Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 43 BRÉF TIL BLAÐSIIMS Miskunnsemi Frá Eggerti E. Laxdal: MARGT er að gerast í þjóðfélag- inu, sem hefur valdið deilum og umræðum, bæði meðal almenn- ings og manna í æðstu stöðum. Menn gerast dómharðir og leggja allt kapp á að svifta fórnarlömb sín frama og æru vegna misferlis, sem mönnum er borið á brýn. Engin refsing er talin of þung,til þess að fullnægja kröfum um sið- ferði og réttlæti. En er nokkur maður syndlaus ef grannt er skoð- að og ber ekki að taka orð meistar- ans frá Nasaret alvarlega þegar hann sagði: „Sá yðar, sem synd- laus er, kasti fyrsta steininum." Það er eitt orð í íslensku máli, sem vonandi finnst ennþá í orða- bókum, en þar á ég við orðið mis- kunnsemi, sem er að missa meira og meira af áhrifamætti sínum og kemur það glöggt fram í öllum samskiptum manna á meðal. Dómharka og refsigleði eru aftur á móti orð, sem sífellt virðast vera að ná auknu vægi í þjóðfélaginu. Þegar krafist er harðari refsinga fyrir meint brot eiga slíkar kröfur greiða leið inn í æðsta stjórnkerfi landsins og eru umsvifalaust tekn- ar til greina og samþykktar sem lög. Eg veit ekki hvort orðið mis- kunnsemi finnst í lögbókum eða í huga þeirra sem kveða upp dóma, en óttast þó að lítið muni fara fyrir því á þeim vettvangi. Verði menn uppvísir að einhverju mis- ferli, sem að sjálfsögðu getur ver- ið ámælisvert, þá geta þeir átt það á hættu að missa starf sitt, eigur sínar og lenda loks í fangelsi um lengri eða skemmri tíma. Þetta þykir þó stundum ekki nóg, helur eru þeir einnig sviftir ærunni ævilangt og taldir óalandi og óferjandi alls staðar í þjóðfélag- inu. Hvað bíður svo refsifanga, þegar refsivist lýkur og þeim er sagt að nú séu þeir frjálsir menn. Margir útskrifast allslausir, heimilislausir og ofan á allt, at- vinnulausir og eiga hvergi höfði sínu að halla. Eitthvert afdrep mun vera til fyrir þessa menn, en það er ófullkomið og varla sæm- andi lifandi mönnum. Þar eru vist- mönnum settar reglurnar, því að frelsi má ekki ríkja á slíkum stöð- um. Meðal annars er þeim gert að vera komnir heim á tilteknum tíma á kvöldin, geri þeir það ekki, þá er þeim úthýst og gert að mæla göturnar næturlangt í öllum veðrum. Þarna og víða annars staðar þar sem fólk er vistað þyrfti að hengja upp boðskap á veggina, sem fjallar um miskunnsemi. Þekkingarskortur á þýðingu þessa orðs kemur fram í samskiptum manna og þjóða og um allan heim, bæði í þróuðum og vanþróuðum ríkjum. Menn leita réttar síns með ofbeldi og misþyrmingum og krefjast hefndar telji þeir að gert sé á hluta þeirra. Stundum gengur þetta svo langt, að það kostar mannslíf og í versta tilfelli styrj- aldir, þegar þjóðir deila, með öllum þeim hörmungum, sem þeim fylgja. Þá vantar ekki peninga, þeir eru alltaf til þegar kaupa þarf vopn og önnur drápstæki. Her- mennirnir fá nógan mat, en biðji sveltandi almúginn um brauðbita til þess að seðja sárasta hungrið, þá er honum synjað. Það er mín tillaga til allra manna og þá ekki síst þeirra, sem stjórna þjóðum, að auka vægi orðsins miskunnsemi og láta það fá meira rými í öllum störfum sín- um og ákvarðanatökum, sem varða hag og velferð fólksins. EGGERT E. LAXDAL, pósthólf 174, Hveragerði. Frá Pétri Grétarssyni: REYKJAVÍK ætlar að skila hlut- verki sínu sem ein af menningar- borgum Evrópu árið 2000 með sóma, samkvæmt yfirlýsingum borgarstjóra sem nú hefur ýtt úr vör fram- kvæmdafleyi sem setja á kúrs- inn. í stjórninni situr fólk sem í ræðu og riti hef- ur sýnt að því er treystandi til að taka myndarlega á málum og er því ekki ástæða til að efast um að verkefnið verði til góðs fýrir íslenska menningu hvort sem árangurinn verður mæld- ur í fermetrum nýs tónlistarhúss eða aukinni menningarvitund þjóðarinnar. Vonandi getur þetta farið saman. Þess var ekki getið í Morgun- blaðsgreininni um þetta fyrirbæri fímmtudaginn 27. febrúar sl. hvort milljónirnar tuttugu sem renna eiga til verkefnisins á þessu ári séu þær sömu og Reykjavíkurborg áætlar til menningarstarfsemi sem ekki er miðuð við menningarborgarveisl- una. Þetta á kannski eftir að skýr- ast. Það á líka eflaust eftir að skýr- ast hver hlutur ráðuneytis menning- armála verður í undirbúningi og framkvæmd Menningarársins 2000. í almennri greinargerð um mark- mið verkefnisins er lögð áhersla á að menningin eflist til lengri tíma litið og segir m.a. að markaðssetja skuli íslenska menningu erlendis. Vonandi verður starfsemi stjómar Menningarárs í beinum tengslum uxur Tískuver/Jun v/Nesveg SeUjarnarnesi sfmi 561 1680 afsl. rUll búð af n, ■ CHA * CHA fimmtudag, föstudag og laugardag C*C*D*K CYKLES C»C*D»K bolir nú BasicTwiil buxur nú New Silver buxur nú Ballon buxur nú Allar blússur nú Menn- ing 2000 við kynningarmiðstöðvar listgreina í landinu svo að starfið nýtist lista- mönnum til áframhaldandi kynn- ingar á verkum sínum eftir að menningarárinu lýkur. Fyrir tveimur árum lét Félag ís- lenskra hljómlistarmanna vinna þarfagreiningu vegna þjónustu og kynningarmiðstöðvar tónlistarflytj- enda í Reykjavík, en aðstaða sem í boði er fyrir tónlistarflytendur er algjörlega óviðunandi og úrbóta þörf hið snarasta. Það hlýtur að teljast réttlætismál að íslenskir tónlistarflytjendur njóti nokkurs atbeina ríkis og borgar til að byggja upp kynningarmiðstöð fyrir list sína. Tónlist verður ekki flutt nema með fulltingi hljómlistar- manna og undanfarin ár hefur hlut- deild þeirra í því sultarbrauði sem menningarmál eru farið minnkandi. Flytjendum hefur lengi sviðið það óréttlæti að þeir skuli ekki njóta sama réttar og aðrir listamenn sem hafa með styrk frá hinu opinbera getað starfrækt öflugar kynning- armiðstöðvar fyrir listgreinar sínar. Nægir hér að nefna Tónverkamið- stöð og kynningarmiðstöðvar myndlistarmanna og kvikmynda- gerðarmanna. Þrátt fýrir ójafna stöðu hefur FÍH hafið brautryðj- endastarf fyrir íslenska tónlistar- flytjendur, nú síðast með útgáfu á jazztónlist og klassískri tónlist. Þessi útgáfa er þungamiðjan í öflugri kynningu á íslenskum tón- listarflytjendum sem nú er hafin á erlendri grundu í nafni ÍSDISKA. Menntamálaráðuneytinu var sent erindi nýlega vegna kynningarmið- stöðvar tónlistarflytjenda, en svar hefur ekki borist við umsókn um að ráðuneytið kosti starfsmann til reynslu í eitt ár til að vinna að gagnabanka um möguleika ís- lenskra tónlistarflytjenda á erlend- um mörkuðum. Hér er kjörið tækifæri fýrir menntamálaráðuneytið og Reykja- víkurborg að sameinast í öflugri kynningu á íslenskum tónlistarflytj- endum í tengslum við Menningarár- ið 2000. í tengslum við starf fram- kvæmdanefndar Menningarársins 2000 mætti reka þjónustumiðstöð tónlistarinnar í landinu í þágu alls tónlistarfólks. PÉTUR GRÉTARSSON, hljómlistarmaður. Ókeypis lögfræðiaðstoð í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012. Orator, féiag iag cinemci. Kœru vibskiptavinir Um leib og við bjóðum Rakel Ársælsdóttur velkomna, viljum við láta ykkur vita að hún hefur hafið störf á stofunni okkar. FAXAFENI 9 108 REYKJAVÍK SÍMI 588 9299 RALA Rannsóknastofnun landbúnaðarins Bændasamtök íslands BÚSKAPUR OG VIST Á NORÐURSLÓÐ Fundur í Borgartúni 6, Reykjavík, föstudaginn 4. apríl 1997, kl. 13.00. Haldinn í tilefni af útkomu 10. heftis fræðiritsins BÚVÍSINDA, sem tileinkað er dr. Sturlu Friðrikssyni. Dagskrá Fundarstjóri: Sigurgeir Þorgeirsson, framkv.stj. Bændasamtaka íslands kl. Inngangur 13.00 Ávarp og setning - Þorsteinn Tómasson, forstjóri rannsóknastofnunar landbúnaöarins 13.10 Kynning og afhending rits - Friörik Pálmason, ritstjóri búvísinda 13.20 Ávarp Sturla Friðriksson Erindi 13.30 Störf dr. Sturlu Friðrikssonar - Stefán Aðalsteinsson 13.45 Kynbætur fóðurjurta fyrir norðurslóðir - Áslaug Helgadóttir 14.00 Áhrif nituráburðar og sláttufjölda á túngrös - Bjarni E. Guðleifsson 14.15 Áhrif nokkurra þátta á spírun melfræs - Sigurður Greipsson og Anthony J. Davy 14.30 Túnbeitartilraunir með sauðfé og kálfa á Hvanneyri - Ólafur R. Dýrmundsson, Sigurður H. Richter og Jón Viðar Jónmundsson Kaffihlé 15.15 Hitafar og gróður - Páll Bergþórsson 15.30 ( norðlenskri vist - Grétar Guðbergsson 15.45 Áhrif sinubruna á vistkerfi framræstrar mýrar - Guðmundur Halldórsson 26.00 Gróðurframvinda í Surtsey - Borgþór Magnússon, Sigurður H. Magnússon og Jón Guðmundsson 16.15 Umræður 16.40 Fundarslit - Árni Bragason, forstöðumaður Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkisins Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.