Morgunblaðið - 20.04.1997, Síða 8
8 B SUNNUDAGUR 20. APRÍL 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HEKLA
Rafvirki
Óskum eftir að ráða drífandi og duglegan
rafvirkja til starfa á raftækjaverkstæði
HEKLU.
Starfið felst í viðgerðum og þjónustu á
heimilistækjum s.s. GE, Hotpoint, Kenwood
auk annarra tilfallandi starfa á verkstæði.
Við leitum að ungum og áhugasömum aðila,
sem áhuga hefur á að vaxa í starfi. Ahersla er
lögð á vandvirkni, snyrtimennsku og þægilegt
viðmót. Enskukunnátta er nauðsynleg vegna
mögulegra námskeiða erlendis.
Umsóknarfrestur er til og með 28. mars n.k.
Ráðning verður sem allra fyrst.
Vinsamlega athugið að fyrirspurnum vegna
ofangreinds starfs verður eingöngu svarað
hjá STRA, nánari upplýsingar veitir Guðrún
Hjörleifsdóttir, ráðningarfulltrúi.
Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á
skrifstofunni, sem opin er frá kI.10-16,
en viðtalstímar eru frá kl.10-13.
stráI'gallup
STARFSRÁÐNINGAR
Mörkinni 3,108 Reykjavík Síini: 588 3031, bréfsíini: 588 3044
BHSi- Guðný Harðardóttir
strax
Hagkaup Eiðistorgi óskar eftir að ráða vanan
matreiðslumann til starfa. Æskitegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar veitir verslunarstjóri á
staðnum eða í síma 561 2000.
Hagkaup Grafarvogi óskar eftir að ráða
kjötiðnaóarmann eða mann vanan vinnu vió
kjötborð og afgreiðslu. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar veitir verslunarstjóri á
staðnum eða í síma 567 6760.
HAGKAUP HF var stofnað árið 1959 í gamalli hlöðu við
Miklatorg. HAGKAUP hefur frá upphafi verið
brautryðjandi i verslunarháttum á íslandi og um árabil
haftforystu um fjölmargar nýjungar til hagsbóta jyrir
neytendur. í dag rekurfélagið 10 matvöru- og
sérvöruverslanir i Reykjavik, Njarðvík, Garðabæ og á
Akureyri. Starfsmenn félagsins eru um 1200 og hefur
HAGKAUP leitast við að ráða hæfa starfsmenn og gefa
þeim kost á að þroskast og dafna í starfi. Helsta
markmið HAGKAUPS er að bjóða neytendum góða
þjónustu og góðar vörur á góðu verði.
HAGKAUP
Bænda-
samtökin
Bændasamtök íslands óska eftir að
ráða starfsmann.
Starfssvið:
Vera stjórn og framkvæmdastjóra til
aðstoðar og ráðgjafar um hagræn
málefni, kjaramál og rekstur í landbúnaði.
Annast hagfræðilega útreikninga.
Hafa samskipti við innlend og erlend
hagsmunasamtök og stofnanir, einkum
um kjara- og viðskiptamál. Annast ýmis
önnur verkefni og útreikninga fyrir
framkvæmdastjóra.
Menntun:
Háskólapróf í hagfræði, viðskiptafræði
eða rekstrarfræði. Æskilegt er að við-
komandi hafi þekkingu á landbúnaðar-
málefnum.
Starfið gerir kröfur um ögun og sjálf-
stæði í vinnubrögðum.
Upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir
til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf.
merktar „Bændasamtökin 178"fyrir
26. apríl n.k.
Hagvangur hf
Skeífan 19
108Reykjavík
Sími: 581 3666
Bréfsími: 568 8618
Netfang:
hagvang@tir.skyrr.is
Veffang:
http://www.apple.is
/hagvangur
HAGVANGUR RADNINGARÞIÚNUSTA
Rétt þekking á réttum tíma
-fyrír rétt fyrírtæki
IÐNSTÝRINGAR
F0RRITUN
AKUREYRI
Traust verkfræðistofa á Akureyri óskar eftir að
ráða rafmagnsverkfræðing, rafmagnstækni-
fræðing eða tölvunarfræðing.
Starfssvið
• Uppsetning og forritun á skjástýrikerfum og
nettengingum PC og PLC véla.
Samskiptaforritun við iðntölvur o.fl.
• Æskileg reynsla af Windows NT, DDE og
forritun í C/C++.
í boði er áhugavert starf og laun eru
samkomuiag.
Hægt er að bíða eftir rétturrí aðila.
Með umsóknir og fyrirspurnir verður farið sem
trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar veita Jón Birgir Guðmundsson
eða Torfi Markússon hjá Ráðgarði I síma 533
1800.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs fyrir 29. apríl n.k.
RÁÐGARÐURhf
SIjCRNUNAROGREKSIRARRteGlfCX1
Furugertl 8 108 Reykjaelk Stml 533 1800
Faxt 933 1808 Notfang: rgmldlunNtroknot.lt
HolmasfAa: http://orww.troknot.lo/radgardur
Sjóntækjafræðingur
óskast
PROFIlXWlPTIK
GLERAUGNAMIÐSTÖÐIN
Laugavegi 24, sími 552 0800.
Hornafjörður
Fræðslu- og menningarsvið
Lausar stöður við
Grunnskóla
Hornafjarðar
Eftirfarandi stöðurvið Grunnskóla Hornafjarð-
ar eru lausar til umsóknar:
Mýraskóli
Skólastjóra og kennara vantar við Mýraskóla
í Hornafirði. Mýraskóli er lítill samkennsluskóli
á Mýrurn, u.þ.b. 30 km frá þéttbýliskjarnanum
á Höfn. í Mýraskóla ferfram kennsla barna í
1.—7. bekk. Húsnæði skólastjóra er í nýlegu
einbýlishúsi steinsnarfrá skólahúsnæðinu.
Nesjaskóli
Staða skólastjóra Nesjaskóla er laustil um-
sóknar.
Kennara vantar til almennrar kennslu og sér-
kennslu.
í Nesjaskóla ferfram kennsla í 1.—3. bekk.
Hafnarskóli
Staöa handmenntakennara.
í Hafnarskóla fer fram kennsla í 4.-7. bekk.
Heppuskóli
Almenn kennsla.
í Heppuskóla fer fram kennsla í 8.—10. bekk.
Nánari upplýsingar veitir Hallur Magnússon
í síma 478 1500 og Stefán Ólafsson í síma
478 1348.
Hornafirði, 18. apríl 1997.
Bæjarstjóri Hornafjarðar.
Stuðlar
— meðferðarstöð fyrir unglinga —
Dagskrárstjóri
— húsvörður
Meginverkefni dagskrárstjóra er dagleg verk-
stjórn á meðferðardeild fyrir unglinga. Dag-
skrárstjóri samræmir störf hópstjóra og ráð-
gjafa og skipuleggur meðferðardagskrá.
Við erum að leita að einstaklingi með BA/BS
próf, eða frekari menntun, á félags-, sálar-,
heilbrigðis- eða uppeldissviði, með reynslu
af starfi með unglingum eða öðru meðferðar-
starfi. Góð skipulagsgáfa og lipurð í mannleg-
um samskiptum eru mikilvægir eiginleikar.
Starf hefst 1. júlí nk.
Verkefni húsvarðareru einkum almenn hús-
varsla, umsjón og eftirlit með munum stofnun-
arinnar, umsjón með bifreiðum og viðhaldi
þeirra, akstur og útréttingar, auk ýmissa ann-
arra verkefna sem til falla í daglegri starfsemi.
Við erum að leita að laghentum og fjöihæfum
einstaklingi með iðnmenntun eða aðra sam-
bærilega hæfni og reynslu. Hæfni og lipurð
í mannlegum samskiptum eru og mikilvægir
eiginleikar. Starf hefst 1. júlí nk.
Laun skv. launakerfi ríkisins.
Nánari upplýsingar veitirforstöðumaður í síma
567 8055.
Umsóknir beristtil Stuðla, Fossaleyni 17,112
Reykjavík, fyrir 6. maí nk.
Forstöðumaður.
Matsveinar!
Matsveinn óskast nú þegar að veitinga- og
staðskyndistað á landsbyggðinni.
Umsóknir með upplýsingum um nafn , síma
og fyrri störf berist afgreiðslu Mbl merkt:
„P - 676" fyrir 26. apríl nk.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Öllum umsóknum svarað.