Morgunblaðið - 08.03.1997, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 51
BRÉF TIL BLAÐSINS
MESSUR Á MORGUN
Viðhorfskönnun til
stóriðju og með-
vitund almennings
Frá Karólínu Huldu
Guðmundsdóttur:
NÝ KÖNNUN sem Félagsvísinda-
stofnun vann fyrir MIL (markaðs-
skrifstofu iðnaðarráðuneytisins og
Landsvirkjunar) hvetur okkur til að
skoða ofan í kjölinn hvað það er sem
fólk ieggur til grundvallar afstöðu
sinni þegar stórt er spurt. Oft hefur
mönnum orðið svarafátt við þær
aðstæður, en skyndikannanir á af-
stöðu fólks til mikilvægra mála gera
kröfu um Hkjót avör, án umhugnunar
þar sem lagt er til grundvallar að
ákveðin grunnþekking sé til staðar
hjá svarendum. Hversu upplýst er
fólk? Eru menn ekki fyrst og fremst
sammála síðasta ræðumanni svo
sem oft vill verða? Hvaða möguleika
hefur almenningur á að sjá hlutina
í samhengi? Samkvæmt nefndri
könnun, ef teknir eru þeir sem af-
stöðu taka, eru 74 íslendinga fylgj-
andi því að orkufrekur iðnaður sé
„mikilvægur þáttur atvinnuppbygg-
ingar" og samsvarandi stór hópur
telur að mengun af völdum stóriðju
sé „innan eðlilegra marka“. Ég leyfí
mér að fullyrða að hvergi nærri 74
Islendinga hafi hugmynd um hvaða
mengun er hér verið að spyija um
né heldur velti fólk því svo mikið
fyrir sér hvað átt er við með stór-
iðju. Fólk er fyrst og fremst hrætt
við atvinnuleysi og á þeim forsend-
um er skiljanlegt að vonin um ein-
hvetja vinnu ráði svörum. Sagan
hefur líka kennt okkur að atvinnu-
leysisvofan hefur fengið fólk til fylg-
is við háskalegustu stefnur. Ef spurt
hefði verið hver væru æskileg mörk
mengunar hefði trúlega orðið fátt
um svör og ef spurt hefði verið um
heildaráhrif þeirra framkvæmda
sem stóriðja felur í sér hefðu trúlega
flestir þagnað við. Þegar hægt er
að segja fólki nánast í sama orðinu
að öll mengun fjúki út í buskann,
hreinlega gufi upp, nema sumt sem
ekki lúti sömu vindlögmálum og fari
aldrei yfír lóðarmörk, hlýtur eitthvað
að vera bogið við framsetningu upp-
lýsinga. Hvaða svör hefðu fengist ef
spurt hefði verið t.d. um eðliiegt
magn brennisteinstvíoxíðs á dag frá
fýrirhuguðu álveri á Grundartanga,
hvaða aðstæður gætu hraðað mynd-
un brennisteinssýru og hvort stað-
setning verksmiðju skipti þar máli?
Hætt er við að margir hefðu fallið á
því prófi. Eins ef spurt hefði verið
hvað væri í svifrykinu sem ekki á
að geta fokið eins og önnur mengun.
Svifryk er e.t.v. svona ósýnilegar
agnir sem fólk verður fyrst vart við
ef það þurkar ekki af innandyra fyrr
Frá Helgu Gunnarsdóttur:
I MORGUNBLAÐINU 26. febrúar
birtist grein eftir Jón Sigurðsson,
framkvæmdastjóra íslenska jám-
blendifélagsins, undir yfirskriftinni
„Um það sem er logið og hitt sem
er satt.“ Þar gerir Jón að umtalsefni
hve óvandaður málflutningur þeirra
er sem talað hafa gegn álveri og
tekur nokkur dæmi máli sínu til
stuðnings. Hann varar við að menn
grípi til óvandaðra meðala og óskar
eftir að umræðan haldi sig við stað-
reyndir. Hann fellur síðan í þá gryfju
sjálfur að taka óstaðfesta sögu úr
skólastarfi á Akranesi og bera hana
áfram inn í Morgunblaðið í sömu
grein. Nú er mér kunnugt um að
Jón leitaði eftir upplýsingum frá
skólanum um hvort umrætt atvik
hefði átt sér stað. En hann gaf sér
ekki ráðrúm til að bíða eftir því að
málið væri kannað og hið rétta kæmi
fram. Því miður.
Umræður um nýtt álver á Grund-
artanga hafa verið líflegar á Akra-
en sólin sýnir af fullkomnu miskunn-
arleysi óþrifin. Engin húsmóðir/faðir
vill láta koma þannig upp um skort
á umhverfishreinsun sinni, en getur
á sama tíma samþykkt að dreift sé
hálfu tonni af einhverskonar ryki
uppi í Hvalfirði á dag! Hvað þýðir
svo þetta flúor sem svifið á að inni-
halda? Er það ekki bara eitthvað
hollt og gott fýrir tennumar? Súrt
regn? Hvaða áhyggjur þurfum við
að hafa af því? Ekki höfum við neina
timburskóga til að hafa áhyggjur af.
Svo er líka „að meðaltali“ hæfilegt
rok af réttri vindátt þama uppfrá og
svo segja reiknilíkönin að súra regnið
fari „að mestu leyti“ bara í sjóinn,
því það myndist á svo löngum tíma,
en er það svo? Hvað höfum við ann-
ars að gera við þumalputtareglu í
megnunarútreikningum? Svo er það
þetta með eyðingu ósonlagsins. Ef
fólk hefði verið spurt hver væri þar
mesta ógnin hefðu e.t.v. einhveijir
minnst á hárlakk og ísskápa, en yppt
svo öxlum. Veit fólk að álframleiðsla
er hér einn stærsti skaðvaldurinn?
Nei, ég leyfi mér að fullyrða að þekk-
ing almennings á áliðnaði og annarri
stóriðju er afskaplega lítil og fráleitt
að niðurstaða könnunar, sem byggist
á þekkingu, sem aftur er reist á sandi,
geti leitt til þeirrar niðurstöðu að
stjómvöld séu á réttri leið í stóriðju-
málum.
Miklu fremur ætti þetta að sýna
okkur að hér þarf aukna fræðslu.
Hér þarf samanburð á valkostum
og heildaryfírsýn yfir þá stefnu sem
stjómvöld boða. Hvaða framtíð vilj-
um við búa þeim sem á eftir koma?
Ábyrgð Hollustuverndar ríkisins er
mikil í þessum málum. Hún er sú
stofnun sem meta á áhrif mengandi
efna á landsvæði þar sem engin
trygging er fyrir því að erlendir
staðlar geti gilt. Hún þarf jafnframt
að vinna undir mikilli tímapressu þar
sem samningar geta oltið á því að
ákvörðun sé tekin strax. En í öllum
þessum asa gleymist að fólkið, sem
á að geta gert athugasemdir við
umhverfismat, hefur engar forsend-
ur til þess né að svara svo viðamikl-
um spurningum sem þeim, hver séu
„eðlileg mörk“ mengunar.
Ég skora á umhverfisráðuneytið
að sinna betur því grundvallar-
markmiði sínu að auka meðvitund
og þekkingu almennings í umhverf-
ismálum, svo við getum svarað af
einhveiju viti þegar við erum spurð
eða í það minnsta þagað af enn
meira viti.
KARÓLÍNA H. GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Fitjum í Skorradal.
nesi og er það vel. Það væri illa
komið ef almenningur léti slíkt sig
engu varða og sitt sýnist hveijum
eins og gengur. Eðlilega hefur áhugi
barna á málefninu verið vakinn og
þau í einhveijum mæli flutt umræð-
una inní skólann. Skólinn verður að
vera í þeim tengslum við umhverfi
sitt að hann leyfi umræðu um það
sem efst er á baugi og kennarar
eiga ekki að þagga umræður niður
ef þær koma upp. Þeirra hlutverk
er hins vegar ekki að kveða upp
dóma í málefnum sem ekki er ein-
dregin sátt um í þjóðfélaginu. Það
er að segja þegar um álitamál er
að ræða. Ef foreldrar, eða aðrir sem
láta sig skólastarf skipta álíta að
kennarar hafi farið út fyrir sitt verk-
svið, þá verður skólinn að treysta
því að þeir hinir sömu hafi samband
við skólann, geri athugasemdir og
fái uppiýsingar um hvað raunveru-
lega er á ferðinni.
HELGA GUNNARSDÓTTIR,
skólafulltrúi Akraness.
Guðspjall dagsins:
Jesús mettar 5
þúsundir manna.
(Jóh. 6.)
ÁSKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Kaffi eftir messu.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA:
Barnamessa kl. 11. Foreldrar
hvattir til þátttöku með börnun-
um. Guðsþjónusta kl. 14. Organ-
isti Guðni Þ. Guðmundsson.
Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN:
Guðsþjónusta kl. 11, skírn. Prest-
ur sr. Hjalti Guðmundsson. Dóm-
kórinn syngur. Organleikari Mar-
teinn H. Friðriksson. Fundur í
safnaðarheimilinu eftir messu.
Unnur Halldórsdóttir djákni talar
um þjónustu djákna í kirkjunni.
Barnasamkoma kl. 13 í kirkjunni.
Föstumessa, altarisganga kl. 14.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
GRENSÁSKIRKJA:
Fjölskyldu- og æskulýðsmessa kl.
11. Barnakórar Grensáskirkju
syngja. Helga Loftsdóttir stjórnar.
Fermingarbörn lesa ritningarlest-
ur. Sonja Berg og Þuríður Guðna-
dóttir annast barnaefnið. Prestur
sr. Halldór S. Gröndal. Organisti
Árni Arinbjarnarson.
HALLGRÍMSKIRKJA:
Fræðslumorgunn kl. 10. Hvers
vegna kristin fræði á grunnskól-
um? Sr. Sigurður Pálsson. Messa
og barnasamkoma kl. 11. Sr.
Bragi Ingibergsson prestur á
Siglufirði prédikar. Kirkjukór
Siglufjarðar syngur, stjórnandi
Antonias Hcvesi.
LANDSPÍTALINN:
Messa kl. 10. Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sr.
Gylfi Jónsson héraðsprestur.
Messa kl. 14. Organisti Pavel
Manasek. Sr. Gylfi Jónsson.
LANGHOLTSKIRKJA:
Kirkja Guðbrands biskups. Messa
kl. 11. Prestur sr. Jón Helgi Þórar-
insson. Organisti Jón Stefánsson.
Kaffisopi eftir messu. Barnastarf
kl. 13 í umsjá Lenu Rós Matthías-
dóttur.
LAUGARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Félagar úr Kór
Laugarneskirkju syngja. Sigurður
Flosason leikur á saxófón. Organ-
isti Gunnar Gunnarsson. Barna-
starf á sama tíma. Guðsþjónusta
kl. 14 í Sjálfsbjargarhúsinu, Hát-
úni 12. Kvöldmessa kl. 20.30. Kór
Laugarneskirkju leiðir söng. Und-
irleik annast valinkunnir tónlistar-
menn ásamt organistanum Gunn-
ari Gunnarssyni. Lifandi tónlist frá
kl. 20. Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA:
Barnasamkoma kl. 11. Opið hús
frá kl. 10. Sr. Frank M. Halldórs-
son. Messa kl. 14. Sr. Frank M.
Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11 í tengslum við átak-
ið „Fórn á föstu", Friðrik Hilmars-
son kristniboði prédikar. Sr. Sol-
veig Lára Guðmundsdóttir þjónar
fyrir altari. Barnastarf á sama
tíma. Hádegisverður með kaffi á
eftir. Organisti Vierea Manasek.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN:
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.
Kaffisala eftir messu.
ÁRBÆJARKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Organleikari
Kristín G. Jónsdóttir. Vænst er
þátttöku fermingarbarna og for-
eldra þeirra. Stuttur fundur með
þeim eftir guðsþjónustuna. Prest-
arnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa
með altarisgöngu á sama tíma.
Samkoma Ungs fólks með hlut-
verk kl. 20. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA:
Messa kl. 11. Altarisganga. Prest-
ur sr. Flóki Kristjánsson. Barna-
guðsþjónusta á sama tíma.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Prestur dr.
Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðs-
Meira um það sem er
logið og hitt sem er satt
prestur. Organisti Violeta Smid.
Barnaguðsþjónusta á sama tíma.
Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Um-
sjón hafa Hjörtur og Rúna. Barna-
guðsþjónusta í Rimaskóla kl.
12.30 í umsjón Jóhanns og Ólafs.
Guðsþjónusta kl. 14. Dr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson héraðsprestur
prédikar og þjónar fyrir altari.
Organisti Hörður Bragason.
Prestarnir.
HJALLAKIRKJA:
Messa kl. 11. Sr. Kristján Einar
Þorvarðarson þjónar. Barnaguðs-
þjónusta kl. 13 í umsjá sr. Irisar
Kristjánsdóttur. Organisti Oddný
J. Þorsteinsdóttir. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA:
Barnastarfið. Heimsókn í Víði-
staðakirkju í Hafnarfirði. Farið
verður með rútu, mæting í Borg-
um kl. 10.30. Messa kl. 11. Ferm-
ingarbörn og foreldrar þeirra eru
hvött til þátttöku. Fundur í safnað-
arheimilinu Borgum með foreldr-
um og fermingarbörnum strax að
lokinni messu. Organisti Örn
Falkner. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SEUAKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástr-
áðsson prédikar. Organisti Kjart-
an Sigurjónsson. Sóknarprestur.
KRISTSKIRKJA, Landakoti:
Messur kl. 10.30, 14 og 20 (á
ensku). Mánud. til föstud. messur
kl. 8 og kl. 18. Laugardagur mess-
ur kl. 8 og kl. 14.
KFUM og KFUK v/Holtaveg:
Kristniboðssamkoma á morgun
kl. 17. Upphafsorð og bæn: Bald-
ur H. Ragnarsson. Ræðurmaður:
Skúli Svavarsson. Ljós í myrkri:
Hrönn Sigurðardóttir. Kór KFUM
og KFUK syngur.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Ffladelf-
ía: Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Hafliði Kristinsson.
Niðurdýfingarskírn. Allir hjartan-
lega velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagur kl. 11, sunnudagaskóli, kl.
19.30 bænastund, kl. 20 hjálp-
ræðissamkoma. Turid og Knut
Gamst stjórna og tala.
LÁGAFELLSKIRKJA:
Messa kl. 14. Barnastarf í safnað-
arheimilinu kl. 11. Jón Þorsteins-
son.
BRAUTARHOLTSKIRKJA, Kjalar-
nesi: Barnaguðsþjónusta kl. 11
f.h. Gunnar Kristjánsson, sóknar-
prestur.
VÍDALÍNSKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti
Guðmundur Sigurðsson. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma í safnaðar-
heimilinu. Sunnudagaskóli í Hof-
staðaskóla kl. 13. Bragi Friðriks-
son.
BESSASTAÐAKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 14. Nemendur
úr Álftanesskóla og Tónlistar-
skólanum taka þátt í athöfninni.
Hugvekju flytur Sæmundur Haf-
steinsson, sálfræðingur. Aðal-
safnaðarfundur kl. 15.30 í hátíðar-
sal íþróttahússins. Bragi Friðriks-
son.
KÁLFATJARNARSÓKN:
Kirkjuskóli í dag, laugardag, í
Stóru-Vogaskóla kl. 11 í umsjá
Bjarna, Sesselju og Franks.
VÍÐISTAÐAKIRKJA:
Barnamessa kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 14. Altarisganga. Sigurður
Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA:
Sunnudagaskóli í Hafnarfjarðar-
kirkju kl. 11. Umsjónarmenn séra
Þórhildur Ólafs, Katrín Sveinsdótt-
ir og Natalía Chow. Sunnudaga-
skóli í Hvaleyrarskóla kl. 11. Um-
sjónarmenn séra Þórhallur Hei-
misson, Bára Friðriksdóttir og Ing-
unn Hildur Hauksdóttir. Messa kl.
14 við lok Leikmannastefnu.
Prestur séra Gunnþór Ingason
sem flytur samtalsprédikun ásamt
Helga Hjálmssyni viðskiptafræð-
ingi. Barnakórinn syngur ásamt
Kirkjukórnum undir stjórn Hrann-
ar. Helgileikur, altarisganga. Org-
anisti Natalía Chow. Kirkjukaffi í
Strandbergi eftir messuna. Prest-
ar Hafnarfjarðarkirkju.
FRÍKIRKJAN, Hafnarfirði:
Barnasamkoma kl. 11. Umsjón
Edda og Aðalheiður. Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Jakob Hall-
grímsson. Kaffiveitingar í safnað-
arheimili að lokinni guðsþjónustu.
Einar Eyjólfsson.
KEFLAVIKURKIRKJA:
Samræða um sjálfsímyndina kl.
11-15 laugardag. Tónlist, dag-
skráin sett. Fyrirlesarar í
fræðsluátakinu hafa framsögu um
sjálfsímyndina, fíkniefnavandann,
sjálfsvíg og samkynhneigð. Súpa
og brauð í hádeginu í Kirkjulundi.
Panelumræður og fyrirspurnir eft-
ir hádegi og samræðunni lýkur
með helgistund í kirkjunni. Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Munið skólabíl-
inn. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur
sr. Ólafur Óddur Jónsson. Ræðu-
efni: Samræðan um sjálfsímynd-
ina. Kór Keflavíkurkirkju syngur.
Organisti Einar Örn Einarsson.
INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11, sem fer
fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Börn
sótt að safnaðarheimilinu kl. 10.45.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Brúðuleik-
hús. Sara Vilbergsdóttir segir
sögu og leikur á gítar. Allir aldurs-
hópar velkomnir. Baldur Rafn Sig-
urðsson.
SELFOSSKIRKJA:
Messa kl. 14. Börn af landsmóti
Barna- og unglingakóra koma í
heimsókn. Sóknarprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA:
Sunnudagaskóli kl. 11. Aðalsafn-
aðarfundur Hveragerðissóknar
kl. 14.
HEILSUSTOFNUN NLFÍ.
Guðsþjónusta kl. 11. Jón Ragn-
arsson.
STOKKSEYRARKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sókn-
arprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA:
Messa kl. 14. Sóknarprestur.
BORGARPRESTAKALL:
Barnaguðsþjónusta verður í Borg-
arneskirkju kl. 11.15. Messa kl.
14 og guðsþjónusta á dvalarheim-
ili aldraðra í Borgarnesi kl. 15.30.
Þorbjörn Hlynur Árnason.
HVAMMSTANGAKIRKJA:
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guð-
rún Helga, Laura Ann og Helgi
Sæmundur leiða stundina með
presti. Kristján Björnsson.
VESTUR-HOPSHÓLAKIRKJA:
Messa kl. 14. Altarisganga og
skírn. Kirkjukór Vesturhóps og
Vatnsness syngur undir stjórn
Helga S. Ólafssonar, organista.
Kristján Björnsson.
VALLANESKIRKJA:
Messa kl. 14 sem hefst með
vígslu skrúðhúss. Dr. Einar Sigur-
björnsson prédikar. Kirkjukaffi á
Iðavöllum. Sóknarprestur.
LANDAKIRKJA, VESTMANNA-
EYJUM. Sunnudagaskólinn kl. 11.
Almenn guðsþjónusta í Landa-
kirkju. Barnasamvera meðan á
prédikun stendur. Messukaffi.
Almenn guðsþjónusta á Hraun-
búðum kl. 15.15. Poppmessa,
„Létt sveifla í helgri alvörul".
Hljómsveitin Prelátar leiðir safn-
aðarsönginn. Smári Harðarson
líkamsræktarmaður byrjar mess-
una með signingu og bæn. Alt-
arisganga og fyrirbænir í kirkju-
skipi en messukaffi í safnaðar-
heimilinu að lokinni athöfn.
PCI lím og fúguefni
k
Stórhöfða 17, vlð Gullinbrú,
síml 567 4844
UNGBARNASUNDFÖT
Sængurgjafir - fyrirburaföt
- rósir á skírnarkjóla
Skólagerði 5,
Kópavogi,
sími 554 2718.
Opið kl. 13-18.