Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞÉReruorðinvinsælastaplokkfiskefniþjóðarinnarherra . . .
Ný gjaldskrá fyrir símaþjónustu í samkeppni
Stofngjöld farsíma lækka
NÝ gjaldskrá og reglur fyrir síma-
þjónustu í samkeppni tóku gildi í
fyrradag. Meðal breytinga í gjald-
skránni er lækkun stofngjalda í
báðum farsímakerfunum.
Stofngjald farsíma í NMT-kerf-
inu lækkar um 57% eða úr 11.691
kr. í 4.980. Stofngjald í GSM-kerf-
inu lækkar úr 4.358 í 2.490 eða
um 43%. Þá lækkar viðtökugjald í
NMT-kerfínu um 62% og gjald fyr-
ir númeraskipti í GSM-kerfínu um
46%, samkvæmt fréttatilkynningu
frá Pósti og síma hf.
Meðal nýjunga í NMT-kerfinu
má nefna svokallaðan NMT-dúett,
sem felst í því að mögulegt er að
hafa tvo síma á sama númeri. Það
getur t.d. komið sér vel fyrir þá sem
þurfa á handsíma að halda auk
stærri NMT-síma sem oft er hafður
fastur í bíl eða báti. Einnig verður
sú breyting á að framvegis þurfa
eigendur NMT-síma að sækja sér-
staklega um númeraleynd, vilji þeir
ekki að númer þeirra sjáist á skjá
þeirra sem eru með númerabirti.
Símbréf og tölvugögn send frá
ferðatölvu gegnum GSM-síma
I GSM-kerfínu verður nú hægt
að fá læsingu á símann til útlanda
og í símatorg, unnt verður að senda
símbréf og tölvugögn frá PC-ferða-
tölvu gegnum GSM-símann og allt
að sex notendur geta nú tengst í
hópsímtali. Þá verður hægt að
senda svokölluð smáskilaboð, SMS,
allt að 160 stafí eða tákn að lengd,
úr einum GSM-síma yfir í annan.
Opið er fyrir viðtöku smáskilaboða
í öll GSM-númer en þeir sem vilja
senda boð verða að sækja sérstak-
lega um þá þjónustu. Sumir eldri
GSM-símar geta þó ekki tekið við
smáskilaboðum.
í háhraðaneti Pósts og síma hf.
er nú boðið upp á vistun heimasíðu
og þeir sem tengdir eru gagnahólfi
geta nú sent tölvupóst um Inmars-
at-gervihnött, en það getur t.d.
komið sér vel fyrir útgerðir og sjó-
menn, segir ennfremur í fréttatil-
kynningunni.
Riðuveiki staðfest
á Brú á Jökuldal
„Framlag S-L
til aukins
kaupmáttar“
HELGI Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnuferða-
Landssýnar, segir að fyrirtækið
vilji leggja sitt af mörkum til að
auka kaupmáttinn og fagna stöð-
ugleika sem framundan er á
vinnumarkaði með því að lækka
verð á sólarlandaferðum um 4,7%
fram til 20. maí. Hann segir að
tilboðið sé til hluthafa ferðaskrif-
stofunnar, sem eru öll launþega-
samtök landsins.
Fyrir 10. mars hafi verið sér-
stök kjör í boði en í ljós kom að
margir treystu sér ekki til þess
að festa sér ferð vegna óvissunnar
sem var á vinnumarkaði.
Helgi sagði að þeir sem hefðu
keypt sólarlandaferð eftir að til-
boðið rann út 10. mars myndu
einnig njóta þessa 4,7% afsláttar.
Afslátturinn þýddi um 10 þúsund
krónur ef reiknað væri með
þriggja vikna ferð fjögurra manna
fjölskyldu sem kostaði u.þ.b. 200
þúsund krónur.
Vaðbrekka, Jökuldal.
RIÐUVEIKI staðfestist í fjárstofnin-
um á Brú II nú fyrir páskana. Bænd-
umir á Brú II, Stefán Halldórsson
og Sigríður Ragnarsóttir, tóku eftir
því uppúr áramótum að ein ærin í
fjárstofninum fór að sýna einkenni
um riðuveiki. Einkennin ágerðust síð-
an og undir lok góu var kallaður til
dýralæknir er fargaði ánni og tók
úr henni venjuleg sýni. Það var síðan
undir páska sem niðurstöður úr sýn-
unum komu fram og reyndust þær
vera jákvæðar.
Það er mikið áfall að fá riðuveiki
staðfesta í fjárstofni sínum því skera
verður alian stofninn á næstu dögum
TVEIR ungir menn voru teknir fyrir
of hraðan akstur á Reykjanesbraut,
rétt innan við Voga, á níunda tíman-
um á þriðjudagskvöld.
Að sögn lögreglu í Keflavík virtist
sem þeir hefðu verið að reyna með
og urða hann, alls tæpar 300 vetrar-
fóðraðar kindur.
Auk þess sem þetta er í annað
skiptið er riðuveiki kemur upp á Brú,
en riða var staðfest á Brú árið 1978
og allt fé skorið niður það haust. Var
það í fyrsta skipti sem sýktur fjár-
stofn var skorinn niður hér á landi
og markaði sá niðurskurður upphaf
að markvissri baráttu gegn riðuveiki
í landinu. Það er því mikið áfall að
fá riðuveikina upp aftur á Brú nítján
árum seinna. Tvö býli eru á Brú og
verður að öllum líkindum skorið niður
á hinu býlinu næsta haust en þar eru
260 vetrarfóðraðar kindur.
sér í kappakstri og óku þeir báðir á
um 150 km hraða.
Piltamir voru fluttir á lögreglu-
stöðina í Kefiavík og sviptir ökuleyfí
en ökuskírteini yngri mannsins var
aðeins tæplega tveggja vikna gamalt.
Teknir á 150 km hraða
Vímuefni og unga fólkið
Fordæmi full-
orðinna skiptir
mestu máli
MOTTAHED segist
vera mjög hrifinn
af ísiandi en hann
viti að hér á landi séu mörg
dæmi um að börn, alveg
niður í ellefu ára gömul,
séu háð áfengi og jafnvel
enn öflugri vímuefnum.
Þetta sé uggvænlegt og
hann vilji leggja hönd á
plóginn við að ráða bót á
vanda af þessu tagi sem
þekkist um allan heim.
Mestu skipti að grípa til
fyrirbyggjandi aðgerða og
koma í veg fyrir að fólk
ánetjist efnunum.
- Hvernig ber að sporna
við vímuefnanotkun hjá
ungu fólki?
„Sérhvert samfélag ætti
að grípa inn eins snemma
og hægt er. Foreldrarnir
þurfa að vera þátttakend-
ur. Ef þeir verða sjálfir
gott fordæmi og nota ekki áfengi
á heimilinu er miklu síður hætta
á að barnið verði áfengissjúkt síð-
ar á ævinni. Barnið iærir jafn-
framt um hættuna af efninu."
- Afengi er og hefur lengi ver-
ið hluti af vestrænni menningu.
Mælirðu með vínbanni?
„Ekki banni sem stjórnvöld
setja heldur banni sem menn
ákveða hver fyrir sig, ákvörðunin
á að vera meðvituð.
Ég get ekki ímyndað mér að
nokkur menning geti byggst á
eitri; áfengi og fíkniefni eru vissu-
lega eitur. Þetta er eitur sem veld-
ur miklu tjóni á líkamanum og
andlegri heilsu, einnig efnahags-
legum skaða. Við verðum að huga
vel að þessu. Það er ekki til nein
hófleg neysla á áfengi eða fíkni-
efnum.“
- Áttu við að hófdrykkja sé
ekki til?
„Mjög sjaldan. Það er til fólk
sem drekkur í hófí en fiestir sem
segjast kunna sér hóf í þessum
efnum gera það ekki í reynd. Sum-
ir drekka eitt eða tvö glös af létt-
víni heima hjá sér en verði þetta
að daglegri venju líður þeim illa
ef þeir fá ekki skammtinn sinn.
Þeir fá fráhvarfseinkenni.
Þegar fólk drekkur of mikið
kemur það illa niður á fjöiskyld-
unni, vinnunni, margir lenda í bíl-
slysum, oft kennir fólki áfengi eða
eiturlyfjum um þegar það fremur
glæpi. Það er hægt að koma í veg
fyrir þetta allt með því að neyta
ekki þessara efna.“
- Tölulegar upplýsingar um
þessi mál benda ekki til þess að
meirihluti þeirra sem
nota áfengi misnoti það,
er það?
„Ég fullyrði það ekki
en skýrslur sýna að
unga fólkið um allan
heim notar í æ ríkari mæli tóbak,
áfengi og, þegar frá líður, hass,
heróín og kókaín. Þótt ekki verði
nema tíundi hlutinn af öllu unga
fólkinu ykkar þessum efnum að
bráð er tjónið gríðarlegt. Skatt-
greiðendur verða að borga fyrir
aðstoðina sem þarf að veita sjúkl-
ingunum og bæta það tjón sem
verður af slysum og glæpum er
tengjast notkun áfengis og eitur-
lyfja. Enginn getur bætt þá sem
láta lífíð."
- Stundum er bent á að öli
misnotkun sé samfélaginu dýr,
hvort sem það er ofnotkun áfeng-
is, sykurs eða fitu.
„Það er alveg rétt en áfengið
► Bandaríski læknirinn dr.
Iraj Mottahed hefur starfað við
meðferð áfengissjúklinga og er
mikill áhugamaður um vímu-
efnavarnir en hann er nú í ann-
að sinn staddur hér á landi.
Liðsmenn bahá’í-samfélagsins í
Reykjanesbæ fengu hann til að
ávarpa þar fund um þessi
vandamál nú í vikunni þar sem
einnig átti að ræða um verkefn-
ið Vímulaus valkostur. Hann
telur mikilvægt að foreldrar
séu börnum sínum gott fordæmi
þegar notkun vímuefna er á
dagskrá og vill að enginn undir
21 árs aldri fái að kaupa tóbak
eða áfengi í verslunum.
Mottahed er búsettur í borg-
inni New Bedford, skammt frá
Boston í Massachusetts. Hann
er 65 ára gamall, kvæntur og
á tvær dætur.
er sérstaklega slæmt vegna þess
að fólk ánetjast því og það veldur
ásamt eiturlyfjum hvers kyns
glæpum, unga fólkoð stelur til að
fá peninga fyrir efninu og margir
leiðast út í vændi.
Það þarf að útskýra málin,
fræða unga fólkið. Mitt hlutverk
er að lækna þá sem eru sjúkir.
Stjórnvöld verða að tryggja að
skaðleg efni geti ekki lent í hönd-
unum á ungu fólki og þá á ég við
fólk undir 21 árs aldri. í allri auð-
mýkt fer ég fram á að opinberir
aðilar banni stranglega að fíkni-
efni af hvaða tagi sem er, einnig
áfengi og tóbak, verði seld fólki
undir 21 árs aldri.
í stuttu máli sagt,
ég mæli með fræðslu
og takmörkuðum að-
gangi að þessum efn-
um, að minnsta kosti
fyrir þá sem ekki eru enn komnir
með góða dómgreind, vita ekki
hvað er gott og hvað slæmt fyrir
líkamann, sálina og pyngjuna."
- Ungt fólk hér á landi kaupir
nú þegar heimabrugg á svarta-
markaði vegna þess að það er svo
ódýrt. Yrði hægt að framfylgja
svona lögum?
„Það er hlutverk stjórnvalda,
ég veit ekki hvernig þau eiga að
gera það. En sölumennirnir ættu
líka að huga að því sem þeirra
eigin samviska býður þeim. Ég tei
að aðgerðir af þessu tagi myndu
draga mjög úr notkuninni, reynsl-
an af þeim í Bandaríkjunum bend-
ir eindregið til þess.“
Mjög fáir eru
hófdrykkju-
menn í reynd