Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ INGA JENNÝ ÞORSTEINSDÓTTIR + Inga Jenný Þor- steinsdóttir frá Olverskrossi var fædd 24. apríl 1921. Hún lést á dval- arheimilinu Hraun- búðum, Vest- mannaeyjum 10. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Þórdís Ólafsdóttir, f. 26.8. 1893, d. 27.1. 1970, og Þorsteinn Gunn- laugsson, f. 11.3. 1985, d. 14.10.1958. Þau bjuggu lengst af á Olverskrossi í Kolbeins- staðahreppi, í Snæfells- og Hnappadalssýslu. Af níu börn- um þeirra, sem upp komust, var Inga þriðja í röðinni. Þau eru: Olgeir, Arndís, Fríða, Halldóra Ágústa, Ólafía, Ásta, Sesselja Þorbjörg og Ragnheiður Lilja, og lifa þau öll systur sína. Um tvítugt flutti Inga til Reykjavík- ur og bjó þar lengst af. Síðasta árið bjó hún þó í Vestmannaeyj- um. Fyrri maður Ingu var Óskar Líndal Arnfinnsson matsveinn, f. 7.7.1920, d. 23.11. 1991. Seinni maður Ingu var Svavar Guðjónsson, f. 22.5. 1917, d. 24.11.1973. Inga Jenný eignað- ist sex börn. Þau eru: 1) Sigríður Sæunn Óskarsdótt- ir, f. 2.10. 1942, maki Kjartan Már ívarsson, búsett í Vestmannaeyjum. 2) Steinþór Oskars- son, f. 1.12. 1943, d. 17.9. 1944. 3) Þórdís Óskarsdóttir Kámpe, f. 20.10. 1945, maki Áke Ingemar Kámpe, búsett í Svíþjóð. 4) Jakobína Óskars- dóttir, f. 23.11. 1948, maki Ber- gleif Joensen, búsett í Reykja- vík. 5) Örn Óskarsson, f. 15.12. 1949, búsettur í Noregi. 6) Auð- ur Óskarsdóttir, f. 15.1. 1951, maki Guðmundur Einarsson, búsett á Álftanesi. Barnabörn Ingu eru 15 og barnabarna- börnin 16. Útför Ingu fer fram frá Bú- staðakirkju í dag og hefst at- höfnin kl. 13.30 Ég veit af lind, er líður fram sem ljúfur blær. Hún hvíslar létt við klettastall sem kristal tær. Hún svalar mér um sumardag, er sólin skín. Ég teyga af þeirri lífsins lind, þá ljósið dvín.“ (Hugrún.) Kæru frænkur og frændur. Með fátæklegum orðum langar mig til að minnast góðrar frænku minnar, vinar og móðursystur, Ingu Jennýj- ar Þorsteinsdóttur. Inga var fædd og uppalin á Ölverskrossi í Kolbein- staðarhreppi, ásamt átta syskinum. Inga var mér ekki aðeins góð frænka heldur einnig góður vinur. Að eiga góðan vin eru verðmæti sem einungis verða metin í andleg- um skilningi. í dag er ég einum vini mínum fátækari. Af hveiju skrifa ég minningar mínar niður á blað? Hvaða hvatir og þörf leiðir til þess að ég vil minnast Ingu með þessum hætti? Fyrir mig er það léttir að geta sagt þeim sem þetta les frá því hvernig Inga var mér og mínu fólki nú þegar leiðir okkar skiljast og við kveðjum Ingu frænku hinstu kveðju. Einnig langar mig til þess að koma á framfæri þökkum fyrir samfylgdina, hjálpina og vinsemd- ina í minn garð og fjölskyldu minnar. Mig langar til þess að segja það sem mér fínnst, það sagði mamma mín alltaf. Þetta sagði Inga frænka líka. Á æskuheimili mínu, Vestri- Leirárgörðum í Leirársveit var alla tíð mannmargt. Það var og er einn- ig gestkvæmt enda skyldmenni mörg bæði í föður og móðurætt. Inga frænka var þriðja elst í níu syskina hópi. Hún eignaðist sex börn en missti einn dreng á fyrsta ári. Þessi frændsystkini mín voru tíðir og góðir gestir í Leirárgörðum. Það var alltaf eftirvænting þegar Inga kom því við vissum að hún ætti sælgæti handa okkur sem þá var sjaldgæft að fá í sveitinni. Með okkur systkinunum í Leirár- görðum sem vorum tíu talsins og frændsystkinunum, börnum Ingu, mynduðust missterk vinabönd. Það fór allt eftir aldri. Sum okkar áttu þau að góðum vinum. Aldurinn var mér óhagstæður. En Inga Jenný varð mér sérstök frænka og síðar góður vinur. Hún er sérstök frænka í minni minningu af einni ástæðu sérstaklega. Öll eigum við jólaminningar. Við reynum að_ halda í gömul gildi og góða siði. í minningunni er tvennt sem skóp eftirvæntingu og var vissa þess að jólin voru á næsta leiti. Hið fyrra er sá tími þegar bændur hleyptu hrútunum til ánna og fengi- tíminn hófst í íjárhúsunum rétt fyr- ir jólin. Nýtt líf kviknar. Hitt, sem við systkinin biðum eftir,_var lestur jólakveðja í útvarp- inu. Á Þorláksmessu áttum við allt- af von á jólakveðju frá Ingu Jennýju. Sérstök jólakveðja til heimilisfólksins að Vestri-Reyn, Vestri-Leirárgörðum, Ystu-Görð- um, Heggstöðum, Hraunholtum, Stekkjarvöllum, Hamraendum og Setbergi frá Ingu Jennýju. Þá fyrst þegar við heyrðum kveðjuna lesna vissum við að jólin nálguðust hratt. Að heyra bæjar- nafnið sitt lesið í útvarpinu var merkilegt og sérstakt í mínum huga og gerði Ingu Jennýju merkilega og sérstaka frænku. Eftir að ég hleypti heimdragan- um og stofnaði eigin fjölskyldu fylgdist ég enn með jólakveðjunum. En nú mynduðust ný tengsl á milli okkar Ingu, vinartengsl. Fjölskylda mín og þá sérstaklega Hildur, eldri dóttir okkar, fékk tækifæri til að njóta hlýleika og vinskapar Ingu. 1976 þegar Hildur var fjögurra mánaða og við hjónin bæði í skóla vantaði okkur sárlega dagmömmu fyrir hana. Við færðum þetta í tal við Ingu en hún færðist undan í fyrstu og taldi sig komna úr allri æfingu. Ég fékk dætur hennar, Bínu og Auði, í lið með mér og bað þær að hafa áhrif á hana. Þetta gekk og lét Inga þetta eftir sér sem betur fer fyrir okkur hin. Inga kom reglulega til okkar í Barmahlíðina og passaði Hildi á meðan við sóttum skóla. Nú eignuð- um við okkur sérstakan hlut í Ingu frænku og slepptum honum ekki aftur. Hildur átti alltaf þijár ömm- ur. Við héldum góðu sambandi og glöddumst saman þegar við hitt- umst. Inga kom til okkar til Dalvík- ur þegar Hildur fermdist og var það eins og að fá þriðju ömmuna í heim- sókn. Inga hafði líka eignað sér hlut í okkur. Inga var hreinskilin og opinská og vildi að þannig væri komið fram við sig. Hún var góður vinur vina sinna. Og þegar sjónin myrkvast mín og máttur þver, ég veit, að ljóssins draumadís mér drykkinn ber. Svo berst ég inn í bjartan sal og blessað vor. Þá verður jarðlífsgatan gleymd og gengin spor.“ ' (Hugrún.) Um leið og ég kveð frænku mína og góðan vin vil ég votta frænda, frænkum, Siggu Dæju, Dísu, Bínu, Ödda, Auði, ömmu- og langömmu- bömunm samúð. Megi guð þinn styrkja þig í sorginni en minningin um góðan vin vaka. Sveinbjörn Markús Njálsson. Elskulega systir okkar, við þökk- um þér af heilum hug samveruna og allar glaðar stundir. Þegar við kveðjum þig hinstu kveðju reikar hugurinn eðlilega fram að Krossi. Við minnumst samverustunda okkar í ærslum og leik æskuár- anna. Einnig minnumst við starfa okkar heima á Krossi, gleði og sorga. Lífið er ekki aðeins dans á rósum. Með samhjálp og trúnni á okkur sjálf og guð okkar náum við að sigrast á erfiðleikum og áföllum lífsins. Elsku Sigga Dæja, Dísa, Bína, Öddi og Auður, ykkur og ijölskyld- um ykkar sendum við samúðar- kveðjur og biðjum þess að með sam- hjálp og trúnni á ykkur sjálf og guð ykkar megið þið sigrast á áföllum lífsins. Guð blessi ykkur öll. Systkinin frá Ölverskrossi. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Sigríður, Þórdís, Jakobína, Örn og Auður. Nú er lífsgöngu þinni lokið, amma mín, og þú sofnuð svefninum langa. Umhyggja þín brást aldrei. Við þökkum með kærleik og ást. íris, Sylvía og Einar. J * + Útför elskulegrar móður, tengdamóður og ömmu, BJARNFRÍÐAR SIGURJÓNSDÓTTUR, dvalar- og hjúkrunarheimilinu Seljahlíð, Hjallaseli 55, Reykjavík, er lést þann 26. mars sl., fer fram frá Foss- vogskirkju föstudaginn 4. apríl kl. 15.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Hallgrímskirkju. Þórður S. Gunnarsson, Helga Sigþórsdóttir, Þórunn Helga Þórðardóttir. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalang- amma, KRISTÍN HALLGRÍMSDÓTTIR, Neðri-Rauðalæk, Glæisbæjarhreppi, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 29. mars, verður jarðsungin frá Bægisárkirkju mánudaginn 7. apríl kl. 13.30. Steingrímur Þétursson, Guðbjörn Pétursson, Hulda Kristjánsdóttir, Kristfn Brynjólfsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. + Hjartkær eiginkona mín, KRISTRÚN ÍSLEIFSDÓTTIR, Aðalgötu 21, Stykkishólmi, er látin. Jarðsett verður frá Stykkishólmskirkju laugar- daginn 5. apríl kl. 14.00. Blóm eru afþökkuð, en þeir, sem vildu minn- ast hennar, láti St. Franciskusspitalann í Stykkishólmi njóta þess. Eyjólfur B. Ólafsson. ASTA ÁSBJÖRNSDÓTTIR + Ásta Ásbjörns- dóttir fæddist á Hellissandi á Snæfellsnesi 27. nóvember 1910. Hún lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 23. mars síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Víðistaðakirkju 2. apríl. Nú er hún elsku amma mín dáin. Auð- vitað vissi ég að þessi stund myndi renna upp en það er erfitt að vera undir slíkt búinn. Það er erfitt tii þess að hugsa að hitta hana ekki aftur í þessu lífi og mér þykir einnig leiðinlegt að sonur minn skuli ekki hafa tæki- færi til að kynnast þessari góðu konu. Mér þótti alltaf gaman að heim- sækja hana enda fékk maður alltaf svo hlýjar móttökur. „Nei, ert þetta þú, elskan mín,“ sagði hún þegar ég stakk höfðinu inn í dyragættina hjá henni. Ég er mjög þakklátur fyrir allar þær stundir sem við áttum saman og minningarnar um þær eru mér mjög dýrmætar. Þrátt fyrir að hafa átt við veikindi að stríða síð- ustu árin lét hún sem ekkert væri og í mesta lagi gretti sig aðeins ef ég spurði hana hvort henni liði illa. í síðasta skipti er ég heimsótti hana var hún ekki í herberginu sínu á Hrafnistu eins og vanalega. Ég bjóst við að eitthvað væri að en þá sögðu starfsstúlkurnar á ganginum mér að hún væri niðri við messu. Við feðgarnir fórum þangað til hennar og sátum hjá henni út mess- una. Mér fannst hún dálítið döpur í bragði og ég velti því fyrir mér hvað hún hlyti að sakna afa mikið. En nú eru þau samein- uð aftur á ný og ég veit að þeim líður báð- um vel. Sigfús Magnússon. Þegar leiðin er á enda og gott sam- ferðafólk kveður hrannast gjarnan upp í huganum góðar minningar frá liðinni tíð. Slíkar minningar á ég margar um hana Ástu sem kvödd er í dag og manninn henn- ar hann Sigfús, sem látinn er fyrir nokkrum árum. Ég flutti ung til Hafnarfjarðar í nýtt hús við hliðina á þeim við Hringbrautina sem þá var nýtt hverfi í uppbyggingu. Fyrsta sumarið sem við bjuggum þar var ekki búið að laga lóðirnar við húsin. Sigfús byijaði á að setja nokkrar grasþökur sunnan við hús- ið sitt og þar sat hún Ásta gjarnan í góðu veðri og prjónaði með litla drenginn sinn hjá sér. Hann var á sama aldri og minn sem ég var þá með í sandkassanum við okkar hús. Hún bauð mér þá strax að koma með hann upp á grasið svo að þeir gætu leikið sér saman. Það er óhætt að segja að þeir urðu þá strax vinir og þori ég að fullyrða að sú vinátta-er í fullu gildi enn í dag. Hún eignaðist líka dóttur á sama tíma og ég eignaðist annan son minn og þau léku sér líka sam- an sem börn og voru góðir vinir og enn í dag finnst mér ég eiga smá hluta í þessum tveimur börn- um hennar eins og þegar þau voru lítil. Hún var fyrsta og eina manneskj- an hér í bæ sem ég kynntist og umgekkst utan Ijölskyldu mannsins míns í allmörg ár. Börnin tengdu okkur saman og voru grunnur að vináttu sem entist vel enda þótt sambandið rofnaði nokkuð með ár- unum. Ásta var ákveðin í skoðun- um, raunsæ og hlý í viðmóti og var mér ákaflega góður vinur. Synir mínir fundu það einnig ákaflega vel að hjá henni áttu þeir vísan griða- stað ef á þurfti að halda. Við áttum margar góðar stundir með börnunum heima við húsin eða suður í hrauni og víðar við beija- tínslu og eftirminnilega tjaldferð fórum við austur á Þingvöll og vor- um þar í nokkra daga í frábæru veðri. Ýmislegt fleira gerðum við sem gaman er að minnast og kem- ur fram í hugann í dag. Við byggðum á sama tíma eins hús hlið við hlið við Sléttahraunið og urðum fyrstu íbúarnir þar í göt- unni. Þar áttum við líka margar góðar stundir, bæði meðan staðið var í byggingunni og unnið þar alla frídaga, kaffið haft með og drukkið í félagsskap í hraunbollanum bak við húsin okkar þar sem margt var skrafað um framkvæmdirnar. Yngsti sonur okkar átti líka góðu að mæta, fór oft í heimsókn á neta- verkstæðið til Sigfúsar sem var aðeins innar í hrauninu og bar Sig- fús hann þá gjarnan á háhesti heim aftur þegar hann fór í mat. Þau hjón voru honum afar góð eins og hinum tveimur._ Enn geymi ég fal- legu fötin sem Ásta pijónaði á hann lítinn, en hún var mikil hannyrða- kona og bar heimili hennar því fag- urt vitni. Það er dýrmætt að hafa kynnst og eignast að vinum svo gott og traust fólk eins og þau hjón voru. Þau eiga glæsilegan hóp afkomenda og sendum við þeim öllum innilegar samúðarkveðjur. Við hjónin þökkum þeim báðum, Ástu og Sigfúsi, af alhug fyrir allt það er við áttum saman. Astu þakka ég sérstaklega fyrir hlýju og vin- áttu liðinna ára. Blessuð sé minning þeirra beggja. Elsa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.