagði
metnað sinn í að byggja hér upp á
langri starfsæfi sér og sínum til
handa.
í ljósi þess teljum við kröfur okkar
hvorki betl né ósanngjarnar í neinu
tilliti.
Ollum má ljóst vera að aldraðir
eru seinþreyttir til vandræða en
munu þó aldrei líða það baráttulaust
að áunnin réttindi og kjör séu af
þeim tekin.“
Hraðskákmót
Hellis
HRAÐSKÁKMÓT Hellis verður
haldið mánudagskvöldið 10. mars kl.
20. Tefldar verða 5 mínútna skákir,
7*2 umferðir eftir Monrad kerfi.
Teflt verður í Þönglabakka 1, Mjódd.
Heildarverðlaun mótsins verða
10.000 kr. Þátttökugjald er 300 kr.
fýrir fullorðna félagsmenn en 400
kr. fyrir aðra og fyrir unglinga 15
ára og yngri 200 kr. fyrir félags-
menn og 300 kr. fyrir aðra.
Nemenda-
sýningog .
liðakeppni
NEMENDASÝNING Dansskóla
Jóns Péturs og Köru verður
haldin á Hótel íslandi sunnudag-
inn 9. mars nk. Þar munu allir
nemendur í barna- og unglinga-
hópum skólans ásamt nokkrum
fullorðinshópum koma fram
með sýnishorn af því sem þeir
hafa lært í vetur. Húsið opnar
kl. 13 og hefst sýningin kl. 14.
Strax að lokinni sýningu kl.
15 hefst liðakeppni á milli dans-
skóla og hefur nokkrum dans-
skólum verið boðið til leiks. Þar
munu flest af sterkustu danspör-
um Islands sem mörg hver hafa
verið að gera það gott á er-
lendri grundu eigast við á dans-
gólfinu. Keppt verður í tveimur
aldursflokkum, 15 ára og yngri
og 16 ára og eldri. Hvert lið
samanstendur af fjórum dan-
spörum, tveimur sem dansa suð-
ur-amerísku dansana og tveim-
ur sem dansa standarddansa.
Fimm dómarar munu dæma
keppnina.
Miðar á sýninguna og keppn-
ina verða seldir á Hótel íslandi
9. mars og hefst miðasala kl. 13.
Frítt er fyrir 11 ára og yngri
en aðgangseyrir fyrir 12 ára og
eldri er 400 kr.
-----» ♦ 4
Gengið á reka
með Útivist
í NÆSTSÍÐASTA áfanga rað-
göngu Útivistar „Gengið á reka“
sunnudaginn 9. mars verður geng-
ið með ströndinni frá bæjarstaði
Litlu-Sandhafnar í Gömlu Höfnum
út- á Eyri og síðan eftir Hafna-
bergi að bæjarstæði Skjótastaða
og niður á Stóru-Sandvík.
Á leiðinni verða rifjuð upp sögu-
brot um Litlu-Sandhöfn, stóijörð
sem átti reka frá Karlmannstjöm
suður undir Valahnúk. Farið verð-
ur frá Umferðarmiðstöðinni kl.
10.30 og Fitjanesti í Reykjanesbæ
kl. 11.15. Gangan hefst rétt sunn-
an við Laxeldið. Staðfróður heima-
maður verður fylgdarmaður.
-----» ♦ ♦-----
Leiðrétting
Nýtt sýningarrými
RANGT var farið með nafn Hann-
esar Lárussonar í blaðinu í gær, sem
sýnir í „svart-hvítt“ sem hlotið hef-
ur nafnið 20 m2. Beðist er velvirð-
ingar á því.
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
Myndlistarsýning leikskólabama
Hveragerði. Morgunblaðið.
FORELDRAFÉLAG leikskól-
anna í Hveragerði stendur þessa
dagana fyrir sýningu á myndum
eftir leikskólabörn bæjarins í
Grænu smiðjunni, Hveragerði.
Við opnun sýningarinnar síðast-
liðinn sunnudag var fjöldi fólks
mættur til að skoða listaverk
ungu kynslóðarinnar, sem eru
bæði litrík og fjölbreytt eins og
við er að búast af svo stórum
hópi. 112 leikskólabörn eiga verk
á sýningunni sem er opin til 9.
mars. Flestir hinna ungu lista-
manna voru viðstaddir opnunina
og sungu þar nokkur lög. Mynd-
in er tekin við það tækifæri.
Verkefni valin í
keppni ungra
vísindamanna
DÓMNEFND Hugvísis hefur valið
verkefni í undanúrslit keppni ungra
vísindamanna. Þau verkefni sem velj-
ast til undanúrslita keppa til úrslita
laugardaginn 12. apríl kl. 14 í Hinu
húsinu, Aðalstræti 2.
Vinningshafar Hugvísis taka þátt
í Evrópukeppninni næsta haust en
þá verður keppnin haldin í Mílanó á
Italíu.
Verkefnin heita: Fleyg skordýr í
alaskalúpínu, höfundur Þurý Ósk
Axelsdóttir, Flensborg, Hafnarfirði,
Forstverkanir, höfundur Jóhanna
Helgadóttir, Fjölbrautaskóla Suður-
nesja, Kennsluforrit í stærðfræði,
höfundur Sigmar Karl Stefánsson,
Menntaskólanum við Sund, Stökk-
mýs, höfundar Pétur Jónsson, Róbert
Pálmason og Birgir R. Amórsson,
Foldaskóla, Þroskastig barna, höf-
undar Sigrún Jóhannsdóttir, Guðrún
M. Bjamadóttir og Eva D. Guðmuns-
dóttir, Foldaskóla, og Ólíkar matar-
venjur fólks, höfundar Berglind
Snorradóttir, Sólveig H. Sigfúsdóttir,
Elín H. Hjartardóttir og Guðrún B.
Brynjólfsdóttir, Foldaskóla.
Hugvísir er samstarfsverkefni
ísaga hf., menntamálaráðuneytisins
og Hins hússins.
„ Morgunblaðið/Halldór
HERVOR Jónasdóttir, formaður Hvítabandsins, Hulda Guð-
mundsdóttir, forstöðumaður meðferðarheimilisins, Ingvar Krist-
insson, geðlæknir, og Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Kleifarvegsheimilinu
gefin peningagjöf
KVENFÉLAG Hvítabandsins gaf
Kleifarvegsheimilinu, sem er
meðferðarheimili fyrir börn með
sálræn og geðræn vandkvæði,
300 þúsund krónur til kaupa á
tölvubúnaði sem nýta skal til
menntunar og endurhæfingar
barnanna.
Meðferðarheimilið er hluti af
geðsviði Sjúkrahúss Reykjavikur
og er framkvæmdastjóri þess
Jóhannes Pálmason en forstöðu-
maður heimilisins er Hulda Guð-
mundsdóttir.