Morgunblaðið - 03.04.1997, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Vetrarleik-
ar Glaðs í
Dalasýslu
HESTAÍÞRÓTTADEILD Glaðs í
Dalasýslu hélt sína árlegu vetrar-
leika nýverið. Verðlaunagripir allir
voru gefnir af VÍS og eru leikarn-
ir því kenndir við það félag. Frek-
ar kalt var í veðri og þátttaka
ekki mikil. Keppt var í tölti í fjórum
flokkum og 150 m skeiði með fljót-
andi starti.
Helstu úrslit voru:
Barnaflokkur
1. Auður Guðbjörnsdóttir og Surtur
f. Magnússkógum, 2. Sigvaldi Lár-
us Guðmundsson og Bifröst f.
Hamraendum, 3. Ólafur Andri Guð-
mundsson og Biða f. Eyrarbakka
og 4. Jónfríður Esther Hólm Frið-
jónsdóttir og Hófadynur f. Ásum.
Unglingaflokkur
1. Elvar Ágústsson og Þula f.
Brautarholti.
og 2. Lilja Ágústsdóttir.
Kvennaflokkur
1. Iris Hrund Grettisdóttir og
Drífandi f. Hrappstöðum, 2. Helga
H. Ágústsdóttir og Amor f. Vatni,
3. Monika Backman og Glæðir f.
Engihlíð og 4. Sigrún Sigurðar-
dóttir og Gustur f. Lyngbrekku.
Karlaflokkur
1. Jón Ægisson og Vofa f. Engi-
hlíð, 2. Finnur Kristjánsson og
Reykur f. Garði, 3. Friðjón Guð-
mundsson og Lipurtá f. Ásum, 4.
Skjöldur Orri Skjaldarson og
Lukka f. Þorbergsstöðum og 5.
Harald Ó. Haralds og Gletta f.
Engihlíð.
150 m skeið
1. Lína f. Gillastöðum og Jón
Ægisson, 2. Gýgjar f. Stangarholti
og Skjöldur Örri Skjaldarson og
3. Vofa f. Gillastöðum og Jón
Ægisson.
Þriðjungrir bæjar-
búa á hátíðarfundi
HÁTT í 700 manns hlýddu á bæjarsljórnarmenn á afmælisfundinum.
LÝST kjöri iþróttamanna USÚ fyrir árið 1996.
Höfn - Bæjarstjórnarfundur var
haldinn í íþróttahúsinu laugardag-
inn 22. mars í tilefni 100 ára byggð-
ar á Höfn.
Hátt í 700 manns mættu í húsið,
hlýddu á bæjarstjórnarmenn og
listamenn og drukku að lokum af-
mæliskaffi. Lætur því nærri að
þriðjungur bæjarbúa hafí tekið þátt
í hátíðinni.
Afmælisfundurinn hófst með
söng Karlakórsins Jökuls sem flutti
meðal annars lag Egils Jónssonar,
Homafjörður. Sagði bæjarstjórinn,
Sturlaugur Þorsteinsson, að vel
færi á því að Jökull stigi fyrstur á
svið því Vatnajökull væri jú tákn
okkar og lagði um leið áherslu á
að afmælishátíð á Höfn væri hátíð
allra sýslubúa. Hófst þá fundur
bæjarstjórnar.
Á dagskrá voru tvö mál, úthlutun
styrkja til félagasamtaka og átaks-
verkefnið „ungt fólk í öndvegi -
átak til aldamóta." Samþykkti bæj-
arstjórn að leggja sérstaka áherslu
á fjölþætt átaksverkefni til alda-
móta þar sem hagsmunir unga
fólksins eru settir í öndvegi og
þannig lagður grunnur að farsælli
framtíð Hornafjarðar. Verkefnið
felur meðal annars í sér stuðning
við félagsstarf unglinga, heilsuefl-
ingu, forvarnir í samvinnu við SÁÁ
og eflingu framhaldsnáms heima í
héraði. Þá var og samþykkt að
stofna sérstakan sjóð til styrktar
átaksverkefninu. Skal árlegt fram-
Morgunblaðið/Stefán Ólafsson
TEKINN grunnur að viðbyggingu Hafnarskóla. Á myndinni virða
þeir Árni Stefánsson og Heimir Gíslason fyrir sér framkvæmdir.
lag bæjarins til sjóðsins vera
1.000.000 króna.
Það sem af er afmælisári hafa
Hornfirðingum borist margar veg-
legar gjafír, meðal annars listaverk
o.fl. Á þessum fundi færði Hermann
Hansson, bæjarstjómarmaður og
stjórnarformaður Islenskra sjávar-
afurða, Sýslusafni Austur-Skafta-
fellssýslu 250.000 króna gjöf frá
Islenskum sjávarafurðum sem
renna skulu til sjóminjasafns sem
nú er verið að koma fyrir í gamla
Pakkhúsinu við höfnina. Að loknum
fundi bæjarstjórnar var lýst kjöri
íþróttamanna USÚ og ungt fólk
flutti tónlistaratriði. Áttu bæjarbú-
ar saman notalega stund í íþrótta-
húsinu, ungir jafnt sem aldnir.
Það fór vel á því að þennan sama
dag hófst vinna við viðbyggingu
Hafnarskóla sem undirstrikar enn
betur vilja Bæjarstjórnar Horna-
fjarðar í málefnum unga fólksins.
Aldarafmæli byggðar á Höfn
Morgunblaðið/Davíð
Páskalömb
í Skorradal
ÞEGAR komið var inn í fjárhúsin á
Grund í Skorradal 25. mars hafði
orðið fjölgun því ein áin hafði borið
um nóttina tveim myndarlegum
lömbum, hrút og gimbur. Lömbin
voru hin sprækustu eins og sjá má
á myndinni, systkinin Guðrún og
Guðjón Elías fagna komu þeirra.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
EINN nemenda Andakíls-
skóla nýtur leiðsagnar starfs-
manns Ullarselsins við spuna.
Námskeið í spuna
og flókagerð
Grund - Andakílsskóli hefur undan-
farin ár haft samstarf við Ullarselið
á Hvanneyri um handavinnukennslu.
Hafa starfskonur Ullarselsins kennt
nemendum Andakílsskóla flókagerð
og spuna.
Nemendur hafa unnið bandið og
pijónað úr því.
Smíðar áttæring fyrir kirkju í Norfolk og myllu fyrir landann
Þetta er gefandi
fyrir athafnasemina
Selfossi - „Kallaðu mig bara
gamlan fúskara en ég hef haft
ánægju af því að smíða bátinn
og hver veit nema ég fari í
annan bráðlega," sagði Haf-
steinn Stefánsson, skipasmiður
á Selfossi, sem lauk nýlega við
að smiða metralangt líkan af
áttæringi fyrir prest nokkurn
í Norfolk í Virginíuríki í
Bandaríkjunum en hann var á
ferð hér á landi í fyrrasumar
og langaði að fá áraskip, líkt
því sem hangir uppi í Þorláks-
hafnarkirkju, til að hengja upp
í kirkju sína í Norfolk.
Hafsteinn, sem varð 76 ára
á páskadag, tók að sér smíð-
ina, svona til þess að gleðja
prestinn. Hann er athafnasam-
ur þrátt fyrir aldurinn, lætur
ekki deigan síga við smíðar en
heldur sínu striki og Ieggnr
áherslu á þá skoðun sína að
það eigi að auðvelda eldra fólki
að nýta starfsorku sína á
reynslusviði hvers og eins.
Leikur af fingrum fram
„Maður leikur þetta bara af
fingrum fram. Smíðin byggist
á því að hafa auga fyrirjiví
sem maður er að gera. Eg
miðaði við 7-8 metra langan
áttæring þannig að hann væri
gott sjóskip. Þetta er fyrst og
fremst dægrastytting sem er
gefandi fyrir athafnasemina í
manni sjálfum," sagði
Hafsteinn.
„Ég er lengi búinn að vera
í andstöðu við kararstefnuna
sem ríkt hefur gagnvart
öldruðu fólki og kemur fram
í því að menn eru reknir í
körina 70 ára þó þeir hafi
meiri þekkingu en þeir sem
yngri eru og geti unnið áfram.
Og láti menn sér detta í hug
að vinna er allt hirt af þeim í
skatta. Ég vil minna á það að
eftir sjötugt hafa menn gert
góða hluti og minni á Gunnar
Thoroddsen og Konrad
Adenauer sem unnu stórvirki
eftir sjötugt. Mér finnst að það
megi ekki taka það frá
mönnum vilji þeir starfa og
vera virkir í atvinnulífinu,"
sagði Hafsteinn.
Smíðaði veglega myllu
Fínlegu hlutirnir eru ekki
eingöngu verkefni Hafsteins
því hann er um það bil að ljúka
smíði á veglegri myllu með
myndarlegum spöðum. Allt
virkar fullkomlega eins og á
stórmyllum úti í heimi,
spaðarnir snúast og
mylluhúsið lagar sig eftir
vindáttinni. Myllan er
augnayndi og tilvalin til
skrauts utan dyra. Hafsteinn
leggur áherslu á það að án
aðstoðar góðvinar síns og
staðarsmiðs á Selfossi,
Sigfúsar Kristinssonar
byggingaverktaka, hefði
mylluverkið orðið honum
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
HAFSTEINN Stefánsson með áttæringinn á
stofuborðinu heima hjá sér.
Hafsteinn og Sigfús Kristins-
son við mylluna á verkstæði
Sigfúsar.
ofviða en mylluna smíðaði
hann inni á einu af
verkstæðum Sigfúsar.
Hins vegar er
mylluverkefnið ekki eina
samvinnuverk þeirra félaga
því Sigfús Kristinsson sýndi á
sínum tíma myndarlegt
frumkvæði þegar hann keypti
gamla Landsbankahúsið á
Selfossi og gerði það upp.
Hafsteinn var aðalsmiðurinn í
því verki og húsið hefur um
nokkurra ára skeið verið
staðarprýði við Austurveginn
á Selfossi gegnt
Landsbankaútibúinu á
Selfossi. A sama hátt má gera
ráð fyrir því að myllan verði
staðarprýði hvar sem hún
verður sett niður og góður
vitnisburður um atorku og
snilli þeirra sem eldri eru.