Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skipulagstillögur Hafnarfjarðar um tvöföldun Reykjanesbrautar með mislægum gatnamótum íbúar telja gengið gegn forsendum nýlegrar byggðar UNDIRSKRIFTASÖFNUN er hafin meðal íbúa í Setbergshverfi í Hafn- arfirði í mótmælaskyni við þá skipu- lagstillögu í nýju aðalskipulagi bæj- arins að Reykjanesbraut verði gerð að stofnbrauí, með tveimur akrein- um í hvora átt, miðeyju og mislæg- um gatnamótum þar sem brautin liggur í gegnum Hafnaríjörð með- fram Setbergshverfí. Tillagan gerir ráð fyrir því að bensínstöð Esso við Lækjargötu verði rifin, einnig „kúluhúsið" sem stendur gegnt íþróttasvæðinu við Kaplakrika og 2 einbýlishús á Sólvangssvæðinu, sunnan Reykjanesbrautar. Var forsenda Hjalti Amþórsson, talsmaður íbú- anna í Setbergshverfí, segir að hverf- ið hafi verið byggt á árunum upp úr 1980 samkvæmt því skipulagi að Reykjanesbraut yrði tvöfölduð en hún yrði áfram tengibraut með 40-60 km hámarkshraða á klukku- stund. Nú væri rætt um stofnbraut með mislægum gatnamótum og brú. „Þetta var forsenda skipulagsins þegar okkur voru seldar lóðir og þegar við byggðum húsin þarna. Þarna átti að vera tengibraut og álíka mikil umferð árið 2000 og 1980; það átti að koma vegur ofan byggðarinnar sem tæki 20-30% af umferðinni. En nú er búið að færa þennan ofanbyggðarveg fjær en var í upphafi og þar af leiðandi fara svo fáir um hann að borgar sig ekki leng- ur að byggja hann.“ „Þetta er nýtt hverfí, byggt upp úr 1980, þannig að við erum ekki að horfa upp á sams konar dæmi og á Miklubraut. Við viljum halda okkur við gamla skipulagið og að haldið sé niðri umferð og hraða. Við vitum að þar sem Reykjanesbrautin liggur í gegnum Kópavoginn var byggðin færð fjær henni,“ sagði Hjalti. Frestur til að gera athugasemdir við aðalskipulagið rennur út 11. apríl og fyrir þann tíma verða íbú- amir búnir að skila inn undirskrifta- listum sínum. Hjalti hafði ekki í gær tök á þeim fjölda undirskrifta sem safnast hefur en sagði að gengið hefði verið í hús í hverfínu og lang- flestir íbúar væru andvígir skipu- lagstillögunni. „Þessi tillaga er tæknilegt svar við spám um umferðarþunga," sagði Jóhannes Kjarval, skipulagsstjóri Hafnarfjarðar. Hann segir að nú aki 17-18 þús. bílar þarna um Reykja- nesbraut á sólarhring en þegar yfir 20 þúsund bíla umferð fari um þessa götu sé fræðilega ekki lengur hægt að flokka hana sem tengibraut. Spár um þróun umferðarþunga á næstu áram sýni að ljóst verði að um 30 þúsund bíia umferð fari um Reykja- nesbrautina og ljóst sé að hljóðvist í húsum í grennd við götuna muni versna ef ekkert verður að gert. Hlj óðvistaraðgerðir í þeim tillögum sem nú liggja fyrir er að sögn Jóhannesar miðað við aðgerðir til að bæta hljóðvistar- mál og er unnið með það í huga að hávaði við útvegg húsa fari ekki yfir 55 desibel, eins og skylt er lög- um samkvæmt. Hann sagði að fallið hefði verið frá ofanbyggðarvegi þar sem Hafn- fírðingar hefðu ekki möguleika á þriðju stofnbrautinni inn í bæinn. Sú braut þyrfti að liggja um Garðabæ og það sveitarfélag hafn- aði þeirri framkvæmd, auk þess sem sérfræðingar væru sannfærðir um að meginþungi umferðarinnar mundi alltaf vera um Reykjanes- braut frekar en ofanbyggðarveg. Reykjanesbrautin er þjóðvegur og Vegagerðin er veghaldari. Krist- inn Magnússon, bæjarverkfræðing- ur í Hafnarfirði, segir að hugmynd- in á þeim uppdrætti sem fyrir liggur sé fram komin að frumkvæði Vega- gerðarinnar og hún sé enn á frum- hönnunarstigi. Nýtt aðalskipulag Hafnarparðar er nú auglýst og gefst færi á að gera athugasemdir við skipulagstil- lögurnar til 11. þessa mánaðar. Eftir að Hafnaríjarðarbær hefur tekið afstöðu til athugasemdanna verður skipulagið sent Skipulags- stjórn ríkisins og umhverfisráðherra sem þurfa að fjalla um málið áður en aðalskipulagið fær staðfestingu. Mat á umhverfísáhrifum fer hins vegar ekki fram fyrr en að sam- þykktu aðaiskipulagi og þegar að ákvörðun um framkvæmdir kemur. Melmi ehf. leitar hlutafjár erlendis Leit að gnlli á 10 svæðum í sumar Sólheimar I Grímsnesi fá alþjóðlega vottun Morgunblaðið/Sig. Fannar. GUÐMUNDUR Árni Pétursson, forstöðumaður atvinnumála á Sólheimum, fyrir utan Listhúsið þar sem hægt er að nálgast framleiðslu fyrirtækjanna á Sólheimum. MELMI ehf. hyggst leita að gulli á tíu svæðum á Islandi næsta sum- ar og eru þegar hafnar viðræður við kanadíska og norræna aðila um þátttöku í verkefninu. Bjarni Bjarnason, stjórnarformaður Melmis, segir að reiknað sé með því að leita að gulli á þessu ári fyrir á bilinu 100 til 200 milljónir króna. Fimm til tíu manns vinna við leitina Bjarni sagði að veturinn hefði að mestu farið í það að undirbúa leit næsta sumars og afla fjár til þess. „Við erum með tíu stór svæði ÍSLENSK DAGSKRÁ! Dagsljós Fiðlusnillingur frá Litháen og Ómar á faraldsfæti. SJÓNVARPIÐ Tónlistarkvöld Utvarpsins Leiðsla eftir Jón Nordal í flutningi Sinfóníuhljómsveitar ísiands. RÁS 1 Dægurmálaútvarpió Ef málið er á dagskrá er það rætt í dægurmálaútvarðinu. RÁS 2 rifii RÍKISLJWARPIÐ sem leitarleyfi tekur til. Við mun- um leita á þeim öllum að meira eða minna leyti og hefjumst handa þegar frost fer úr jörðu,“ sagði Bjarni. Hann sagði að á bilinu fimm til tíu manns myndu vinna við leitina þegar mest yrði. Leitað verður með jarðefnafræðilegum aðferðum, sýnatöku, jarðfræðikortlagningu og fleiru. Byijað er með ódýrum aðferðum á stórum svæðum og þar sem vísbendingar finnast eru svæði minnkuð og dýrari aðferðum beitt. Lokaaðferðin er borun en hún fer ekki fram nema mjög góðar vís- bendingar finnist. Sterkar vísbendingar „Á árunum 1991 til 1993 var leitað á mjög stórum svæðum með mikilli yfirborðssýnatöku. Sterkar vísbendingar komu fram á nokkr- um stöðum. Við munum meðal annars rekja þær áfram. Eina svæðið sem við höfum skoðað vandlega er Þormóðsdalur og þar er styrkur gulls nægur til vinnslu en við höfum ekki fundið nógu mikið magn af bergi sem inniheld- ur þennan styrk,“ sagði Bjarni. Hann segir að verið sé að und- irbúa hlutafjársöfnun erlendis. Viðbrögð hafi verið mjög góð. „Að sjálfsögðu stefnum við að sem mestu hlutafé. Við teljum hins veg- ar raunhæft núna að safna 100-200 milljónum króna. Ef nið- urstöður sumarsins verða mjög góðar er það verkefnið sjálft sem tekur völdin og þá verður ekkert vandamál að afla fjár. Þetta er fullkomin áhættufjárfesting og við kynnum verkefnið aldrei öðruvísi," sagði Bjarni. Sjálfbært og vistrænt byggða- hverfi Selfossi - Morgunblaðið. SÓLHEIMAR í Grímsnesi fengu í gær þá alþjóðaviðurkenningu að vera valdir í hóp 14 sjálf- bærra og vistrænna byggða- hverfa í heiminum. Þessi byggða- hverfi mynda með sér samtök sem nefnast „Global Eco-Village Network". Eco-village er alþjóðleg hreyf- ing sem byggir upp samfélög sem eiga að vera fordæmi fyrir aðra byggðarkjarna. Þar spila saman umhverfismál, félagsmál og and- leg sjónarmið. Íbúar Eco-village byggðarkjarna stunda sjálfbæra þróun sem fullnægir þörfum íbúa án þess að rýra möguleika kom- andi kynslóða. Viðurkenning fyrir ísland Pétur Sveinbjarnarson, stjórn- arformaður Sólheima, segir þessa viðurkenningu geta haft margvíslega þýðingu fyrir Sól- heima, en í fyrsta lagi sé þetta skemmtileg viðurkenning fyrir ísland. „Það er búist við að þetta muni hafa þau áhrif að það verði mjög gestkvæmt í náinni framtíð á Sólheimum, og þetta þýðir að við tökum á okkur ýmsar skyldur til að vera til fyrirmyndar í um- hverfismálum. Hugmyndin á bak við þessi alþjóðasamtök er að það sé til staðar eitt eða fleiri byggðahverfi í hveiju landi sem geti verið fyrirmynd í upphafi næstu aldar að góðu bæjarfélagi í umhverfismálum," sagði Pétur. Á Sólheimum hófst skipulagt starf að ummönnun fatlaðra á íslandi og eru Sólheimar fyrsta samfélag sinnar tegundar í heim- inum þar sem fatlaðir og „ófatl- aðir“ lifa saman eðlilegu lífi og þess vegna hafa Sólheimar já- kvæða sérstöðu á meðal þessara samfélaga. Framleiðsluhættir Með vistfélagi er lögð áhersla á að virða náttúruna, unnið er með náttúrunni en ekki gegn henni. Leitað er leiða til þess að raska ekki jafnvægi vistkerfis- ins. Á Sólheimum eru endurunn- in 60% af öllu sem þar er notað í daglegu lífi. Sem dæmi um það sem nýtt er til endurvinnslu verða matarleifar að áburði til lífrænnar ræktunar. Kertastub- bar og vax er notað í kertafram- leiðslu. Úr sængurfötum og efn- isafgöngum eru framleiddar gólfmottur. Reynslan á Sólheim- um er mikil í lífrænni frma- leiðslu enda hefur hún verið stunduð þar í áratugi og í vistfé- laginu er þekking kynslóðanna virt og metin. í vistfélagi er byggt á litlum en vel skipulögðum framleiðslu- einingum þar sem lögð er áhersla á nýtingu mannafla fremur en vélvæðingu. Á Sólheimum eru sjálfstætt starfandi fyrirtæki sem öll framleiða vistvænar vör- ur. Þar er Iistasmiðja, kertagerð, skógræktarstöðin Olur, garð- yrkustöðin Sunna, verslunin Vala og listhús Sólheima þar sem hægt er að kaupa framleiðslu- vörur listasmiðjunnar og kerta- gerðarinnar. Markmiðið er að reka sjálstæð fyrirtæki sem eiga að skila hagnaði og veita íbúum samfélagsins atvinnu. Það nýj- asta í atvinnumálum Sólheima er gistiheimilið Brekkukot sem tekur á móti hópum og gestum í gistingu. Brekkukot er hentugt fyrir fundi og ráðstefnur en þar er lögð áhersla á græna ferða- mennsku, sem er nú að ryðja ser til rúms.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.