Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRlL 1997 17 ERLENT Bonnie og Clyde loks í sömu gröf ? Dallas. Reuter. ^^ ÚTLAGARNIR alræmdu, Bonnie Parker og Clyde Barrow, betur þekkt sem glæpa- hjúin Bonnie og Clyde, áttu þá ósk heitasta að verða jörðuð í sömu gröf og nú kann svo að fara að það verði að veruleika, 63 árum eftir blóðugan dauðdaga þeirra. Marie Barrow, systir Clydes, ráðgerir að selja ýmsa persónulega muni hins fræga glæpamanns á uppboði í San Francisco síð- ar í apríl. Ætlar hún að nota hluta tekn- anna til þess að flylja jarðneskar leifar bróður síns í gröf Bonnie, heimili ættingjar hennar það á annað borð. „Það var hinsta ósk þeirra, einkum og sér í lagi hennar, að þau yrðu jörðuð sam- an. Ég ætla að láta óskina rætast, fáist fyrir því samþykki," sagði Marie Barrow um glæpahjúin. Móðir Bonnie kom á sínum tíma í veg fyrir að þau Clyde yrðu jörðuð í sama kirkjugarði, hvað þá í sömu gröf. Liggja þau hvort í sínum kirkjugarðinum í Dallas. Bonnie og Clyde fóru ásamt samverka- mönnum sínum með báli og brandi um suð- vestur- og miðvesturríki Bandaríkjanna í hálft þriðja ár áður en þau voru vegin í lögregluumsátri skammt frá Gibsland í Louisiana-ríki í mai 1934. Höfðu þau þá rænt tugi banka, bensínstöðvar, smáversl- anir og myrt a.m.k. 12 lögreglumenn. Fyr- Reuter Bonnie og Clyde bregða á leik fjarri armi laganna árið 1933. ir tilstilli kvikmynda og fjölda bóka er líf glæpahjúanna orðið að rómantískri goð- sög^n. Kvikmyndin Bonnie og Clyde með Warren Beatty og Faye Dunaway í hlut- verkum illvirkjanna hlaut tvenn Óskars- verðlaun 1967. Hún hlaut hins vegar mikla gagnrýni fyrir þann hluta sem sýnir aftöku þeirra. Þótti sú myndræna umfjöllun helst til ofbeldisfull. Meðal muna sem Marie Barrow ætlar að selja eru vasaúr Clydes, leikfangariffill, myndir af þeim Bonnie saman, belti og hálsmen. Skyrtan sem hann var í á dauða- stundinni verður einnig seld en hún er eins og gatasigti. Seldi Marie Barrow hana safn- ara í Dallas í fyrra og ætlar sá að bjóða hana nú. Uppboðshaldari telur að hún verði seld á milii 35 og 45 þúsund dollara. Munir þeir sem systirin ætlar að Iáta frá sér eru metnir á milli 21 og 31 þúsund dollara en búist er við að þeir seljist fyrir mun hærri upphæð. Marie Barrow segir að móðir hennar hafi ætíð neitað að selja persónulega muni bróður hennar og hafi hún geymt þá í sedrusviðarkistu. Sjálf hefði hún lengst af haft þá ósk móður sinnar í heiðri. „En nú er ég orðin gömul og þarf á peningum að halda,“ sagði Marie Barrow. Frjáls fjölmiðlun Castro og Meciar í hópi hatursmanna Malaga. Morgunblaðið. FIDEL Castro, leiðtogi kommúnista- stjórnarinnar á Kúbu og Vladimir Meciar, forsætisráðherra Slóvakíu, eru í hópi tíu helstu hatursmanna fijálsrar fjölmiðlunar í heimi hér, að mati Alþjóðlegu fjölmiðlastofnunar- innar (IPI). Á síð- asta ári voru 26 blaðamenn myrtir við skyldustörf sín og 185 voru hand- teknir. Þessar upplýs- ingar komu fram á ársþingi IPI, sem haldið var í Granada í Andalús- íu á Suður-Spáni í liðinni viku. Fundin- um lauk með því að birtur var listi með nöfnum þeirra tíu ráðamanna í heimi hér sem einna ákaf- ast berjast gegn því að fjölmiðlafrelsi fái þrifist í löndum þeirra. Þeir eru: Abu Abdul Rahman Amín, leiðtogi GIA, hreyfingar vopn- aðra múhameðstrúarmanna í Alsír, Deng Xiaoping, leiðtogi kínverskra kommúnista, sem nýverið kvaddi þennan heim háaldraður, Sani Abac- ha, forseti Nígeríu, Mesut Yilmaz, fyrrum forsætisráðherra Tyrklands, Jemomali Rakhmonov, forseti Tadji- kistan, Suharto, forseti Indónesíu, Fidel Castro, Kúbuleiðtogi, Fahd Bin Abdulaziz Inb Saud, konungur Saudi-Arabíu, Moi, forseti Kenýa og Vladimir Meciar, forseti Slóvakíu, sem er eini Evrópumaðurinn sem ástæða þykir til að fordæma í þessu samhengi. Á fundinum kom einnig fram að af þeim 26 blaðamönnum sem týndu lífi við störf sín í fyrra voru sjö myrtir í Alsír og sex í Rússlandi. Að auki féllu fréttamenn fyrir morð- ingjahendi m.a. í Kólumbíu, á Kýp- ur, í Indónesíu, á írlandi, Filippseyj- um og í Tyrklandi, Úkraínu og Tadj- iskistan. Á síðustu tíu árum hafa 474 blaðamenn verið myrtir í starfi. -----♦ ♦ «----- Katólsk en ei kirkjurækin Malaga. Morgunbladið. MIKILL meirihluti spænskra ung- menna telur sig vera katólskan þó svo fæst þeirra telji ástæðu til að sækja messu reglulega. Þetta kemur fram í nýrri könnun Spænsku rann- sóknarstofnunarinnar á sviði félags- vísinda (CIS). Könnunin náði til 2.400 spænskra ungmenna á aldrinum 15 til 28 ára. Sjö af hveijum tíu, sem þátt tóku, kváðu trúarafstöðu sína falla undir skilgreininguna „katólskur". Hins vegar sögðust rúmlega 57% þessara svarenda nánast aldrei fara í kirkju. C4KLGIN GARY FISHER hjálmar_ fyrstir og tremstir SHimnno gírar • bremsur • SPD skór •jCRir SHIFT— gírskiptar logannargírbúnaður CATEYE® Ijósabúnaður •hraðamælar LEMOND sporthjól _ 4i sértlokki Helstu útsölustaðir: Örninn Reykjavík, Hjólið v/Eiðistorg Seltjarnarnesi, Músik og Sport Hafnarfirði, Pípul.þjónustan Akranesi, Olíufél. útvegsmanna ísafirði, Hegri Sauðárkróki, K.S. Sauðárkróki, Sportver Akureyri, K.Þ. Húsavík, Skeljungsbúðin Vestmannaeyjum, Hjólabær Selfossi, Birgir Oddsteinsson Hveragerði, Stapafell Keflavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.