Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Lyfjaþróun hf. þróar aðferð við slímhimnubólusetningu Samið við eitt stærsta lyfja- fyrirtæki Bandaríkjanna LYFJAÞRÓUN hf. hefur gert samning við eitt stærsta lyfjafyrirtæki Bandaríkjanna, Wyeth- Lederle. Fyrirtækið er hluti af fyrirtækjasam- steypunni American Home Products sem er tí- undi stærsti lyfjaframleiðandi í heimi. Samning- urinn veitir bandaríska fyrirtækinu rétt til þess að þróa og framleiða bóluefni í formi nefúða á grundvelli einkaleyfis sem Lyfjaþróun hefur fengið á rannsóknum sínum. Þór Sigþórsson, stjómarformaður Lyfjaþróun- ar, segir að fyrirtækið hafi þróað þessa tækni frá árinu 1991. Framkvæmdar hafa verið dýratil- raunir og gerðar tilraunir með tvær tegundir bóluefna í mönnum, þ.e. við barnaveiki og stíf- krampa, og niðurstöður hafa verið góðar. Náttúruleg smitleið notuð Samningurinn við Wyeth-Lederle kveður á um þróunarsamstarf sem fer að hluta til fram á Islandi undir stjórn Sveinbjörns Gizurarsonar, dósents í lyfjafræði lyfsala í Háskóla íslands, og að hluta til í rannsóknar- og þróunarstofnun Wyeth-Lederle í Rochester í Bandaríkjunum. Markmiðið er að þróa bóluefni í nýju lyfja- formi, þ.e. nefúða, í stað sprautu við ýmsum smitsjúkdómum. Þessi aðferð er nefnd slímhimnubólusetning og fer þannig fram að blöndu af bóluefni ásamt hjálparefnum er úðað upp í nefíð. Hjálparefnið ræsir ónæmiskerfi líkamans. Kostir þessarar aðferðar eru annars vegar þeir að viðbrögð ónæmiskerfisins verða mun skjótari þar sem verið er að bólusetja eftir náttúrulegri smitleið og hins vegar er engin hætta á sýkingu sem fylgir sprautum, ekki síst í vanþróuðum löndum. Þór segir að mikið þróunarstarf sé framundan til þess að þróa endanlegt bóluefni. Ljóst sé að verkefnið sé mjög stórt og það sé ástæðan fyrir því að leitað sé samstarfs við öflugan aðila. Meðalkostnaður við þróun á nýju lyfjaefni er um 17 milljarðar króna. Þór segir að ljóst sé að kostnaður við verkefnið verði mjög mikill. Þór segir að þessi áfangi sé geysilega mikils- verður fyrir eigendur Lyijaþróunar. Búið sé að finna öflugan samstarfsaðila til þess að halda starfinu áfram og fjármuni til þess. Þegar lyfið komi á markað muni það skila miklum tekjum til Lyfjaþróunar í formi nytjaleyfisgreiðslna. Verkefnið var styrkt af Rannsóknarráði íslands. Lyfjaþróun er í eigu nokkurra fyrirtækja en er að stærstum hluta í eigu Lyfjaverslunar ís- lands hf. og Lýsis hf. Aðrir eigendur eru Tækni- þróun hf., Lyf hf., Steinar Waage og Sveinbjörn Gizurarson. Rannsóknir Háskólans á jurtaseyði Ævars Jóhannessonar ÆVAR Jóhannesson við pottana sína þar sem hann sýður lúpínuseyðið. Gengur allt í hag- inní Blackpool Blackpool. Morgunblaðið. SJÖ íslensk pör voru skráð í keppni á mánudag í cha-cha- cha í flokki 11 ára og yngri og komust þau öll í 2. umferð. Þtjú pör fóru áfram í 3. um- ferð og tvö pör komust í 24 para úrslit. Annað þeirra fór alla leið í úrslit og stóðu íslend- ingarnir uppi sem sigurvegarar í lokin. Þetta voru þau Davíð Gill Jónsson og Halldóra Sif Halldórsdóttir. í flokki 12 ára og eldri kepptu 25 íslensk pör í Vínarv- alsi. 14 þeirra komust í 2. umferð og eitt fór alla leið í úrslit og enduðu þau í 5. sæti en það voru þau Benedikt Ein- arsson og Berglind Ingvars- dóttir. A þriðjudag kepptu 11 ára og yngri í standarddönsum og komust fjögur íslensk pör í 2. umferð og eitt alla leið í úrslit og gerðu þau sér lítið fyrir og sigruðu en þetta voru þau Davíð Gill Jónsson og Halldóra Sif Halldórsdóttir. Þau sigruðu síðan í jæv í gærkvöldi. 12-15 ára kepptu í samba og komust 21 íslenskt par í 2. umferð, 10 í 3. umferð, 7 I 4. umferð og 4 í 24 para úr- slit. Eitt þeirra, þau Benedikt Einarsson og Berglind Ing- varsdóttir lentu í öðru sæti. Einnig fór fram landakeppni og hafnaði ísland í 4. sæti. Boðið var upp á keppni fyrir 12-13 ára í cha-cha-cha og rúmbu og gekk íslensku pör- unum ágætlega þó ekkert par hafí komist í úrslit. „NIÐURSTÖÐUR nýlegra rann- sókna hjá Raunvísindastofnun Háskóla íslands, sem hafa sýnt fram á að lúpínurót hefur jákvæð áhrif á ónæmiskerfið, eru í raun staðfesting á því sem okkur hefur lengi grunað og er það vissulega ánægjulegt,“ segir Ævar Jóhann- esson tækjafræðingur, en hann hefur unnið að því í tómstundum sínum í um átta ár að sjóða saman jurtaseyði með rót af alaskalúp- inu sem aðaluppistöðu og gefa það sjúkum. Rannsóknir Raunvis- indastofnunar hafa sýnt fram á að fjölsykrur sem eru i lúpinurót valda marktækri ónæmissvörun og örva ónæmiskerfið, en einnig að jurtaseyði Ævars örvi bein- merginn. I samtali við Morgun- blaðið vill Ævar hins vegar hafa varann á og segir að áhrif Iúpínu- rótar á ónæmiskerfið verði að Staðfesta lækninga- mátt lúpínu rannsaka mjög vel áður en hægt verði að fullyrða lækningamátt hennar með vissu. Sýður um 60 til 120 lítra af jurtaseyði á dag Að sögn Ævars er mikil eftir- spurn eftir jurtaseyðinu og sýður hann um 60 til 120 lítra á dag. Hann er ekki með nákvæma tölu yfir þá sjúklinga sem fái reglu- lega hjá honum jurtaseyði en sennilega skipti þeir hundruðum. Þeir séu flestir krabbameinssjúkl- ingar og drekki um 250 ml á dag. „Sjúklingarnir koma vikulega til að ná í flösku, því jurtaseyðið geymist ekki vel,“ segir hann. „Það hefur reynst því fólki vel sem hef- ur drukkið það reglulega og krabbameinssjúklingar segjast þola lyfjameðferð betur drekki þeir seyðið samhliða henni," segir hann. Ævar hefur aldrei krafíst greiðslu fyrir jurtaseyðið og segist hann hafa ákveðið það strax I upp- hafi. „Hefði ég byrjað á þvi að taka eitthvað fyrir seyðið, hefði verið litið á þetta sem hvert annað gróða- fyrirtæki og margir orðið á móti mér og reynt að gera mér erfítt fyrir. Og þá hefði ég aldrei komist neitt áleiðis með að sýna fram á Iækningamátt jurtaseyðisins," seg- ir hann að síðustu. Mál Sophiu Hansen fær mikla umfjöllun í tyrkneskum fjölmiðlum „Erfitt að fara út á götu“ „ÞAÐ er orðið mjög erfítt fyrir mig að fara út á götu hér í Istanb- úl, því að alls staðar er fólk sem vill lýsa yfír samúð sinni og stuðn- ingi við mig,“ sagði Sophia Hansen í samtali við Morgunblaðið í gær. Mikið er fjallað um mál hennar í tyrkneskum fjölmiðlum þessa dag- ana og nú síðast var sýndur þáttur í gærmorgun á sjónvarpsstöðinni ATV, þar sem rætt var við Sophiu og barnasálfræðing, auk áhorf- enda í sal. Samkvæmt áhorfskönnunum fýlgjast um 35 milljónir áhorfenda með þættinum, sem sendur er út kl. hálftíu að morgni, og er aðal- markhópur hans heimavinnandi húsmæður. Því kom það stjórnanda þáttarins mjög á óvart hversu margir karlmenn hringdu til stöðv- arinnar að þættinum loknum til þess að lýsa yfir stuðningi við málstað Sophiu. Sophia kom fram öðru sinni í þættinum Arena sl. fimmtudag en sá þáttur var m.a. tekinn upp á heimili hennar í Istanbúl og á tröppum heimilis Halims A1 og dætra þeirra, Dagbjartar Vesile og Rúnu Aysegiil, þar sem Sop- hia gerði árangurslausa tilraun til að neyta umgengnisréttar síns. Þá var viðtal við Halim A1 í þætti á sjónvarpsstöðinni Kanal 7 á föstudaginn langa, þar sem hann mætti gagnrýni frá heittrúarmú- slimum. Þar kom m.a. fram að hvergi í Kóraninum segði að rétt- lætanlegt væri að aðskilja móður og börn. Sophia sagði marga vegfarend- ur hafa stöðvað sig úti á götu sið- ustu daga. „Sumir segjast hreinlega skammast sín fyrir að vera Tyrkir því að þeim fínnst svo hræðilegt hvernig búið er að koma fram við börnin og mig. Þeir segja að tyrkn- eska þjóðin sé ekki öll svona, þetta mál sé undantekning," sagði Sophia. Fríverslun við Fær- eyjar og Grænland LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi j þingsályktunartillaga um að gerður verði fríverslunarsamningur við Færeyjar og Grænland. Flutningsmennirnir, sem eru fimm þingmenn Sjálfstæðisflokks, Þingflokks jafnaðarmanna, Fram- sóknarflokks og Alþýðubandalags, benda á að ef gerður yrði samsvar- andi fríverslunarsamningur og til dæmis hefur verið gerður við ýmis ríki Austur-Evrópu og Miðjarðar- | hafssvæðisins, mætti flytja inn físk | frá löndunum tveimur og selja hann á markaði á Evrópska efnahags- svæðinu, rétt eins og hann væri frá íslandi. Einnig telja þeir að möguleikar séu á útflutningi matvæla til Fær- eyja og Grænlands. Þeir benda á að fyrir nokkrum árum hafi skap- ast möguleikar á útflutningi mjólk- ( ur til Færeyja, en að tækifærið hafi ekki nýst vegna þess að ekki 1 hafi náðst gagnkvæmir samningar ) um verslun með slíkar vörur. ♦ ♦ ♦----- Enn í mikilli hættu FJÖLSKYLDAN sem slasaðist F mjög alvarlega í hörðum árekstri á , Reykjanesbraut á mánudagskvöld v liggur enn á gjörgæsludeild Sjúkra- húss Reykjavíkur. Um er að ræða hjón og bam þeirra á sjötta aldursári og er líðan þeirra óbreytt frá því slysið átti sér stað, samkvæmt upplýsingum frá sjúkrahúsinu. Þau hafa verið í lífs- hættu. I I > Andlát ETHEL WIKLUND \ FRÚ Ethel Wiklund, fyrrverandi • sendiherra Svía á íslandi, andaðist á heimili sínu í Svíþjóð 19. mars sl., 66 ára að aldri. Hún var fædd 24. október 1930 í Kalmar í Smálöndum. Hún lauk lögfræðiprófí frá Uppsalaháskóla árið 1955 og að því búnu hófst fer- ill hennar hjá utanríkisþjónustu Svíþjóðar. Ethel var sendiherra Svía á Is- p landi á árunum 1978-1983. Hún t var fyrsta konan sem tók við slíku 9 starfi í utanríkisþjónustu Svía sem embættismaður en ekki pólitískur fulltrúi. Áður hafði hún starfað í ýmsum löndum á vegum utanríkis- þjónustunnar, m.a. í París, Kaup- mannahöfn, Gaborone í Botswana- landi og í Lissabon. Eiginmaður Ethel var Oscar Wik- L lund verkfræðingur sem lést árið 1985. I' Útför Ethel Wiklund fer fram frá m Rácksta kyrka í Stokkhólmi 11- apríl kl. 12.45. j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.