Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 37 MINNINGAR dyggðir er Gizur Bergsteinsson bjó yfir í svo ríkum mæli. Ég vil að lokum þakka tengdaföð- ur mínum velgjörðir hans bæði and- legar og veraldlegar. Marta Bergman. Nú þegar afi minn, Gizur Berg- steinsson, hefur kvatt okkur sinni hinstu kveðju, langar mig að minn- ast hans með nokkrum orðum. Hann var góður maður og honum var allt- af efst í huga að gera rétt og vanda sig í hvívetna, jafnt orð sín sem at- hafnir. Þessir eiginleikar voru vissu- lega mikilvægir fyrir mann sem set- ið hefur í Hæstarétti íslands í 37 ár. Þar var mestur hluti ævistarfs hans unninn enda var hann skipaður hæstaréttardómari aðeins 33 ára gamall. Þótt margir dómar Hæsta- réttar, þar sem dómarar voru sam- mála um niðurstöðu, hafi verið samdir af honum, bera samt sérat- kvæði hans því órækast vitni hversu geysiöflugur lögfræðingur hann var. Þau voru rökstudd af mikilli vand- virkni og voru ekki aðeins góð lög- fræði heidur einnig góð íslenska enda lagði afi mikið upp úr því að vanda mál sitt. Afi minn var síles- andi og sívinnandi, enda var vinnu- þrekið gífurlegt. Man ég varla eftir honum öðru vísi en með bók í hendi eða við skriftir. Ailtaf las hann lög- fræðirit af ástríðufullri ánægju en hann hafði þó mörg önnur áhuga- mál. Hann hafði gífurlegan áhuga á tungumálum og málfræði eins og sératkvæðin hans bera vitni um. I frístundum þótti honum gott að dreifa huganum með því að lesa t.d. Agöthu Christie á ensku, en einnig alvarlegri bókmenntir á öðrum tungumáium. Við barnabörnin nut- um góðs af þekkingu hans og áhuga á menntun og menningu og var hann okkur gott fordæmi. Oft þegar við afi sátum saman við borðstofu- borðið á Neshaganum átti hann það til að spyija mig hvað ég væri að læra í skólanum og lét mig svo þýða setningar af íslensku yfir á dönsku eða ensku og stundum beygja lat- neskar sagnir og nafnorð. Éf svörin voru ekki rétt leiðrétti hann mig á svo jákvæðan hátt að það varð manni hvatning til að standa sig betur. Sömu sögu hafa önnur barnabörn hans að segja. Gizuri afa mínum var óvenjuleg mannúð í blóð borin. Hann var mikill dýravinur og neitaði af þeirri ástæðu að snæða kjötmeti. Dýravinátta hans birtist m.a. í mik- illi ást á hestum og þótti honum gott að bregða sér á hestbak þegar hann kom í átthagana austur í Hvol- hreppi í Rangárvallasýslu. Síðustu árin áttu afi og amma kött og komst enginn hjá því að taka eftir hversu vænt afa þótti um hann. Það sem mér er þó minnisstæðast um afa minn er hversu vænt honum þótti um íjölskyldu sína og var alla tíð hlýlegur í framkomu og hafði góða nærveru. Það var einstakt að fylgj- ast með honum og Dagmar ömmu, hversu mikla virðingu þau báru hvort fyrir öðru og sýndu það í öllum sínum verkum hversu vænt þeim þótti hvoru um annað. Þegar amma var komin yfir nírætt, spurði afi hana einn daginn hvernig hún gæti verið svona slétt í framan þrátt fyr- ir sinn háa aldur. Þá svaraði hún: „Það er vegna þess að þú hefur allt- af verið svo góður við mig, Gizur minn.“ Þau voru ekki aðeins hjón, heldur líka bestu vinir. Þrátt fyrir að afi hafi orðið næstum níutíu og fimm ára gamall hélt hann góðri heilsu og andiegum kröftum sínum fram til þess síðasta. Hans verður sárt saknað. Blessuð sé minning Gizurar afa. Dagmar Sigurðardóttir. Með Gizuri Bergsteinssyni er genginn merkur maður, sem naut almennrar virðingar og hafði víðtæk áhrif í þjóðfélagi okkar. Stóran hluta starfsævi sinnar var hann dómari við Hæstarétt íslands og markaði djúp spor í sögu og þróun réttarins. Var hann skipaður dómari þar á árinu 1935, aðeins 33 ára að aldri, og sat þar til ársins 1972, eða í rúm 36 ár, lengur en nokkur annar. Forseti rétt- arins var hann samtals í 9 ár á þessu tímabili, en lengst af tímabilsins var kjörtímabil forseta eitt ár. Þetta voru tímar mikilla breytinga í hinu ís- lenska þjóðfélagi, frá því bændasam- félagi, sem Gizur ólst upp í, til nú- tímaþjóðfélags með gjörbreyttum háttum á öllum sviðum. A starfstíma Gizurar varð því mikil og ör þróun í íslenskum rétti. Þar hafði hann mikil áhrif sökum víðtækrar og næmrar lagaþekkingar. Naut hann mikils álits og trausts í störfum sínum, enda hafði hann til að bera greind og hæfileika, sem gerðu hann frábær- lega hæfan til að leysa úr hinum flóknustu viðfangsefnum. Hann var víðlesinn á flestum sviðum lögfræð- innar og gerði sér sérstakt far um að fýlgjast m_eð nýjum straumum í þeim efnum. í Hæstarétti reyndi sí- fellt á ný og erfíð úrlausnarefni, sem tekin voru vönduðum tökum og kveðnir upp skýrir dómar. Þar voru á þessum tíma dæmd mál á mörgum sviðum réttarins, sem reyndust traust fordæmi til framtíðar. Naut hér við staðgóðrar lagaþekkingar, glögg- skyggni og mannvits Gizurar og sam- dómenda hans. Ekki einasta nýttist þekking Giz- urar Bergsteinssonar og hæfíleikar í störfum hans sem dómari í Hæsta- rétti, heldur átti hann drjúgan þátt í að undirbúa nýja lagasetningu, meðal annars á áður lítt þekktum sviðum. Þannig átti hann mjög hlut að mótun löggjafar á sviði sam- gangna, en á fáum sviðum hafa orð- ið eins gagngerar breytingar og þar. Hann vann meðal annars að frumvarpi að bifreiðalögum og ekki síður er merkt framlag hans til laga um loftferðir, en hann mun hafa samið frumvarp að fyrstu lögum um þau efni og skýringar með því. Þá átti hann góðan hlut að löggjöf um réttarfarsmálefni, bæði með meðferð opinberra mála og einkamála, svo og að löggjöf um Hæstarétt íslands. Rétt er hér og að geta þess að Giz- uri og samdómurum hans var það æuð mikið kappsmál að dómar Hæstaréttar væru ritaðir á góðu ís- lensku máli eins og dómar réttarins á ofangreindu tímabili bera glöggt vitni um. Þegar Gizur Bergsteinsson er nú kvaddur hinstu kveðju minnist Hæstiréttur íslands hans með mik- illi þökk og virðingu. Þau störf, sem hann og starfsfélagar hans unnu innan veggja réttarins, lögðu traust- an grunn, sem síðan hefur verið byggt á. Sú ósk skal hér látin í ljós að Hæstarétti megi auðnast um alla framtíð að starfa af þeim trúnaði og hollustu við lög landsins, sem einkenndu öll störf Gizurar Berg- steinssonar. Eiginkonu hans, frú Dagmar Lúðvíksdóttur, og aðstand- endum öllum er vottuð innileg samúð við fráfall hans. Haraldur Henrysson. 0 Fleiri minningargreinar um Gizur Bergsteinsson bíða birting- arogmunu birtast í blaðinu næstu daga. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, áður til heimilis í Breiðumörk 5, Hveragerði, er lést á Hrafnistu í Reykjavík 22. mars, verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 5. april kl. 13.00. Guðmundur Bjarnason, Steinunn Bjarnadóttir, Ingi Sæmundsson, Hafsteinn Bjarnason, Valdís Steingrímsdóttir, Birgir Bjarnason, Hildur Bjarnadóttir, Guðrún Bjarnadóttir, Björk Bjarnadóttir, Kolbrún Bjarnadóttir, Morten Ottesen, barnabörn og barnabarnabörn. Jónas Helgason, Sigurjón Björnsson, t Elskulegur faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, bróðir og afi, EYJÓLFUR BJÖRNSSON, Vötnum, Ölfusi, andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands þann 1. apríl. Útförin fer fram frá Kotstrandarkirkju laugar- daginn 5. apríl kl. 11.00. Aldís Eyjólfsdóttir, Höskuldur Halldórsson, Jóna Guðný Eyjólfsdóttir, Þórður Kr. Karlsson, Soffía Adolfsdóttir, Stefán Már Símonarson, Aldis Björnsdóttir, Geir Höskuldsson, Viktor Elí Sverrisson. t Innilegar þakkir til allra, vina og vandamanna, fyrir auðsýnda samúð og hlýhug, vegna frá- falls elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, sonar og bróður, GUÐJÓNS HAUKS HAUKSSONAR, Holtsbúð 77, Garðabæ. Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynning- ar Krabbameinsfélagsins og deildar 12G á Landspítalanum Álfheiður Emilsdóttir, Haukur Guðjónsson, fris Dögg Guðjónsdóttir, Áslaug Hulda Magnúsdóttir, Haukur Guðjónsson, Margrét Hauksdóttir og fjölskylda, Sigurlaug Hauksdóttir og fjölskylda. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, STEFÁNS GUTTORMSSONAR, Mánagötu 12, Reyðarfirði. Dagmar Stefánsdóttir, Einar Guðmundur Stefánsson, Birna María Gísladóttir, Stefán Þórir Stefánsson, Kristín Guðjónsdóttir, Guttormur Örn Stefánsson, Helga Ósk Jónsdóttir, Sigfús Arnar Stefánsson, Smári Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og jarðarför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HALLGRÍMS Á. KRISTJÁNSSONAR pípulagningameistara, Hraunbæ 12, Reykjavík. Hörður Hallgrímsson, Oddný Guðmundsdóttir, Kristján Hallgrímsson, Steinhildur Sigurðardóttir, Herdís Hallgrímsdóttir, Guðni Pálsson, Svava Hallgrímsdóttir, Magnús Vilhjálmsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Öllum þeim, nær og fjær, sem minntust INGÓLFS MÖLLER fyrrverandi skipstjóra, Dalbraut 21, færum við dýpstu þakkir. Ástúð ykkar og virðingu geymum víð I minningu okkar. Skúli Möller, Jakob R. Möller, Elín Möller, Anna R. Möller, Ingólfur Jónsson, Kristin Sjöfn Helgadóttir, Jón G. Baldvinsson, Stefán Hjaltested, Hafdfs Hreiðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarþel við andlát og útför INGVARS EINARSSONAR, Hraunbraut 27, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameins- deildar Landspítalans 11E, svo og til starfs- fólks Heimahlynningar Krabbameinsfélags islands, Fyrir hönd aðstandenda, Anna V. Gissurardóttir. t Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför VALGERÐAR GUÐMUNSDÓTTUR, Lindarbrekku, Hvammstanga. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Hvammstanga fyrir góða umönnun. Eggert Levy og aðstandendur. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför SIGRfÐAR BJARNADÓTTUR. Bjarni Jónsson og fjölskylda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.