Morgunblaðið - 03.04.1997, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 13
Tillaga stjórnar KEA á aðalfundi félagsins
Slj órnarmönnum
verði fækkað um tvo
Margir
aka of
hratt
UM 50 ökumenn hafa síðustu
daga verið kærðir fyrir of
hraðan akstur og segir lög-
reglan að þó að um mikinn
fjölda sé að ræða sé það ekki
einsdæmi að svo margir séu
teknir fyrir að aka of hratt á
þessum árstíma.
Hugsanlega sé um að kenna
batnandi akstursskilyrðum og
„vorfiðringi" sem virðist grípa
suma ökumenn. Lögreglan
verður með radarinn á lofti á
næstunni, svo sem endranær
og bendir því fólki á að varast
að aka hraðar en leyfilegt er
vilji það sleppa við afskipti
lögreglu.
Skákþing
Norðlendinga
á Dalvík
SKÁKÞING Norðlendinga
1997 verður haldið á Dalvík
dagana 3.-6. apríl nk. og er
það Taflfélag Dalvíkur sem sér
um framkvæmd þess. Teflt
verður í Víkurröst og Dalvík-
urskóla.
Keppt verður í opnum
flokki, kvennaflokki, ungl-
ingaflokki og barnaflokki.
Keppni í opnum flokki hefst
fimmtudaginn 3. apríl kl.
20.00 en í öðrum flokkum
laugardaginn 5. apríl kl.
13.00. Hraðskákmót í öllum
flokkum verður kl. 14.00 á
sunnudag en að því loknu
verður verðlaunaafhending og
mótsslit.
Fyrirlestur
um alheims-
hugtök
DR. SUNITA Gandhi segir frá
stofnun sem nefnist Global
Concepts eða Alheimshugtök
í opnum fyrirlestri sem kenn-
aradeild og endurmenntunar-
stofnun Háskólans á Akureyri
efna til föstudaginn 14. apríl.
Fyrirlesturinn verður fluttur
á ensku, í Oddfellowhúsinu við
Sjafnarstíg, og hefst kl. 14.
Leika fjór-
hent á
flygilinn
HELGA Bryndís Magnúsdóttir
og Jónas Ingimundarson leika
íjórhent á nýjan konsertflygil
Akureyringa á tónleikum í
Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju fimmtudagskvöldið 3.
apríl kl. 20.30. Einnig mun
Heljga leika einleik.
A efnisskránni eru eftir
Brahms og Dvorák, valsar og
ungverskir dansar eftir
Brahms og Slavneskir dansar
eftir Dvorák en þetta eru með-
al vinsælustu verka klassískrar
tónlistar og mjög þekkt.
Hraðakstur á
Akureyri
LÖGREGLAN á Akureyri
handtók tvo ökumenn fyrir of
hraðan akstur aðfaranótt
þriðjudagsins.
Þeir óku á 130-140 km
hraða rétt utan við bæinn þar
sem leyfilegur hámarkshraði
er 70 km. Að sögn lögreglu á
Akureyri voru nokkuð margir
teknir fyrir hraðakstur í bæn-
um um páskahelgina.
AÐALFUNDUR Kaupfélags Eyfirð-
inga verður haldinn í Alþýðuhúsinu
á Akureyri nk. laugardag. Fyrir
fundinum liggur tillaga frá stjórn
KEA þess efnis að stjórnarmönnum
félagsins verði fækkað úr 7 í 5 og
að kjörtímabil stjórnarmanna_ verði
eitt ár í stað þriggja ára áður. Áfram
verða 3 varamenn í stjórn sam-
kvæmt iögum.
Samkvæmt tillögunni er gert ráð
fyrir að kosið verði í stjórn KEA
samkvæmt tilnefningu en ekki er
ljóst hvort skipuð verður uppstilling-
arnefnd er tilnefni menn í stjórn.
Verði tillaga stjórnar samþykkt
verður kosið samkvæmt henni í
stjórn á aðalfundinum á laugardag.
Ef hins vegar 20% aðalfundarfull-
trúa æskja þess, fer fram margfeld-
iskosning í stjórn félagsins. Það þýð-
ir að hver fulltrúi hefur yfir að ráða
5 atkvæðum og getur hann þá t.d.
látið einn aðila hafa þau öll.
Skeglusöngur
boðar komu
vorsins
Grímsey. Morgunblaðið.
HÉR áður fyrr þegar mataræði
Grímseyinga var fábrotnara en
nú er og yfir vetrartímann mest
um saltaðan, súrsaðan eða reykt-
an mat biðu menn þess með eftir-
væntingu að fuglinn settist í
bjargið því þá var strax farið að
veiða til að fá nýmeti.
Hjá rótgrónum eyjarskeggjum
er ennþá fylgst með því hvenær
fuglinn sest þótt ekki sé hann
veiddur, að minnsta kosti í sama
mæli og áður fyrr. Nú um pásk-
ana var fréttaritari staddur norð-
ur á „Eyjarfæti" og sá þá að
bjargið er orðið nokkuð setið af
skeglu, múkka og svartfugli.
FIMM ungmenni viðurkenndu við
yfirheyrslur hjá hjá rannsóknardeild
lögreglunnar á Akuipyri í gær að
hafa stolið sjö kössum af áfengi og
fjórum kössum af bjór af flutningabíl.
Lögreglumenn á eftirlitsferð
stöðvuðu för ungmennanna laust
fyrir kl. 6 í gærmorgun vegna gruns
um ölvun við akstur, réttindaleysi
ÞRENNT slasaðist í mjög hörðum
árekstri tveggja fólksbíla við bæinn
Birningsstaði í Ljósavatnshreppi í
S-Þingeyjarsýslu um miðjan dag í
gær. Sjúkraflutningamenn frá Ak-
ureyri fóru á slysstað á tveimur
sjúkrabílum og var fólkið flutt til
aðhlynningar á slysadeild FSA. Þar
fengust þær upplýsingar undir kvöld
að líðan fólksins væri eftir atvikum
góð en það var enn í rannsókn.
Tvennt var í öðrum bílnum en
aðeins ökumaður í hinum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá slökkvistöð-
inni á Akureyri, skullu bílarnir, sem
voru að mætast, saman af miklu
afli og er talið að bílstjórarnir hafi
blindast í kófi af flutningabíl sem
Einnig liggur fyrir fundinum önn-
ur tillaga frá stjórn féiagsins, þar
sem lagt er til að fulltrúum á aðal-
fundi verði fækkað og að seturétt á
aðalfundi hafi 120 fulltrúar í stað
180 eins verið hefur fram að þessu.
Þetta þýðir að á bak við hvern full-
trúa á aðalfundi standi 75 félags-
menn í stað 50 áður en þó hafi aldr-
ei færri en einn fulltrúi frá hverri
deild innan KEA rétt til setu á aðal-
fundi. Þá leggur stjórn KEA til að
inngangseyrir í félagið hækki úr 100
krónum í 500 krónur.
Eins og komið hefur fram skilaði
KEA og dótturfélög um 117 milljóna
króna hagnaði á síðasta ári. Þetta
er rekstrarbót upp á um 161 milljón
króna milli ára en árið 1995 nam
rekstrartapið 44 milljónum króna.
Þessi afkomubati er að mestu leyti
til kominn vegna hagnaðar af sölu
hlutabréfa í Útgerðarfélagi Akur-
eyringa hf. í lok síðasta árs. Tap
Svartfuglinn og skeglan eru frek-
ar seint á ferðinni.
Búast má við að lundinn komi
um 10. apríl. Nú er kominn skeglu-
söngur í björgin og það minnir
Grímseyinga á að vorið er í nánd.
Grímseyingar fylgjast grannt
með fuglalífi og nú nýlega veittu
menn því athygli að flækingsfugl
við akstur og innbrot. í framhaldi
af því gerði rannsóknarlögregla hús-
leit heima hjá einum fimmmenning-
anna en þar fundust sjö kassar af
áfengi og fjórir af bjór. Við yfir-
heyrslur viðurkenndu ungmennin að
hafa stolið veigunum af flutningabíl
sem var að flytja áfengið í útibú
ÁTVR á Akureyri.
þarna var á ferð. Báðir bílarnir eru
taldir ónýtir.
Bíll með klippur slökkviliðsins á
Akureyri var einnig sendur af stað
en honum var fljótlega snúið við
aftur, þar sem ekki kom til þess að
beita þyrfti þeim búnaði. „Við erum
með ágætis búnað til að klippa en
höfum hins vegar engan hentugan
bíl undir hann og okkur er farið að
bráðvanta slíkan bíl. í þessu tilfelli
settum við búnaðinn í einkabíl en
það er mjög slæmur kostur. Einka-
bíll má ekki keyra neyðarakstur og
getur heldur ekki tekið allan þann
búnað sem fylgir klippunum," sagði
Ingimar Eydal, slökkviliðsmaður á
Akureyri.
af reglulegri starfsemi varð 28 millj-
ónir króna í fyrra en tap af reglu-
legri starfsemi árið 1995 var 59
milljónir króna.
Umtalsverð hækkun
hlutabréfa
Hlutabréf í KEA, svokölluð B-
deildarbréf, hafa hækkað umtalsvert
á síðasta ári. Frá því í mars á síð-
asta ári og þar til í byijun mars í
ár hækkaði gengi bréfanna á Verð-
bréfaþingi ísiands úr 2,1 í 4,6 og
nemur hækkunin 119%. Nafnverð
hlutabréfa í KEA er 102,5 milljónir
króna.
Stjórn félagsins gerir tillögu um
það á aðalfundi að gi-eiddur verði
10% arður af nafnverði bréfanna og
að hlutafé verði aukið um 5% með
útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Jafn-
framt er gerð tillaga um að greiddir
verði 6% vextir af stofnsjóði félags-
manna.
var hér á ferð, töldu glöggir
fuglaáhugamenn að um skóg-
arsnípu væri að ræða. Þeir feðgar
Gylfi Gunnarsson og Konráð
Gylfason voru á ferðinni um eyna
fyrir fáum dögum og rákust þá á
sefhænu. Rekur menn ekki minni
til að slíkur fugl hafi áður heim-
sótt Grímsey.
Fegurðardrottning
Norðurlands
Morgunblaðið/Golli
Katrín
*
Arnadóttir
fegurst
KATRÍN Árnadóttir, 19 ára
stúlka frá Akureyri, var kjörin
fegurðardrottning Norðurlands
í keppni sem haldin var í Sjallan-
um á Akureyri síðastliðið mið-
vikudagskvöld. Katrín verður
fulltrúi Norðlendinga í Fegurð-
arsamkeppni Islands sem fram
fer á Hótel Islandi í maímánuði
'næstkomandi. Eva Dögg Jóns-
dóttir varð í öðru sæti og Sól-
veig Helga Zóphaniusdóttir
varð í þriðja sæti. Sólveig Helga
var einnig kjörin besta ljós-
myndafyrirsætan og þá hlaut
hún titilinn „Sportstúlkan ’97“.
Alls tóku tólf stúlkur þátt í
keppninni og völdu þær Hrönn
Bessadóttur vinsælustu stúlk-
una i sínum hópi.
éé^KAUPÞING
NORÐURLANDSHF
-Löggilt verðbréfafyrirtæki
Aðalfundur
Hiutabréfasjóðs Norðurlands hf. 1997
Aðalfundur hlutabréfasjóðs Norðurlands hf. verður
haldinn á Hótel KEA miðvikudaginn 10. apríl nk. og
hefst kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundartörf skv. 12. grein samþykkta
félagsins.
2. Tillaga um breytingu á 2. mgr. 5. greinar þannig
að hún hljóði þannig: Stjórn félagsins erheimilt
að hækka hlutafé félagsins um allt að kr.
493.775.000 með áskrift nýrra hluta, þannig að
heildarhlutafé félagsins verði allt að kr.
500.000.000. Heimild þessi gildi til 10. apríl
2002.
3. Að tilmælum hlutafélagaskrár skal. 1. mgr. 5. gr.,
Hluthafar hafa ekki forkaupsrétt að nýjum hlutum,
heldurskulu þeirseldirá almennum markaði, flutt
í 4. grein samþykkta.
3. Önnur mál löglega fram borin.
Ársreikningur, tillögur og endanleg dagskrá munu
liggja frammi á skrifstofu Kaupings Norðurlands frá
og með 2. apríl.
Akureyri 2. apríl 1997.
Stjórn Hlutabréfasjóðs Norðurlands hf.
Grímseyingar fylgjast með þegar fuglinn sest í bjargið
Morgunblaðið/Hólmfríður
Stálu áfengi og bjór
af fhitningabíl
Harður árekstur í Ljósavatnsskarði
Þrennt á sjúkrahús