Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ s + Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi, HALLGRÍMUR HANSSON húsasmíðameistari, Skaftahlíð 9, Reykjavík, er látinn. Útför hefur farið fram. Jónas Hallgrímsson, Ásdís Haraldsdóttir, Hallgrímur Jónasson, Ólafur Steinn Jónasson, Viktoría Jónasdóttir, Ágústa Jónasdóttir, Agnes Jónasdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, bróðir, afi og langafi, EYJÓLFUR ÁGÚSTSSON bóndi, Hvammi, Landsveit, lést sunnudaginn 30. mars. Jarðarförin auglýst síðar. Guðrún J. Kristinsdóttir, Katrfn Eyjólfsdóttir, Már Jónsson, Ævar Pálmi Eyjólfsson, Kolbrún Sveinsdóttir, Knútur Eyjólfsson, Edda Halldórsdóttir, Selma Huld Eyjólfsdóttir, Jóhann Guðmundsson, Anna Magnúsdóttir, systkini, barnabörn, barnabarnabörn og aðrír aðstandendur. Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, LÓA FANNEY JÓHANNESDÓTTIR, Laugarbrekku, Hellnum, verður jarðsungin frá Hellnakirkju laugardaginn 5. apríl kl. 14.00. Aðstandendur leggja til rútu sem fara mun frá Umferðarmiðstöðinni kl. 9.30. Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, eru beðnir að láta Hellnakirkju njóta þess. Finnbogi G. Lárusson, Helgi Þorkelsson, Reynir Bragason, Jónasína Oddsdóttir, Oddur Þráínsson, Fanney Reynisdóttir, Finnbogi Reynisson. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURJÓN PÁLSSON bóndi, Galtalæk, Rangárvallasýslu, sem lést 30. mars sl., verður jarðsettur frá Skarðskirkju á Landi laugar- daginn 5. apríl kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Slysavarnafélagið eða Krabbameinsfélagið. Sætaferðir frá Bifreiðastöð l’slands kl. 12.00 og frá Fossnesti kl. 13.00. Sigríður Sveinsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur og bróðir, GUÐMUNDUR STEFÁNSSON frá Hólkoti, Reykjadal, Fífuríma 44, Reykjavík, lést þriðjudaginn 1. apríl. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda, Hólmfríður F. Svavarsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, VILHJÁLMUR HALLDÓRSSON, Brekku, Garði, lést þann 1. apríl. Fyrir hönd aðstandenda, Steinunn Sigurðardóttir. GIZUR BERGSTEINSSON + Gizur Berg- steinsson, fyrr- um hæstaréttar- dómari, fæddist á Argilsstöðum í Hvol- hreppi í Rangár- vallasýslu 18. apríl 1902. Hann andaðist í Reykjavík eftir skamma sjúkrahús- legu miðvikudaginn 26. marz síðastlið- inn, tæplega níutíu og fimm ára að aldri. Foreldrar hans voru Berg- steinn Ólafsson, bóndi og oddviti, og Þórunn Isleifsdóttir, húsfreyja á Árgils- stöðum. Gizur kvæntist Dagmar Lúð- víksdóttur árið 1931, og lifir hún eiginmann sinn. Foreldrar hennar voru Lúðvík Sigurður Sigurðsson, útgerðarmaður og kaupmaður á Neskaupstað, og Ingibjörg Þorláksdóttir. Böm þeirra eru Lúðvík, hæstaréttar- Iögmaður, kvæntur Valgerði Einarsdóttur, Bergsteinn, bmnamálastjóri, kvæntur Mörtu Bergmann, Sigurður, sýslumaður, kvæntur Guðrúnu Þóru Magnúsdóttir og Sigríður, meinatæknir. Gizur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1923 og lögfræðiprófi frá Háskóla íslands 1927. Hann stundaði framhaldsnám í lög- fræði í Berlín og Kaupmanna- höfn 1927-28. Gizur starfaði sem endur- skoðandi hjá sýslumönnum og bæjarfógetum 1928-29. Hann Gizur Bergsteinsson, tengdafaðir minn, er látinn, níutíu og fjögurra ára að aldri. Gizur gegndi lengst af starfsævi sinnar háu embætti og var fyrir það þjóðkunnur. Færri þekktu hins vegar manninn bak við embætt- ið. Vil ég því fara örfáum orðum um þann mann er tengdafaðir minn hafði að geyma. Er ég kynntist Gizuri fyrir rúmum þrjátíu árum bauð hann mig, unga var skipaður full- trúi í dóms- og kirkjumálaráðu- neytinu 1929 og settur skrifstofu- stjóri þar 1930 til 1931 og aftur 1934. Hæstaréttardómari var hann skipaður 1935, aðeins 33 ára að aldri. Gegndi hann því starfi allt þar til honum var veitt lausn frá emb- ætti fyrir aldurs sakir árið 1972 eða alls um 37 ára skeið. Hann var formaður ríkisskatta- nefndar 1934-35. Áheyrnarfull- trúi var hann við málaferli Breta og Norðmanna í Haag 1950 um landhelgi Noregs. Hann vann auk þess að undir- búningi fjölda lagafrumvarpa, þ.á m. til hegningarlaga og bif- reiðalaga, til laga um barna- vernd, til laga um meðferð opin- berra mála, til laga um útlend- ingaeftirlit og til laga um Hæstarétt. Auk þess samdi hann frv. til laga um meðferð einka- mála í héraði með skýringum, frv. til laga um loftferðir með skýringum, frv. til laga um Iax- og silungsveiði og frv. til námu- laga. Hann var 1942 skipaður formaður yflrmatsnefndar sam- kvæmt lögum um lax- og silungs- veiði og gegndi því starfi til árs- ins 1990. Hann samdi rit um rétt- arstöðu Grænlands og tímarits- greinar um lögfræðileg efni. Útför Gizurar fer fram frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. konu, velkomna í fjöískyldu sína með virðingu og ljúfmennsku. Af kynnum mínum af fjölskyldu hans varð mér fljótt ljóst að Gizur unni konu sinni Dagmar Lúðvíksdóttur og börnum þeirra afar heitt og lifði farsælu fjöl- skyldulífi. Mér varð jafnframt ljóst að Gizur var einstakur maður. Hann var hæ- verskur og kaus að berast iítið á. Hann sneyddi hjá samkvæmislífi og + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og út- för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGURÐAR SVEINS GUÐMUNDSSONAR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á dvalar- heimilinu Hlíf og Sjúkrahúsi ísafjarðar fyrir ein- staka umönnun og hlýju. Aðalheiður Tryggvadóttir Guðmundur Sigurðsson, Kristín R. Einarsdóttir, Sóley Sigurðardóttir, Heiðar Sigurðsson, Magnús R. Sigurðsson, Ólafur G. Sigurðsson, Gerður Kristinsdóttir, Jón Halldórsson, Einhildur Jónsdóttir, Hafdís Brandsdóttir, Ósk Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Útför eiginmanns míns, ÞORSTEINS BJARNASONAR, Þelamörk 3, Hveragerði, fer fram frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 5. apríl kl. 15.00. Jarðsett verður að Kotströnd. Jóna María Eiríksdóttir, Hrafnhildur Þorsteinsdóttir, Þór Þorsteinsson, Heiðrún Þorsteinsdóttir, Jóhann Grétarsson, Hrönn Árnadóttir. félagsstarfsemi en einbeitti sér þeim mun meir að fjölskyldu sinni og fræðistörfum. Framkoma hans öll einkenndist af einstakri háttvísi bæði við unga sem aldna. Þeim sem samskipti áttu við Gizur Bergsteins- son duldist ekki að þar fór strang- heiðarlegur og rökvís maður. Virð- ing hans fyrir lögum var djúp og mótaði hún líf hans og atferli allt. Af samtölum okkar skildist mér, eftir því sem árin liðu, að hann liti svo á að lögin væru hinar skráðu reglur samfélagsins og í raun grunn- ur þess. Hann sagði það ekki berum orðum en framganga hans bar þess vitni að hann teldi að honum bæri sem heiðvirðum manni að fara eftir lögunum í stóru sem smáu. Með því öðluðust menn sjálfsvirðingu og sýndu samborgurum sínum um leið virðingu. Afstaða hans til hinna óskráðu reglna samfélagsins var svipuð. Þannig virti hann til hins ýtrasta reglur um háttsemi í sam- skiptum fólks. Náunganum sýndi hann ávallt kurteisi með framkomu sinni sem og snyrtimennsku í klæða- burði. Gizur var farsæll maður bæði í einkalífi sem og opinberu lífi. Starf- ið var honum hvort tveggja í senn áhugamál og afkomugrundvöllur. Þar af leiddi að hann varði miklum tíma í lestur fræðibóka. Átti hann mikið bókasafn tengt hugðarefnum sínum. Naut hann í því samhengi mikils skilnings og stuðnings eigin- konu sinnar. Mestum tíma eyddi hann í lestur um lögfræðileg mál- efni en einnig varði hann dijúgum tíma í lestur um íslenska og ger- manska málfræði. Fræðigrein sinni, lögfræðinni, miðlaði hann úr báðum þessum brunnum. Fjölskylda hans og afkomendur nutu einnig góðs af þekkingu hans og áhuga og minnist ég þess á fyrstu hjúskap- arárum mínum er hann lagði fyrir yngri kynslóðina okkar erfið beyg- ingardæmi ísienskrar málfræði til þess að minna á fjölbreytileika málsins. Þá átti hann það til, sem lið í því að auka þroska og skilning yngri kynslóðarinnar að varpa fram spurningum sem ekki síður tengd- ust heimspeki en lögfræði. Gizur átti sér einnig önnur áhugamál en þau sem beinlínis geta talist fræði- leg. Hann gaf sér þó lítinn tíma til þess að sinna þeim vegna anna við störf sín. Frá unga aldri hafði Gizur mikinn áhuga á hestamennsku og útreiðum. Hann var laginn við hesta og væri vilji eða gangur í hesti var við búið að sá hinn sami vaknaði til lífsins og gengi undir honum. Gizur sat vel hest og naut þess að ríða um æskustöðvar sínar í Rang- árvallasýslu langt fram yfir áttræð- isaldur. Hann vildi þó helst viljuga gæðinga og breyttist sú ósk ekkert þótt árin færðust yfir. Segja má að Gizur hafí verið langt á undan samtíð sinni í afstöðu ti! útivistar og hreyfingar. Gekk hann alla tíð mikið og við starfslok setti hann sér að ganga úti helst fimm tíma á dag. Þótt klukkustundunum sem hann gengi fækkaði nú hin allra síðustu ár, stundaði hann göngur allt til hins síðasta eins og kraftar og geta leyfðu. Gizur Bergsteinsson er nú látinn í hárri elli. Fyrir rúmum mánuði fékk hann lungnabólgu sem leiddi hann til dauða. Þrátt fyrir háan ald- ur varð hann þó aldrei gamall í þeim skilningi að hugur hans staðnaði og áhuga hans á málefnum dagsins þryti. Þvert á móti fylgdist hann með í fagi sínu og almennri umræðu allt til hins síðasta. Hann átti því láni að fagna að búa á eigin heimili ásamt eiginkonu sinni og nánustu fjölskyldu til ævi- loka. Hann fylgdist með velferð sér- hvers fjölskyldumeðlims og reyndi að efla og hvetja hvern og einn eins og hann taldi að efni stæðu til. Það er eðli fjölskyldna að til þeirra sé stofnað, þær lifi sinn tíma, leysist síðan upp og nýjar séu myndaðar. Áhrifa mikilhæfra aðila getur þó gætt löngu eftir að þeirra sjálfra nýtur ekki lengur við. Gizur Berg- steinsson var höfuð fjölskyldu sinnar og hafði víðtæk áhrif innan hennar. Afkomendur hans í annan og þriðja lið vaxa nú sem óðast úr grasi. Það væri þeim hollt sem og allri æsku þessa lands að hafa í heiðri þær
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.