Morgunblaðið - 08.03.1997, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 08.03.1997, Qupperneq 52
52 LAUGARDAGUR 8. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Jfc.1 Matur og matgerð Gómsæt ber Ég vil miklu heldur frosin ber en fersk á þessum árstíma, segir Kristín Gestsdóttir, enda eru þau ódýrari, handhægari og miklu betri. Fyrir nokkrum árum rakst ég á margar tegundir geysigóðra frosinna beija og notaði þau ós- part, þau voru í plastpokum merkt ARDO og fengust ekki víða. Eink- um var það berjablanda með sex tegundum, sem var í miklu uppá- haldi hjá mér. Allt í einu hættu þessi ber að fást og ég get næst- um sagt að matarheimur minn hafi hrunið, en nú eru þessar fjöl- breyttu beijategundir fáanlegar á ný í 450 gramma öskjum svo að betur fer um berin. í þessum flokki eru margar tegundir: Jarð- arber, hindber, brómber, sem þeir hjá Garra kalía skógarber, aðal- bláber, týtuber og berjablandan góða, svo tvær tegundir melónuk- úlna mismunandi á litinn, suðræn blanda með framandi aldinum og ávaxtablanda með sex hefðbundn- um tegundum. Við íslendingar gerum of lítið af því að nota ávexti og ber í kökur og ábætisrétti, en okkur líður miklu betur eftir léttan berja- eða ávaxtarétt í lok máltíð- ar en þungan ijómadesert. Beija- rétturinn og ávaxtarétturinn skreytir sig auk þess sjálfur. Gott er að búa til sósur úr beijunum og hafa með ís eða borða berin með ís eða rjóma. Fyrsta upp- skriftin í dag er grautur úr berja- blöndunni og það er enginn venju- legur grautur, heldur heimsins besti grautur, sem mínir matar- gestir bera mikið lof á. Svo eru hér tvær berjasósur og mangósósa til að hafa með ís og geta lesend- ur valið um að kaupa ísinn tilbú- inn eða búa hann til sjálfir. Grauturinn góði 1 pk. berjablanda, 450 g 1 dl sykur 4 dl vatn 1 dl vatn + 2 msk. karöflumjöl 1. Setjið berin í pott ásamt sykri og 4 dl af vatni og sjóðið við hægan hita í 15-20 mínútur. Meijið þá ber- in örlítið með sleif. 2. Hrærið saman eða hristið í hristiglasi 1 dl vatn + 2 msk. kart- öflumjöl. Takið pottinn af hellunni og hrærið kartöflumjölsblönduna út í. Kælið. Meðlæti: Mikið af hálfþeyttum ijóma. Athugið: Mjög fallegt er að bera þetta fram í víðurn glösum á fæti og setja smáijómaslettu í toppinn. Hindberjasósa ‘A pk. hindber 'A dl sykur Skógarberjasósa (brómberjasósa) ‘A pk. hindber 'A dl sykur Aðferð við báðar sósumar: Raðið frosnum beijum á disk, stráið sykrin- um yfír og látið þiðna. Setjið helm- ing beijanna í blandara eða meijið á sigti. Setjið síðan heilu berin út í sósuna. Mangósósa Eitt vel þroskað mangóaldin er skorið frá steininum sem er flatur. Hægt er að sjá á aldininu hvernig steinninn snýr, og er það kallað „kinnar“ þar sem aldinið er þykk- ast. Best er að skera kinnarnar af og síðan hitt. Aldinið er afhýtt og saxað mjög smátt eða sett í bland- ara. Aldinið þarf að vera mjúkt og vel þroskað og oft er betra að smá svartir blettir séu í hýðinu. * Is með mangósósu og skógarberjum (brómberjum) Berið í'sinn fram í smáskálum. Setjið mangósósu á botninn, þá ís og loks skógarbeijasósu með heiium beijum. ís með hindberjasósu íspakkanum dýft augnablik í heitt vatn og honum hvolft á fat. Síðan er hindbeijasósu með heilum beijum hellt yflr. Heimatilbúinn vanilluís 2 heil egg + 2 eggjarauður 3 msk. sykur 2 pelar rjómi ‘A tsk. vanilludropar 1. Þeytið egg og eggjarauður með sykri og vanilludropum. 2. Þeytið ijómann sér. Blandið saman og setjið í frysti. Gott er að hræra tvisvar í ísnum meðan hann er að fijósa. í þættinum 27. febrúar, Gómsætt brauð á góu, slæddist inn slæm villa. Sagt er að við langa lyftingu brauð- anna eigi að nota 'A tsk. af geri en átti að vera ‘A msk. Beðist er velvirð- ingar á þessu. í DAG VELVAKANDI Svarað úáma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Netfang: elly@mbl.is Hlaupár árið 2000? MAÐUR hringdi og vill hann benda samninga- nefndum þeim sem eru að semja um kaup og kjör á að í sumum samningum er verið að semja til 29. febrúar árið 2000. Hann heldur því fram að það verði ekkert hlaupár árið 2000 vegna þess að það á að fella niður hlaupársdag þau ár þar sem 400 gangi upp í ártalið. Og er það eina frávikið frá reglunni um að ef 4 gangi upp í ártalið þá sé hlaupár. Frakki glataðist Frakki, ljósbrúnn, glatað- ist í Fjörukránni 22. febr- úar og er annar svipaður í óskilum þar. Sá sem kannast við þetta er beðinn um að hafa samband við Fjörukrána í síma 565-1213. Þakkir DAVÍÐ hringdi og vildi hann koma á framfæri þakklæti til þeirra í Baha’i- miðstöðinni fyrir skemmti- leg og fróðleg laugardags- kvöld. Leitað ættingja DÖNSK kona, Vibeke Thejll Bjömson-Lange, hyggst koma til íslands í sumar. Faðir hennar hét Carl Adolph Thejll, fæddur í Stykkishólmi 8. ágúst 1895, sonur hjónanna Hagbarðs Thejll kaup- manns og Sigríðar Thejll sem var fædd á ísafirði um 1853. Þau hjón voru lengi á Búðum, síðan nokkur ár í Stykkishólmi en munu þá hafa flutt ut- an. Vibeku langar að hafa samband við ættingja sína á íslandi og eru þeir vin- samlega beðnir að hafa samband við hana. Heimilisfangið er: Vibeke Thejll Bjömson- Lange, Orsted Frave 4, 5620 Flamsbjerg, Dan- mörku. Fax: 644-51006. Breyting á fatnaði KONA hringdi í Velvak- anda og vill hún benda fólki á að í Hveragerði er kona sem gerir við fatnað og heitir Amdís og býr á Lyngheiði 7, sími 483- 4556. Viðgerðir á fatnaði AÐALHEIÐUR hringdi og segist hún taka að sér fataviðgerðir, hún er með síma 552-0974. Leiðrétting á vísu ÞURÍÐUR hringdi og vildi hún koma á framfæri leið- réttingu á þætti sem send- ur var út frá Akureyri um Látrabjörgu var ekki farið rétt með eina vísu hennar. í bók Arnfríðar Sigurgeirs- dóttur „Séð að heiman" er visan svona: Mývatnssveit ég vænsta veit vera á norðurláði, fólkið gott, það fær þann vott, að flestum góðvild tjáði. Arnfríður segir að nokkrir hafi síðustu orð vísunnar þannig: Að fullt sé það af háði. þannig var hún lesin í þættinum. Vilji einhver kynna sér þetta nánar vísa ég til bókar Arnfríðar. Þuríður Sigurðardóttir. Fatabreytingar BJÖRG hringdi og vill benda fólki á að það getur snúið sér með fatabreyt- ingar til Lindasaums í Kringlunni og í Veltusundi er einnig saumastofa þar sem fatnaði er breytt. Rauð pokadúkka tapaðist LITIL, handunnin, rauð dúkka, ca. 6 sm há, svo- kölluð pokadúkka, tapaðist miðvikudaginn 5. mars, á leiðinni frá stoppustöðinni á Listabraut yfir að Kringluplaninu, eða í leið 6. Hennar er saknað sárt. Skilvís finnandi hringi í síma 551-4048. Dýrahald Kisu vantar gott heimili FALLEG og góð 2ja ára gömul læða leitar að góðu heimili. Upplýsingar í síma 554-5388. HÖGNIHREKKVÍSI a þa5 uargaman oh Sjá. hokkí d ný skák Umsjón Margeir Pétursson Staðan kom upp í deilda- keppni Skáksambands íslands um síðustu helgi. Hannes Hlífar Stefánsson (2.555), Taflfélaginu Helli, hafði hvítt og átti leik, en Agúst S. Karlsson (2.335) var með svart. 23. Hxe4! - fxe4 24. Dg4 - Kh8 (Betri vörn var fólgin í 24. - De7) 25. Dh5! - Bc5+ 26. Khl - Dc8 27. f5! (Svartur er nú varnarlaus á hvítu reitunum) 27. - Rd5 28. Hxd5! (Fórnar öðrum skiptamun!) 28. - exd5 29. Rg6+ - Kg8 30. Bxd5+ - Hf7 31. Re5 og svartur gafst upp. Eftir slæmt tap fyrir TR unnu Hellismenn 15 skákir í röð gegn Vestfirðingum og Hafnfirðingum. Þeir þurftu að vinna eina í viðbót til að verða meistarar, en það tókst ekki og Taflfélag Reykjavíkur sigraði eina ferðina enn. Þrír erlendir stórmeistarar tefldu með TR, en ekkert hinna félag- anna styrkti sveitir sínar með þeim hætti. Víkveqi skrifar... VÍKVERJI heyrði fyrir nokkru undarlega sögu kunningja, sem fluttu til Bandaríkjanna á síð- asta ári. Þar komu hin ungu hjón sér fyrir og fóru að svipast um eft- ir húsnæði til að kaupa, enda ætlun- in að dvelja nokkur ár þar vestra. Þau fundu húsið, en þegar kom að því að ganga frá kaupunum kom dálítið babb í bátinn. Bandaríkja- menn setja ströng skilyrði fyrir fasteignakaupum útlendinga, til að koma í veg fyrir peningaþvætti. Þannig urðu ungu hjónin að sýna á sannanlegan hátt að þau væru í öruggu starfi, að þau hefðu verið í launuðu starfi hér á landi og ekki nóg með það, heldur einnig að þau hefðu staðið í skilum við ýmis þjón- ustufyrirtæki og greitt alla hita- veitureikninga, rafmagnsveitu- reikninga og símareikninga. xxx UNGU hjónin voru sátt við þessi skilyrði Bandaríkjamanna og hófust handa við að sanka að sér gögnum. Hitaveita Reykjavíkur og Rafmagnsveitan töldu ekki eftir sér að faxa allar upplýsingar á ensku og staðfesta þar með að ungu hjón- in höfðu ávallt staðið í skilum með alla sína reikninga. En þá kom röð- in að Pósti og síma. Stofnunin dró lengi að svara, en bar því síðan við að stofnunin gæti eklri sent um- beðna yfírlýsingu á faxi, því það væri of dýrt. Hins vegar væri sjálf- sagt að senda hana í pósti! Ungu hjónin áttu erfítt með að skilja hvers vegna Póstur og sími settu fax- kostnaðinn fyrir sig, en ekki bréf- burðargjaldið, en svona voru víst reglurnar og ekkert við því að gera. xxx AR SEM dregist hafði að fá endanleg svör Pósts og síma voru seljendur hússins í Bandaríkj- unum orðnir nokkuð óþolinmóðir, en loksins barst bréfið góða inn um lúguna. Þar var vottað, að hjónin hefðu ávallt staðið í skilum með símareikninga, en þó með þeim fyr- irvara að síðasta greiðsla þeirra hefði ekki borist á réttum tíma. Þessi fyrirvari gerði það að verkum, að plaggið nýttist hjónunum ekki, enda lítt fýsilegt að láta seljendur halda að þau hefðu hlaupist á brott frá reikningum á Islandi. Skýringin á þessum fvrirvara var hins vegar sú, að áður en hjónin fluttu út gengu þau frá öllum sínum málum hér heima og í því fólst meðal ann- ars, að eiginkonan fór á skrifstofur Pósts og síma og greiddi símareikn- inginn fyrir gjalddaga. Það má því til sanns vegar færa, að reikningur- inn var ekki greiddur á „réttum" tíma. Til allrar hamingju féllust seljendur á að ganga frá viðskiptun- um án þess að yfirlýsing símafyrir- tækisins væri lögð fram og nú búa ungu hjónin í húsinu sínu og líklega standa þau í skilum hér eftir sem hingað til. Hins vegar ala þau þá von í bijósti að breyting á rekstrar- formi Pósts og síma leiði til þess, að vinnubrögð af þessu tagi hætti. xxx LESENDUR Morgunblaðsins veittu því ef til vill athygli, að á mynd í blaðinu á miðvikudag sást biskup íslands koma til prófasta- þings með stóra ferðatösku í hend- inni. Það láðist hins vegar að geta þess í myndatexta að biskup var hvorki að koma úr ferðalagi, né fara í langferð, heldur var hann með skrúða sinn meðferðis í tösk- unni góðu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.