Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þingsályktunartillaga sem miðar að auknum sparnaði Starfsfólk sparí fyrir hlut í fyrirtækjunum FJÓRIR þingmenn Sjálfstæðis- flokksins hafa lagt fram þingá- lyktunartillögu um að sett verði lög er hafi það að markmiði að efla sparnað og auðvelda almenn- ingi að eignast hlut í atvinnu- rekstri. Þessu markmiði verði náð með því að bjóða starfsfólki fyrir- tækja, sem skráð eru á hlutabréfa- markaði eða hafa verið einka- vædd, að stofna sérstaka sparnað- arreikninga með hæstu ávöxtun hjá viðskiptabanka fyrirtækjanna. Föst fjárhæð af launum þeirra yrði lögð á reikninginn. Að loknum binditíma, þremur til sjö árum, öðlist starfsmennirnir rétt á að nýta sér féð til að kaupa hlutafé í fyrirtækinu á því gengi sem var á hlutabréfunum þegar sparnaðar- tíminn hófst. Vilji starfsmaður ekki nýta sparnaðinn til hlutafjár- kaupa verði honum frjálst að verja fénu til annars. Flutningsmenn tillögunnar eru Einar K. Guðfinnsson, Tómas Ingi Olrich, Pétur H. Blöndal og Einar Oddur Kristjánsson. I greinargerð þeirra með tillögunni segir m.a., að þróun síðustu ára, þar sem ein- staklingar hafi í vaxandi mæli keypt hlutabréf, sé afar æskileg. Vaxandi eignaraðild almennings í fyrirtækjum veiti stjórnendum að- hald og krafan um upplýsingar aukist. Góðæri skilar til almennings Vitnað er til reynslu Breta, þar sem einkavæðing stórra ríkisfyrir- tækja hafi opnað fólki leið til þátt- töku í atvinnulífinu með þessum hætti. Bent er á, að með auknu hlutafé batni fjárhagur fyrirtækj- anna, enda sé hægt að nýta það til að greiða niður skuldir eða efla fyrirtækið á annan máta. Þá verði eignadreifing meiri, sem sé ekki síst æskileg í stórum fyrirtækjum með markaðsráðandi stöðu og jafnframt aukist sparnaður í þjóð- félaginu, en mikil þörf sé á því hér á landi. í lok greinargerðarinn- ar benda flutningsmenn tillögunn- ar á, að ef almenningur eignist hlut í atvinnulífinu fái fólk tæki- færi tii að fá beinan arð af fyrir- tækjunum þegar vel gangi. Þannig muni góðæri í atvinnulífinu skila sér til almennings. Yiðlegu- bryggja á Bakkafirði Bakkafirði. Morgunblaðið. UNNIÐ er nú að tengingu viðlegu- bryggju á Bakkafirði og lengist hún úr 20 metrum í 40 metra en fyrir eru flotbryggja og 20 metra löndunarbryggja. Heildarkostnaðaráætlun við- legubryggjunnar var upp á 5 millj. kr. Fram fór lokað útboð þar sem fjórum aðilum voru send útboðs- gögn og voru öll tilboðin hærri en kostnaðaráætlunin. Þar af leiðandi var þeim öllum hafnað, að sögn Steinars Hilmarssonar, oddvita og samið við Guðlaug Einarsson, skipasmið, um verkið fyrir 2,6 millj. kr. í samtali við Guðlaug Einarsson kom fram að áætlaður byggingartími væri 14 vinnudagar fyrir fjóra starfsmenn og að verk- ið væri á áætlun. Nýja viðlegu- bryggjan er úr furu og er ekki ætluð fyrir meiri öxulþyngd en 2,5 tonn. Þetta verður til mikilla bóta í höfninni þar sem þrengsli eru oft mjög mikil því hér er oft mikill fjöldi aðkomubáta. Ritstjóri Mannlífs kærður til siðanefndar PÁLMI Jónasson blaðamaður hef- ur kært Hrafn Jökulsson ritstjóra til siðanefndar Blaðamannafélags íslands vegna úttektar í tímaritinu Mannlífi um Franklín Steiner. Segir Pálmi í kærubréfi, að hann hafi verið fenginn til að skrifa úttektina sem hafi átt að vera unnin í nánu samstarfi við Hrafn sem er ritstjóri Mannlífs. Ritstjórinn hafi búið úttektina í endanlegan búning og kosið að eigna sér alla vinnuna, bæði í tíma- ritinu sjálfu og allri þeirri umfjöll- un sem fylgdi. Pálmi segist hins vegar hafa látið Hrafni í té öll meginatriði úttektarinnar og styð- ur það gögnum. IpBÁKKWj m>uR -| HHB mH j UNNIÐ við viðlegubryggjuna á Bakkafirði. Morgunbiaðið/Áki Guðmundsson Mótmæli Hanes-hjóna fyrir héraðsdóm í næstu viku Sljórnvökl bíða úrskurðar ÞESS er að vænta að mótmæli Hanes-hjónanna við framsalskröfu á hendur þeim verði tekin fyrir hjá Héraðsdómi Reykjavíkur í næstu viku. Stefán Eiríksson, lögfræðing- ur hjá dómsmálaráðuneytinu, kveðst ekki eiga von á að íslensk stjórnvöld grípi til sérstakra að- HÁG Skrifstofustólar LOKSINS Á ÍSLANDI Til framtiðar litið EG Skrifstofubúnaður chf Ármúli 20 Sími 533 5900 gerða þangað til úrskurður dóms- ins liggur fyrir. Hjónin lögðu fram hjá RLR yfir- lýsingu þess efnis á þriðjudag að þau væru tilbúin að fara til Banda- ríkjanna af fúsum og fijálsum vilja, verði handtökuskipun á hendur þeim felld niður. Heita þau því að gefa sig fram við yfirvöld í Ariz- ona-ríki. Snýr að bandarískum stjórnvöldum Stefán kveðst telja þessa beiðni snúa nær einvörðungu að banda- rískum stjórnvöldum. „Að okkur beinist krafa bandarískra stjórn- valda um framsal og við mátum það svo að ekki væri ástæða til að hafna henni að svo stöddu og sendum hana því ríkissaksóknara til meðhöndlunar. Þótt svo við féll- um frá því að samþykkja kröfu um framsal myndi það litlu breyta um handtökuskipun á hendur Hanes- hjónunum í Bandaríkjunum. Við munum þess vegna leiða málið til lykta í samræmi við lög og alþjóðasamninga þar að lút- andi, nema afturköllun eða eitt- hvað sambærilegt berist frá Bandaríkjunum," segir Stefán. Hann kveðst líta svo á að Hanes- hjónunum hafi staðið til boða að gefa sig fram i Arizona án þess að vera meðhöndluð sem sakamenn við komuna til Bandaríkjanna, hefðu þau virt það samkomulag sem þau gerðu við bandarísk stjórnvöld um að fara héðan ekki síðar en 1. mars sl. Virðist sem þau hafi ekki gert sér grein fyrir afleiðingum þess að framlengja dvöl sína hérlendis, sem þau gerðu að fengnu samþykki ís- lenskra stjórnvalda á þeim forsend- um að þau hefðu ekki náð að ganga nægjanlega vel frá málum sínum hérlendis. Hanes-hjónin héldu því fram í yfirlýsingu sinni að bandarísk al- ríkisyfirvöld væru reiðubúin að fella handtökuskipunina niður fyrir sitt leyti, „enda er fyrirsjáanlegt að við verðum ekki ákærð fyrir neinn refsiverðan verknað á grund- velli alríkislaga," segir í yfirlýsing- unni. Stefán segir að samkvæmt þeim upplýsingum sem ráðuneytið hafi fengið, sé þessi staðhæfing röng, því ekki aðeins séu þau ákærð fyr- ir ólögmæt afskipti af forræði held- ur einnig flótta frá réttvísinni. „Án þess að vilja leggja neinn dóm á efni þessarar yfirlýsingar tel ég það falla undir verksvið banda- rískra stjórnvalda enda hefur bréf- ið ekki borist ráðuneytinu með formlegum hætti.“ Ákvörðun fyrst eftir 4 vikur Héraðsdómur mun úrskurða um hvort skilyrði fyrir framsali sam- kvæmt lögum frá 1984 sé fyrir hendi, og virðist svo vera, kveður hann upp úrskurð þess efnis. Þá er möguleiki að kæra úrskurðinn til Hæstaréttar sem dæma myndi í málinu. „Við erum ekki bundnir af því að framselja þótt að dómurinn segi að skilyrði séu fyrir hendi, en verð- um í kjölfarið að taka ákvörðun um framhaldið. Miðað við þessa máls- meðferð liggur ákvörðun um fram- sal ekki fyrir fyrr en eftir um fjórar vikur. Þegar maður sem dæmdur hafði verið fyrir nauðgun í Finn- landi var framseldur þangað á sín- um tíma tók ferlið þijá mánuði, sem var þó of langur tími að okkar mati,“ segir hann. Ráðuneytinu hefur borist bréf frá nokkrum einstaklingum í Banda- ríkjunum sem æskja þess að Hanes- hjónin fái að vera hér áfram, á þeim forsendum að bandarískt rétt- arkerfi sé óréttlátt. Stefán segir ráðuneytið skoða hverja slíka beiðni en þær geti ekki breytti farvegi málsins lögum samkvæmt. Aðgerðir gegn eyði- merkur- myndun RÍKISSTJÓRNIN ætlar að leita heimildar Alþingis til þess að skrifa undir samning um að- gerðir gegn eyðimerkurmynd- un. Verður samningurinn lagð- ur fyrir Alþingi á yfirstandandi þingi. Samningurínn var gerður í Rio de Janeiro 1992 en hann gekk í gildi nýlega. Samningurinn kveður á um alþjóðiegt samstarf um aðgerðir sem stuðla gegn myndun eyði- marka í heiminum. Tryggvi Felixson, hjá umhverfisráðu- neytinu, segir að samningurinn snúi aðallega að tvennu leyti að íslendingum. í honum er gert ráð fyrir ákveðnu vísinda- legu samstarfí sem íslendingar geta nýtt sér og að hluti þróun- arhjálpar verði notaður sérstak- lega í þessu skyni. Samningur- inn geti því haft áhrif á stefnu- mörkun í þróunarsamvinnu. Tryggvi segir að samningur- inn nái ekki til heimskauta- svæðanna en engu að síður gætu íslenskir vísindamenn not- ið góðs af samstarfmu vegna áætlana og hugmynda um að- gerðir gegn landeyðingu hér á landi. Otaði hnífi að leigubíl- stjóra TILKYNNT var um ölvaðan mann sem lét ófriðlega um klukkan þijú í fyrrinótt við leigubílastæði á Skólavörðu- holti og var beðið um aðstoð lögreglu til að fjarlægja hann. Þegar lögreglan kom á svæð- ið reyndist maðurinn vopnaður hnífi sem hann sveiflaði í kring- um sig og hafði hann meðal annars otað vopninu að leigubíl- stjóra sem þar var. Ófriðarseggurinn var af- vopnaður og færður í fanga- geymslu. Skömmu síðar ók maður, sem grunaður er um ölvun, á ljósa- staur við Reykjanesbraut, skammt frá Blesugróf. Hann var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið, en meiðsli hans voru talin minniháttar. Fjar- lægja þurfti bifreiðina með dráttarbíl. Nefndir þjóðkirkjunnar Karlmenn í miklum meirihluta í ELLEFU af 27 nefndum sem skipaðar hafa verið um málefni þjóðkirkjunnar á síðastliðnum þremur árum eru allir nefndar- menn karlmenn. Konur eru í meirihluta í tveimur nefndum og í einni nefnd eru jafnmargir karlmenn og konur. Formenn nefnda eru í 23 tilfellum karlmenn, konur eru formenn í þremur en í einni er enginn formaður. Þetta kem- ur fram í svari kirkjumálaráð- herra við fyrirspurn Guðnýjar Guðbjörnsdóttur alþingis- manns. Nefndarmenn eru samtals 112 og þar af eru 22 konur. Meirihluta hafa konurnar í Djáknanefnd og Ellimálanefnd og er þar í báðum tilfellum kona formaður. Kona er einnig formaður stjórnar Kirkjugarða- sjóðs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.